Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JULI 1989
Við hljótum að búa okkur
undir Qölbreytt veðurfar
- segja ferðalangar á tjaldstæðinu í Laugardal
GRUNNT hefur verið á votviðrinu á höfuðborgarsvæðinu undan-
farna daga á meðan Norðlendingar og Austfirðingar hafa getað
baðað sig í sólskini. Eins og svo oft áður, viðraði ekki vel til útiveru
í borginni í gær, en þeir erlendu ferðamenn sem Morgunblaðsmenn
ræddu þá við á tjaldstæðinu í Laugardal létu súldina og rigninguna
ekki á sig fá. Viðmælendur sögðust hafa vitað það fyrirfram að þeir
hlytu að þurfa að búa sig undir fjölbreytt veðurfar á íslandi.
„Þeir stoppa yfirleitt stutt hér í
Reykjavík, þetta einn til tvo daga,
og fara svo út á land. Fjölmennast
er hér um helgar. Aðsóknin í ár á
tjaldstæðin er mun meiri en til
dæmis í fyrrasumar þannig að svo
virðist sem fleiri og fleiri erlendir
ferðamenn velji sér þennan ferða-
máta,“ sagði Arni Pétursson, tjald-
stæðavörður, í samtali við Morgun-
blaðið.
Úr kofaræflinum
Tjaldstæðin í Laugardal voru
opnuð 15. maí, nokkru fyrr en
VEÐUR
venjulega, og að líkindum verður
þeim lokað um miðjan september.
Árni segir að umgengni sé yfirleitt
í mjög góðu lagi. Mikil uppbygging
hefur átt sér stað á tjaldstæðunum
og er aðstaða þar öll hin glæsileg-
asta. Tjaldstæðið tekur hátt í 600
manns. Ámi segir að það hafi sér-
staklega verið gaman að flytja yfir
í nýju þjónustumiðstöðina í júlí í
fyrra eftir sautján ár í kofaræfli,
sem látinn hefði verið duga í öll þau
ár. Aðstaða er öll hin snyrtilegasta.
Snyrtiaðstaða er mikil og góð,
sturtur eru svo og þvottavélar og
þurrkarar, eldunarhellur, þurrk-
hjallur og útigrill svo eitthvað sé
nefnt.
Allir aldurshópar
„Fólkið er vel útbúið og veit fyrir-
fram að það getur búist við alls
konar veðráttu hér. Það spyr hins-
vegar mikið um veðurfar og veður-
spár og hagar sínum ferðum auðvit-
að með tilliti til þess. Gestir okkar
hér em á öllum aldri, allt frá korna-
börnum og upp í gamalmenni.
Langmestur hluti tjaldgestanna em
Þjóðvetjar og síðan koma Frakkar.
Bandaríkjamenn sækja mjög lítið í
Ijaldferðir þó þeir séu í meirihluta
þeirra ferðamanna, sem heimsækja
Island. Þeir virðast kjósa annan
ferðamáta og gista á hótelum,"
sagði Ámi. Á tjaldstæðið kostar 125
krónur fyrir manninn og 125 krón-
VEÐURHORFUR I DAG, 14. JULI
YFIRLIT í GÆR: Um 900 km suður í hafi er 1.035 mb hæð en
lægðardrag austur af landinu þokast suðaustur. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Vestlæg átt, víöast gola eða kaldi en hvassara á stöku stað
suðaustanlands. Bjart veður víða um land, þó líklega skýjað á Vest-
urlandi og ef til vill þokuslæðingur eða dálítil súld fram eftir morgni.
Allt að 20 stiga hiti á Suöausturlandi en einna svalast vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg vestlæg átt um land allt. Skýjað
vestanlands og þokuloft við ströndina en léttskýjað austanlands.
Hiti 11-20 stig að deginum, hlýjast á Norður- og Austurlandi.
HORFUR Á MÁNUDAG: Gengur í vaxandi suðaustanátt. Lóttskýjað
fram eftir degi á Norður- og Austurlandi en skýjaö og rigning und-
ir kvöldið suðvestanlands. Hiti 11-20 stig, hlýjast austan til.
x Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
r r r t Rigning
/ / /
* / »
/ * / * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
\j Skúrir
'v' Él
— Þoka
= Þokumóða
Súld
•> •>
5
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[T Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær aö ísl. tíma hltl veftur Akureyri 21 skýjað Reykjavlk 10 súld
Bergen 12 skýjað
Helsinki 22 hálfskýjað
Kaupmannah. 16 skúr
Narssarssuaq 13 rigning
Nuuk 8 rigning
Osló 18 hálfskýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 30 helðskírt
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 28 mistur
Berlfn 17 skúr
Chicago 17 hálfskýjað
Feneyjar 25 skýjað
Frankfurt 18 skýjað
Gtasgow 18 skýjað
Hamborg 14 skúr
Las Palmas 26 mistur
London 18 skýjað
Lós Angeles 17 léttskýjað
Lúxemborg 14 skýjað
Madríd 34 heiðskírt
Malaga 27 helðskírt
Mallorca 29 helðskírt
Montreal 18 skýjað
New York 21 mistur
Orlando 24 þokumóða
Paris 21 skýjeð
Róm 27 léttskýjað
Vin 17 skruggur
Washington 21 léttskýjað
Winnipeg vantar
ur fyrir hvert tjald. „Þetta verðlag
finnst fólki afskaplega sanngjarnt
og jafnvel ódýrt,“ segir Ámi.
Skyr og svartbaksegg
Þau Göran, Karin, Kerstin og
Mariana frá Stokkhólmi vom að
næra sig á svartbakseggjum og
íslensku skyri, sem þau höfðu heyrt
mikil hrósyrði um frá vinum sínum
sem heimsótt höfðu ísland áður.
„Okkur er sagt að skyrið sé gott
með ijóma og jafnvel einhverskonar
sultu. Skyrið er sérstaklega ljúf-
fengt og svartbakseggin líka. Við
fáum ekkert nema hænuegg
heima,“ sögðu sænsku fjórmenn-
ingarnir, sem ætla að ferðast um
landið í tvær vikur. „Við leggjum
í’ann um leið og máltíðinni er lokið
— fömm norður til að byija með
til að leita að skárra veðri, stoppum
á fallegum stöðum og skoðum
fugla. Við höfum nefnilega mikinn
áhuga á fuglaskoðun. Annars eig-
um við von á hvaða veðri sem er
enda er bílaleigubíllinn hlaðinn
regnfatnaði. Við emm að heim-
sækja ísland í fyrsta skipti, en höf-
um oft haft hug á að koma hingað.
Hinsvegar var miklu dýrara að
koma til íslands fyrir nokkmm
ámm. Verðlag hefur greinilega
Iækkað eitthvað,“ segja Svíarnir.
Fjórir sólardagar
Danimir Tina, Anna Sofia, Peter
og Vicki komu frá Þingvöllum í gær
og höfðu þá verið á ferðalagi frá
1. júlí. Ferðinni lýkur á morgun,
en þá halda þau heim á leið. „Við
höfum ferðast um Suðurland, en
aðeins fengið íjóra sólardaga.“ Þau
sögðust hafa gert mikið af því að
Árni Pétursson, tjaldstæðavörð-
ur í Laugardal.
Morgunblaðiö/Einar Falur
Wolfgang Brandenburg er að
heimsækja ísland í annað sinn.
ferðast, m.a. farið til Noregs og
Svíþjóðar og notað sama ferðamát-
ann. „Maður getur ekki notið villtr-
ar náttúmnnar nema að ferðast á
þennan hátt. Heima í Danmörku
er þetta ekki mögulegt. Þar er
bannað að tjalda nema á einhveijum
afmörkuðum tjaldsvæðum. Hér er
hægt að vera hvar sem er.“
Þau sögðust hafa ætlað í Land-
„Gula froðanu í Adríahafi:
Ströndin í Rimini er
iðandi af mannlífi
- seg-ir Helgi Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar
UNDANFARNA daga hafa birst fregnir um svonefiida „Gula froðu" í
Adríahafi, sem fælt hafi ferðamenn frá, en þar ræðir um gulbrúna
þörunga, sem rekur að landi með síðdegisaðfallinu. Samvinnuferðir-
Landsýn hafa staðið fyrir hópferðum til Rimini við Adríahaf og eru
um 120 íslendingar nú staddir þar, Að sögn Helga Jóhannssonar, fram-
kvæmdastjóra Samvinnuferða- Landsýnar, hafa fréttir frá Adríahafi
verið mjög orðum auknar og hljóðið í Islendingunum þar mjög gott.
í gær tilkynnti Heilbrigðisráð Ítalíu að þörungamir væru ekki hættuleg-
ir heilsu manna.
„Ströndin er opin eftir sem áður
og iðar af lffi, þrátt fyrir að fólk
fari ekki jafnmikið í sjóinn og áður.
Fólk notar morguninn til þess að
fara í sjóinn, enda rekur þörunga-
brákina ekki að fyrr en eftir hádegi.
Þarna eru líka sundlaugar og
steypiböð ef fólk vill kæla sig niður,
en staðreynd málsins er nú sú — að
minnsta kosti hvað íslendinga varðar
— að við erum ekkert sérstaklega
gefnir fyrir sjóböð og notum tímann
frekar til þess að sóla okkur,“ sagði
Helgi í samtali við Morgunblaðið í
gær, en hann er nýkominn frá Rim-
ini, þar sem hann kynnti sér ástand
mála.
„Það hafa verið sagðar fréttir um
að ströndinni hafi verið lokað, en það
er alrangt," sagði Helgi. „Staðreynd
málsins er, að heilbrigðisráðherra
Ítalíu beindi þeim tilmælum til fólks,
að það færi ekki í sjóinn með opin
sár eða húðsjúkdóma, fyrr en búið
væri að rannsaka þörungana betur."
Samkvæmt fréttaskeyti frá Reuter
tilkynnti Dr. Alessahdro Beretta
Anguissola, formaður Heilbrigðisr-
áðs Ítalíu í gær, að vísindamenn
hefðu ekki fundið neitt sem benti til
þess að þörungamir væru heilsuspill-
andi. Hann ráðlagði fólki með opin
sár eða húðsjúkdóma þó að láta sjób-
öð eiga sig. Anguissola sagði þörun-
gapláguna ekki stafa af mengun,
heldur væru óvenjumildur vetur og
lítil hreyfing á sjónum ástæðan.
Helgi Jóhansson sagði ljóst að
umferð ítala og Þjóðveija til Rimini
myndi minnka eitthvað í ágúst, enda
sækja þeir sérstaklega í sjóböð, en
bætti því við að örtröðin gæti verið
slík í ágústmánuði að það sakaði
ekki þó fólksfjöldinn minnkaði eitt-
hvað.
Helgi sagði þörungapláguna hafa
komið upp í ágúst í fyrra, en eftir
nokkra daga hefði vindátt breyst og
hann hert aðeins og á einni nóttu
hefðu þörungamir horfið og ekki
sést aftur fyrr en nú fyrir nokkrum
dögum.
„Ástandið er vitaskuld mismun-
andi eftir stöðum og er mun verra
fyrir norðan í Lido de Jésolo og Lign-
ano. Þetta er vissulega mikill vandi
fyrir ítali, sem þeir vilja leysa sem
allra fyrst og hafa varið jafnvirði 58
milljarða íslenskra króna til.“ Helgi
sagði síðan spursmál hvort þetta
tækist eða hvort ekki þyrfti meira
en í fyrra — að vindátt breyttist.
„íslendingamir spóka sig bara á
ströndinni eins og vanalega og fara
í skoðunarferðir," sagði Helgi.