Morgunblaðið - 13.04.1989, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRIL 1989
Tm—I";i'—!T‘ 7TI—!T '! O',---
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Stjömuspeki
Stjörnuspeki er tæki til þess
skapað að hjálpa manninum
að auka sjálfsþekkingu sína
og almenna mannþekkingu.
Ef við viljum fá svar við því
hver við erum verðum við að
hafa viðmiðun. Við þurfum
spegil. Það hefur oft verið sagt
að stjömuspeki sé sálarspegill
en einnig að hún sé sjálfskönn-
unartæki.
Náttúruspeki
Stjömuspeki er mannþekking-
artaeki en jafnframt má segja
að hún sé náttúmspeki því
helsta kenning hennar gengur
út á það að maðurinn sé af-
sprengi náttúmnnar og jafn-
framt að maður, náttúra og
sólkerfi séu hluti af einu og
sama lífkerfi. Þess vegna not-
um við stjömuspeki til að skil-
greina persónuleika okkar.
Plánetur og stjömumerki hafa
ekki áhrif á manninn, heldur
má sjá í hreyfilögmálum plá-
neta ákveðna samsvömn við
lögmál í lífí mannsins.
Mörg stjörnu
merki
Þegar við segjumst vera í
ákveðnu merki, t.d. Hrútnum,
emm við í raun að segja að
Sólin hafi verið í Hrútsmerkinu
þegar við fæddumst. Staða
Tungls, Merkúrs, Venusar og
Mars í merkjum, ásamt
Rísandi merki og Miðhimni
skiptir einnig miklu hvað varð-
ar persónuleika okkar. Sólin
er táknræn fyrir gmnneðli,
vilja og lífsorku, Tunglið fyrir
tilfmningar og daglegt hegð-
unarmynstur, Merkúr fyrir
hugsun, Venus fyrir ást, vin-
áttu og listræna hæfileika,
Mars fyrir framkvæmdaorku,
Risandi merki fyrir fas og
framkomu og Miðhiminn fyrir
markmið út í þjóðfélaginu. Það
er því t.d. staða Tungls í merki
sem segir meira um tilfinning-
ar heldur en Sólarmerkið. Til
að geta notað stjömuspeki
verðum við að finna merkin
okkar og sjá hvemig þau vinna
saman og vega hvert annað
upp.
Fjögur aöalatriöi
Fjögur atriði skipta mestu í
stjömuspeki; stjömumerki,
plánetur, hús og afstöður. Ef
við viljum læra stjömuspeki
þurfum við að kunna skil á
þessum atriðum og þekkja
táknin fyrir hvert þeirra.
Stjörnumerkin
Stjömumerkin ere tólf og
spannar hvert merki 30 gráð-
ur. Byijað er að telja hringinn
frá Hrútsmerkinu (20. mars —
19. apríl), síðan kemur Nautið
(20. apríl — 20. maí) og svo
koll af kolli. Tvíburi (21. maí
— 20. júní), Krabbi (21. júní —
22. júlí), Ijón (23. júlí - 23.
ágúst), Meyja (23. ágúst — 23.
sept.), Vog (23. sept. — 22.
okt.), Sporðdreki (23. október
— 21. nóv.), Bogmaður (22.
nóvember — 21. des.), Stein-
geit (22. desember — 20. jan.),
Vatnsberi (21. janúar — 19.
feb.) og að lokum Fiskar (19.
febrúar — 19. mars).
Byrjun
merkjanna
Áhugamenn um stjömuspeki
hafa tekið eftir því að bókum
og blöðum ber ekki alltaf sam-
an um það hvenær merkin
byija. f einni bók er sagt að
TViburinn byrji 20. maí en í
annarri að hann byiji þann 21.
Ástæðan fyrir þessu er sú að
það er skeklga í tímatali okk-
ar, þ.e. dagatalið og hinn raun-
verulegi sólargangur eru ekki
alveg samstíga. Þess vegna er
einum hlaupársdegi bætt við á
Qögurra ára fresti og um leið
riðlast byijunar- og endadagar
merkja. Það er einnig rétt að
hafa í huga að sólin getur skipt
um merki klukkan 15 um dag
og er því t.d. í Hrútnum fyrri
part dags en í Nautinu eftir
kl. 15.
GARPUR
yVWA'A/ þ/ÍICTI /U.U1N GA/S.B/NN
B’/A/S OG AÐ BÚA UM KjUM'
RÚTT /J EFTiR, i <SARÐINUAI
P/RJFt /Je£>A/J ■
J-
( Ro's/rnajz
HÆTTUAB ITAXA / -- ER
/1LÍ.T TtAGIAAEE) DíSOTTHlNG
ujja cxsotseAR
\
GRETTIR
jaAKKA PéR L/EÐUPOKI! ^ ---psffí/: yp 0
© 1988 United Feature Syndicate. Inc. — fo-7 “ Jf/W 7AV?6
lUllllIllllHTWTIHfinHnilllfinjllMjUIMIMIIIIIIMIIIIIII
BRENDA STARR
EKKEG.TS'ý'Nin SKAÞ/SERÐ KONU
BETUR £N SK'aPOR/NN
'A BASUNU
"V HENNAR
LJOSKA
~\ \MII( VBKÉ>L>e/VlAE>'
FERDINAND
!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!:
SMAFOLK
IT5 A 600P TMIN6 BECAU5E
MY PRACTICE 15 A5
TRIFLIN6 A5TWEY C0ME..
-----<3r~
/'V*' J
„De minimus non curat lex.“
„Lögin láta sig smámuni ekki
varða.“
Það var eins gott því að mitt starf
í lögfræðinni er allt um smá-
muni...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sjö lauf er fallegur samningur
á spil NS, en eftir hindrun aust-
urs er illmögulegt að segja al-
slemmuna.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ 876
♦ 1084
♦ DG
♦ ÁK543
Vestur Austur
♦ K42 .. ♦ ÁDG10953
♦ KG763 ♦ 95
♦ 8754 ♦ 2
♦ G ^1092
Suður
♦ -
♦ ÁD2
♦ ÁK10963
♦ D876
Vestur Norður Austur Suður
— — 3 spaðar 4 tíglar
Pass 5 tíglar Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Útspil: Spaðatvistur.
í stöðum af þessu tagi fylgir
áhætta öllum ákvörðunum. Suð-
ur hefur auðvitað enga trygg-
ingu fyrir því að norður eigi
gott lauf, en það er þó með
líkum, svo hækkun hans í sex
tígla er skynsamleg. Hið sama
var þó ekki hægt að segja um
spilamennskuna.
Hann trompaði fyrsta slaginn,
tók trompin og fór síðan í lauf-
ið. Þegar það brotnaði ekki 4-0
taldi hann samninginn í höfn —
henda mætti hjarta niður í 5.
laufíð og reyna við yfírslaginn
með svíningu fyrir hjartakóng.
En honum láðist að hugsa um
litlu spilin. 3-1-legan gerir það
að verkum að liturinn stíflast
og úrslitaslagurinn í laufí nýtist
ekki. Þegar hann áttaði sig á
þessu svínaði hann hjartadrottn-
ingunni, en gat samt ekki kom-
ist hjá að gefa tvo slagi á hjarta.
Komi maður auga á stíflu-
hættuna er einfalt að bregðast
við henni. Til dæmis með því að
henda strax laufí heima í fyrsta
slag! t
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á mjög fjölmennu opnu móti í
Búdapest í marz kom þessi staða
upp í skák alþjóðameistarans Diz-
dar, Júgóslavíu og sovézka stór-
meistarans Zeitlin, sem hafði
svart og átti leik.
27. - Rexd5!, 28. cxd5 - Rxd5,
29. Dcl - Rxe3, 30. g4!? (Hvítur
reynir millileik, því 30. Dxe3 —
Hxg3 er aiveg vonlaust) 30. —
Hxg4! og hvítur gafst upp, því
eftir 31. hxg4 — Rxg4 er hvítur
með óstöðvandi mátsókn. Alls
tóku 600 skákmenn þátt í mótinu,
þar af 120 Sovétmenn og komust
færri slíkir að en vildu. Efstir og
jafnir urðu Sovétmennirnir Glek,
Snajder og Kischniev, a-þýzki
stórmeistarinn Bönsch og Svíinn
Johnny Hector rn% v. af 9 möguleg-
um. Hector stóð sig nyög vel í
baráttunni við Rússafansinn, 12
skákmenn urðu næstir með 7 v.,
allt Sovétmenn.