Morgunblaðið - 15.07.1989, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989
+-
Toyota Hilux
Burðarmikill o g flölnota jeppi
Bílar
JóhannesTómasson
Toyota Hilux jeppinn hefur alllengi
verið á íslenskum bílamarkaði.
Hann er fáanlegur í ýmsum gerðum
og þar að auki hafa íslenskir bíleig-
endur og bílasmiðir útfært hús og
yfirbyggingar á þá með ýmsu móti.
Hilux er fáanlegur með bensín- eða
dísilvél, húsið getur verið fyrir tvo
eða fimm og pallurinn mislangur
eftir því, hægt er að kaupa á pall-
inn sérstök ódýr hús og lengi
tíðkaðist að menn smíðuðu yfir-
byggingar yfir þessa bíla en sú leið
er nú á undanhaldi. Við skoðum í
dag Hilux af svonefndri Double
Cab-gerð en það er eiginlega fernra
dyra, fimm manna jeppi með dísil-
vél og allstórum palli. Við köllum
hann hér eftir Hilux.með tvöföldu
húsi. Nýtilegur vagn til margra
hluta, fyrir fisksalaijölskylduna,
ferðalangana og bara þá sem vilja
jeppa.
Hilux hefur tekið nokkrum breyt-
ingum og nú síðast má segja að
hann hafi verið endurhannaður að
verulegu leyti. Tekur það til undir-
vagns sem yfirbyggingar. Hilux
með tvöföldu húsi og palli er ósköp
hlutlaus bíll, hvorki fallegur né ljót-
ur, þarna er kannskl á ferðinni eins
konar nytjalist ef svo má að orði
komast, bíll sem ætlaður er til
ákveðinna verka.
Odýrasta gerðin, eindrifs bensín-
bíllinn, kostar um 865 þúsund krón-
ur kominn á götuna, Hilux Xtra
Cab, fjórhjóladrifinn með bensínvél,
kringum 1.370 þús. kr. og sami
bíll með dísilvél um 100 þúsund
krónum meira og Hilux með tvö-
földu húsi, fjórhjóladrifinn með
dísilvél, nærri 1.420 þús. kr. kominn
á götuna.
Hljóðlát dísilvél
Toyota Hilux útgáfan sem er ein-
ungis afturdrifinn pallbíll er 4,725
m langur, fjórhjólabíllinn með stóru
tvennra dyra húsi er 4,905 m lang-
ur og Hilux með tvöföldu húsi er
4,720 m að lengd. Breiddin á bílnum
með litla húsinu er 1,650 m en hin-
ar gerðimar eru 1,690 á breidd.
Hæð bílsins með tvöfalda húsinu
er 1,785 m og lengd milli hjóla
2,850 m. Innanmál pallsins er 1,405
m á lengdina og breidd hans 1,465
metrar.
Pallbjllinn, sá með minnsta hús-
inu, er einungis fáanlegur með
bensínvél, sá I miðið með bensín-
eða dísilvél en Hilux með tvöföldu
húsi aðeins með dísilvél. Það er 2,4
lítra vél, fjögurra strokka með 8
ventla og er 83 hestöfl. Verður hún
að teljast með hljóðlátari dísilvélum.
Bíllinn vegur 1.680 kg og með
fullri hleðslu 2.460 kg og ber hann
því nærri 800 kg. Hann er búinn
blaðfjöðrum að framan og aftan.
Beygjuradíus er 6,6 m og olíutank-
ur tekur 65 lítra.
Hæfilega hastur
Toyota Hilux er laus við allan
óþarfa að innan og allt er þar einf-
alt í sniðum. Hér er ekki á ferðinni
borgarbíll með alls konar þægindum
en heldur ekki einfalt og ómerkileg
landbúnaðar- eða vinnutæki heldur
einhver blanda þama á milli. Ekki
verður sagt að sætin séu þægileg
hvorki jramstólar né aftursæti en
þau eru hæfilega mjúk fyrir þennan
hæfilega hasta jeppa og veita ágæt-
an stuðning. Á framsætum er höf-
uðpúði og hefðbundin stilling á
baki. Það er ágætt að sitja undir
stýri og plássið er nóg. Bíllinn er
skráður fimm manna. Búast má við
að farþegar í aftursæti óski þess
að staðnæmast með reglulegu milli-
bili sé ekið á langleiðum. Líklegt
er einnig að sumum finnist nokkuð
hátt að klifra um borð en það er
nokkuð sem aldrei verður komist
hjá á háreistum jeppa.
í mælaborði er allt sem þarf og
ekkert umfram það - ekki einu sinni
klukka sem er nú að verða staðalút-
búnaður í mörgum bílum. Miðstöð
blæs vel og virðist hita fljótt.
Hanskahólf er á sínum stað og
mættu gjarnan vera hólf í hurðum
eða annars staðar til að geyma í
smádót.
Sem fyrr segir er gott að sitja
undir stýri, veltistýri, og ekki þarf
að kvarta yfir útsýni. Það er gott
og útispeglar eru ágætir. Útsýni
um afturrúðu er nokkuð truflað af
grindinni milli palls og húss og má
segja að ökumaður fái eins konar
vörubílatilfinningu þegar hann þarf
að aka aftur á bak. Er sjálfsagt
að minna ökumenn á að bakka með
fullri aðgát á bíl sem þessum.
Þolir ýmislegt
Toyota Hilux með dísilvél er
þokkalega lipur og léttur í akstri
enda með vökvastýri. Vinnslan er
allsæmileg og ekki þarf hún að
vera meiri í bæjarakstri en þegar
leggja skal í langar brekkur á þjóð-
vegum þarf fljótt að skipta niður.
Bíllinn er fimm gíra og má segja
að þriðji gírinn hafi einna mestan
teygjanleika eða svigrúm. Skipting-
in sjálf er góð og má óhikað telja
bílinn fremur lipran og góðan í
meðförum þrátt fyrir stærðina.
Enda þarf hann sitt pláss og engar
refjar þegar lagt er í stæði. Þetta
er með öðrum orðum ekki smábíll
fyrir borgarumferð heldur hentugri
til annarra nota.
Toyota Hilux verður seint talinn
mjúkur enda er hann á stífum blað-
fjöðrum og er burðarklár. Þetta
finnst ekki svo mjög á sæmilega
sléttum götum höfuðborgarinnar.
Hann hagar sér vel úti á vegum
og má segja að hann njóti sín einna
best á grófum og ósléttum malar-
Hér er bíllinn til hægri kominn með plasthús frá Mart en þannig bíl rekur til dæmis bilaleiga Flugleiða.
vegum. Þar er líka hægt að aka
án þess að vera hræddur um bílinn,
hann mylur eiginlega undir sig gijó-
tið og gróft yfirborð vegar án þess
að þess verði svö mikið vart. Þess
vegna nýtur hann sín einna best
við þær aðstæður og má segja að
reynsla af Hilux hafi líka sýnt að
þetta er fjaðrakerfi sem endist og
þolir ýmislegt misjafnt.
Hús á pallinn
Hilux með tvöföldu húsi er bíll
sem býður upp á fjölbreytilega
möguleika. Það er ekkert út í hött
að tala um bíl fisksalafjölskyldunn-
ar, bíl fyrir þá sem þurfa t.d. vinn-
unnar vegna að flytja eitt og ann-
að. Burðargetan er næg, nærri 800
kg og með þessu tvöfalda húsi geta
menn sameinað notagildið fyrir
vinnuna óg fjölskyldubílinn. Þurfi
menn lokaðan pall er næsta auð-
velt að verða sér úti um segl eða
aðra yfirbreiðslu sem hægt er að
krækja á pallbrúnina.
Þá hefur verið boðið upp á ýmsar
gerðir húsa á palla sem þennan.
Fyrirtækið Mart í Reykjavík hefur
þannig flutt inn plasthús sem boltuð
eru á pallinn. Eru þau með hliðar-
gluggum sem hægt er að opna og
hlera að aftan sem opnast upp á
við en neðri hluti pallsins opnast
niður. Hægt er að læsa þessum
húsum og kosta þau liðlega 70
þúsund krónur staðgreidd.
Atvinnutæki og ferðabíll
Toyota Hilux með tvöföldu húsi
er alvöru jeppi fyrir þá sem vilja
bíl sem leggja má á ýmsar þrautir
og ýmsa vinnu með árangri. Hann
er engan veginn mjúkur eða íburð-
armikill enda hugsaður fyrst og
fremst sem atvinnutæki og ferðabíll
fyrir erfiðar aðstæður. Við venju-
legan akstur kemur þó í ljós ákveð-
in lipurð og færir það bílinn aftur
í átt til fólksbíls þó' hér sé lögð
áhersla á það að Hilux er fyrst og
Nýr Daihatsu í
næsta mánuði
Applause heitir ný gerð af Daihatsu
sem komin er á markað og kynnt
verður hérlendis í næsta mánuði.
Hér er á ferðinni nýr bíll frá grunni,
meðalstór fimm manna bíll með
aldrifi eða sídrifi sem verður nýr
valkostur með öðrum Daihatsu
bílum, Couore og Charade.
Endanlegt verð á Daihatsu App-
Daihatsu Applause virðist álit-
legur bíll.
lause liggur ekki ljóst fyrir en gera
má ráð fyrir að það verði á bilinu
800 til 900 þúsund krónur. Vélin í
Applause er 1,6 lítra, 16 ventla og
rúm 90 hestöfl. Brimborg hefur
þegar pantað allstóra sendingu og
verður bíllinn kynntur einhvern
tíma í næsta’mánuði.
Brimborgarmenn stóðu nýlega
fyrir mikilli véla- og tækjasýningu
í þjónustumiðstöð fyrirtækisins við
Bíldshöfða. Sýndir voru allir helstu
vörubílar frá Volvo og meðal ann-
ars tveir stærstu vörubílar landsins
af gerðinni F 16.
I