Morgunblaðið - 15.07.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 15.07.1989, Qupperneq 34
34 __ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989 fclk í fréttum OKUFERÐ 120 ELDRI BORGARAR í BOÐI HREYFILS Það var hressandi að fá sér ís eftir fyrsta áfanga ferðarinnar. Sumir Iétu líða úr sér undir suðræn- um gróðri. Þessar kunnu vel að meta ferð þeirra Hreyfilsmanna. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hreyfilsmenn buðu vistfólki frá Seljahlíð í Reykjavík, Hrafnistu og Sólvangi í Hafnarfirði í dagsferð austur fyrir fjall í vikunni. Alls voru um 120 manns í ferðinni. Komið var við í Eden í Hveragerði þar sem fólk- ið settist niður og lét sér líða vel í skemmtilegu umhverfi. Margir fengu sér sumarís í brauðformi og spjölluðu á léttu nótunum við ferðafélagana. „Þetta er alveg prýðilegt framtak hjá strákunum," sagði einn ferðalanganna og undir það tóku allir sem spurðir voru. Fólki þótti þetta skemmtileg upplyfting frá hversdagsleikanum. Veður var hið besta, bjart og sól öðru hverju. Frá Hveragerði var svo haldið á Selfoss þar sem drukkið var kaffi í Hótel Selfoss í boði Hreyfils- manna. Sigurður Sigurðarson sóknarprestur og Brynleifur H. Steingrímsson forseti bæjarstjórnar ávörpuðu fólkið áður en það hélt ferð sinni áfram niður að ströndinni þar sem farið var um Stokks- eyri, Eyrarbakka og Þorlákshöfn á leiðinni til Reykjavíkur. Hreyfilsmenn hyggjast gera ferð sem þessa að árlegum viðburði en fyrr á árum var fólki af Vífils- stöðum og Reykjalundi boðið í slíkar dagsferðir. —Sig. Jóns. HÁRGREIÐSLA Alþjóðleg ráðsteftia um dómgæslu Alþjóðleg ráðstefna þar sem fjallað var um dómgæslu á heimsmeistaramótum í hár- greiðslu var haldin hér á landi fyrir skömmu. Tuttugu og fimm manns sóttu ráðstefnuna sem var kostuð af Wella-fyrirtækinu í Þýskalandi. í lok ráðstefnunnar var fjórum íslendingum veitt viðurkenning frá Alþjóðasambandi hárgreiðslu- fólko. Arnfríður ísaksdóttir og Torfi Geirmunds- son fengu viðurkenningu fyrir störf í þágu Al- þjóðasambandsins og Kristján Sigmundsson tók við viðurkenningu fyrir hönd Wella-fyrirtækisins. Að sögn Torfa Geirmundssonar hefur sjaldan verið betri þátttaka á ráðstefnúm um dómgæslu. Síðasta ráðstefna var haldin í Brasilíu en þá voru þátttakendur örfáir. Félagar í Alþjóðlegu sambandi hárgreiðslufólks eru frá 60 löndum hvaðanæva úr heiminum. Morgunblaðið/Þorkell Torfi Geirmundsson með Marcel Lamy orðu sem honum var veitt á ráðstefnu sem haldin var hér á landi um dómgæslu i hárgreiðslukeppnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.