Morgunblaðið - 13.04.1989, Blaðsíða 51
■H.i mu. x\ auukMBJ'nagjfj.VJl tOIWV cÐciAJavrj
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989
os
51
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNI HSÍ 8-LIÐA ÚRSLIT
Guðjón Ámason úr FH tryggði liði sinu sæti (undanúrslitum bikarkeppninn-
ar er hann skoraði sigurmarkið gegn KR þegar 10 sekúndur voru eftir af leik
liðanna í Hafnarfirði í gærkvöldi.
„Mikil og góð hefnd“
- sagði Guðjón Árnason sem skoraði sigurmark FH-inga
FH náði fram hefndum á KR
með því að slá Vesturbœing-
ana út úr bikarkeppni HSÍ f
Hafnarfirði í gœrkvöldi. Leikur-
inn var æsispennandi og réð-
ust úrslit ekki fyrr en á síðstu
sekúndunum. Guðjón Árnason
skoraði sigurmarkið þegar 10
sekúndur voru eftir 22:21 og
tryggði FH sæti í undanúrslit-
um keppninnar.
Guðjón Ámason skoraði tvö
síðustu mörkin fyrir FH og
var hetja liðsins. Þegar ein mínúta
var eftir jafnaði Alfreð Gíslason
fyr>r kr, 21:21, úr
ValurB. vítakasti. FH hóf
Jónatansson sókn þegar 40
skrífar sekúdur voru eftir
sem lauk með því
að Guðjón braust í gegn og skoraði
hálfgert heppnismark - boltinn
skoppaði inn í markið. „Ég vissi
hvað eftir var af leiktímanum og
því var ekkert annað að gera en
að reyna. Ég fór í gegn og það var
stjakað við mér þannig að ég fór
úr jafnvægi en tókst þó að koma
knettinum í netið,“ sagði Guðjón.
„Sigurinn er mikil og góð hefnd
þar sem við töpuðum báðum leikj-
unum gegn KR með einu marki í
deildinni. Við vorum ákveðnir í að
selja okkur dýrt. Leikurinn var mjög
erfíður en áhorfendur hjálpuðu okk-
ur mikið í lokin," sagði Guðjón.
Hann sagðist vera ánægður með
að hafa dregist gegn ÍR. „En við
eigum eftir að vinna ÍR-inga - það
gerist ekki sjálfkrafa."
Leikurinn var jafn frá fyrstu
mínútu og allt lagt undir hjá báðum
liðum. KR hafði frumkvæðið í fyrri
hálfleik - mest þriggja marka for-
skot - sem FH náði að minnka
niður í eitt mark fyrir hlé, 10:11.
í síðari hálfleik náðu FH-ingar fljót-
lega að jafna og var jafnt á öllum
tölum upp 16:16. KR-ingar náðu
tveggja marka forskoti, 17:19, þeg-
ar átta mínútur voru eftir og enn
stefndi í KR-sigur. FH-ingar voru
ekki á sama máli og gerðu næstu
þijú mörk og breyttu stöðunni í
20:19. Stefán jafnaði fyrir KR,
20:20. Síðustu mínútumar voru
BIKARINN
Valur fékk
Stjömuna
M
Islands- og bikarmeistarar Vals
mæta Stjömunni í undanúrslit-
um bikarkeppninnar og ÍR mætir
FH, en dregið var eftir leik FH og
KR í gærkvöldi. Leikimir eiga að
fara fram á þriðjudagskvöld.
æsispennandi eins og áður er lýst.
Leikurinn var skemmtilegur og
baráttan í fyrirrúmi hjá báðum lið-
um. Bestu leikmenn FH vom Guð-
jón Ámason og nafnamir Óskar
Ármannsson og Helgason. Eins
léku Héðinn og Þorgils Óttar vel í
síðari hálfleik. Hjá KR var Alfreð
bestur Leifur Dagfinnsson varði vel 5
í markinu og Stefán gerði falleg
mörk þó hann hafí verið óheppinn
með skot sin í lokin.
Mörk FH: Óskar Ármannsson 7/2, óskar
Helgason 4, Guðjón Árnason 4, Héðinn
Gilsson 3, Þorgils Óttar Mathiesen 2 og
Gunnar Beinteinsson 1.
Mörk KR: Alfreð Gfslason 8/3, Steíán
Kristjánsson 6, Sigurður Sveinsson 3, Guð-
mundur Pálmason 2 og Konráð Olavsson 1.
LOKASTAÐAN
1.DEILD
Fj.lelkja u i T Mörk Stifl
VALUR 18 17 0 1 480: 361 34
KR 18 13 1 4 447: 417 27
STJARNAN 18 10 4 4 424: 392 24
FH 18 9 2 7 482: 462 20
GRÓTTA 18 7 4 7 402: 399 18
KA 18 6 2 10 425: 444 14
VÍKINGUR 18 6 2 10 457: 499 14
IBV 18 4 3 11 395:440 11
FRAM 18 4 3 11 402:444 11
UBK 18 3 1 14 406:462 7
íp/émR
FOLK
■ VAGIN KhidJatuIIin, lands-
liðsmaður Sovétríkjanna, sem leik-
ur með franska liðinu Toulouse,
verður frá keppni út þetta keppn-
istímabil. Hann er meiddur á í nára
og mun missa af leik Sovétmanna
gegn A-Þjóðverjum í heimsmeist-
arakeppninni 26. apríl og einnig
leik gegn íslendingum í Moskvu
29. maí.
■ DANIR unnu Kanadamenn
2:0 í vináttulandsleik í Álaborg í
gærkvöldi að viðstöddum 16.000
áhorfendum. Lars Elstrup (37.) og
Kim Vilfort (72.) gerðu mörk
heimamanna.
■ A TLETICO Madrid sló Barc-
elona út úr spænsku bikarkeppn-
inni í gærkvöldi með því að vinna
öruggan sigur, 4:0, á heimavelli og
samanlagt, 7:3. Brasilíumaðurinn
Baltazar de Morais skoraði tvö
mörk fyrir Atletico. Coruna, sem
tapaði, 0:1, fyrir Real Mallorka,
komst áfram í undanúrslit á saman-
lagðri markatölu, 4:2. Hinum
tveimur leikjunum í 8-liða úrslitun-
um var frestað.
■ LIVERPOOL og Arsenal
leika á Anfield Road sunnudaginn
23. apríl. Flestir telja að leikurinn
ráði úrslitum um hvort liðið verði
Englandsmeistari. Viðureignin
verður í beinni útsendingu sjón-
varps í Englandi en engu að siður
er þegar uppselt.
■ BRIAN Clough, stjóri Nott-
ingham Forest, tók ekki við verð-
launapeningi eftir sigur liðsins f
deildarbikarkeppninni á sunnudag.
Hann sagði Ron Fenton, uðstoðar-
þjálfara sínum, að fara upp tröpp-
umar með leikmönnunum og veita
peningnum móttöku. Þegar Fenton
ætlaði að láta Clough fá verðlauna-
peninginn inni í búningsherbergi,
varð hann orðlaus. „Þú átt hann,"
sagði Clough. Fenton hefur verið
aldarfjórðung í knattspymunni og
var þetta fyrsti verðlaunapeningur-
inn á ferlinum.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
UBK - KA
30 : 27
fslandsmótið í handknattleik, 1. deild
karla, íþróttahúsinu Digranesi, mið-
vikudaginn 12. apríl 1989.
Gangur leiksins: 2:0, 5:3, 7:6, 10:7,
12:10, 17:12, , 19:15, 19:20, 22:22,
24:24, 27:24, 28:26, 28:27, 80:27.
UBK: Pétur Ingi Arason 9, Jón Þórir
Jónsson 6/1, Þórður Davíðsson 4,
Kristján Halldórsson 4, Andrés Magn-
ússon 3, Elvar Erlingsson 2, Magnús
Magnússon 2.
Varin skot: Þórir Sigurgeirsson 17/1,
Guðmundur Hrafnkelsson.
Utan vallan 6 mínútur.
KA: Erlingur Kristjánsson 9/1, Sigur-
páll Aðaisteinsson 6/2, Pétur Bjama-
son 4, Friðjón Jónsson 3, Jóhannes
Bjamason 3, Guðm. Guðmundsson 2.
Varin skot: Axel Stefánsson 9, Bjöm
Bjömsson 1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Áhorfendur: 30.
Dómarar: Guðjón Sigurðsson og Há-
kon Siguijónsson dæmdu ágætlega.
Stjaman - IBV
30 : 24
íslandsmótið f handknattleik, 1. deild
karla, Iþróttahúsinu Digranesi, mið-
vikudaginn 12. aprfl 1989.
Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 5:2, 11:5,
15:8, 16:10, 17:11, 19:13, 22:16,
28:18, 29:22, 30:24.
Stjaman: Siguijón Bjamason 8, Gylfi
Birgisson 8/1, Skúli Gunnsteinsson 6,
Axel Bjömsson 6.
Varin skot: Brynjar Kvaran 18/2,
Gunnar Erlingsson.
Utan valiar: 8 minútur og eitt rautt
spjald.
ÍBV: Jóhannes Pétursson 6/1, Guð-
finnur Kristmannsson 5, Þoreteinn
Viktorsson 6/1, Sigurður Másson 4,
Sigurbjöm Óskareson 4.
Varin skot: Ingólfúr Amareon 12,
Sigmar Þröstur Oskarsson 2,
Utan vallar: 2 mlnútur.
Áhorfendur: 75.
Dómarar: Vigfús Þoreteinsson
Steinþór Baldureson.
»g
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Guðni meðáný
Markalaust jafntefli í London hjá
Tottenham og Sheffield Wednesday
GUÐNI Bergssonfékktækifæri
á ný meðTottenham í gær-
kvöldi, er liðið gerði marka-
laust jaf ntefli gegn Sheffield
Wednesday á White Hart Lane
í 1. deild ensku knattspyrnunn-
ar. Sigurður Jónsson var vara-
maður hjá Sheffield.
Guðni lék síðast með Spurs
gegn Charlton um miðjan
febrúar, en síðan hefur Marokkó-
maðurinn Nayim leikið varnarhlut-
verkið á hægri vængnum. Hann tók
hins vegar út leikbann í gærkvöldi
ásamt Paul Stewart og Terry Fen-
wick.
„Við sóttum nær látlaust og
fengum fjölmörg marktækifæri, en
heppnin var ekki með okkur. Við
fengum 19 hornspyrnur gegn
tveimur og segir það allt um gang
leiksins," sagði Guðni við Morgun-
blaðið eftir leikinn.
Þetta var í fyrsta sinn í síðustu
11 leikjum, sem leikmenn Spurs ná
ekki að skora, en liðið leikur næst
gegn Wimbledon.
Öruggt hjá Forest
Notthingham Forest átti ekki í
erfíðleikum með Southampton og
vann 3:0. Nigel Clough (viti), Stu-
art Pearce fyrirliði og Tommy Gay-
nor gerðu mörk heimamanna.
Skömmu fyrir leikslok varði Steve
Sutton, markvörður Forest, víti frá
Neil Ruddock. Fimm leikmenn voru
bókaðir og Mickey Adams hjá
Southampton fékk að sjá rauða
spjaldið.
UBK kvaddi með sigri
SÍÐUSTU leikirnir í 1. deild
karla að þessu sinni fóru fram
í gærkvöldi og var greinilegt
að þeir skiptu liðin ekki miklu
máli.
Breiðablik kvaddi 1. deild að
sinni með sanngjömum sigri
gegn KA í gærkvöldi. Blikar, sem
voru án markakóngsins, Hans Guð-
mundssonar, er var
í leikbanni, geta
fyrst og fremst
þakkað Þóri Sigur-
geirssyni sigurinn,
en hann varði eins og berserkur.
Liðið er greinilega ekki á flæðiskeri
statt hvað markmenn varðar —
landsliðsmaðurinn sat á bekknum
allan leikinn!
Hörður
Magnússon
skrífar
Guðni Bergsson
Ikvöld
Fram o g Valur mætast í Laugardalnum
í Reykjavfkurmótinu í knattspymu kl.
20.30.
■Fram og FH leika í undanúrslitum
bikarkeppni kvenna í handknattleik kl.
20 í Laugardalshöllinni.
Elnstefna
Stjaman átti ekki í erfíðleikum
með ÍBV og sigraði með sex marka
mun. Brynjar Kvaran varði mjög
vel, greinilega í góðri æfíngu. Sig-
urjón Bjamason fékk tækifærið, lék
í hægra hominu og skoraði átta
glæsileg mörk. Sigurður Gunnars-
son stjómaði ÍBV-liðinu frá bekkn-
um, en hann hefur einnig verið
mikilvægasti hlekkurinn innan vall-
ar og bar leikur Eyjamanna þess
augljós merki.
Brynjar Kvaran og Sigurjón Bjarnason,
Stjömunni. Þórir Sigurgeireson,
UBK.
Pétur Ingi Arason, UBK. Erlingur
Kristjánsson, KA. Gylfi Birgisson,
Sijömunni. Ingólfur Amarson, ÍBV.
FRAKKLAND
St. Germain
enní
öðrusæti
París St. Germain fékk tækifæri
til að komast í efsta sæti 1.
deildar í Frakklandi í gærkvöldi,
en mátti þakka fyrir markalaust
jafntefli í Strabourg og er enn stigi
á eftir Marseille með 62 stig, er
fimm umferðir eru eftir. Joel Bats,
markvörður, var hetja gestanna og
varði m. a. vítaspymu.
Úrslit urðu annars þessi:
Bordeaux-Metz............4:1
Laval-Cannes.............2:0
Lens-Nantes..............0:0
Matra Racing-Caen........3:1
Montpellier 2 Lille......2:3
Nice-Toulouse............2:0
Sochaux-Toulon...........2:1
St Etienne-Auxerre.......1:1
Strasbourg-Paris St Germain.... 0:0
Marseille-Mónakó.........2:2