Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR B 158. tbl. 77. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Verkföll í Sovétríkjunum: Kreflast viðræðna við leiðtoga landsins Moskvu. Reuter. VERKFÖLL hafa breiðst út til níu borga á næstmesta kolanáma- svæði Sovétríkjanna, Kúznetskij Basíl, og hafa námamenn hótað að loka ðllum námum á svæðinu gangi leiðtogar landsins ekki til við- ræðna við sig. Verkföllin hófust á mánudag í kolanámum í borginni Mezhdúretsj- ensk og var þess krafist að dregið yrði úr miðstýringu í Sovétríkjunum og að lífskjör yrðu bætt. Verkföllin breiddust síðan út til annarra kola- náma og æ meira fór að bera á kröfum um róttækar stjórnarfars- umbætur. Verkfallsmennirnir krefj- ast þess meðal annars að hafin verði þegar í stað umræða um breytingar á stjómarskrá Sovétríkj- anna og að æðstu embættismenn ríkisins og kommúnistaflokksins komi til viðræðna í Kúznetskíj Bas- Fréttastofan TASS skýrði frá því Brjóstkrabbi: Háskóla- menntaðar í mestri hættu Kaupmannaliöfn. Frá Nils Jörgen Bruuu, firéttaritara Morgunblaðsins. VEL menntaðar konur eru í mestri hættu danskra kvenna, þegar bijóstkrabbamein er annars vegar, að því er fram kemur í Berlingske Tidende. Krabbamein þetta er 40% al- gengara meðal háskóla- kvenna en nemur meðaltalinu hjá dönskum konum. Elsebeth Lynge farsóttar- fræðingur, sem starfar hjá skráningarstofu danska krabba- meinsfélagsins, segir, að þessu valdi meðal annars lífshættir kvennanna. „Þetta tengist tvímælalaust fæðuvali og fæðingarmynstri vel menntaðra kvenna," segir hún, „það er að segja hversu seint þær verða barnshafandi og hversu mörg börn þær eignast." að verkamenn á svæðinu, sem ekki taka þátt í verkföllunum, væru reiðubúnir til að styðja kröfur verk- fallsmanna og efna til verkfalla í öllum námum á svæðinu. TASS greindi einnig frá því að Míkhaíl Stsjadov, sem fer með kola- námamál í sovésku ríkisstjórninni, hefði farið til Mezhdúretsjensk til samningaviðræðna við verkfalls- menn. Hann hefði lofað þeim kaup- hækkunum, betri matvælum, fleiri íbúðum og auknum mengunarvöm- um. Hann hefði einnig afhent þeim skriflegt loforð um að dregið yrði úr miðstýringu frá Moskvu. Ekki var ljóst í gær hvort kolanámamenn í Mezhdúretsjensk hefðu fallist á að hefja störf á ný. Þetta eru mestu verkföll í Sov- étríkjunum frá því Míkhaíl Gorb- atsjov komst til valda árið 1985. Reuter Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims ásamt Jacques Delors, framkvæmdastjóra Evrópubandalagsins, fyr- ir utan glerpíramíta við Louvre-safnið í París, þar sem þeir komu saman i gær. Delors er lengst til vinstri, en við hlið hans eru: Ciriaco de Mita, forsætisráðherra Ítalíu; Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands; George Bush Bandarikjaforseti; Francois Mitterrand Frakklandsforseti; Margaret Thatch- er, forsætisráðherra Bretlands; Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada; og Sosuke Uno, forsætisráð- herra Japans. Fundur leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims: Kommúnistaríkín verði hvött til markaðsbúskapar París. Reuter. LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims komu saman í París í gær og hvatti George Bush Banda- ríkjaforseti leiðtogana til þess að auðvelda kommúnistaríkjunum að koma á markaðsbúskap að vest- rænni fyrirmynd. Bandaríkja- menn og Bretar höfnuðu tillögu þriðja heims ríkja um að haldin yrði ráðstefha um samskipti norð- urs og suðurs, en Frakkar höfðu áður fallist á hana. A fundinum í dag fjalla leiðtogarnir meðal ann- ars um hvernig létta megi á Reuter Olivier kvaddur hinstu kveðju LÍKKISTA Laurence Oliviers, leikarans heimskunna, er hér borin inn í kirkju í Ashurst í Englandi, þar sem fjölskylda hans og vinir kvöddu hann hinstu kveðju í gær. Lík hans var síðan brennt. Olivier lést á þriðjudag, 82 ára að aldri, á heimili sínu í Steyning. skuldabyrði þriðja heims rílya. Umhverfismál verða þar einnig ofarlega á baugi, en þau hafa aldr- ei áður verið rædd á fundum leið- toga sjö helstu iðnríkja heims. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, sagði að George Bush hefði sagt í viðræðum leið- toganna að hvetja bæri kommúnista- ríki til þess að laga sig að alþjóðlega efnahagskerfinu. Þessi ríki ættu í verulegum erfiðleikum með að fá lán hjá alþjóðlegum bönkum þar sem þau væru ekki með markaðsbúskap. Fitz- water sagði ekki hvaða ríki Banda- ríkjaforseti hefði í huga, önnur en Pólland og Ungveijaland. Leiðtogar Egyptalands, Indlands, Senegals og Venezuela fengu á fimmtudag Francois Mitterrand Frakklandsforseta til að styðja til- lögu sína um að efnt yrði til „norður- suður“-ráðstefnu í vor, en slík ráð- stefna var síðast haldin í Cancun í Mexíkó árið 1981. Sú skilaði litlum árangri. „Vandamálin verða ekki leyst með því að flokka svæði og kalla þau norður og suður,“ sagði Nicholas Brady, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, um tillögu þriðja heims ríkjanna. Háttsettur breskur embættismaður sagði að Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, væri einnig andvíg tillögunni. Brady sagði að leysa bæri skulda- vanda hvers þriðja heims ríkis fyrir sig, því þau skulduðu mismikið og sérhvert ríki hefði sín sérkenni. Mitt- errand var eini sósíalistinn á meðal leiðtoganna sjö, sem komu saman við hringborð í Louvre-safninu í París, og var hann einnig sá eini er vakti máls á tillögu þriðja heims ríkjanna. Utanríkisráðherra Kanada, Joe (ilark, sagði þó síðar að tillagan væri athyglisverð og að læra mætti af fundinum í Cancun. Sjá fréttir af þjóðarleiðtogum og hátiðarhöldunum í París á bls. 21. Forsetakjörið í Póllandi: Samstaða reiðubúin að styðja Jaruzelski Varsjá. Reuter. LIKUR hafa aukist á því að Wojciech Jaruzelski, leiðtogi pólska komm- únistaflokksins, verði i framboði til forseta, að sögn málgagns Sam- stöðu, Gazeta Wyborcza. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, sagði í gær að verkalýðshreyfingin væri reiðubúin að styðja Jaruzelski til embættis- ins en áður hafði hún hafiiað honum. Jaruzelski kom Pólveijum á óvart í síðasta mánuði þegar hann lýsti því yfir að hann yrði ekki í framboði þegar kosið yrði um forseta landsins vegna þess að fólk tengdi nafn hans við setningu herlaganna árið 1981. Samstaða ræður yfir 46% þing- sæta á pólska þinginu sem kemur saman á miðvikudag í næstu viku til að kjósa forseta. Vegna klofnings hjá kommúnistum hefur verkalýðs- hreyfingin því í hendi sér hver verð- ur kjörinn. Kommúnistaflokkurinn og yfir- menn í hernum hafa reynt að telja Jaruzelski hughvarf en það hefur hingað til verið án árangurs. Tals- maður hans sagði hins vegar á þriðju- dag að á næstu dögum gæti svo far- ið að Jaruzelski endurskoðaði afstöðu sína. - Vestrænir stjórnarerindrekar, þingmenn Samstöðu og heimildar- menn innan stjórnarinnar segja ýmislegt benda til þess að svo geti farið að Jaruzelski verði kjörinn for- seti Póllands. Nokkur vafi leikur enn á því hvort Jaruzelski geti fengið tilskilinn meirihluta atkvæða á þing- inu þrátt fyrir yfirlýsingu Walesa. Getur þar ráðið úrslitum hvort kosn- ingarnar verða leynilegar eður ei. Samstaða vill að kosningamar verði leynilegar til þess að allir þeir þing- menn hennar, sem ekki geta látið það spyrjast um sig að þeir styðji manninn sem setti herlög árið 1981, geti rólegir greitt Jaruzelski atkvæði sitt. Kommúnistar á hinn bóginn eru uggandi um hvernig atkvæði falla í þeirra hópi ef kosningin verður leyni- leg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.