Morgunblaðið - 13.04.1989, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
Hliðarstýri brotnaði af Concorde-þotu:
Flugstjórinn hafði
ftillt vald á þotunni
Sydney. Reuter.
HELMINGUR hliðarstýris Concorde-þotu brezka flugfélagsins Brit-
ish Airways brotnaði af í gær er hún flaug með næstum tvöföldum
hraða hljóðsins frá Nýja Sjálandi til Ástralíu. Er það fyrsta alvar-
lega óhappið í sögu Concorde-þotunnar, sem flogið var fyrst fyrir
20 árum og verið hefur í áætlunarflugi í rúm 13 ár. Um borð í
þotunni voru 100 Bandarílgamenn í hnattflugi.
Flugvélin var nýfarin frá Christ-
church á Nýja Sjálandi og var kom-
in í 44.000 feta hæð er atvikið átti
sér stað. „Ég heyrði smáhvell og
hélt að við hefðum flogið á eitt-
hvað, en hvernig mætti það vera í
þessari flughæð? Ég hafði enga
vísbendingu um hvað hafði gerzt
og hélt því áfram eins og ekkert
hefði í skorizt. Það var fyrst í að-
flugi til Sydney í Ástralíu, rúmri
klukkustund síðar, að þotan titraði.
Hristingurinn hætti eftir tvær til
þijár mínútur og hún flaug mjög
eðlilega. Ég hafði fullt vald á flug-
vélinni, lenti henni eins og ekkert
hefði í skorizt, og fékk það aldrei
á tilfínninguna að farþegamir væm
í hættu. Þess vegna brá mér þegar
ég sá hvers kyns komið var,“ sagði
David Leney, flugstjóri, við komuna
til Sydney.
Hliðarstýri Concorde-þotunnar er
tvískipt og brotnaði nær allur efri
hluti þess, sem er um hálfur fer-
metri að stærð. „Við beitum hliðar-
stýrinu frekar lítið á flugi og þar
sem neðri hluti þess starfaði eðli-
lega gekk flugið eðlilega fyrir sig,“
sagði Leney flugstjóri, sem flogið
hefur Concorde-þotum í 13 ár. „En
það er alvarlegt mál þegar stykki
brotnar af flugvél," sagði Leney.
Hann taldi ólíklegt að um málm-
þreytu væri að ræða.
Flugumferðarstjórar á flugvellin-
um í Sydney sáu í sjónauka þegar
þotan nálgaðist að hluti hliðarstýris
hafði brotnað af henni og gerðu
ráðstafanir eins og um nauðlend-
ingu yrði að ræða. Sögðu þeir flug-
stjóranum þó ekki að stykkið vant-
aði fyrr en eftir lendingu.
Þotan er yngst Concorde-þotna
British Airways; tíu ára gömul og
hefur flogið um 10.000 flugstundir.
Varahlutir og viðgerðarmenn vom
sendir með Boeing-747 þotu frá
London til Ástralíu í gær og var
vonast til að viðgerð yrði lokið svo
Concorde-þotan gæti haldið hnatt-
fluginu áfram á morgun, föstudag,
samkvæmt áætlun. Bandaríkja-
mennimir borguðu um 40.000 doll-
ara hver, jafnvirði 2,2 milljpna ísl.
króna, fyrir ferðina. Frá Ástralíu
liggur leiðin til Colombo á Sri
Lanka, Mombasa í Kenýu og
Monróvíu í Líberíu. Lýkur ferðinni
í London 23. apríl nk.
Ö~B0
Reuter
Concorde-þotan eftir lendingu í Sydney. Eins og sjá má hefur efri
helmingur hliðarstýrisins brotnað af.
Bretland:
Japanir hafa áhuga á kjamorkuveri
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
JAPANSKIR iðjuhöldar hafa fjórum sinnum komið til viðræðna
við forráðamenn og vísindamenn í kjarnorkuverinu í Dounreay.
Forráðamenn þess leita allra leiða til að selja þá tækni og þekk-
ingu, sem er í Dounreay, að því er segir í The Sunday T'imes
sl. sunnudag.
Forráðamenn Dounreay gera
kunnugt nú í vikunni samninga
við innlenda og erlenda aðila, sem
nema milljónum punda. Þeim
hefur tekizt að koma á markað
miklu af þeirri starfsemi, sem
verið hefur í Dounreay og ekki
lýtur beinlínis að kjarnorkunni.
Á síðasta ári hafa japanskir
iðjuhöldar fjórum sinnum komið
til Dounreay til viðræðna við forr-
áðamenn þar. Þangað hafa kom-
ið menn frá Toshiba, Hitachi og
Mitsubishi. Þeir hafa látið í ljósi
áhuga á ranrisóknum, sem gerðar
hafa verið þar á eldiskjamakljúfi.
í júlí á síðasta ári ákváðu brezk
stjómvöld að hætta við þessa
rannsóknaráætlun og kjama-
kljúfurinn hætti starfsemi um
miðjan næsta áratug.
Kjamorkurannsóknarráð Jap-
ans, PNC, hefur átt samstarf við
Brezka kjarnorkuráðið. Yfírvöld
í Japan hafa ákveðið að halda
áfram rannsóknum á eldiskjarna-
kljúfum vegna orkuskorts í
landinu. í Japan hefur það lengi
tíðkazt að einkafyrirtæki legðu
kjarnorkurannsóknarráðinutil fé.
AÐEINS I NOKKRA DAGA
VIÐ RÝMUM TIL OG SELJUM ÚT SÍÐUSTU EINTÖK AF ÝMSUM HÚSGÖGNUM.
EINNIG VERÐA ÝMSAR VÖRUR Á TIÐBOÐSVERÐI.
\run!J iir
SUÐURLANDSBRAUT 22 ■ SÍMI 36011