Morgunblaðið - 13.04.1989, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR Í3. APRÍL 1989
JAZZ
Hlúð að
sögunni í
Kansas-borg
Jazzgeggj-
arar ætla
að koma upp
alþjóðlegfi
jazzmenning-
armiðstöð í
gamalli
vatnsdælu-
stöð og
gripahúsum
ekki fjarri
þeim stað í
Kansas-borg
þar sem Co-
unt Basie og
sveifluband
hans lék á árum áður.Frum-
kvöðlar þessa fyrirtækis ætla
að reyna að safna 5 miHjónum
dollara, um 265 milljónum
íslenskra króna, til að endumýja
byggingamar sem hafa staðið
auðar í mörg ár en niðumítt
hverfið þar sem jazzmenningar-
miðstöðinni er ætlað að rísa má
muna sinn fífíl fegurri því fyrr
á öldinni var það miðstöð jaz-
ztónlistar í Bandaríkjunum.
í jazzmenningarmiðstöðinni
er ráðgert að stofna Tónlistar-
akademíu Count Basie, Gospel-
háskóla Mahalíu Jackson,
Charlie Parker/Dizzie Gillespie
jazzmeistarastofnunina og jaz-
zkvikmyndasafn Johns Bakers.
undirfatnaður
^ÍÍM«( bijóstahöld
cosselett
hy'mpíi
Laugavegi 26, s. 13300 — Glæsibæ, s. 31300
PHILIPS ADG 662 uppþvotta-
er fyrir 12 manna borð-
búnað, er hljóðlát, ótrúlega
rúmgóð og þægileg í notkun -
Við eigum örfáar vélar til á lager á þessu
verði.
Upphaflegt verð kr: 50.890/nú kr. 46.190
Opið, í dag, laugardag:
Kringlan 10-16
Sætún
10-13
Heimilistæki hf
unni •
115 JO
' SQMftítyUM,
• SætúniB • Kringlunni •
'11:601500 SÍMI: 69 1520
„Við ætlum að
meija þá.“ Guð-
rún Jónsdóttir
ekki árennileg
í hlutverki
Torfliildar
Ragnarsdóttur
í „Heimur án
karlmanna".
Daníel Ingi Pét-
ursson (t.v) og
Haraldur
Kristjánsson í
hlutverki Pét-
urs og Jerry í
„Saga úr dýra-
garðinum.
„Færðu þig af
bekknum
mínum“.
sígildar bókmenntir og tók að mér
kennslu i textameðferð og ljóða-
flutningi. Ég hef mestan áhuga á
því að skrifa og leikstýra og ætla
að snúa mér að því næstu þijú
árin,“ segir Ámi Blandon að lokum.
Nemendur í öldungadeild
Menntaskólans við
Hamrahlíð hafa nýlega stofnað
leikfélagið „Ljóra" og munu í kvöld
frumsýna fyrstu verkefni þess, ein-
þáttungana „Heimur án karl-
manna" eftir Philip Johnson og
„Saga úr dýragarðinum" eftir Ed-
ward Albee. Ámi Blandon leikstýr-
ir verkunum og hafa æfíngar stað-
ið yfír i aðeins einn og hálfan
mánuð.
„Þetta verkefni er viðbót hjá
þeim nemendum sem tekið hafa
leiklist í kennsluáfanga," segir Ámi
Blandon. „Það er mikill vitji til að
vinna að þessu, það má segja að
þau hafí valið verkefnin sjálf. Það
vantaði verk fyrir konur og „Heim-
ur án karlmanna" er mjög
skemmtilegur gamanleikur. Það á
að gerast á flórða áratugnum en
við staðfærum það og látum gerast
í Reykjavík nútímans." Inntak
verksins er togstreita milli kynj-
anna og er þar slegið á létta
strengi.
Ámi Blandon leikari og leikstjóri
átti hugmyndina að stofnun leik-
félagsins. Með þessu framtaki er
vonast til þess að félagslíf öldung-
anna glæðist eitthvað og er mark-
miðið_ að setja upp eitt leikverk á
ári. Ámi var sjálfur í fyrsta leik-
félaginu sem stofnað var í MH.
Þá var einnig sýnt leikrit eftir
Edward Albee, „Sandkassinn", sem
Gísli Alfreðsson leikari setti upp
og var Jóhanna Sveinsdóttir, mat-
kráka, ein af þeim sem léku sér í
sandkassa Albees. Edda Björgvins-
dóttir, leikkona, var formaður fé-
lagsins, en tók ekki að sér hlut-
verk. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum þorði hún ekki að stíga
á svið í þann tíð!
Ámi hefur verið við nám í New
York síðastliðin ijögur ár og út-
skrifast í vor sem m.phil. í saman-
burðarbókmenntum. Hann er um
þessar mundir að vinna að verki
um hollenska listmálarann Van
Gogh en á næsta ári eru hundrað
ár liðin frá dauða hans. „í itáminu
hafði ég tækifæri til þess að lesa
GARÐASTÁL
Lausn á steypuskemmdum
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
^Taktu þér
heilsutak
fyrir sumand!
Á laugardaginn hefjum við nýtt námskeið í alhliða líkamsrækt.
Mun þátttakendum boðin ráðgjöf læknis, næringarfræðings og
íþróttakennara í upphafi, sem innifelur viðtal, skoðun, stutt
áreynslupróf, næringarfræðslu og ráðleggingar um þjálfim og út-
bunað. Eftir það munu þátttakendur stunda skokk og tækjaþjálf-
un undir eftirliti íþróttakennara og sjúkraþjálfara.
Markmiðið er að þátttakendur auki þol, stæli og móti líkamann
og megrun.
Að loknum námskeiðum munu læknar og næringarfræðingar
meta árangur þjálfunarinnar.
Skráning í síma 656 970 eða 71.
Ilotið þetta einstæóci tækiíæri til cið helja þjólfun undir traustueftirliti
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, simi 656970-71
V.R. styður félagsmenn sina til þátttöku í þessu nómskeiði
LEIKLIST
Öldungar í MH
stofiia leikfélag