Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989 21 <*• Blaðió sem þú vaknar við! Björn og Guðrún tilheyra venjulegri 4 manna íslenskri fjölskyldu. Þau vinna mikið og hafa 180 þúsund krónur í mánaðarlaun. Það tekur þau 141 dag á þessu ári að vinna fyrir sköttum hins opinbera. Með aðgerðum sinum á siðustu 6 mánuðum hefur rikisstjórnin lengt þessa skattavinnu um rúmar tvær vikur. Eftir það kemur að því að vinna fyrir nauðþurftum fjölskyldunnar, mat, fatnaði, húsbúnaði, bensíni á bílinn, afborgunum af lánum, rafmagni, hita o.s.frv. Þau hafa hlustað undrandi á forystumenn vinstri stjórnarinnar hrósa sér af því að hér á landi séu litlar skattaálögur á einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Þau grunar að þar hljóti þeir félagar Stein- grímur Hermannsson, Ó. Grímsson og Jón Hannibalsson að fara frjálslega með tölur. En þau nenna heldur ekki að standa í flóknum samanburði við fólk í öðrum löndum, sem býr við ólík efnahagskerfi og verð á neysluvarningi. Þau vita sem er að þótt þau séu ekki í hópi þeirra verst settu, þá nægja laun þeirra varla til þess að endar nái saman. Útgjöld fjölskyldunnar eru há og matarverð er með þvi hæsta sem gerist í heiminum. Ríkið tekur þar sannarlega sitt bæði með þrjósku gagnvart matarinnflutningi og matarskatti. Ungt sjalfstæðisfólk mótmælir skattpíningarstefnu ríkis- stjórnarinnur. Landnámsmenn komu hingað til þess að forð- ast skattglaða konunga og njóta frelsis. Áríð 1989 stöndum við enn í frelsisbaráttu gegn vinstristjórn. Sjálfstæðisflokkurinn er í brjóstvöm frelsisbaráttunnar. Sjálfstæðisflokknum ber að afnema vinstrí skattana og lækka vöruverð í næstu ríkisstjórn sem hann verður aðili að. Samband ungra sjálfstæðismanna Við viljum vekja athygli ykkar sem útivist stunda á Barbour fatnaði. Durham jakkinn hefur þessa kosti: Hann er framleiddur úr laufléttu bómullar- efni, hann er hlýr og hleypir frá sér raka, hann er vatnsheldur og einstaklega sterkur, hann er fallegur og léttur og þegar allra veðra er von er hann tvímælalaust hentugasti jakki í lengri eöa skemmri ferðir. Opið laugardaga frá kl. 10-16. Veiðimaöurinn sf., Hafnarstræti 5, sími: 16760. Mikill mannQöldi tekur þátt í hátíðahöldunum París. Reuter. 200 ÁRA afmælis frönsku stjórn- arbyltingarinnar var minnst um boðnir voru til hátíðahaldanna í Frakklandi snæddu saman kvöld- verð í Elysee-höllinni, embættis- bústað Frakklandsforseta, á fimmtudagskvöld. Fundur leið- toga sjö mestu iðnríkja heims átti að hefjast í gær en japönsk blöð hafa velt vöngum yfir því hvort Sosuke Uno, forsætisráðherra Japans, verði tekið af vinsemd þrátt fyrir þau hneykslismál sem hann er flæktur í. Athygli vakti að leiðtoga Afríska þjóðarráðsins (ANC), Oliver Tambo, var boðið til kvöldverðarins á fimmtudag, en Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, hefur sakað ANC um hryðjuverk. 32 leiðtogar erlendra ríkja komu til Parísar til að minnast 200 ára afmælis frönsku stjórnarbyltingar- innar. Engir konungbornir þjóðhöfð- ingjar eru viðstaddir hátíðahöldin. Sérútgáfa Liberation París. Reuter. Föstudagsútgáfa franska dagblaðsins Liberation var með óveiýulegu sniði í tilefni af 200 ára afmæli frönsku byltingarinnar. Blaðið var prentað á þykkan blágrænan pappír sem líkist þeim pappír sem var notaður í dreifirit byltingarmanna fyrir tveimur öldum. Að sögn blaðsins var hann sérstaklega meðhöndl- aður til þess að endast í 200 ár. allt Frakkland í gær. Mannfjöldi fyllti götur og torg Parísar fram Japanskir fjölmiðlamenn biðu spenntir eftir því að sjá hvort leið- togar erlendra ríkja myndu sýna Sosuke Uno, forsætisráðherra lands- ins, fyllstu kurteisi og þeir viður- kenndu að þeir hefðu minni áhuga á alþjóðlegum málum en því að fylgj- ast með Uno, einkum þegar hann hitti frú Margaret Thatcher. Kvennamál Unos hafa verið í brennidepli í Japan og vakið hneyksl- an margra. eftir nóttu en leiðtogar erlendra ríkja og aðrir boðsgestir hlýddu á heimsfræga söngvara í nýja óperuhúsinu á Bastillutorginu, en samkvæmt frönsku sjón- varpsstöðinni Antenne 2 er hljómburður óperuhússins frá- bær. Víða um borgina voru tónleikar og dansleikir sem stóðu fram á nótt. Tónleikarnir í óperuhúsinu á Bastillutorginu voru aðeins fyrir erlenda leiðtoga og aðra boðs- gesti, þ.á.m. leikkonuna Catherine Deneuve og kvikmyndaframleið- andann Costa-Gavras. Mitterrand Frakklandsforseti var hylltur með dynjandi lófataki við upphaf tónleikanna en á þeim komu fram m.a. Placido Domingo, June Anderson og Barbara Hendricks. Mjög ströng öryggis- gæsla var á meðan í nágrenni ópe- runnar. Lögreglumenn voru á húsaþökum og öryggisverðir um- kringdu Bastillutorgið. Síðar um kvöldið sóttu 45 þúsund manns rokktónleika sem haldnir voru á torginu fyrir framan uppljómað óperuhúsið. í gærkvöldi fór mikil skrúð- ganga eftir Champs-Elysees breið- götunni. Að minnsta kosti sex þús- und manns, víðs vegar úr heimin- um gengu í litskrúðugri fylkingu og með í förinni voru fílar, gufuvél- ar, rússneskur björn á listskautum og verðir frá Kreml sem gengu gæsagang. Fyrr um daginn var hersýning sem 800 þúsund manns fylgdust með. Skammdrægum kjarnorku- flaugum Frakka af Pluton-gerð var ekið eftir Champs-Elysees en yfir Sigurboganum flugu herþotur og dreifðu litrákum í frönsku fánalit- unum á himininn. Þegar hersýningunni lauk eftir tvo tíma komu um 50 bifreiðar að Concorde-torgi til að sækja þá er- lendu leiðtoga sem fylgst höfðu með sýningunni. Mikið öngþveiti skapaðist þegar leiðtogarnir þustu að bílum sínum sem reyndu allir að leggja samtímis af stað frá torg- inu. Bílstjóri Margaret Thatcher varð að hemla snögglega þegar bíllinn fyrir framan hægði á sér til að taka upp farþega og aðrir bílstjórar máttu hafa sig alla við til að forðast árekstra. Forsetar Frakklands og Bandaríkjanna fóru á undan öðrum leiðtogum og lentu því ekki í öngþveitinu. Reuter Franskar herþotur flugu yfir Sigurbogann og skildu frönsku fánalit- ina efltir sig, en á meðan fór hersýning fram á Champs-Elysees breið- götunni. Vangaveltur um Uno í hópi jafningja París. Reuter. LEIÐTOGAR erlendra ríkja sem Fjölskyldan fótum troðin með skattpíningu vinstri stjórnarinnar HÁTÍÐAHÖLDIN í PARÍS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.