Morgunblaðið - 15.07.1989, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989
DALVlKURSKD Ll
Fisk-
vinnslunám
Getum enn bætt við nemendum á fiskvinnslu-
braut Dalvíkurskóla. Inntökuskilyrði á 1. önn eru
grunnskólapróf, en á 3. önn skal nemandi hafa
lokið almennum áföngum 1. bekkjar framhalds-
skóla. Heimavist á staðnum.
Umsóknarfestur til 19. júlí.
Nánari upplýsingar í símum 96-61380 og
96-61162.
Skólastjóri.
S.O.S. - Akureyri
Dagvistin KfÓabÓI er foreldrarekið barnaheimili. Framtíðarað-
setur verður í nýinnréttuðu húsnæði í Glerárkirkju, sem
tekið verður í notkun í byrjun ágúst. Vegna flutnings í
Glerárkirkju og uppsagnar starfsmanna auglýsum við eftir-
farandi til umsóknar:
Forstöðufóstru - Deildarfóstru
Almenna fóstrustöðu - Almennt starfsfólk
í boði er:
Laun skv. samkomulagi.
Aðstoð við útvegun húsnæðis og flutningsstyrkur.
Spennandi starf, þar sem starfsfólk hefur möguleika á
að skipuleggja innra starf heimilisins frá grunni.
Ráðning miðast við 1. ágúst.
Umsóknir sendist til:
Velunnarar Króabóls, Brekkugötu 8, 600 Akureyri, íyrir 20. júlí.
Upplýsingar gefa Kristjón Kristjánsson, símar 96-24222
og 96-26367, Aðalheiður Steingrímsdóttir, sími 96-25251
eftir kl. 18.00.
Akureyrarbær
J afnréttisráðgj afi
Jafnréttisnefnd Akureyrar auglýsir lausa til um-
sóknar stöðu jafnréttisráðgjafa.
Verksvið jafnréttisráðgjafa verður að vinna að
framkvæmd jafnréttisáætlunar Akureyrarbæjar og
að öðrum skyldum verkefnum, sem jafnréttisnefnd
og bæjarstjórn munu fela honum.
Jafnréttisráðgjafí mun veita ráðgjöf fyrirtækjum,
stofnunum og einstaklingum á Akureyri. -
Um er að ræða 50% starf, en gert er ráð fyrir að
í upphafi geti verið um að ræða hærra starfshlut-
fall, tímabundið. Einnig er mögulegt að viðkom-
andi geti átt kost á hlutastarfi til viðbótar hjá
starfsmannadeild. Ráðningartími fer eftir sam-
komulagi og laun eru samkvæmt kjarasamningi
Akureyrarbæjar og STAK.
Meirihluti þeirra, sem nú gegna stjórnunar- og
ábyrgðarstöðum hjá Akureyrarbæ, eru karlar, en
stefnt er að því að jafna stöðu kynjanna sbr. 9.
grein laga nr. 65/1985 um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla.
Konur eru því hvattar til að sækja um starfíð.
Krafist er a.m.k. þriggja ára háskólanáms í félags-
vísindum, sálfræói, uppeldisfræði eða sambærileg-
um greinum.
Við leitum að umsækjanda, sem hefur mikinn
áhuga á að vinna að jafnréttismálum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður jafn-
réttisnefndar, Aðalheiður Alfreðsdóttir, í síma
96-22879 eftir kl. 20.00, eða starfsmannastjóri
Akureyrarbæjar í síma 96-21000.
Umsóknarfrestur er til 4. ágúst og skal umsókn
send undirrituðum á umsóknareyðublöðum, sem
fást hjá starfsmannadeild Akureyrarbæjar, Geisla-
götu 9, sími 96-21000.
Starfsmannastjóri.
Að öll óbreyttu ætti fyrsta bifreiðin að aka um nýgert hringtorg á Akureyri í dag. Morgunbiaðið/KGA
Hringtorgið opnað í dag
HRINGTORGIÐ, hið fyrsta á Ak-
ureyri, verður að öllu óbreyttu
opnað fyrir umferð í dag, laugar-
dag. Torgið er á gatnamótum
Hörgárbrautar og Undirhlíðar.
Gunnar H. Jóhannesson, deildar-
verkfræðingur hjá tæknideild Akur-
eyrarbæjar, hefur sent frá sér frétta-
tilkynningu þar sem segir að þar sem
margir Eyfirðingar muni vera óvanir
akstri á hringtorgum sé rétt að vekja
athygli á þeim meginreglum sem í
gildi eru um akstur þar.
Biðskylda er alls staðar inn á
hringtorgið. Innri hringurinn hefur
alltaf forgang við akstur út af torg-
inu. Þeir sem ætla út af torginu á
næstu gatnamótum eftir innakstur
skulu velja hægri akrein inn á torgið.
í fréttatilkynningunni kemur fram
að þeir sem í vafa eru varðandi það
hvernig akstri á hringtorgum er hátt-
að geti snúið sér til lögreglu.
Sr. Pétur sett-
ur í embætti
SÉRA Pétur
Þórarinsson
nýkjörinn
prestur í Gler-
árprestakalli
verður settur í
embætti á
morgun,sunnu-
daginn 16. júlí.
Prófastur Eyjafjarðarprófasts-
dæmis, sr. Birgir Snæbjörnsson
setur sr. Pétur í embætti. Athöfnin
hefst kl. 14.00, en á eftir verður
boðið til kaffidrykkju í kirkjunni.
Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
organistans Jóhanns Baldvinssonar
og mun kórinn m.a. syngja sálm
sr. Péturs; í bljúgri bæn.
Sr. Pálmi Matthíasson hefur lok-
ið sinni þjónustu í Glerárpresta-
kalli, en sr. Pétur tekur formlega
við á sunnudaginn. Hann hefur
sömu viðtalstíma og sr. Pálmi hafði
í Glerárkirkju, en fyrst um sinn er
þeim sem ræða þurfa við sr. Pétur
bent á heimasíma hans.’
Sumartónleikar:
Hlíf Sigurjóns-
dóttir leikur
HLÍF Sigurjónsdóttir fiðluleikari
leikur á sumartónleikum í þremur
kirkjum á Norðulandi.
Hinir fyrstu verða í Akureyrar-
kirkju á sunnudag og hefjast þeir
kl. 17, í Húsavíkurkirkju leikur hún
á mánudagskvöld og 1 Reykjahlíð-
arkirkju á þriðjudagskvöld. Tónleik-
arnir á Húsavík og í Mývatnssveit
hefjast kl. 20.30.
Hlíf lauk einleikaraprófi frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík árið 1974.
Síðan stundaði hún nám við tónlistar-
skóla í Bandaríkjunum og í Kanada.
Hún hefur starfað sem fiðluleikari í
Þýskalandi, Sviss og á íslandi.
Á efnisskránni eru m.a. verk eftir
Bach, Jónas Tómasson, Jacques Ibert
og fleiri.
Friðarganga
Baháía
Friðarganga á vegum Baháía-
samfélagsins á ísland verður farin
frá Ráðhústorgi og að Kjarnaskógi
á morgun. Gangan hefst kl. 14.00.
I Kjarnaskógi verða grillaðar pylsur
og farið í leiki. Um kvöldið verður
skemmtun í Dynheimum og hefst
hún kl. 21.00. Aðgangur að skemmt-
uninni er ókeypis og verða þar mörg
skemmtiatriði á boðstólum.
Morgunblaðið/KGA
Ferðalúnir farþegar
Þota með farþega á leið heim af sólarströnd gat ekki lent á
Keflavíkurflugvelli í gærmorgun eins og áætlað hafði verið vegna
þoku, svo haldið var til Akureyrar. Þeir sem fyrst lögðu af stað
heimíeiðis héldu frá hóteli sínu í Portúgal laust fyrir klukkan
20.00 í fyrrakvöld. Þaðan lá leiðin til Malaga á Spáni þar sem
farþegar voru teknir og síðan til Glasgow. Áætlaður lending-
artími vélarinnar var um klukkan 6 í gærmorgun. Þotan komst
hins vegar ekki suður fyrr en rétt eftir hádegið í gær. Far-
þegar voru orðnir nokkuð slæptir og syfíaðir eftir langa ferð,
en sumir þeirra komu sér makindalega fyrir utandyra og fram-
lengdu sólarferðina í blíðskaparveðrinu.
Frá Hitaveitu Akureyrar
Vegna sumarleyfa verður starfsemin í lágmarki
fr'a og með 22. júlí til 13. ágúst. Símavarsla
verður á venjulegum afgreiðslustíma, en skrifstof-
an verður opin þriðjudaga og fimmtudaga milli kl.
12.30 og 15.00. Bilanir tilkynnist í síma 22105 eða
985-27305. Engar nýframkvæmdir verða á vegum
HA nema í Gerðahverfi II á tímabilinu. Tengingar
innanhúss verða framkvæmdar, ef nauðsyn krefur.
Hitaveitustjóri.
Akureyringar
FÆDDIR 1949
Um helgina eru síðustu forvöð að tilkynna
þátttöku í sameiginlega afmælishófinu okkar
að Jaðri 22. júlí. Látum sannast að allt er
fertugum fært. Skrifið ykkur hjá:
Gullý Ragars., sími 96-23296, Júlía Björns., 96-22163,
HaddýJúl., sími 96-24778, Júlía Þórs., 96-25103.