Morgunblaðið - 15.07.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989
Frá Sigurði B. Þorsteinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins í Turku.
íslenska bridslandsliðið tapaði fyrir Svíum í 23. umferð Evrópu-
mótsins í brids í gær, en vann San Marino í 22. umferðinni. Island var
í 16. sæti af 25 þjóðum, þegar tvær umferðir voru eftir. Þjóðveijar
urðu í gær Evrópumeistarar í kvennaflokki.
Það var búist við grimmum
Svíum, þar sem þeir eru að berjast
um sæti í heimsmeistarakeppninni,
og þeir eiga enn möguleika á að
ná Pólverjum sem tróna í efsta
sætinu. Tvö efstu sætin á mótinu
gefa farseðla til Perth í Ástralíu í
haust þar sem keppt verður um
Bermúdaskálina, eftirsóttustu verð-
laun í brids.
Það voru þó íslendingar sem
skópu allar sveiflurnar í fyrri hálf-
leiknum. Guðmundur og Þorlákur
slepptu góðu geimi á hættunni og
Jónas og Valur fóru í tvær slemmur
sem báðar fóru niður. Við vorum
því rúmlega 30 stigum undir í hálf-
leik.
Svíar gáfu Iítil færi á sér í seinni
hálfleik og unnu hann raunar naum-
lega og leikinn 23-7. Á meðan náði
Pólland aðeins 16 stigum á Portú-
gah
í 22. umferð spilaði ísland við
San Marino, sem er í neðsta sæti.
í fyrri hálfleik sögðu andstæðing-
arnir og unnu tvær slemmur í
þynnra lagi sem Ragnar og Aðal-
steinn slepptu, og staðan var jöfn
í hálfleik. I síðari hálfleik snérist
heldur á ógæfuhliðina hjá San
Marínómönnum en leikurinn vannst
aðeins 17-13. Guðmundur og Þor-
lákur spiluðu allan leikinn, en Jónas
og Valur komu inn í seinni hálfleik.
ítalir gerðu út um vonir Dana,
með því að vinna þá 23-7 í 22.
umferðinni. Staðan eftir 23 um-
ferðir var sú, að Pólveijar voru í
efsta sæti með 428 stig, Svíar voru
í 2. sæti með 414 stig, Frakkar í
3. sæti með 402,5 stig, Austurríkis-
menn í 4. sæti með 396,5 stig,
Danir í 5. sæti með 395 stig og
Grikkir í 6. sæti með 393,5 stig.
íslendingar voru með 325,5 stig í
16. sæti og spiluðu við Grikki í
gærkvöldi, en eiga yfirsetu, og 18
stig, í síðustu umferðinni í dag.
I kvennaflokki unnu Þjóðveijar
óvæntan sigur en þær hafa ekki
verið hátt skrifaðar í kvennabrids.
Þær fengu 326 stig en Hollending-
ar komu næstir með 324 stig.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Kiwanismenn gefa Þroskahjálp 250þúsund krónur
NÝLEGA færðu félagar I Kiwanisklúbbnum Keili
í Garði Þroskahjálp Suðurnesja 250 þúsund krón-
ur að gjöf og á að verja peningunum til bygging-
ar sumarbúða á Býskeijum í Miðneshreppi. Pen-
inganna öfluðu Kiwanismenn með útgáfu síma-
skrár á Suðurnesjum og afhentu þeir Önnu
Margréti Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra
Þroskahjálpar jafiiframt fyrsta eintakið af nýju
símaskránni við þetta tækifæri. Ráðgert er að
hefla byggingarframkvæmdir fljótlega og verða
reistir tveir 60 fermetra bústaðir. Hafsteinn Sig-
urvinsson, sem stendur næstur Önnu, er formað-
ur Keilis og sagði hann að þetta væri eitt af
stærri verkefhum sem þeir klúbbfélagar hefðu
ráðist í og vildi hann koma á framlæri þakklæti
til allra semi stutt hefðu útgáfii símaskrárinnar.
Auk Önnu og Hafsteins eru á myndinni Unnar
Már Magnússon, Garðar Steinþórsson, Þorvaldur
Kjartansson og Guðmundur Kristberg Helgason.
BB
Hannes Jónsson biðst lausn
Evrópumótið í brids:
ísland tapaði
fyrir Svíþjóð
ar úr utanríkisþjónustunni
Gagnrýnir utanríkisráðherra harðlega
HANNES Jónsson sendiherra bað forseta íslands í gær um lausn frá
embætti sendiherra í utanríkisþjónustunni frá og með 31. október.
Áður hafði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sagt honum
upp störfúm sem heimasendiherra frá og með 1. ágúst.
KIRKJURITIÐ
LÚTHERSK KIRKJA
OG RÓMVERSK
Nýtt Kirkju-
rit komið út
í NÝJASTA hefti Kirkjuritsins
er fjailað um samband lúthersku
kirkjunnar og rómversk ka-
þólsku kirkjunnar. Er það gert í
tilefni komu Jóhannesar Páls
páfa II hingað til lands fyrr á
þessu sumri. í ritinu eru 1. og
2. heflti 55. árgangs. Ritið er að
þessu sinni 152 bls. að stærð.
Útgefandi þess er Prestafélag
íslands og ritstjóri er sr. Þor-
björn Hlynur Arnason.
Margt greina er í ritinu og má
meðal þeirra nefna grein eftir Einar
Sigurbjörnsson prófessor um ein-
ingarviðleitni og einingarstarf
kirkna. Siguijón Eyjólfsson cand.
theol. skrifar um réttlætingarkenn-
ingu Lúthers og ber hana saman
við framsetningu Trídentþingsins.
Sr. Dalla Þórðardóttir ritar grein
um konur í kaþólsku kirkjunni og
hlutskipti þeirra varðandi þjón-
ustuna. Þá skrifar dr. Hjalti Huga-
son grein er hann nefnir Hveiju
breytir siðbreytingin? - Tilraun til
endurmats í tilefni páfakomu.
í Kirkjuritinu er einnig að finna
innlegg frá rómversk kaþólsku
kirkjunni. Alfred Jolson biskup
skrifar um einingu og samstarf í
nútímanum og Sigurður Ragnars-
son segir frá inngöngu sinni í ka-
þólsku kirkjuna.
I bréfi, sem Hannes Jónsson sendi
utanríkisráðherra í gær, segist hann
standa eftir starfslaus forsetaskipað-
ur sendiherra á fullum launum frá
þeim tíma sem uppsögnjn taki gildi,
og því vilji hann ekki una.
„Ekki heldur vil ég taka þátt í
þeirri skemmdarstarfsemi sem ráð-
herra er að reyna að vinna á íslenskri
utanríkisþjónustu með skipulagstil-
lögum sínum,“ segir Hannes einnig
í bréfinu.
Hann sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær, að mikil og almenn
óánægja ríkti í utanríkisþjónustunni
síðan Jón Baldvin Hannibalsson tók
við embætti utanríkisráðherra.
Hannes sagði ráðherrann vera að
rústa skipulagi ráðuneytins, eins og
hann hefði gert í fjármálaráðuneyt-
inu í tíð sinni þar með þeim afleiðing-
um að 8 embættismenn hefðu sagt
þar upp störfum.
Á fréttamannafundinum sagði
Hannes að með bréfi sínu 12. júlí
hefði utanríkisráðherra í raun lagt
niður heimasendiráðin, sem Hannes
þjónaði.
Bréf ráðherrans hljóðar svo:
„Ákveðið hefur verið að þér látið af
starfí yðar sem sendiherra í þeim
FJÓRTÁN efltirtaldir hafa sótt um
stöðu héraðsdýralæknis í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, sem aug-
lýst var laus til umsóknar nýlega.
Björn Steinbjömsson, dýralæknir
í Reykjavík, Ólafur Jónsson, dýra-
læknir hjá Rannsóknarstofu mjólku-
riðnaðarins, Helgi Sigurðsson, sér-
fræðingur á Keldum, Halldór Run-
ólfsson, deildardýralæknir hjá Holl-
ustuvernd ríkisins, Lars Hansen,
fisksjúkdómalæknir á Keldum,
Gunnar Öm Guðmundsson, héraðs-
dýralæknir í Borgaifjarðarumdæmi,
löndum sem þér hafið verið heima-
sendiherra í frá og með 1. ágúst
næstkomandi, og mun ráðuneytis-
stjórinn tilkynna viðkomandi yfir-
völdum þá ákvörðun."
Hannes sagðist aðspurður hafa
bent utanríkisráðherra á, í það eina
skipti sem þeir hefðu talað saman,
að í raun væri útilokað að slíta stjórn-
málasambandi á þennan hátt við
þessi fjölmennu og mikilvægu ríki.
Rekstur heimasendiráða væri hag-
kvæmasti mátinn til að sinna stjórn-
málasambandi við þau.
Hannes er heimasendiherra í Ind-
landi, Kýpur, Pakistan, Bangladesh,
Túnis, og sinnir einnig Nepal, írak
og Sri Lanka.
Upphafið að þessu máli má rekja
til gagnrýni Hannesar Jónssonar í
fjölmiðlum, á tillögur Jóns Baldvins
Hannibalssonar um skipulagsbreyt-
ingar á utanríkisþjónustunni . Sagði
Hannes í því sambandi að ráðgjafar
utanríkisráðherra væru fúskarar. Jón
Baldvin krafðist þess að Hannes
bæðist afsökunar á þessum ummæl-
um og sagði það vera vítavert at-
hæfi embættismanns að embættis-
menn vektust upp í fjölmiðlum með
órökstuddan skæting um stefnu ráð-
Gunnar Þorkelsson, héraðsdýra-
læknir á Kirkjubæjarklaustri, Steinn
Steinsson, héraðsdýralæknir á Sauð-
árkróki, Einar Otti Guðmundsson,
héraðsdýralæknir í ísafjarðarum-
dæmi, Bimir Bjarnason, héraðs-
dýralæknir á Höfn í Hornafirði, Þor-
valdur Hlíðdal Þórðarson, dýralæknir
í Reykjavík, Guðbjörg Anna Þorvarð-
ardóttir, héraðsdýralæknir
Hólmavík, Þorsteinn Ólafsson, dýra-
læknir, starfar hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands og Rögnvaldur Ingólfs-
son, héraðsdýralæknir í Búðardal.
herra í mikilvægum málum.
Hannes segist, í bréfi sínu til ráð-
herrans, ekki una þeim nýju og áður
óþekktu viðhorfum manns í ráð-
herrastóli utanríkisráðherra, að emb-
ættismenn utanríkisþjónustunnar
njóti ekki grundvallarréttinda eins
og skoðana- og tjáningarfrelsis; þeir
skuli bara þegja eða segja af sér,
en ekki taka þátt í umræðu um tillög-
ur til skipulagsbreytinga á utanríkis-
þjónustunni, þótt augljóst sé, að þær
feli í sér aukinn kostnað fyrir ríkið
og árangursminni starfsemi.
Hannes lýkur bréfi sínu með því
að vitna í George Bernard Shaw: „að
Námið fór fram í Hússtjómar-
skólanum á Hallormsstað á ábyrgð
Kennaraháskóla íslands í samvinnu
við Fræðsluskrifstofu Austurlands.
Umsjón með náminu hafði Berit
Johansen sérkennslufulltrúi á Aust-
urlandi. Hvatinn að því að þessu
námi var komið á fót á Austurlandi
voru tíð kennaraskipti og skortur á
sérkennurum. Við gerð námsskrár
var leitað til sérkennsluskóla í Nor-
egi, framhaldsdeilda KHÍ og skóla-
stjóra og kennara á Austurlandi.
Námsskráin var við það miðuð að
nýtast sem best reyndum kennumm
í daglegu starfi.
Þátttakendur í náminu vora
starfandi kennarar með a.m.k.
tveggja ára starfsreynslu. Náminu
var skipt í annarri þar sem þátttak-
endur tóku virkan þátt í náminu
og miðluðu hver öðram af eigin
reynslu og þekkingu. Einnig tengd-
þótt lýðræðið sé ekki fullkomið, þá
sé það eitt besta stjórnskipulag sem
við eigum völ á. Og þótt sú hætta
vofi alltaf yfir í lýðræðisríki, að einn-
ig einn þijótur og lýðskrumari geti
flotið með til valda þá sjái kjósendur
fljótlega við honum, leiðrétti mistök-
in og losi sig við hann. Ég held að
Shaw hafi þama lög að mæla.“
Hannes Jónsson er annar sendi-
herrann sem biðst lausnar úr ut-
anríkisþjónustinni á stuttum tíma.
Benedikt Gröndal dró lausnarbeiðni
sína til baka, eftir að honum var
boðin staða sendiherra íslands í
Washington.
ist náminu kennsla í heimaskólum
og úrvinnsla verkefna.
Að þessu sinni brautskráðust 12
nemendur með fyrrihluta BA-prófs
í sérkennslufræðum. Luku nemend-
ur miklu lofsorði og þakklæti á
aðstandendur námsins. Námsskrá
þótti hagnýt og í takt við tímann.
Nemendur vora sérstaklega ánægð-
ir með að þeim gafst kostur á að
stunda þetta nám á heimaslóðum
samhliða starfi. Töldu margir að
annars hefðu þeir ekki átt þess
kost að stunda það. Fulltrúar
menntamálaráðuneytis og Kenn-
araháskólans lýstu einnig yfir
ánægju með hve vel tókst til með
þetta fyrsta nám Kennaraháskóla
Islands utan Reykjavíkur. Sams-
konar nám hófst á Norðurlandi í
vor og eru þar 38 nemendur, þar
af 12 úr Reykjavík.
- Björn
Héraðslæknir Gullbríngu- og Kjósarsýslu:
14 sækja um stöðuna
Austurland;
KHI útskrifar kennara
með sérkennslumenntun
Egilsstöðum.
Kennaraháskóli íslands útskrifaði í vor 12 nemendur á Austurl-
andi með fyrrihluta BA-prófs í sérkennslufræðum. Þetta er í fyrsta
sinn sem skólinn heldur uppi kennslu og útskrifar nemendur utan
Reykjavíkur. Rétt til þátttöku í þessu námi áttu starfandi réttinda-
kennarar á Austurlandi og var markmiðið með náminu, sem tók tvö
ár, að gefa þátttakendum tækifæri á að öðlast sérkennslufræðilega
menntun sem sniðin væri að þörfúm austfirskra grunnskóla. Námið
hófst í maí 1987 og lauk nú í júní.