Morgunblaðið - 13.04.1989, Page 40
40
MORQUNBIíAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
i kvöld er annað tilraunakvöld hljóm- I vekur að tvaer sveitanna eru frá Akra-
sveitakeppni Tónabæjar og Bylgjunnar nesi, en alls eru fjórar hljómsveitir frá
sem kallast Músíktilraunir. Þetta kvöld, Akranesi sem þátt taka í tilraununum og
líkt og fyrsta kvöldið, taka þátt sjö hljóm- hefur ein þegar komist í úrslit. Annað
sveitir og keppa um að komast í úrslit sem vekur athygli er að þrjár söngkonur
21. aprfl nk. syngja með hljómsveitum sínum í kvöld,
Hljómsveitirnar sem fram koma í kvöld en alla jafna hafa stúlkur verið sjaldséðar
koma hver úr sinni áttinni, en athygli I i tilraununum.
HESTALEIGAN AF AKRANESI
Hestaleiguna reka þeir Jón Ingi Þorvaldsson bassaleikari, Þorbergur Viðarsson
söngvari, Bjarni Þór Hjaltason trommuleikari, Þóroddur Bjarnason gítarleikari og Finn-
ur Guðmundsson hljómborðsleikari. Talsmaður leigunnar sagði sveitina spila truntu-
popp og vera undir áhrifum frá Snoddas og Bösse Parnevik. Hann tók það og fram
að tónlistin væri full af gleði „effectum".
Lalli er Lárus Halldórsson trommuleikari, en Sentimetrarnir eru Leifur Óskarsson
gítarleikari, Þorþergur Viðarsson söngvari, Hrannar Örn Hauksson bassaleikari og
Hjörleifur Halldórsson hljómborðsleikari. Lalli og Sentimetrarnir spila „bara" rokk og
segjast vera undir áhrifum frá Bach og Beethoven.
Neyðina skipa Guðrún Oddsdóttir söngkona, Stefán Henrysson hljómborðsleikari,
Þórhallur G. Sigurðsson bassaleikari, Jón Þór Jónsson gítarleikari, Guðlaugur Þorleifs-
son trommuleikari og Þórður Vagnsson saxófónleikari. Neyðin leikur rokk af léttari
gerðinni.
FOLI OG FLIPPARARNIR ÚR REYKJAVÍK
Foli og Flippararnir eru Haraldur Leonhardsson trommuleikari, Árni Heiðar Pálma-
son gítarleikari, Gunnar Freyr Jóhansson bassaleikari, Sigurður Sveinsson söngvari,
Þorgerður Óskarsdóttir söngkona, og Guðni, sem leikur á hljómborð. Foli og félagar
segjast hafa ólíkan tónlistarsmekk og ekki sé gott að lýsa tónlistinni nema þá kannski
með því að þetta sé bara rokk með poppívafi.
BRÚÐKAUP FÍGARÓS ÚR REYKJAVÍK
Brúðkaup Fígarós eru Karl Olgeirsson sem leikur á hljómborð og raddar, Ásgeir
Páll Ágústsson sem syngur, Hallur Guðmundsson sem leikur á bassa og raddar,
Gísli Leifsson sem leikur á trommur og raddar og Trausti Örn Einarsson sem leikur
á gítar. Brúðkaup Fígarós leikur fjölbreytta tónlist sem erfitt er að skilgreina, en
spannar allt frá Pixies ýfir í klassíska tónlist með viðkomu í Billy Joel og ámóta léttmeti.
SÉRSVEITIN ÚR REYKJAVÍK
BOOTLEGS ÚR REYKJAVÍK
í Sérsveitinni eru Axel Bragason bassaleikari, Heiðar Kristinsson trommuleikari,
Gísli J. Sigurðsson hljómborðsleikari, Rósa Lind söngkona og Davíð Þór Hlynsson
gítarleikari. Sérsveitin leikur hefðbundna íslenska tónlist sem stendur nær poppi en
rokki. Uppáhaldssveit þess sem rætt var við var U2, en hann sagði það ekki gefa
tæmandi mynd af tónlistarsmekk sveitarmeðlima.
Bootlegs, sem nú taka þátt í Músíktilraununum í þriðja sinn, skipa þeir Ingimund-
ur Þorkelsson bassaleikari, Kristján Ásvaldsson trommuleikari, Jón Ö. Sigurðsson
gítarleikari og söngvari og Guðmundur, Hannes Hannesson gítarleikari. Boot legs
leikur þungt, hratt og hrátt rokk, sem sumir kalla „speed metal".
Ljósmynd/BS