Morgunblaðið - 15.07.1989, Page 7
g f f ; §>\ 4 | | ftj ?4| •* ##fr9 » 3 t
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989
7
Loðnuverð
álramftjálst
- Tvö færeysk skip
komin á miðin
LOÐNUVERTÍÐ er nú að fara af
stað, en loðnuskipum var fijálst
að halda á miðin þann 1. júlí. Sam-
kvæmt upplýsingnm Morgun-
blaðsins hefúr ekkert íslenskt skip
enn haldið úr höfn til veiðanna,
en tvö færeysk skip munu vera
komin á miðin. Verðlagsráð sjáv-
arútvegsins ákvað á fúndi sínum
á þriðjudag að verð á loðnu til
bræðslu skuli áfram vera ftjálst,
líkt og tvær undanfarnar vertíðir.
í upphafi vertíðar í fyrra var loðn-
usverð til bræðslu rúmar þijú þúsund
krónur tonnið, en náði fjögur þúsund
krónum áður en vertíðin var úti.
Hins vegar mun verð á loðnuafurðum
hafa lækkað verulega frá því sem
var á seinustu vertíð. Þannig seldist
próteineiningin af loðnumjöli á 9,5
dollara, en verð próteineiningarinnar
nú mun vera nálægt 7 dollurum.
Þessi lækkun nemur rúmlega 25%.
Verð á loðnulýsi á síðustu vertíð var
um 350 dollarar fyrir tonnið, en mun
vera um 200 dollarar nú, og er sú
lækkun enn meiri, eða um 43%.
Morgunblaðið/Þorkell
Byrjað að afhenda
farkortin ínæstu viku
í NÆSTU viku verður byijað að af-
greiða hið nýja farkort, sem er sam-
eiginlegt kort Félags íslenzkra ferða-
skrifstofa og 35 innlánsstofiiana, þ.e.
5 banka og 30 sparisjóða. -Um 5.000
farkort hafa nú verið gefin út, en
korthafar hafa til þessa þurft að not-
ast við bráðabirgðakort. í tilefni af
afhendingu kortanna var útbúið fjög-
urra metra langt farkort, sem þeir
sjást hér halda á Ingólftir Hjartarson,
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
ferðaskrifstofa, Karl Sigurhjartarson
formaður FÍF, Leifúr Steinn Elíasson,
aðstoðarframkvæmdasljóri Visa ís-
land, og Einar S. Einarsson, fram-
kvæmdasljóri Visa ísland.
20-50% afsiáHur
Hæstiréttur:
Olísbréfín
ógild sem
trygging
HÆSTIRÉTTUR hefúr stað-
fest úrskurð borgarfógeta
þess efhis að 102 óþinglýst
tryggingabréf Olís, sem félag-
ið lagði fram til að afstýra
kyrrsetningaraðgerð Lands-
bankans, skyldu álitin verð-
laus sem tryggingar. Fógeti
kvað upp úrskurð sinn fyrir
réttri viku, og grundvallaði
hann á því að bréfin væru
óþinglýst. Olís áfrýjaði úr-
skurðinum tafarlaust til
Hæstaréttar, sem á fimmtu-
dag féllst á rök fógeta.
Tryggingarbréf þessi höfðu
reyndar áður verið lögð fram
sem tryggingar, en þá voru á
þeim formgallar. Fógeti úr-
skurðaði þá á sama hátt og nú,
en eftir að Olís hafði áfrýjað
felldi Hæstiréttur úrskurð hans
úr gildi. Voru rök Hæstaréttar
að Olís skyldi fá frest til að lag-
færa bréfm. Félagið þinglýsti
þeim hins vegar ekki, og var
þeim því hafnað á ný.
Fiskveiðasjóður:
Hlutdeildarbréf
tekin upp í skuld-
ir 4 fyrirtækja
STJÓRN Fiskveiðasjóðs sam-
þykkti á síðasta fúndi að taka hlut-
deildarbréf Hlutafjársjóðs
Byggðastoftiunar sem greiðslu á
hluta skulda fiögurra fiskvinnslu-
fyrirtækja. Jafngildir það að Fisk-
veiðasjóður hafi breytt skuldunum
i hlutafé.
Þau fyrirtæki, sem fengu jákvæða
afgreiðslu voru Fiskiðjan Freyja hf.
á Suðureyri, Hraðfrystihús Stokks-
éyrar, Meitillinn í Þorlákshöfn og
Fiskvinnslan á Bíldudal hf. Upphæð-
irnar, sem breytt var í hlutabréf,
voru allar frekar lágar.
Stjórn Fiskveiðasjóðs hafnaði ósk
um að breyta skuldum Hraðfrysti-
húss Patreksíjarðar hf. og Hrað-
frystihúss Dýrfirðinga á Þingeyri
með þessum hætti.
Helgi Bergs, stjórnarformaður
Hlutafjársjóðs, sagði þetta ekki vera
endanlega afgreiðslu Hlutafjársjóðs
á málum þeirra fyrirtækja sem Fisk-
veiðisjóður ákvað að skuldbreyta hjá.
SUMARUTSALA
Sumarblóm, garðplöntur, garóhúsgögn, grill
og grillvörur, útiker, svalakassar, pottaplönturo.fl., o.fl.
Sumarblom aðeins 29 kr. stk.
Tré oy runnar 20-40% afsláttur
Otiker 20-50% afsláttur
Blómstrandi garórósir,
mispill, fjallafura,
steinhæöaplöntur, tré og runnar.
Mikill afsláttur.
Mikió úrval af útikerjum úr leir og
plasti.
Stjúpur,
fjólur,
flauelsblóm,
nemesíur o.fl.
Mikiö úrval.
Nú bjóöum viö þaö sem eftir er
afhinum vinsælu NOVA garöhús-
gögnum á stórlækkuöu veröi.
Einnig glæsileg tekkhúsgögn.
Garðhúsyögn 20-40% afsláttur
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70