Morgunblaðið - 07.05.1989, Page 18

Morgunblaðið - 07.05.1989, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989 Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Jolrannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Evrópuráðið fagnar 40 árum Evrópuráðið sem hélt upp á 40 ára afmæli sitt á föstu- daginn var stofnað á rústum síðari heimsstyijaldarinnar undir merkjum friðar og lýð- ræðis. Á þessum árum jafngilti Evrópuhugsjónin voninni um að samstarf þjóðanna, sem tók- ust á í Norðurálfu, kæmi í veg fyrir þann hildarleik sem rekja mátti til einræðis nasista og þess að þeir féllust í faðma ein- ræðisherrarnir Hitler og Stalín. Að stofnun ráðsins stóðu því lýðræðisríki og þau lönd, sem áttu ekki sérstaklega undir Moskvuvaldið að sækja. íslendingar gerðust aðilar að Evrópuráðinu 1950. Nú eru aðildarríkin 23 og meðal þeirra sem hafa bæst í hópinn hin síðari ár eru Spánveijar og Finnar. Á meðan lýðræðislegir stjómarhættir voru ekki á Spáni gat landið ekki gerst aðili að Evrópuráðinu. Finnar hafa til þessa kosið að standa utan ráðsins og hefur sérstakt samband þeirra við Sovétríkin komið þar við sögu. Nú á 40 ára afmæli Evrópu- ráðsins eru sagðar líkur til þess að á næstu ámm kunni ríki austan járntjaldsins að tengjast ráðinu með einum eða öðrum hætti og eru Ungveijaland og Pólland nefnd í því samhengi en þar hefur þróun frá einræði kommúnismans sett sterkan svip á þróun mála undanfarið. Þessar umræður eru til marks um þá gleðilegu staðreynd að hugsjónirnar að baki Evrópur- áðsins hafa orðið ofan á í sam- keppni hugmyndanna. Gildis- mat þeirra sem aðhyllast lýð- ræðislega stjórnarhætti hefur sigrað og kommúnisminn er á undanhaldi. Lýsingamar á há- tíðahöldum í kommúnistaríkj- unum 1. maí síðastliðinn bera þess merki, að þar hafi fólki þótt lítils virði að fara út á götur og torg til að fagna kerfi og stjómarháttum marxis- mans, sem ráðamennirnir sjálf- ir hafa sagt að nauðsynlegt sé að breyta. í ræðu sem Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður og formaður sendinefndar íslands hjá Evrópuráðinu, flutti í um- ræðum á Alþingi um skýrslu utaníkisráðherra benti hún meðal annars á það að innan Evrópubandalagsins gæti vax- andi tilhneigingar til að fara inn á ýmis svið, sem em ekki efnahagssamstarf í venjulegum skilningi. Sagði hún að vegna þess hefðu fulltrúar voldugra þjóða í Evrópubandalaginu undirstrikað þörf þjóðanna til að halda einkennum sínum og sjálfstæði í því sambandi. Taldi Ragnhildur að þessi þörf væri algerlega virt í stofnskrá og starfi Evrópuráðsins og það væri einmitt atriði sem gerði að verkum að ríkin gætu sótt styrk við eigið sjálfstæði með því að taka með virkum hætti þátt í slíku starfi. í framhaldi af þessu sagði Ragnhildur að ýmsir þættir íslands í starfi innan Evrópuráðsins hafi verið alltof dauflegir og þeim ekki nægilega vel sinnt. Evrópuráðið kemur ekki í stað Evrópubandalagsins og enginn vafi er á því, að Evrópu- bandalagið á eftir að færa út kvíarnar á næstu árum, bæði ná til fleiri þjóða en nú og láta sig fleiri mál skipta. Þar með er ekki sagt, að Evrópuráðið hafí ekki áfram mikilvægu hlutverki að gegna. Varðstaða þess og stofnana ráðsins um mannréttindi og lýðræðislega stjórnarhætti er ómetanleg og hefur sígilt gildi. Geti Evrópu- ráðið rétt þeim þjóðum austan járntjalds hjálparhönd sem eru að býija að feta sig inn á lýð- ræðisbrautir á sú setning enn eftir að sannast að allt er fer- tugum fært. Jón forseti og réttur tungnnnar Iíslenzk tunga er •áhyggjuefni um þessar mundir því að hún á undir högg að sækja. Það leiðir hugann að baráttu Jóns Sig- urðssonar og samheija. hans fyrir vemd hennar og rétti svo notað sé þeirra eigið orð í Nýjum Félagsrit- um og Andvara. Jón skrifaði sjálfur um tunguna í Félagsritin og varð- aði veginn þar sem annars staðar. Málflutningur hans birtist svo enn í nafnlausri grein í Andvara 1876, Um rétt íslenzkrar túngu. Megin- kjami þeirrar ritgerðar er augljós- lega sóttur í málflutning Jóns í Nýjum Félagsritum einsog ég mun drepa á. Andvara-greinin er nánast útfærsla á skrifum Jóns um íslenzka tungu og rétt hennar í Félagsritum. Auk Jóns forseta skrifuðu S.J, líklega Sigurður L. Jónasson og J.G. eða Jón Guðmundsson, um tungu okkar í Ný Félagsrit og er grein hins fyrmefnda með sömu fyrirsögn og nafnlausa greinin í Ándvara 1876. Grein Sigurður L. Jónassonar birtist í XXIII árg. Nýrra Félagsrita, 1863. Báðir láta þeir S.J. og J.G. geirinn gjalla gegn erlendum áhrifum á mál okkar, og Jón Guðmundsson beinir ekki sízt spjótum sínum að þeirri dönsku- skotnu mállýzku sem tíðkaðist í Reykjavík um og eftir miðja síðustu öld en þá töldu ýmsir þessa upp- rennandi höfuðborg íslands hálf- danskan bæ. Við hefðum haft gott af að hlusta á slíkan eldhuga nú þegar að tungunni er sótt með svip- uðum þunga og um miðja síðustu öld, þótt áhrifin berist hingað með öðmm hætti en þá. í grein S.J. í Nýjum Félagsritum er drepið á svip- HELGI spjall uð efni og í Andvara- greininni en þó er málflutningur Jóns Sigurðssonar fremur fyrirmynd hennar en greinar þeirra sam- heija Jóns forseta sem ég hef nefnt. í grein Sigurðar L. Jónassonar er talað um að við höfum ekki nennt að girða akur okkar einsog hann kemst að orði og á þá við íslenzka tungu og veija hann fyrir ágangi annarra, “þar hefur því komizt inn margt svínið, og margt eitt illgresið vaxið þar.“ Nú sé tími til kominn að uppræta illgresið á þessum dýrlega akri og reka út svínin. Þess má geta að Sigurður L. Jónasson var bæði í ritnefnd með Jóni forseta í Nýjum Félagsritum og Andvara og því augljóst hvert hann hefur sótt eldinn í áhuga sinn. 2En nú skulum við líta á bar- • áttu þeirra félaga fyrir móð- urtungunni sem átti þá einsog nú í vök að veijast á óhirtum akri sam- tímans. I greininni Alþíngi og alþíngis- mál í XVIII árgangi Nýrra Félags- rita 1858 segir Jón forseti m.a. þegar hann víkur að íslenzkri tungu: „Að forminu til er mikill og undarlegur galli á vorum lögum, sem vér ætlum ekki eiga sér stað nokkurstaðar í heimi, þar sem svo á að heita að þjóðin njóti þeirra réttinda, að mega tala sínu máli. að eiga fulltrúaþíng með réttindum til að ræða löggjafarmál og sérhver önnur stjómarmál landsins á þess eigin máli; að hafa kirkjustjóm, skólastjóm og dómaskipan einnig á sínu eigin máli: Þessi galli er sá, að lög íslands koma út bæði á Dönsku og íslenzku, en þannig, að Danskan ein er undirskrifuð af kon- úngi, og hefir að því leyti meira gildi en Islenzkan, en íslenzkan ein er aptur þínglesin, og hefír að þeim helmíngnum meira gildi en Dansk- an.“ Síðan segir Jón í þessari löngu og ítarlegu grein að svo virðist sem sá texti gildi meira sem konungur skrifar undir, en samt þyki sjálfsagt að þau Iög sem eigi að skuldbinda menn verði að vera birt þeim á því máli sem þeir skilja. í Andvara- ritgerðinni, Um rétt íslenzkrar túngu (1876), er bent á hið sama og Jón forseti nefnir í ritgerð sinni um Alþingismál, að bæði Iandsyfir- réttur á íslandi og jafnvel hæstirétt- ur með dönskum dómumm hafi dæmt að lög væru ekki gild á ís- landi nema þau væru þinglesin á íslenzku frá upphafi til enda, einsog Jón kemst að orði. Lagafrumvörp séu einnig lögð fram á íslenzku og rædd á því máli og Alþingistíðindi prentuð á íslenzku en ekki dönsku. „En samt lendir í því á endanum," bætir Jón Sigurðsson við, „að lögin koma út einsog aðalmálið á þeim sé Danska, en þau eru birt eins og þau væri ekki til á Dönsku". Sé þetta með þessum hætti þótt enginn neiti því „að íslenzka sé stofnmálið á Norðurlöndum" og er þess einnig getið í fyrrnefndri Andvara-ritgerð, Um rétt íslenzkrar túngu. Það megi því undarlegt heita, bætir Jón forseti við, að stjómin skuli „neita oss um einn hluta af vomm náttúr- legu réttindum, sem er að hafa full- gild lög á vom eigin máli, einsog vér höfum öll þínghöld og dóma- skipan." Þessi stefna kanselísins sé til að kæla niður of mikla þjóðlega tilfinningu íslendinga og má það vafalaust vera. M. (meira næsta sunnudag) 19 „Spurningin í íslenzku þjóðlífi nú er ekki sú, hve- nær núverandi ríkissljórn fellur. Það er í raun og veru aukaatriði, hvort hún situr einu misseri leng- ur eða skemur. Það ligg^ur fyrir, að hún hefur hvorki metnað, vilja né styrk til þess að ná nokkr- um þeim umbót- um fram, sem máli skipta. Spurningin nú er sú, hvort hægt er að nota tímann til þess að skapa hér samstöðu á milli þeirra afla í stjórnmálum og atvinnulífi, sem gera sér ljóst, að það er höfuðnauð- syn að ná fi*am grundvallar- breytingum í þjóðlífi okkar al- mennt og atvinnu- lífinu sérstak- lega.“ REYKJAVIKURBRÉF Laugardagur 6. maí valdakerfi brezka íhaldsflokksins og and- staðan við hana var mikil þar innan dyra í upphafi. Islenzkur embættismaður, sem nýlega kom frá Moskvu, veitti því eftir- tekt, hvað sovézkir embættismenn, sem hann hitti að máli, voru gagnrýnir á um- bótastefnu Gorbatsjovs og fundu henni allt til foráttu. íslendingnum þótti athyglis- vert að heyra þessa gagniýni en ekki síður, að hún var sett fram án þess að embættismennimir virtust óttast afleiðing- ar þess að tala á þann veg. Það eitt út af fyrir sig sýnir, að mikil breyting er á orðin. En um leið er það velþekkt fyrir- bæri, að tilraunir til gagngerra breytinga á ríkjandi ástandi kalla fram sterka and- stöðu hinna ráðandi afla. HÉR HEFUR nokkuð verið rætt um umbótastefnu Thatcher í Bret- landi og Gor- batsjovs í Sovétríkj- unum. Ljóst er, að Thatcher hefur náð þeim árangri, sem ekki verður aftur tekinn. Hið sama verður ekki sagt um Gorbatsjov enda ekki við því að búast. Þar stendur nú yfir tilraun til þess að koma á friðsamlegri byltingu í risaveldi, sem um aldir hefur búið við ein- ræði og miðstýringu. Slíku þjóðfélagi verð- ur ekki breytt á örfáum árum og enginn veit hver framtíð Gorbatsjovs verður. Ein spurningin er sú, hvort breytingaskeiðið undir hans stjóm standi svo lengi, að ekki verði aftur snúið. Önnur spuming er, hvort umbótastefna hans byggi á svo veikum gmnni, að hún mundi falla, ef Gorbatsjov sjálfur fengi t.d. hjartaáfall. Tilefni þess að tilraunir tveggja þjóðar- leiðtoga til þess að knýja fram grundvallar- breytingar í þeim ríkjum, sem þeir veita forystu, em gerðar hér að umtalsefni sér- staklega, er einfaldlega að þörf er á rót- tækri umbótastefnu hér á Islandi og þá er orðið róttækur að sjálfsögðu ekki notað á hinn hefðbundna hátt! Hér vantar ríkis- stjóm með metnað til þess að gera eitt- hvað það sem máli skiptir fyrir framtíð þessarar þjóðar. Slík ríkisstjóm situr ekki í landinu í dag. Raunar hefur núverandi ríkisstjóm með störfum sínum orðið til þess að undirstrika nauðsyn þess, að hér komist til valda ríkisstjóm og stjómmála- menn, sem hafa metnað og vilja til þess að vinna að raunverulegum umbótum í þjóðlífi okkar íslendinga, sem er orðið staðnað og þreytt. Það er kannski alltof mikil einföldun og alhæfmg að segja, áð hér hafi ekki setið ríkisstjóm með slíkan metnað frá því að viðreisnartímabilinu lauk. Auðvitað var mikill metnaður fólginn í útfærslu fisk- veiðilögsögunnar í 50 sjómílur á tíma vinstri stjómar Ólafs Jóhannessonar 1971-1974. Ríkisstjóm Geirs Hallgrims- sonar, sem sat frá 1974-1978 setti sér þijú meginmarkmið; að tryggja vamir landsins, að færa fískveiðilögsöguna út í 200 mílur og að ná tökum á óðaverð- bólgunni, sem varð til í tíð forvera henn- ar. Þessi ríkisstjóm náði með glæsibrag fyrstu markmiðunum tveimur en mistókst á lokasprettinum að ná því þriðja. Frá miðju ári 1978 hafa hins vegar setið hér metnaðarlausar ríkisstjómir, sem hafa hjakkað í sama farinu. Spumingin í íslenzku þjóðlífí nú er ekki sú, hvenær núverandi ríkisstjóm fellur. Það er í raun og vera aukaatriði, hvort hún situr einu misseri lengur eða skemur. Það liggur fyrir, að hún hefur hvorki metnað, vilja né styrk til þess að ná nokkr- um þeim umbótum fram, sem máli skipta. Spumingin nú er sú, hvort hægt er að nota tímann til þess að skapa hér sam- stöðu á milli þeirra afla í stjórnmálum og atvinnulífí, sem gera sér ljóst, að það er höfuðnauðsyn að ná fram grandvallar- breytingum í þjóðlífí okkar almennt og atvinnulífinu sérstaklega. Næsta ríkis- stjóm, sem mynduð verður á íslandi, verð- ur að hafa þann metnað að vilja vinna að og framkvæma gagngera umbótastefnu í íslenzku þjóðlífí og ágætt er að nota alda- mótin, sem viðmiðun og takmark. Hver er metnaður ríkis- stjórna? Frá Akureyri. í ÖLLUM STJÓRN- Tregðulog-- fólk> sem viU vmna málið að grandvallar- breytingum í þjóðlífí okkar. í atvinnulífínu og í verkalýðsfélögunum er líka fólk, sem vill vinna að framkvæmd raunveralegrar umbótastefnu. En það er sama hvort um er að ræða Bretland, Sovétríkin eða ís- land. Alls staðar er tregðulögmálið fyrir hendi. Alls staðar era öfl, sem era andvíg breytingum á ríkjandi ástandi vegna þess að þau hafa tryggt aðstöðu sína með nú- verandi ástandi. Þessi öfl era í öllum stjóm- málaflokkum, þau eru líka í atvinnulífmu og í verkalýðsfélögunum. Það þarf kannski engan að undra, þótt andstaða sé mikil við breytingar hér á íslandi. Við búum í ákaflega lokuðu og einangraðu samfélagi. En um leið sýnir fengin reynsla, að þegar breytingar eru knúðar fram, taka landsmenn þeim fagn- andi. Það má fínna í andrúmsloftinu, að jarðvegur er að skapast fyrir nýja umbóta- sinnaða ríkisstjóm á borð við þá, sem Við- reisnarstjómin var. Sú stöðnun, sem hér hefur ríkt í áratug og Víglundur Þorsteins- son, formaður Félags ísl. iðnrekenda, benti m.a. á í athyglisverðri ræðu á ársþingi iðnrekenda i vetur, veldur því, að fram- farasinnað fólk í öllum flokkum er farið að sýna óþolinmæði vegna þess hreyfíngar- leysis, sem sýnist lama alla þjóðfélags- þróun. Þótt málefnaleg samstaða sé ekki til staðar um þær umbætur, sem koma þarf á fram að aldamótum, er áreiðanlega nokk- uð víðtæk samstaða um það hver málin era, sem vinna þarf að. Þar má fyrst nefna fískveiðistefnuna og fískvinnslustefnuna. Róttækar breytingar á þessu sviði era lyk- ill að allri þjóðfélagsþróun hér á næstu áram. í annan stað má nefna landsbyggð- arpólitíkina en inn í hana blandast land- búnaðarstefna og samgöngumálin. Raun- hæf málamiðlun á þessum vettvangi er höfuðatriði. í þriðja lagi era samskiptin við útlönd á ný að verða meginviðfangs- efni, annars vegar samband okkar við Evrópubandalagsríkin og hins vegar sú spuming, hvort við eigum að opna landið fyrir miklu víðtækari samkeppni erlendis frá en áður. Tilgangurinn með því væri sá, að tryggja neytendum lægra verð á vöra og þjónustu og veita fyrirtækjum hér miklu meira aðhald en þau hafa haft. í fjórða lagi er svo fyrirsjáanlegt, að meiri átök þarf til þess að vernda tungu okkar og menningu en áður vegna hinnar nýju alþjóðlegu fjölmiðlunar. Hér hafa verið nefnd fíögur meginmál en vafalaust kemur margt fleira til. Burt með fordóma og þröngsýni! sem ríkja á milli manna í stjómmálaflokk- EITT AF ÞVI SEM háir okkur mjög í þessu fámenna og lokaða samfélagi era þeir miklu per- sónulegu fordómar, unum og atvinnulífínu. í kjölfar fordóma, sem eru bæði innan flokka og milli flokka, fylgir svo dæmalaus þröngsýni í samskipt- um á milli flokka og einstaklinga. Það sem engu skiptir, þegar mál era skoðuð í stærra samhengi, verður að stórmáli! Þess- ir fordómar og þessi þröngsýni hafa lam- andi áhrif á möguleika þjóðarinnar til framfara. Ein af forsendum þess, að forystulið þjóðarinnar geti stillt saman strengina til nýrrar framfarasóknar er sú, að þessi for- ystusveit skríði upp úr músarholunum og striki yfír gamlar deilur. Þær skipta hvort sem er engu máli. Um fyrirsjáanlega framtíð verður það svo, að stjórnmála- flokkar vinna saman að stjórn landsins. Að óbreyttu mun enginn einn flokkur ná hér meirihluta. Að því leyti til era aðstæð- ur hér aðrar en í Bretlandi og Sovétríkjun- um (!). Verkefnið, sem- nú blasir við er, að umbótasinnaðir menn í öllum flokkum og í atvinnulífinu tali saman. Menn geta talað saman, þótt sumir séu í stjórn og aðrir í stjómarandstöðu. Þegar næsta ríkisstjórn verður mynduð þarf að liggja fyrir nokkuð víðtæk samstaða um meginmál á milli þeirra sem hafa metnað, vilja og þrek til þess að takast á hendur það vandasama og erfiða starf að hrinda í framkvæmd djúpstæðustu breytingum í íslenzku þjóð- félagi, sem framkvæmdar hafa verið frá tímum nýsköpunarstjórnar og Viðreisnar- stjórnar. Það er ekki eftir neinu að bíða. Morgunblaðið/Rúnar Þór Þess var minnzt í Bret- landi, og raunar víðar um heim, nú í vikunni, að hinn 4. maí sl. hafði Margrét Thatcher gegnt forsætisráðherraemb- ætti lengur en nokkur annar í u.þ.b. eina og hálfa öld. Skiptar skoðanir era um stjómmálastefnu Thatch- ers en um eitt geta menn verið sammála, hvort sem þeir era með henni eða móti; hún hefur haft metnað til þess að beijast fyrir grandvallarbreytingum í brezku þjóðlífi. I máli fólks hér er orðið „róttæk- ur“ yfirleitt notað um vinstri menn. í þeirri orðanotkun felst viss afskræming á merkingu orðsins. Margrét Thatcher hefur t.d. beitt sér fyrir róttækum umbótum í Bretlandi en þær eiga ekkert skylt við vinstri mennsku. Hún hefur hins vegar ráðizt að ríkjandi ástandi og knúið fram miklar breytingar. Ferðamenn, sem koma til Bretlands, sjá þá breytingu, sem þar hefur orðið. Fyrir áratug var þar allt í niðurníðslu. Þetta mátti sjá með því einu að ganga um Lund- únaborg. Þeir, sem koma þangað nú hafa orð á því, hvílík umskipti hafi orðið. Sú endurnýjun, sem þar hefur orðið leynir sér ekki. Sá kraftur, sem einkennir allt andrúm í Bretlandi fer ekki á milli mála. Tíu ára valdatími brezka Ihaldsflokksins undir for- ystu Thatchers, hefur leitt til róttækustu breytinga, sem þar hafa orðið frá því á fyrsta áratugnum eftir lok heimsstyijald- arinnar síðari. Þegar þetta er haft í huga þarf kannski ekki að koma á óvart, að enginn vestrænn þjóðarleiðtogi, hefur lýst jafn sterkum stuðningi við umbótastefnu Gorbatsjovs í Sovétríkjunum og einmitt Thatcher. Hún virðist nota hvert tækifæri til þess að lýsa ^ stuðningi við tilraunir Gorbatsjovs til þess að koma á nýrri byltingu í Sovétríkjunum. Siðferðilegur stuðningur Thatchers við stefnu sovézka leiðtogans er honum ómet- anlegur vegna þess að margir Vestur- landabúar, sem hafa tilhneigingu til að tortryggja flest það, sem gerist austan jámtjalds, veita eftirtekt þeim undirtekt- um, sem Gorbatsjov fær hjá Thatcher. Vafalaust liggja margar ástæður til þess að Thatcher hefur slíka trú á sovézka leið- toganum en ein er sú, að þau eiga það sameiginlegt, að bæði eru róttækir um- bótasinnar, hún á hægri kantinum en hann á þeim vinstri. Það er fróðlegt að kynnast þeim nýja hugsunarhætti, sem er að ryðja sér til rúms í Sovétríkjunum. Þar er nú komin fram á sjónarsviðið ný kynslóð sérfræð- inga, sem telur nauðsynlegt að draga úr fjárframlögum til hernaðarmála og beina þeim fíármunum í uppbyggingu sovézks atvinnulífs, ekki til þess að draga úr hem- aðarmætti Sovétríkjanna, heldur beita þeir þvert á móti þeirri röksemd, að þessi stefnubreyting sé nauðsynleg til þess að auka hann! Þessi hugsunarháttur er í sam- ræmi við þær kenningar, sem bandaríski prófessorinn Paul Kennedy, hefur m.a. lýst í nýlegri bók um risaveldi allra tíma, að hernaðarmáttur ríkja byggi ekki bara á fjölmennum her og miklum vopnabúnaði heldur ekki síður því iðnaðarveldi, sem á bak við vígbúnaðinn stendur. Hin nýja kynslóð hugsuða í Sovétríkjun- um hefur líka sett fram þá skoðun, að það sé nauðsynlegt að beina fjármunum þjóð- arinnar í almenna atvinnuuppbyggingu til þess að bæta kjör fólksins vegna þess að Sovétríkjunum stafi ekki lengur hætta af hemaðarstyrk vestrænna þjóða. Mesta hætta, sem sósíalismanum sé búinn, sé fólgin í því, að Vesturlönd sannfæri þjóðir sósíalistarílqanna um yfírburði hins vest- ræna hagkerfis einfaldlega með margfalt betri lífskjörum. Þessari samkeppni verði Sovétríkin að mæta með nýrri hugsun og áherzlu á annað en vígbúnað. Margrét Thatcher mætti mikilli and- stöðu í Bretlandi í upphafi ferils síns enda einkenndust fyrstu valdaár hennar af mik- illi verðbólgu, atvinnuleysi og gjaldþrotum fyrirtækja. Hún er utangarðsmaður í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.