Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JULI 1989
3
Lambakjöt á tilboðs-
verði:
Meiri sala
en menn
bjuggust við
AÐ SÖGN Þórhalls Arasonar hjá
landbúnaðarráðuneytinu hefur
sala á lambakjöti á tilboðsverði
gengið mjög vel, og eftirspurn
verið raeiri en reiknað var með.
Ekki liggja fyrir tölur um söluna
í þessari viku, en um síðustu helgi
var búið að selja ríflega 130 tonn
af þeim 600 tonnum, sem áætlað er
að selja.
Kjötiðnaðarstöðvar um allt land
vinna nú við að brytja kjötið og pakka
því, en að sögn Þórhalls hafa þær
ekki annað eftirspurn.
Morgunblaðið/KGA
í göngugötunni á Akureyri voru þessar ungu stúlkur að sóla sig.
ÁTVR:
30.000 krónur fyrir
kílóið af æðardúni
Sólskin og hiti
Veður var mjög gott víðast hvar á landinu í gær. Þokuloft var við
vesturströndina en léttskýjað á Vestfjörðum. Svalt var á annesjum
norðan lands en á Akureyri fór hitinn yfir 20 stig. Svipaður hiti var
víða á Austurlandi. Sunnan- og suðaustanlands var hlýtt og léttskýj-
að. Mestur hiti á landinu var á Kirkjubæjarklaustri, þar sem hitinn
varð 23 stig um miðjan daginn.
Gert er ráð fyrir björtu veðri víðast hvar á landinu um helgina.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Haukur Gíslason í rabbarbaragarðinum í góða veðrinu á Stóru-
Reykjum í Hraungerðishreppi.
Fjórtántil-
boð í bjór
TILBOÐ frá flórtán þýskum bjór-
framleiðendum hafa borist Inn-
kaupastofrun ríkisins, en eins og
komið hefur fram í Morgunblað-
inu hefiir Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins leitað tilboða frá
þýskum bjórframleiðendum í
stað Kaiserbjórs frá Austurríki
sem áætlað er að taka af mark-
aði hérlendis. Ástæðan mun vera
sú að austurríski framleiðandinn
sér sér ekki fært að pakka bjóm-
um í samræmi við íslenskar
reglugerðir.
Tilboð bárust frá framleiðendum
Dab, Edelhell, Braumeister, Karls-
brau, Warsteiner, Holsten, Dort-
munder, Beck’s, Wickuler Pilsner,
Acker Export, Hofbrau, Cristian
Light, Kaiser Export, Edelherb Pils,
Eku-Pils, Eku-Rubin og Eku-
Export.
Að sögn Þórs Oddgeirssonar,
sölustjóra hjá ÁTVR, verður ein
þessara tegunda valin á íslands-
markað í lok næstu viku. Hann
sagðist ekkert geta sagt til um að
svo stöddu hvert þessara tilboða
væri hagstæðast ÁTVR. Eftir væri
að meta verð og gæði.
Samningar flugfreyja við Flugleiðir:
Deilan snýst um sokkabuxur
Fundi frestað til mánudags eftir 30 klukkustunda viðræður
EFTIR þrjátíu klukkustunda viðræður var samningafimdi í kjara-
deilu Flugleiða og flugfreyja slitið hjá ríkisáttasemjara síðdegis í
gær. Annar firndur hefiir verið boðaður á mánudag. Báðir deiluaðil-
ar segjast bjartsýnir á að þá takist samningar og ekki reki til verk-
falls. Því hefiir að mestu verið horfíð frá áformum Flugleiða um að
leigja vélar og áhafhir. Þótt ekki beri mikið í milli virðist nokkur
stífiii vera í samningafólki. Það sem helst stendur í vegi samkomu-
lags eru fatapeningar flugfreyja; þær gera kröfu um að fá tvennar
sokkabuxur á mánuði. Flugleiðir telja að þetta kosti 2-3 milljónir á
ári og vilja ekki fallast á kröftina.
Báðir deiluaðilar segjast hafa
gengið talsvert í átt að samkomu-
lagi í gærdag. Flugleiðamenn hafa
teygt tilboð sitt um launahækkun
úr 18 í 20% og geta að sögn Ein-
ars Sigurðssonar blaðafulltrúa ekki
boðið betur. Að sögn Erlu Hatle-
mark, formanns samninganefndar
flugfreyja, hafa þær gefið heilmikið
eftir í kröfum sínum um 32% launa-
hækkun.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, segir að vinnuveitendur
hafi metið stöðuna svo, að gríðar-
legir hagsmunir í ferðaþjónustu
hlytu að verða yfirsterkari rökrænu
mati á eðlilegum hækkunum til
flugfreyja miðað við aðra hópa.
„Við höfum teygt okkur eins langt
og unnt er og trúum því ekki að
óreyndu að teflt verði í tvísýnu með
verkfalli," segir Þórarinn.
Erla Hatlemark kveðst afar
bjartsýn á að samningar takist á
mánudag. „Ég sé ekki ástæðu til
verkfallshræðslu," segir hún, „það
þokaðist töluvert á fundinum og
eftir stendur sáralítið atriði. Þijóska
hljóp í menn í gærdag og sáttasemj-
ari vildi gefa fólki tíma til að hvílast
og hugsa málið.“
Einar Sigurðsson segir að þegar
líða tók á fundinn í gær hafi ekki
lengur verið deilt um prósentur.
Eftir hafi staðið krafa sem ein og
sér sé ekki stórvægileg, en Flug-
leiðamenn hljóti að líta á málið í
heild. „Við höfum bundið mikla
bagga og getum ekki bætt við þá,
það er ekki hægt að ganga að þess-
ari kröfu sem eftir stendur,“ segir
Einar. Hann kveðst engu að síður
telja allt útlit fyrir að samningar
takist á mánudagsfundinum.
Smáatriðið sem steytti á í viðræð-
unum munu vera fatapeningar flug-
freyja, krafa þeirra um tvennar
sokkabuxur á mánuði. Mat Flug-
leiðamanna er að buxurnar myndu
kosta 2-3 milljónir á ári. Þórarinn
V. Þórarinsson segir að þótt vinnu-
veitendur séu stórhuga geti slík
upphæð ekki talist smáræði.
Sú krafa flugfreyja sem hvað
efst var á baugi á fimmtudag, um
greiðslur fyrir undirbúning flugs
hefur að einhverju leyti verið tekin
til greina. Samþykkt mun hafa ver-
ið að mat á vinnutíma breytist í átt.
að kröfunni.
Einar Sigurðsson segir að Fiug-
leiðir vilji ekki trúa öðru en að deil-
an leysist á mánudag. Því hafi nán-
ast verið hætt við undirbúning þess
að taka flugvélar á leigu dagana
tvo sem verkfall er boðað á. „En
fyrir þá sem pantað hafa flug á
þriðjudag og miðvikudag og vilja
breyta bókunum sínum,“ segir Ein-
ar, „ verða söluskrifstofur í Lækjar-
götu og Kringlunni opnar frá 10
til 14 um helgina."
Búvörudeild Sambandsins, sem sér um sölu æðardúns fyrir bænd-
ur, vonast til að geta greitt þeim 30.000 krónur fyrir kílóið af dúni.
Að sögn Jóhanns Steinssonar, deildarstjóra útflutningsdeildar hjá
búvörudeildinni, hefúr æðardúnssala gengið mjög vel.
Eftirspurn eftir dúni er mikil um
þessar mundir og hefur verðið á
honum hækkað töluvert í erlendri
mynt, en einnig hækka gengis-
breytingar verðið til bænda.
Búvörudeildin er nýbúin að gera
samning upp á 500 kíló æðardúns,
en alls tína bændur um þrjú tonn
af dúni á ári. Mest af honum er
selt til Þýzkalands og Japans, þar
sem hann er notaður í sængur og
kodda.
Morgunblaðið/Einar Falur
Tölva Brunabótar út um glugga
Tölva Brunabótafélags íslands var í gærkvöldi
látin síga út um glugga á fjórðu hæð hússins
við Laugaveg 103. Þar hefiir félagið haft aðset-
ur, en flytur um helgina í húsakynni Samvinnu-
trygginga að Ármúla 3. Fyrirtækin munu frá
og með mánudeginum starfrækja þar sameigin-
lega Vátryggingafélags íslands hf. Starfsmenn
Vátryggingafélagsins verða 135 talsins og nokkr-
ir þeirra mæta í Ármúlann síðdegis á sunnudag
til að koma sér fyrir við ný skrifborð á nýjum
vinnustað.