Morgunblaðið - 13.04.1989, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
29
Námskeið
fyrir verð-
andi foreldra
NÁMSKEIÐ fyrir verðandi for-
eldra heQast í félagsheimilinu
Gerðubergi í Breiðholti, Árseli
í Árbæjarhverfi og Fjörgyn í
Grafárvogi upp úr miðjum
þessum mánuði. Námskeiðin
eru á vegum tveggja ljósmæðra
og er þeim skipt í tvo flokka,
a- og b-námskeið. Heildartími
hvors námskeiðs um sig verður
14 tímar, sem dreifast á 7 vikur.
í kynningarbréfi frá ljósmæðr-
unum Guðrúnu Ólöfu Jónsdóttur
og Hrefnu Einarsdóttur segir
meðal annars: „Við munum sníða
þessi námskeið eftir fyrirmynd
þeirra Sheilu Kitzinger og Michel
Odent, en þau halda ákaft fram
gildi „náttúrulegrar fæðingar" að
því tilskyldu, auðvitað, að með-
ganga sé eðlileg og móðirin full-
komlega heilbrigð. Aðferð þeirra
byggir á þeirri forsendu að for-
eldrarnir sjálfir verði virkari þátt-
takendur í undirbúningi fæðingar-
innar og í fæðingunni sjálfri, sem
væntanlega er einn stærsti at-
burður í lífi hvers og eins.“
Efni námskeiðanna er skipt í 7
meginþætti: 'Fijóvgun og fóstur-
þroski, daglegir lifnaðarhættir,
aðdragandi fæðingar, fæðingin,
litskyggnur og gangur fæðingar,
sængurlega og að fæðingu lok-
inni. Hver meginþáttur skiptist
niður í nokkra sérþætti.
Tvöföld söfti-
un í Dalasýslu
Búðardal.
Lions félagar fóru um Dalasýslu
og seldu rauðu Qöðrina, eins og
félagar þeirra annars staðar á
Kvenfélagskonur voru að safna til
styrktar fyrir 13 ára stúlku héðan
úr Dölum sem er búin að vera sjúkl-
ingur frá fæðingu, en er nú farin
til Bandaríkjanna í þeim tilgangi
að fá grætt í sig nýra. Það er
móðurbróðir stúlkunnar sem gefur
henni sitt annað nýra.
Sýslubúar í Dalasýslu tóku þess-
um söfnunum vel og sýndu þá sam-
stöðu sem fólk býr yfir þegar að
mest á reynir.
- Krístjana
Borgfirðingavaka;
Sýning í sam-
komuhúsinu í
Borgarnesi
Borgfirðingavaka hefst að
kvöldi föstudagsins 14. apríl.
Verður þá opnuð sýning í sam-
komuhúsinu í Borgarnesi á
verkum tveggja borgfirskra
listamanna, en það eru þeir
Einar Ingimundarson frá Bor-
garnesi sem sýnir olíumálverk
og Páll Guðmundsson frá Húsa-
felli sem sýnir myndir úr grjóti.
Sýningin stendur yfir í rúma
viku og verða listaverkin til sölu.
Laugardaginn 15. apríl verður
söngskemmtun í Logalandi, þar
koma fram samkórinn Björk úr
Austur-Húnavatnssýslu og sam-
kór Hvanneyrar.
Sunnudaginn 16. apríl verður
kvöldvaka á Hlöðum á Hvalljarð-
arströnd og verða þar ýmis heima-
fengin skemmtiatriði. Þriðjudag-
inn 18. apríl verður spurninga-
keppni milli Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslna í Lyngbrekku og
fleira verður þar á dagskrá.
Leiðrétting
landinu. En þaö eru fleiri félög
sem vinna aö líknarmálum og
þar sem kvenfélagið Þorgerður BELGI Elíasson er ekki stjórnar-
Egilsdóttur í Laxárdalshreppi fonnaður KFUM eins og misrit-
var einnig búin að skipuleggja a^ist í blaðinu í gær, en hann á
söfnunarferð um sýsluna, tóku sæti í sljóm félagsins.
þessi félög sig saman um þessa Blaðið biðst velvirðingar á þess-
ferð, en fyrir sitt hvort málefhið. ari misprentun.
Flskverð á uppboðsmörkuðum 12. apríi.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 59,00 46,50 58,62 13,381 784.388
Þorskur(ósl-) 50,00 41,00 48,71 16,508 804.161
Þorskurjdbl.) 30,00 30,00 30,00 0,166 4.980
Þorskur(smár) 33,00 33,00 33,00 0,434 14.338
Ýsa 66,00 35,00 64,01 4,345 278.125
Karfi 37,50 15,00 35,70 40,360 1.441.045
Ufsi 31.00 31,00 31,00 1,592 49.377
Steinbítur 38,00 30,00 36,96 3,494 129.171
Langa 15,00 15,00 15,00 0,045 677
Lúða 275,00 115,00 279,16 0,506 141.449
Koli 55,00 38,00 47,92 1,198 57.418
Skata 45,00 45,00 45,00 0,019 857
Skötuselur 130,00 130,00 130,00 0,027 3.536
Lax 302,00 290,00 297,09 0,199 59.121
Hrogn 160,00 160,00 160,00 0,460 73.600
Samtals 46,44 82,737 3.842.243
Selt var aðallega úr Otri HF. I dag verður meöal annars selt
óákveöiö magn úr Stakkavík AR.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 45,00 43,00 44,10 6,948 306.380
Þorsk(ósl.1n.) 49,00 30,00 46,34 8,676 402.089
Ýsa 55,00 45,00 46,21 0,535 24.725
Karfi 32,00 32,00 32,00 3,073 98.328
Ufsi 29,00 29,00 29,00 3,387 98.217
Steinbitur 22,00 22,00 22,00 0,556 12.232
Steinbítur(ósL) 29,00 29,00 29,00 0,083 2.407
Langa 15,00 15,00 15,00 0,052 780
Lúöa 290,00 230,00 255,82 587,00 150.165
Skarkoli 25,00 25,00 25,00 0,346 8.650
Keila 8,00 8,00 8,00 0,455 3.640
Skata 20,00 20,00 20,00 0,023 460
Samtals 44,82 24,721 1.108.073
Selt var úr Freyju RE og bátum. i dag verða meðal annars seld
15 tonn af karfa úr Höfðavík AK og óákveðiö magn úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 50,00 50,00 50,00 1,440 72.000
Þorskur(ósL) 46,50 41,00 45,06 9,333 420.536
Ýsa 99,00 30,00 84,86 0,277 23.566
Ýsa(ósL) 97,00 68,00 88,89 3,745 322.906
Karfi 36,00 27,00 34,37 13,533 465.207
Ufsi 31,00 31,00 31,00 4,800 148.800
Steinbítur 23,50 15,00 22,53 0,590 13.307
Skarkoli 45,00 35,00 38,58 0,308 11.913
Lúða 225,00 160,00 221,58 0,076 16.840
Samtals 44,12 34,318 1.513.997
Selt var aöallega úr Hörpu GK, Margréti HF, Mána HF og Sól-
eyju GK. ( dag verða meðal annars seld 4,5 tonn af ufsa frá
Miðnesi hf. og óákveöið magn af þorski og ýsu úr Eldeyjar-
Boða GK. Selt verður úr dagróðrabátum.
Bjöm Gíslason afhendir Davíð Oddssyni borgarstjóra fyrsta ein-
takið af bæklingnum „Hvað gera slökkviliðsmenn þegar ekki
brennur?". Morgunblaðið/Júlíus
Brunaverðir gefa út bækling
ÞESSA dagana er Bmnavarðafélag Reylyavík-
ur að dreifa bæklingi í hús sem ber yfirskrift-
ina „Hvað gera slökkviliðsmenn þegar ekki
brennur?“.
Bæklingurinn hefur að geyma upplýsingar um
hin ýmsu störf slökkviliðsmanna og hvert borg-
arbúar geti snúið sér í hinum ýmsu neyðartilfellum
sem upp geta komið.
Brunavarðafélag Reykjavíkur hvetur borgarbúa
að kynna sér bæklinginnn mjög vel. (Fréttatíikynning)
Þjóðleikhús-
ið frumsýnir
Ofviðrið
Þjóðleikhúsið frumsýnir Of-
viðrið eftir William Shakespe-
are í þýðingu Helga Hálfdan-
arssonar á stóra sviðinu næst-
komandi föstudag. Er þetta
fyrsta sviðsuppfærsla íslensks
atvinnuleikhúss á verkinu.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son, leikmynd og búninga gerir
Una Collins, tónlistin er eftir Lár-
us Grímsson og lýsing er í höndum
Páls Ragnarssonar. Gunnar Ey-
jólfsson fer með hlutverk Prosper-
óns, María Ellingsen leikur
Míröndu dóttur hans, Sigrún Wa-
age er Aríel og Róbert Amfinnson
er Kalíban. Auk þeirra taka þátt
í sýningunni Erlingur Gislason,
Helgi Bjömsson, Sigurður Skúla-
son, Amar Jónsson, Ámi
Tryggvason, Sigurður Siguijóns-
son, Bessi Bjamason, Hákon
Waage, Jón Símon Gunnarsson,
Pálmi Gestsson, Anna Kristfn
Amgrímsdóttir, Ólöf Kolbrún
Harðardóttir og Tinna Gunn-
laugsdóttir.
45 tónleikar
á 47 dögum
BUBBI Morthens er að leggja
af stað í tónleikaferð um landið.
Fyrstu tónleikamir verða í
Sandgerði á laugardag, 15.
aprfl. Alls ætlar Bubbi að halda
45 tónleika á 47 dögum.
Á dagskrá tónleikanna verður
nýtt efni af væntanlegum plötum,
ásamt efni af fyrri plötum hans.
Tónleikaferðin hefst sem fyrr seg-
ir í Sandgerði. Næstu daga á eft-
ir verður hann annars staðar á
Reykjanesi, þá á Snæfellsnesi og
síðan á Norðurlandi. Næstir koma
Austfirðir, frá 4.-13. maí, nokkrir
tónleikar á Vesturlandi fylgja á
eftir og loks ferðast Bubbi um
Vestfírði frá 19.-30. maí. Loka-
tónleikamir verða á Hótel Borg í
Reykjavík 1. júní.
íslandsmeist-
arakeppni í sam-
kvæmisdönsum
um helgina
íslandsmeistarakeppni í sam-
kvæmisdönsum fer fram helg-
ina 15. og 16. apríl í íþróttahús-
inu í Hafnarfirði við Strand-
götu og er þetta í fiórða sinn
sem keppnin er haldin og hafa
keppendur aldrei verið fleiri
en nú.
Setningarathöfn, þar sem allir
keppendur koma fram, hefst laug-
ardaginn 15. apríl klukkan 14
með innmarsi, setningarræðu og
lúðrablæstri.
Keppni hefst svo strax að setn-
ingu lokinni og stendur fra á
kvöld. Síðan er framhaldið á
sunnudag klukkan 11. Stefnt er
að ljúka keppni um klukkan 19.
Alþjóðaforseti Alþjóða dans-
kennnarasambandsins, Leonard
Morgan, verður yfirdómari í
keppninni ásamt þeim Anne
Lindgard frá Englandi og Börge
Jensen frá Danmörku.
Mývetningur
firumsýnir
„Fundur í hjóna-
bandsneftid“
Björk.
UngmennaféiagiÖ Mývetning-
ur frumsýnir sjónleikinn „Fund-
ur í hjónabandsnefnd" { Skjól-
brekku, laugardaginn 15. aprfl
kl. 21.00.
Höfundur og leikstjóri er Ey-
vindur Erlendsson. Aðrir höfundar
eru þeir, Þorgrímur Starri Björg-
vinsson og Friðrik Steingrímsson.
Persónur og leikendur eru; Odd-
ur laxveiðibóndi og fjáreigandi,
oddviti oggestgjafi: Kári Þorgríms-
son. Anna oddvitaypja stoð og
stytta manns síns og sveitarfélags-
ins: Hrafnhildur Kristjánsdóttir.
Sigurður fiöivitri og ólíkindatól,
sem rekur hænsnabú í stórum stíl
ásamt Gunnu: Friðrik Steingríms-
son. Gunna frændkona Sigurðar
og sambýlingur á samliggjandi óð-
ölum beggja, snarpgreind og hand-
takagóð: Þórgunnur Eysteinsdótt-
ir. Kidda hárgreiðslukona og allvel
menntuð blaðurskjóða, hneygð að
fegurð: Amfríður Jónsdóttir. Gústi
maður hennar, bankamaður og eig-
andi þúsund refa, fyrrum efnilegt
skáld og húmoristi: Egill Frey-
UM NÆSTU helgi, 14.-15. april,
kemur ný hþ'ómsveit til starfa
í Þórscafé. Það er danshljóm-
sveit Magnúsar Kjartanssonar
ásamt söngvaranum Björgvini
Halldórssyni.
Hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar hefur starfað frá árinu
1983. Hljómsveitin hefur undan-
farin ár starfað með Hemma Gunn
steinsson. Hermundur bóndi og
séntilmaður af gamla skólanum,
kastar fram vísu við tækifæri:
Hólmgeir Hallgrímsson. Frerya,
aðvífandi partýgella á flótta undan
ástmanni sínum: Þórdís Jónsdóttir.
Grímur fiár- og veiðimaður mein-
skældinn: Þorgrímur Starri Björg-
vinsson. Göran, sænskur strákur,
fiósamaður og pianósnillingur: Öm
Friðriksson. Guðmundur 40 kúa
bóndi upp á 5 og 6 þúsund lítra
hver, orðfár og ófyrirsjánlegun
Gunnar Þór Brynjarsson.
- Krístján
Tónleik-
ar í Duus
Rokkhfiómsveitin Bless heldur
tónleika í veitingahúsinu Duus í
kvöld, fimmtudagskvöld með
gestahfiómsveit.
Húsið opnar kl. 22.00, en Bless
mun hefia leik sinn um 24.00. í
millitíðinni munu ýmsar hjjómsveit-
ir troða upp. Bless er um þessar
mundir að hefja vinnu á stórri plötu,
sem gefin verður út fyrir jól.
Tónleikar á
Borginni
mjómsveitin Te heldur tón-
ieika á Hótel Borg í kvöld,
fimmtudagskvöld, ásamt gesta-
hljómsveit.
Hljómsveitina Te skipa þeir
Kolbeinn Einarsson gítarleikari
og söngvari, Gunnlaugur Guð-
mundsson bassaleikari og söngv-
ari, og Einar Valur Scheving
trommuleikari, en Kolbeinn lék
áður á gítar með Rauðum flötum
og Gunnlaugur lék á bassa með
Blátt áfram. Þetta verða fyrstu
tónleikar hljómsveitarinnar og
húsið opnar kl. 22.00.
í þætti hans „Á tali“.
í hljómsveitinni eru: Magnús
Kjartansson, Vilhjálmur Guðjóns-
son, Finnbogi Kjartansson og
Gunnar Jónsson auk Björgvins
Halldórssonar.
Hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar og Björgvin verða í Þórs-
café öll föstudags- og laugardags-
kvöld.