Morgunblaðið - 13.04.1989, Blaðsíða 39
MÖRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR' 13.' APRlL 1989
39
Allra meina bót
Hug-leiðing1 um leiksýningu (Leikfélag Sauðárkróks - Sæluvika 1989)
eftir Steingrím St. Th.
Signrðsson
Sæluvika Skagfirðinganna hófst
með dansiballi síðastliðinn föstu-
dag. Svo kom laugardagurinn með
málverkasýningu Elíasar austfirzka
í Safnahúsinu. Daginn eftir, um
kvöldið, var sýndur gaman- og
söngleikurinn „Allra meina bót“
eftir Patrek og Pál — alias Jónas
Árnason rithöfund og Stefán Jóns-
son, sem báðir eru gæddir húmor.
En tónlistin er eftir Jón Múla Árna-
son, bróður Jónasar. Hvernig sem
á því stendur hafði greinarhöf.
hlakkað til þessarar sæluvika —
einkum vegna leiksýningarinnar í
gamla leikhúsinu Bifröst — og ekki
hvað sízt af því, að leikstjórinn Sig-
urgeir Scheving er undirskráðum
að góðu kunnur úr Vestmannaeyj-
um (í tvígang), en Scheving er ein-
mitt þaðan, ef nokkur er dæmigerð-
ur. Nærvera hans er mótuð af þessu
andrúmslofti, er fýlgir lífs- og lista-
manninum Palla Steingríms, sem
er einn listrænasti kvikmyndamað-
ur á íslandi í dag, og Stebba heitn-
um pól leikara, sem eru báðir ein-
hvem veginn tákn þess bezta, er
Vestmannaeyjar hafa upp á að
bjóða — en það er svo margt.
Leikfólkið á Krónum hafði æft
stykkið þindarlaust undanfamar
sex vikur og hert róðurinn undir
lokin undir leiðsögn þessa lifandi
Vestmannaeyings Schevings — en
þetta er í þriðja sinn í röð, sem
hann stjómar hjá þessu fólki, fyrst
„Rjúkandi ráð“ og þá „Okkar
maður" og nú „Allra meina bót“.
Á sunnudagsmorguninn var aðeins
litið inn á lokaæfinguna í Bifröst.
Þá var allt á fullu þrátt fyrir illyrm-
islega flenzu, sem hafði heijað á
leikendur og næstum kastað þeim
nokkrum í rúmið. Nú var engan
bilbug á þeim að finna — sagt var,
að einn eða tveir þeirra, sem fara
með aðalhlutverk, hefðu haft vit á
því að Iækna sig með því að demba
í sig vænum skömmtum af hvítlauk,
sem hins vegar gerði eina kossasen-
una erfiðari en skyldi.
Og svo rann kvöldið upp og þetta
gamla leikhús, sem er frá 1928 (að
því er einhver sagði dró til sín gesti
hvaðanæva úr sýslunni og víðar að.
Nú var ekkert villt dansiball í norð-
lenzkum kántrístíl, heldur þess í
stað þessi músík-gaman og glens-
leikur. Þegar ljósin höfðu verið
slökkt og fýrsta lagið eftir Jón
Múla ómaði hófst stemning, sem
hélzt alla sýninguna, en salurinn
var sneisafullur af fólki. Það vill
svo til, að sá, er þetta skrifar, sótti
farsa og söngleiki í London á árun-
um 1946—48 (í námsfríum sínum
í Nottingham og Leeds) — og það
verður að segjast eins og er, að
ekki er músíkin hans Jóns Múla
síðri en sú er fýlgdi sýningunum,
sem maður sá í Metropolitan Lond-
on í gamla daga rétt eftir stríð —
ef til vill er músík Múlans gædd
þúsund sinnum meiri töfrum.
Og alltaf hélt sama mýktin áfram
alla sýninguna — þvílíkur sjarmi
og þvílíkar melódíur, en þetta virð-
ist því miður vera að hverfa úr
léttri tónlist á íslandi. Hvemig
stendur á því, að allt of fáir gera
sér grein fyrir þessu? Melódían á
íslandi er að verða dauð — það er
þyngra en tárum taki.
Greinarhöf. minnist þess ekki að
hafa notið létt-tónlistar jafn-inni-
lega eins og á sýningunni þarna á
Króknum. Er öfundarhyggjan slík
meðal músíkfólks á Islandi eins og
í öðrum listgreinum hérlendis að
það er engu líkara en forðazt sé
að halda á lofti nafni snillings á
heimsmælikvarða eins og Jóns
Múla — ennfremur er hann síðasti
móhíkaninn, sem hefur fært smekk-
legt fólk í snertingu við gamla góða
jazzinn — heill sé honum fyrir slíkt
og ýmislegt annað.
Sýningin rann mjúklega af stað
eins og músíkin. Það kviknaði strax
á fyrsta kaflanum eins og gerist í
góðri sögu — og það myndaðist
atburðaspenna, sem hélt áhorfanda
föstum og skapaði eftirvæntingu.
Tilsvörin eru fyndin á köflum af
hálfu höfundanna, sem dulnefna sig
Patrek og Pál, en eru engir aðrir
en sá hinn þekkti Jónas Ámason
bróðir Múlans og Stefán Jónsson,
sem lengi var fréttamaður hjá út-
varpinu, en fór síðar út í pólitík og
kennslu. Höfundunum hefur tekizt
margt vel, einkum í fyrsta hluta
verksins og undir lokin, en síður
um miðbikið — hefði mátt stytta
verkið allt að því um hálfa klukku-
stund eða svipað og nauðsynlegt
er að gera við ritsmíð á köflum, svo
að hún njóti sín og skapi áhrif. En
leikendurnir — hveijir em þeir —
hvemig standa þeir sig? Það er að
verða hvimleitt að nota hugtök eins
og amatör um leikfólk úti á lands-
byggðinni. Vom það ekki ítalskir
leikstjórar, sem heldur vildu velja
venjulegt fólk beint úr lífinu til að
taka að sér hlutverk í kvikmyndum
þeirra eftir stríð. Náðu þeir ekki
undraverðum árangri? Leikfólkið í
„Allra meina bót“ hefur leikið áður,
sumt af því ámm saman og því
talsvert þjálfað. Sumir hveijir með-
al þessa leikfólks em eins og lífið
sjálft — með lífsreynslu í blóðinu
og mótað af umhverfinu og lífsbar-
áttu og hversdagsstríði feðranna í
þessu óvæmna umhverfi. Allt slíkt
kemur í ljós í leik þeirra sumra.
Og hvað getur góður næmur leik-
stjóri gert eins og Sigurgeir Schev-
ing úr Vestmannaeyjum, sem þegar
er farinn að þekkja sitt fólk þama
á Króknum þriðja árið í röð? Hann
hlýtur að kunna á það út í hörgul.
Fimm aðalpersónur koma við
sögu, og þeir, sem fara með hlut-
verk þeirra, gera það af náttúm-
greind og skilningi, hvert þeirra á
sinn hátt. Til að mynda leikur Við-
ar Sverrisson fjárglæframanninn
Pétur og gerir persónuna innilega
kátbroslega — sambland af kjána
og peningapúka. Viðar sýnir undra-
vert öryggi í leik sínum. Helena
Sigfiísdóttir virðist kona með
kímni kennd. Hjúkkan Halla er í
höndum hennar ósköp eðlileg
hjúkka sem gæti unnið á hvaða
^HITACHI
Sjónvarpstæki sem
treystandi er á.
3já ára ábyrgð
y^RÖNNING
v/f/i heimilistæki
KRINGLUNNI OG NjALSGÖTU 49 SlMI 685868/10259
Leynilögreglan Stórólfúr Stór-
ólfsson (Guðni Friðriksson) í
kvengervi beitir brögðum til þess
að ná fram játningu hjá Pétri
fjármálamanni.
Morgunblaðið/Stefán Pedersen
Atriði úr „Allra meina bót“, dr. Svendsen (Ólafur Antonsson) útskýr-
ir meinsemd Péturs fjárgheframanns fyrir starfsliði sjúkrahússins
(Viðar Sverriss).
■
Sigurgeir Scheving leikstjóri úr
Vm. á fúllu á leikæfíngu á
Króknum.
spítala sem er og hvar sem er í
heiminum. Andrés oftskomi er
rosalega kómískur eins og Haf-
steinn Hannesson túlkar hann,
persónan verður svo innilega lifandi
og eins og hún komi beint út úr
lífinu. Það er karakter í leik Haf-
steins. Hann lék þetta sama hlut-
verk fyrir tuttugu árum — hann
minnir á karaktera í sýslunni eins
og Jón Hallsson hestamann á Silfra-
stöðum, Sigga í Krossanesi og
Reimar heitinn á Löngumýri (báðir
hestamenn af guðsnáð — Reimar
var jafnan meðreiðarsveinn síra
Tryggva heitins Kvarans á Mæli-
felli, sem var dýrkaður sem dýrling-
ur í Skagafirði), Hafsteinn er eitt-
hvað svo dæmigerður Skagfirðing-
ur yzt sem innst.
Það er handagangur í öskjunni
hjá Guðna Friðrikssyni, sem leik-
ur Stórólf leynilöggu. Það er erfitt
hlutverk, sem krefst hreyfingar —
en yfirleitt er tíðni í leikritinu. Og
þegar á heild er litið, þá halda leik-
endur þessu kreíjandi tempói eins
og skagfirzkir góðhestar í átökum.
Það væri athyglisvert að sjá Guðna
í fleiri hlutverkum en þessu — hann
virðist geta margt erfitt.
Og þá er komið að dr. Svendsen,
sem Ólafúr Antonsson leikur af
lífsorku, svo að salurinn fýlltist af
prana. Ólafur virðist skemmtilegur
karakter — og mundi áreiðanlega
hæfa í stórbrotin hlutverk í kvik-
mynd — á því er ekki vafi. Hann
er sterkur á sviðinu — stundum
minnir hann á karla eins og Peter
Ustinov og aðra slíka — og röddin
gæti hæglega sprengt glös. Afi
Ólafs er Gísli sálugi Ólafsson skáld
frá Eiríksstöðum í A-Hún., ná-
frændi Kristjáns heitins Gíslasonar
kaupmanns á Króknum og Sigurðar
heitins skólameistara á Ak.
Þessi sýning Allra meina bót
undir stjórn Sigurgeirs Schevings
úr Vm., sem tekið hefur ástfóstri
við skagfirzkt umhverfí, er listsig-
ur og sýnir, svo að ekki verður um
villzt, að fólk úti á landsbyggðinni
er oft enginn eftirbátur leikfólks á
höfuðborgarsvæðinu, stundum
jafnvel langtum ferskara og nær
lífinu. Leikhúsið á Króknum er 110
ára gamalt og er gætt hefð eins
og leikhúsið á ísafirði og leikhúsið
á Akureyri, svo að nokkuð sé nefnt,
og byggir því á reynslu og kunn-
áttu ekki síður en til að mynda
Gamla Iðnó í Reylq'avík. Þetta verð-
ur að vera fólki ljóst.
Það var gaman að þessari sýn-
ingu. Hún færir líf og gleði. Nú
nálgast vorið. Þetta var einn af
fýrirboðunum.
p.t. Sauðárkróki.
Höfundur er rithöfundur og list-
málari.
ALSJALFVIRKIR BLÓDÞRÝSITMÆLAR
Hentugir til fjölskyldu- og heimilisnota, sem og fyrir lækna
og sjúkrastofnanir.
íslenskur leiðarvísir ásamt samandreginni umfjöllun um helstu
orsakir háþrýstings.
Gætið heilsunnar. Finnið sjálf ykkar rétta blóðþrýsting.
Helstu sölustaðir: Lyfjabúðir.
Heildsölubirgðir: LOGALAND
heildverslun. Sími 12804.
Windows
17. apríl
KI.9-16
Farið er í helstu undirstöðuatriði gluggaforritsins Windows. Helstu fylgiforrit eru kynnt
og gerðar æfingar.
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur
Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933.
ATH: VR og ileiri stéttarfélög styrkja félaga sina til þátttöku.
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.