Morgunblaðið - 13.04.1989, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
Baskar hefla skæru-
hernað á ný á Spáni
Madríd. Reutdh
ENRIQUE Mugica Herzog, dómsmálaráðherra Spánar, var sýnt ban-
atilræði í gær þegar honum barst bréfsprengja frá skæruliðum úr
aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA. Öryggisverðir í dómsmálaráðu-
neytinu sáu hvers kyns var og tókst þeim að gera sprengjuna óvirka.
Fyrr um daginn skutu skæruliðar þjóðvarðliða til bana skammt frá
Bilbao. Þetta er fyrsta morðið sem aðskilnaðarsinnar fremja á þessu
ári. Lögreglan óttast að ný hryðjuverkaalda sé í uppsiglingu á Spáni
eftir að friðarviðræður fúlltrúa ETA og spænsku ríkisstjórnarinnar
sigldu i strand í síðustu viku.
Sjö bréfsprengjur hafa fundist ætluð Jose Barrionuevo, sam-
undanfama daga og var ein þeirra göngumálaráðherra Spánar, sem
Viðskipti Finna og Sovétmanna:
Sj ónvarpsviðræðum
ráðamanna frestað
Helsínkl. Frá Tom Kankkonen, fréttaritara
HARRI Holkeri, forsætisráð-
herra Finnlands, hefúr óvænt
frestað viðræðum við aðstoðarut-
Ungverjaland:
Harðlínu-
menn reknir
Búdapest. Reuter.
Hugmyndafræðingi ung-
verska kommúnistaflokksins og
einum æðsta ráðamanni i fram-
kvæmdasfjórn flokksins var i
gær vikið úr stjómmálaráðinu.
Er nú svo að sjá sem umbóta-
sinnamir hafi töglin og hagldirn-
ar í kommúnistaflokknum.
Á lokuðum fundi miðstjómarinn-
ar var §órum mönnum vikið úr
stjómmálaráðinu, þeim Janos
Berecz, hugmyndafræðingi komm-
únistaflokksins, Janos Lukacs, sem
borið hefur ábyrgð á innra skipu-
lagi flokksins, Istvan Szabo og Jud-
it Csehak heilbrigðisráðherra.
í stjómmálaráðinu voru áður 11
menn en verða nú níu og var Ka-
roly Grosz endurkjörinn aðalritari
þess. Þeir, sem komu nú inn, eru
þeir Mihaly Jasso, formaður komm-
únistaflokksins í Budapest, og Pal
Vastagh, leiðtogi flokksins í
Csongrad-héraði. Eru þeir báðir
umbótamenn.
ERLENT
Morgunblaðsins.
anríkisráðherra Sovétríkjanna
en ákveðið hafði verið að þeir
ræddu saman í beinni sjónvarps-
útsendingu næsta laugardag.
Þeir Harri Holkeri og Vladímír
Kamentsjev hugðust ræða þann
margvíslega vanda sem einkennt
hefur viðskipti Finnlands og Sov-
étríkjanna í gegnum tíðina. Holkeri
fer fyrir fulltrúum Finna í finnsk-
sovéska verslunarráðinu en Kam-
entsjev er aðalsamningamaður Sov-
étstjómarinnar.
Sovétmenn höfðu búið sig vand-
lega undir sjónvarpsviðræðurnar og
höfðu fleiri sovéskir embættismenn
lýst sig reiðubúna til að taka þátt
í þeim. Sú ákvörðun Finna að fresta
umræðunum kom mjög á óvart en
Harri Holkeri, sem nýverið tók við
formennsku í verslunarráðinu af
hálfu Finna, kvaðst vilja ræða eins-
lega við Kamentsjev áður en við-
ræðum þeirra yrði varpað beint og
milliliðalaust inni í stofu til alþýðu
manna í Finnlandi.
Viðskipti Sovétmanna og Finna
eru ótæmandi umræðuefni. Nýjar
reglur um fyrirkomulag utanríkis-
viðskipta í Sovétríkjunum hafa
ruglað fínnska útflytjendur í ríminu
en samkvæmt perestrojku Míkhaíls
Gorbatsjovs hafa einstök sovésk
fyrirtæki nú fijálsari hendur á vett-
vangi utanríkisviðskipta en áður.
Helsti vandinn í viðskiptum þjóð-
anna hefur verið sá ójöfnuður sem
ríkt hefur en Finnar telja Sovét-
menn ekki geta boðið viðunandi
útflutningsvörur. Finnar flytja eink-
um inn hráolíu frá Sovétríkjunum
en Sovétmenn hafa keypt margvís-
legan vaming, verktakaþjónustu
o.fl. frá Finnum.
áður gegndi embætti utanríkisráð-
herra. Tvær þeirra hafa spmngið
en manntjón hefur ekki orðið af
þeirra völdum.
Fulltrúar þjóðvarðliðsins kváð-
ust hafa handtekið sjö manns sem
grunaðir eru um að hafa verið í
vitorði með skæruliðum í Baska-
héruðunum.
í yfírlýsingu frá ETA sem birt
var í dagblaði Baska, Egin, var
fólk varað við því að opna önnur
bréf en sín eigin auk þess sem því
var lýst yfír að frá deginum í dag,
fímmtudegi, til laugardags, mætti
vænta sprengjutilræða við jám-
brautarleiðimar milli Madríd og
Sevilla og Madríd og Valencia.
Sveitir þjóðvarðliða hófu þegar að
leita að sprengjum við járnbraut-
arleiðimar.
Skæruliðar ETA hafa barist
fyrir sjálfstæði Baskahéraðanna í
21 ár. Þeir hafa sakað stjómvöld
um að ganga á bak orða sinna
um pólitíska lausn á deilumálum
þeirra. Spænska ríkisstjórnin hef-
ur lýst því yfír að um pólitíska
samninga verði ekki að ræða.
Fjöldagröffinnst í Mexíkó
Reuter
Þessi fjöldagröf fannst í Mexíkó, skammt frá landamærunum að
Bandarikjunum, á sunnudag og í henni voru 12 fórnarlömb djöfla-
dýrkenda sem viðriðnir eru eiturlyflasmygl. Lögreglan í Mexíkó
fann líkin þegar hún var að leita að eiturlyflum í búgarði 30 km
vestur af borginni Matamoros. Fjórir menn sem áttu búgarðinn
eru í haldi lögreglu og er talið að fleiri verði handteknir. Tveir
þeirra handteknu voru Bandaríkjamenn að sögn lögreglustjóra í
Texas. Lögregluyfirvöld sögðu að djöfladýrkendur, sem grunaðir
eru um smygl, hafi fóraað mönnunum tólf til að tryggja að starf-
semi þeirra gengi áfallalaust. Meðal fóraarlambanna var 21 árs
bandariskur háskólanemi sem hvarf 15. mars og hafði víðtæk
leit verið gerð að honum.
Kosningar til Evrópuþingsins í Frakklandi:
Ágreiningur um sameiginlegt
framboð borgaraflokkanna
Tner. Frá Steingrími Sigurgeirssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
HARÐAR deilur hafa undanfaraa daga blossað upp innan borgara-
legu flokkanna í Frakklandi. Orsök þessara deilna er ágreiningur
um hveraig standa eigi að sameiginlegu framboði stjórnarandstöðu-
flokkanna, þ.e. flokkabandalagsins UDF og flokks ný-gaullista, RPR,
í kosningum til Evrópuþingsins sáðar á þessu ári.
Ekki er ágreiningur um að flokk- legu flokkanna er hversu sundur-
amir eigi að bjóða fram sameigin-
lega. Þann 5. apríl sl. var birt opin-
berlega yfirlýsing frá báðum flokk-
unum um sameiginlegt framboð
sem bar yfírskriftina „Metnaður
fyrir Frakkland — Metnaður fyrir
Evrópu“ þar sem flokkamir gera
grein fyrir sameiginlegum stefnum-
iðum sínum í Evrópumálum. Vanda-
málið er hins vegar að koma saman
lista sem allir flokkamir og flokka-
brotin á borgaralega vængnum geta
sætt sig við. Hefur það reynst hæg-
ara sagt en gert.
Eitt helsta vandamál borgara-
lyndir þeir em. Sósíalistar áttu við
sama vandamál að stríða allt fram
á síðasta áratug en nú eru öll þeirra
flokkabrot sameinuð í einum flokki
undir forystu Francois Mitterrands,
Frakklandsforseta. Borgarlegu
flokkamir geta hins vegar ekki stát-
að af hinu sama. Til dæmis sam-
anstendur UDF af fyölda smáflokka
og eru þeir tveir stærstu miðju-
flokkurinn CDS og Repúblikana-
flokkurinn. Eiga þeir oft lítið sam-
eiginlegt. Hins vegar er svo flokkur
ný-gaullista, RPR, undir forystu
Jacpues Chiracs, fyrrum forsætis-
„Lífsbjörg í norðurhöfum“ í norska sjónvarpinu:
Upplýsingar um efnahagsleg
skemmdarverk vekja athygli
YOD CODLD STOPICELAKD
SUDGHTERING WHALES JDST BY TELLIMG THD
WHAT TO DO WITH THEIB FISH.
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
MAGNÚS Guðmundsson, höfúndur myndarinnar „Lífsbjargar i
norðurhöfum" vakti mikla athygli í umræðuþætti, sem haldinn
var að lokinni sýningu myndarinnar í fyrrakvöld, þegar hann
sagði frá og sýndi bréf með áætlunum grænfriðunga um efnahags-
leg skemmdarverk í Noregi. Áttu fúlltrúar grænfriðunga nyög
í vök að veijast í þættinum þótt þeir tækju fram í fyrir Magnúsi
i hvert sinn sem hann reyndi að opna munninn.
Myndin „Lífsbjörg í norður-
höfurn" var að hluta sýnd í norska
sjónvarpinu í fyrrakvöld, í þættin-
um „Antenne Ti“, og að sýning-
unni lokinni var umræðuþáttur í
beinni útsendingu. Kom þá til
harðra orðaskipta milli þeirra
Magnúsar og Jacobs Lagerkrantz,
formanns sænskra grænfriðunga,
og reyndu þeir Lagerkrantz og
norski grænfriðungurinn Pál
Bugge að þagga niður í Magnúsi
í lokin þegar hann skýrði frá inni-
haldi bréfsins.
Bréfið, sem Michael Gylding
Nielsen, forystumaður danskra
grænfriðunga, sendi yfirmanni
Greenpeace á alþjóðavettvangi er
merkt sem „algert trúnaðarmál"
en í því er lagt á ráðin um hvem-
ig skaða megi olíuviðskipti Norð-
manna, ferðamannaiðnað og sjáv-
arútveg. Jacob Lagerkrantz viður-
kenndi, að hann vissi um þetta
bréf en sagði, að það væri nokk-
urra ára gamalt. Sagði hann enn-
fremur, að innan Greenpeace
væri alvanalegt að ræða um að-
gerðir sem þessar.
Á blaðamannafundi, sem græn-
friðungar efíidu til í Ósló í gær,
sagði Lagerkrantz, að nú yrði
Magnús Guðmundsson að leggja
sannanimar á borðið, síðan skyldu
þeir koma með sín gagnrök og fá
þriðja aðila til að skera úr um
hvað væri rétt. Þeir Magnús og
Lagerkrantz hittast öðru sinni á
þriðjudag í næstu viku í aðalstöðv-
um sænska sjónvarpsins. Þá verð-
ur tekinn upp umræðuþáttur, sem
sýndur verður að lokinni sýningu
myndarinnar 2. maí nk.
Á blaðamannafundinum kvaðst
Lagerkrantz hafa áhyggjur af, að
„Lífsbjörg í norðurhöfum" gæti
Reuter
Auglýsing frá grænfriðungum,
sem birtist í blaðaauka The
Sunday Times sl. sunnudag. í
henni er fólki bent á að kaupa
ekki vörur frá fyrirtækjunum
Birds Eye og Tesco, stærstu
kaupendum íslensks fisks í
Bretlandi, til að þrýsta á íslend-
inga um að hætta hvalveiðum.
skaðað Greenpeace á Norðurlönd-
um en taldi ekki ástæðu til að
óttast, að myndin yrði sýnd um
heim allan.
ráðherra og borgarstjóra Parísar.
Ef borgaralegu flokkamir vilja
bjóða sósíalistum birginn neyðast
þeir til að standa saman sökum
þess hvernig franska kosningakerf-
ið er byggt upp.
Alain Juppé, formaður RPR, og
Francois Létorard, formaður Repú-
blikanaflokksins, Iögðu því til að
Valéry Giscard d’Estaing, fyrrum
Frakklandsforseti, og núverandi
formaður UDF, yrði í forystu fyrir
lista stjómarandstöðunnar. Þetta
gátu miðjumenn í CDS ekki sætt
sig við og fékk formaður flokksins,
Pierre Méhaignerie, til liðs við sig
áhrifamenn úr Repúblikanaflokkn-
um og PRR. Olli það titringi í for-
ystu RPR að meðal þeirra voru
yngri þungavigtarmenn á borð við
Michel Norr, fyrrum viðskiptaráð-
herra og borgarstjóra Lyon,
Philippe Séguin, fyrrum félags-
málaráðherra, og Alain Garignon,
fyrrum umhverfísráðherra og borg-
arstjóri Grenoble. Hafa þeir verið
nefndir „endumýjunarsinnamir“,
og barist fyrir því að Evrópukosn-
ingarnar verði notaðar til að end-
umýja hugmyndir og starfsaðferðir
stjómarandstöðunnar. í stað Gis-
cards lögðu þeir til að Noir, Dom-
inique Baudis (CDS), borgarstjóri
Toulouse, og Simone Veil, fyrrum
forseti Evrópuþingsins, yrðu efstir
á listanum. Þetta gat forysta RPR
ekki sætt sig við og var fyrir-
huguðum flokksráðsfundi RPR,
sem halda átti 20. apríl, flýtt. Hann
var haldinn sl. laugardag og
greiddu þar 87% fulltrúa atkvæði
gegn endumýjunarsinnunum.
Alain Juppé, formaður RPR,
ítrekaði stuðning sinn við Giscard
í viðtali á sjónvarpsstöðinni An-
tenne 2 á mánudagskvöld og end-
urnýjunarsinnamir halda áfram að
vinna að sínum málstað. Það verður
því enn um sinn óljóst hvernig stað-
ið verður að framboði borgaralegu
flokkanna til Evrópuþingsins en
skoðanakannanir benda til að al-
menningur sé hallur undir skoðanir
endumýjunarsinna og þá ekki síst
kjósendur borgaralegu flokkanna.