Morgunblaðið - 13.04.1989, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
49
VELVAKANDI
SVARAR ( SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu ...
Vísan eftir
Signrð BreiðQörð?
Ragnar Halldórsson hringdi.
Ýmsir hafa gaman af að spyij-
ast fyrir um vísur í Velvakanda.
Síðastliðinn sunnudag skrifar
Árni Helgason pistil og vitnar í
alkunna vísu og segir: „safni auð
með augun rauð eins og Bólu
Hjálmar orðaði það.“ Valdimar
Ásmundsson, fræðimaður og rit-
stjóri Fjallkonunnar, segir svo
1884: „Sigurður Breiðfjörð kvað
við Stefán bróður sinn sem bjó í
Ólafsvík og kallaður var efnaður
en varð snemma rauðeygður:
Það er dauði og djöfuls nauð
er dyggðasnauðir fantar
safna auði með augun rauð
en aðra brauðið vantar.
Vísa þessi er í Sunnanfara
ranglega eignuð Mála Davíð.“
Fróðlegt væri að vita hvort aðrir
kunna hér betri skil á.
Grettir kominn heim
Baldvin hringdi
og þakkaði fyrir birtingu myndar
af kettinum Gretti í
Morgunblaðinu á sunnudaginn
var. Svo vildi þó til að Grettir kom
í leitimar á laugardaginn, þ.e.
sama dag og sunnudagsblaðið
kemur til stórs hluta lesenda.
Grettir var magur að sjá enda
búinn að vera viku að heiman,
hann hvarf 1. apn'l. Eigandi
Grettis lét sér detta í hug að hann
hefði lokast inni í bflskúr sem
opnaður væri vikulega.
Hvar er númerið?
J.G.hringdi.
Númersplata af R-41786 hefur
tapast. Er það bagalegt því ef hún
finnst ekki þarf ég að fá mér
númer skv. nýja kerfinu. Ef
einhver hefur fundið plötuna er
hann beðinn að hringja í síma
34593.
Gleraugu týnd
Þorgerður Elíasdóttir
hringdi.
Gleraugu týndust í janúar á
leiðinni frá Glæsibæ og upp
Gnoðarvog. Gleraugun eru gyllt
með dökkum sjóngleijum.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 13805 eða 46038.
Græn úlpa fannst
Kristín Tómasdóttir hringdi.
í Kyrruvikunni fannst græn
úlpa á Melhaga. Upplýsingar í
síma 17869.
Dúllatýnd
Sigþór Samúelsson hringdi.
134 árs læða, svört og brún en
hvít á kvið, hvarf af
Vesturgötunni fyrir 10 dögum.
Kisa svarar nafninu Dúlla og er
finnandi beðinn að hringja í síma
18357.
Hefði ekki átt að sitja
undir þvælunni í
Stormsker
Móðir fermingarbarns hringdi.
Mig langar til að lýsa andúð
minni á þætti sem var í
ríkissjónvarpinu síðastliðið
föstudagskvöld og heitir Tibba og
Libba. Þama var unglingum sýnt
mikið virðingarleysi. Þátturinn
var til skammar og presturinn
hefði átt að standa upp og fara út
í stað þess að stija undir þvælunni
sem kom upp úr Sverri Stormsker.
Barnið mitt fermdist um páskana
og ég fermdist fyrir 20 ámm sjálf
og ég ber ekki saman hvað bamið
og fleiri á hennar aldri em betur
að sér um Krist og kristilega
siðfræði en ég og mín
fermingarsystkyni vom.
Fermingarbömin núna gera sér
mjög vel grein fyrir því að þau
em að staðfesta skím sína og trú
á Krist.
Fermingarundirbúningurinn er
miklu betri núna. Bömin fá svör
við þeim spumingum sem þeim
liggja á hjarta og við spurðum
ekki einu sinni um. Því finnst mér
að þessi gamla klisja um að börnin
fermist til fjár hafi aldrei verið
meiri fjarstæða en í dag.
Rós í hnappagat Veraldar
Elva Dís hringdi.
Mig langar til að láta í ljós
ánægju með Ferðamiðstöðina
Veröld. Ég keypti hjá þeim ferð
til Miami með Flugleiðum og
Eastern Airlines. Þegar
síðarnefnda flugfélagið fór á
hausinn rétt áður en ég fór út
fengu þeir hjá Veröld í hvelli fyrir
mig ferð með Pan Am frá New
York til Miami með sáralitlum
aukakostnaði. Þó var ég á biðlista
til baka þann dag sem ég vildi
snúa heim. Þegar til átti að taka
vom þeir hjá Pan Am mjög
óliðlegir og þegar upp var staðið
þurfti ég að kaupa nýjan flugmiða
frá Miami til New York. Þegar
ég kom heim og bar mig illa við
starfsfólk ferðaskrifstofunnar
Veraldar brást það ljúfmannlega
við og tveimur dögum síðar fékk
ég ávísun senda fyrir öllum þeim
aukakostnaði sem ég hafði orðið
fyrir. Þetta kallar maður þjónustu!
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Hjartans bestu þakkir til ykkar allra, er gerÖu
mér 70 ára afmœlisdaginn minn, 20. mars
1989, að ógleymanlegum gleðidegi.
Lifið heil, vinir mínir!
Ásgerður Gísladóttir.
Námskeið í keramik
er að hefjast í Hulduhólum í Mosfellsbæ.
Upplýsingar í síma 666194.
Steinunn Marteinsdóttir.
Vorönn, seinni hluti:
Fbrvitnileg
námskeið
AÐ SKIPULEGG J A TÍMA SINN 10 st.
Lau. 22. og 29. apríl kl. 13-17.
Þú lærir að nota tímann betur, skilgreina
forgangsverkefni og tímaþjófa, gera
áætlanir og dreifa verkefnum.
Leiðbeinandi: Þórður M. Þórðarson.
ÁKVEÐNIÞJÁLFUN
FYRIR KONUR 12 st.
Þri. og mi. kl. 20-22:15
2vikurfrá25. apríl).
Þú lærir að meta þínar jákvæðu og sterku
hliðar og vinna bug á eða lifa með þeim
veiku. Sjálfstraustið eykst og þú verður
ákveðnari.
Leiðbeinandi: Ingibjörg Guðmundsdóttir.
HOLLUSTA, HREYFING
OG HEILBRIGÐ112 st.
Þri.kl. 18-20:15
(4 vikurfrá 25. aprll).
Þú lærir að lifa heilbrigðara lífi án allra
öfga. Kennt er inni og úti; um streitu,
slökun og hreyfingu, tengsl andlegrarog
líkamlegrar heilbrigði og hollt mataræði.
Skokkað saman í lokin.
Leiðbeinendur: Gígja Hermannsdóttir,
Olga Lísa Garðarsdóttir, Ingólfur S.
Sveinsson og Brynhildur Briem.
REYKJAVÍKURRÖLT 8 st.
Lau. 22. og 29. apríl,
fi. 4. (uppstigningardag) og lau. 6. maí
kl. 13-14:30.
Þú skoðar bæinn á göngu og fræðist um
sögu gömlu Reykjavíkur, íbúa hennar,
götur og hús og færð yfirlit yfir
stækkunina og nýju hverfin.
Leiðbeinandi: Páll Líndal.
KRYDDJURTIR 6 st.
Fi. 25. apríl og 2. maí kl. 18-20:15.
Þú lærir að rækta kryddjurtir heima á
svölunum, I garðinum eða innanhúss og
fræðist um notkun þeirra við matreiðslu
og sem lyfja.
Leiðbeinandi: Hafsteinn Hafliðason.
1ÓMSTUNDA
SKOUNN
Skólavörðustig 28
Sími 621488
ADAMS KJALLARINN
sítni 29122 LAUGAVEGI 47 sími 17575
UTSALA
Stakar buxur frá kr. 700,- - Stakir jakkar. - Jakkaföt.
r