Morgunblaðið - 06.06.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.06.1989, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 125. tbl. 77. árg. ÞRIÐJUDAGUR 6. JUNI 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vélbyssum og skriðdrekum beitt gegn almenningi í Peking; Þúsundir manna falla í grimmilegnm átökum Hætta talin á borgarastyrjöld - Tvö herfylki sögð andspænis hvort öðru Almennir borgarar stóðu and- spænis skriðdrekum og her- mönnum með alvæpni á götum Peking í gær. Þessi mynd er tek- in við gatnamót í nágrenni sendi- ráðahverfisins. Villidýr! Villidýr! hrópaði fólkið þegar vígdrekarn- ir fóru fram hjá. Hermennirnir munduðu byssur sínar og skutu á þá, sem voru í vegi þeirra. Skipan herliðsins þótti bera þess merki, að foringjar þess byggju sig undir átök við aðra en vopn- lausan almenning. Orðrómur var á kreiki um að slegið hefði í brýnu milli hersveita. Peking, Washington, London, Hong Kong. Reuter. Daily Telegraph. ÞÚSUNDHt manna hafa fallið í Peking síðan herinn var sendur gegn námsmönnum á Torgi hins himneska friðar fyrir rúmum tveimur sólarhringum. Sumar heimildir segja að 7.000 manns hafi týnt lífi og aðrar 10.000 en BBC hafði eftir starfsmönnum Rauða krossins í Peking í gær- kvöldi að hinir látnu skiptu þús- undum. Sjúkrahús og læknar anna ekki að sinna slösuðum. Að morgni þriðjudags í Peking (klukkan þar er níu tímum á undan okkar) ótt- uðust menn frekari blóðsúthell- ingar og stjórnleysi í borginni og víðar í Kína. Ræddu fréttamenn um hættu á borgarastyijöld og sumir Kinveijar sögðu að hún væri þegar hafin. Fregnir bárust um að tvö herfylki stæðu and- spænis hvort öðru grá fyrir járn- um í höfuðborginni. Sérfiæðingar bentu á að mun meiri herafli hefði verið sendur inn í borgina en nauðsynlegur væri til að bijóta andstöðu námsmanna á bak aftur. Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC sagði orðróm á kreiki um að Deng Xiaoping, leiðtogi kommúnista- flokksins, lægi fyrir dauðanum. Hrottaskapur hermannanna, er réðust inn á Torg hins himneska frið- ar aðfaranótt sunnudags í Peking, var ógurlegur. Þeir óku skriðdrekum yfir tjöld þúsunda sofandi stúdenta sem mótmælt hafa yfirgangi komm- únistastjómarihnar um margra vikna skeið. Andófsmenn sýna ótrúlegt hugrekki gegn ofureflinu; ungur maður stóð í vegi fyrir skriðdreka er nálgaðist og stökk upp á hann. Síðan reyndi hann að telja áhöfnina á að ganga í lið með lýðræðissinnum. Félagar námsmannsins leiddu hann síðan á braut. Þrálátur orðrómur var í gærkvöldi um hörð átök milli kínverskra her- sveita í útjaðri Peking. Atvinnulíf er í lamasessi í höfuðborginni og í mörg- um öðrum borgum, þ. á m. Shang- Reuter hai, Xian og Nanking, eru verkföll og samgöngur hindraðar af tug- þúsundum borgara. „Hermennimir skutu af byssum sínum í götuna fyrir framan stúdent- ana,“ sagði sjónarvottur um aðdrag- anda blóðsúthellinga vestan við frið- artorgið á sunnudag. „Fólk sem ekki sá hvað var að gerast hóf að kasta gijóti í hermennina og skyndilega skutu þeir inn í stúdentahópinn." Stúdentar við Pekingháskóla hafa náð á sitt vald handvopnum og ein- hveiju af þyngri vopnum. Þeir hengdu í gær upp borða á háskólalóð- inni þar sem stjómartaumar í landinu voru sagðir í höndum „fasista". Ótt- ast er að stjómvöld láti til skarar skríða og ráðist inn á lóðina. George Bush Bandaríkjaforseti bannaði í gær sölu á hergögnum til Kína en sagði að ekki yrði slitið stjómmálatengslum við landið; slíkt skref myndi ekki þjóna hagsmunum kínverskra lýðræðissinna. Menn óttast nú um framtíð bresku nýlendunnar Hong Kong sem á að hverfa undir stjóm Kína 1997; verð- bréf hröpuðu á markaði þar í gær. Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sagði að atburðimir í Pek- ing sýndu áþreifanlega muninn á lýðræðisstjómarfari og einræði. Sjá einnig forystugrein á miðopnu og fréttir frá Kina á bls. 30 Kosningarnar í Póllandi: Kommúnistar játa afhroð sitt Varsjá. Reuter. TALSMENN pólska kommúnistaflokksins viðurkenndu í gær að Sam- staða hefði unnið „afgerandi sigur“ i þingkosningunum á sunnudag. Þegar dijúgur hluti atkvæða hafði verið talinn var Ijóst að Samstaða hafði unnið yfírburðasigur í kosningunum sem voru hinar fyrstu í ætt við fijálsar kosningar í landinu í rúm 40 ár. Jan Bisztyga, talsmaður kommúnistaflokksins, sagði að flokkurinn yrði samkvæmur sjálfum sér og lyti úrskurði þjóðarinnar. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, hvatti stuðningsmenn sína til að hafa hemil á sigurgieðinni. „Við verðum að sína stillingu. Ef við látum tilfínningarnar í ljós núna þá verða næstu kosningar ekki ftjálsar og lýðræðislegar," sagði Walesa. Annar háttsettur samstöðumaður, Bronislaw Geremek, sagði að lítil kjörsókn, eða 62% af 27 milljónum á kjörskrá, sýndi að margir van- treystu málamiðlun stjómvalda og Samstöðu. Bisztyga ítrekaði þá áskorun Woj- ciechs Jaruzelskis hershöfðingja og flokksleiðtoga til Samstöðu að sam- tökin tækju þátt í myndun nýrrar ríkisstjórnar að kosningunum lokn- um. Geremek sagði að nú sem fyrr yrði Samstaða í stjómarandstöðu en hún væri reiðubúin að aðstoða stjórn- völd við að leysa gífurlegan efna- hagsvanda þjóðarinnar. I gærkvöldi voru opinberir fjöl- miðlar í Póllandi enn þöglir um úr- slit kosninganna. Janusz Onyszk- iewicz, talsmaður Samstöðu, sagði að allir frambjóðendur stjómarand- stöðunnar til Sejms, neðri deildar þingsins, hefðu náð kjöri. Samstaða hafði fyrirfram fallist á að sækjast einungis eftir 161 sæti í neðri deild- inni en þar sitja samtals 460 þing- menn. Kómmúnistaflokkurinn og samtök terigd honum sátu því ein að 299 sætum. Það leit út fyrir að alls staðar þar sem Samstaða bauð fram hafi frambjóðendur hennar fengið hreinan meirihluta þannig að ekki þurfi að ganga til atkvæða í seinni umferð 18. júní. Þá átti að kjósa milli tveggja efstu manna. Samstaða virtist einnig hafa unnið yfirburðasigur í kosningu til öld- ungadeildar þingsins. Ýmsir áhrifamenn þar á meðal forsætisráðherrann, Mieczyslaw Rakowski, virðast hafa verið strikað- ir út og ná því ekki kosningu þrátt fyrir engan mótframbjóðanda. Khomeini látinn: Þjóðareorg ríkir 1 Iran Teheran. Reuter. AÐ MINNSTA kosti átta manns biðu bana og um 500 urðu fyrir meiðslum í mikilli mannþröng sem varð er hundruð þúsunda Irana vottuðu Khomeini trúarleiðtoga virðingu sina í hinsta slnn í gær. Khomeini lést af hjartaáfalli á laugardagskvöld. Lík Khomeinis var til sýnis í kældri glerlíkkistu á bænastað í Teheran og að sögn talsmanna Byltingarvarð- anna komu tvær milljónir manna til að votta honum virðingu sína. í erfðaskrá Khomeinis er farið hörðum orðum um stórveldin og hóf- sama arabaleiðtoga, Fahd konungi Saudi-Arabíu t.a.m. óskað bölvunar Guðs og leiðtogum Bandaríkjanna lýst sem hryðjuverkamönnum. Ali Khameini forseti var útnefndur æðsti valdamaður írans í stað Khom- einis innan við 20 stundum eftir and- lát trúarleiðtogans. Sjá einnig fréttir á bls. 30.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.