Morgunblaðið - 15.07.1989, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989
32'
ÚRSLIT
ea
jAíSBknattspvrna
íslandsmótið
1. DEILD:
KR-Valur......................1:1
Pétur Pétursson - Sævar Jónsson.
2. DEILD:
Selfoss - Tindastóll..........2:1
Ingi Börn Albertsson, Hilmar Gunnlaugsson
— Marteinn Guðgeirsson.
Stjarnan - Leiftur............2:1
Heimir Erlinsson, Valdimar Kristófersson -
Halldór Guðmundsson.
Breiðablik - Víðir.......... 2:1
Daníel Einarsson, sjálfsmark, Sigurður
Víðisson, vítas. - Vilberg Þorvaldsson,
vítasp.
DEILD A:
Hveragerði - Leiknir R.............0:0
Þróttur R. - X'íkverji.............2:3
Ivar Jósafatsson, Óskar Óskarsson - Berg-
þór Magnússon, Finnur Thorlacius, Valdi-
mar Jónsson.
ARurelding - Grótta................0:1
- Bernhard Petersen.
3. DEILD B:
Valur R. - Þróttur N...............0:5
- Ólafur Viggósson 2, Þorlákur Ámason,
Guðbjartur Magnason, Kristinn Guðmunds-
Siglufjörður - Dalvík..............1:0
Baldur Sigurðsson.
4. DEILD C:
Árvakur - Skallagrímur............3:1
Ámi Guðmundsson 2, Bjöm Pétursson -
Guðlaugur Þórðarson.
Æskan - U.M.F. Neisti..............3:0
Arnar Kristinsson, Ásgrímur Reisenhus,
Baldvin Hallgrímsson.
FRJÁLSAR
IÍÞRÓTTIR
Stigamót í London
Úrslitlírðu þessi í stigakeppni, Grand Prix,
í frjálsum íþróttum í London í gærkvöldi:
400 m grindahlaup kvenna:
1. S. Farmer-Patrick (Bandaríkin)..54,33
2. Sally Gunnell (Bretland)........55,43
3. Kathy Freeman (Bandaríkin)......56,08
3.000 m hlaup karla:
1. Yobes Ondieki (Kenýa).........7.41,55
2. Marcus O’Sullivan (Irland)....7.42,53
SLTim Hutchings (Bretland).......7.43,03
Kúluvarp kvenna:
1. Judy Oakes (Bretland)...........18,95
2. Ramona Pagel (Bandarikin).......18,83
3. Myrtle Augee (Bretland).........17,85
110 m grindahlaup karla:
1. ColinJackson (Bretland).........13,11
2. Tony Jarrett (Bretland).........13,31
3. Roger Kingdom (Bandaríkin)......13,34
200 m hlaup karla:
1. Robson da Silva (Brasilía)......20,08
2. Calvin Smith (Bandaríkin).......20,33
3. John Regis (Bretland)...........20,35
800 m hlaup karla:
1. PaulEreng (Kenýa).............1.43,60
2. Tom McKean (Bretland).........1.45,89
3. Steve Heard (Bretland)........1.46,12
400 m hlaup karla:
1. Butch Reynolds (Bandaríkin).....44,61
2. Mohammed al Malky (Oman)........45,13
3. Darren Clark (Ástralia).........45,64
3.000 m hindrunarhlaup:
-•4. Peter Koech (Kenýa)............8.16,66
2. Mark Rowland (Bretland).......8.17,22
3. Julius Kariuki (Kenýa)........8.17,67
Langstökk karla:
1. Mike Powell (Bandaríkin).........8,15
2. Stewart Faulkner (Bretland)......8,01
3. Gordon Laine (Bandaríkin)........7,73
Spjótkast karla:
1. Kazuhiro Mizoguchi (Japan)......85,02
2. Stev Backley (Bretland).........84,34
3. Mark Roberson (Bretland)........76,70
4. Patrick Boden (Svíþjóð).........76,58
1.000 m hlaup karla:
1. Abdi Bile (Somalia)...........2.14,51
2. Nixon Kiprotich (Kenýa).......2.16,45
3. Joseph Cheshire (Kenýa).......2.17,18
100 m hlaup kvenna:
1. Merlene Ottey (Jamaíka).........11,02
2. Sheila Echols (Bandaríkin)......11,07
1.500 m hlaup karla:
1. SeveCrabb (Bretland)..........3.36,10
g. Kip Cheruiyot (Kenýa).........3.36,19
ð. Steve Scott (Bandaríkin)......3.36,86
Hástökk karla:
1. Hollis Conway (Bandaríkin).......2,34
2. Patrik Sjöberg (Sviþjóð).........2,31
3. Dalton Grant (Bretland).!........2,31
Stangarstökk:
1. Sergei Bubka (Sovétríkin)........5,85
2. Tim Bright (Bandaríkin)..........5,70
3. Doug Fraley (Bandaríkin).......'.5,60
V
A
Skoska meistaramótið
Gordon Brand yngri náði forustu á opna
ókoska meistaramótinu í gær - þegar hann
lék fjórar af fimm síðustu holunum á einu
höggi undir pari. Staðan er þessi eftir þrjá
keppnisdaga:
204 Gordon Brand..............68 69 67
205 Peter Senior (Ástralía).....7166 68
Jose-Maria Olazabal (Spánn) ...67 70 68
206 Ronan Rafferty.............69 67 70
Ian Woosnam................65 70 71
207 Mark McNulty (Zimbabwe)....69 71 67
Larry Rinker (Bandaríkin)...73 66 68
s DavidFeherty.......................7167 69
Brian. B^rn?s,,..i.I...,...........,.....6868 71
KRINGLUKAST
Vésteinn ekki meira með?
„Erfitt að þræða mót og standa sig ekki," sagði Vésteinn Hafsteinsson
„TAKMARKIÐ í ár var að setja
persónulegt met. Þaðtókst
og ég er sáttur við árangurinn
í vor; sáttur við hvað ég kast-
aði langt, en ég vil gera það
á þessum stóru mótum. Það
hefur gengið illa og því keppi
ég ekki á næstunni, jafnvel
ekki fyrr en næsta ár,“ sagði
Vésteinn Hafsteinsson,
kringlukastari, við Morgun-
blaðið í gær.
Vésteinn, sem æfði í Banda-
ríkjunum fyrri hluta ársins
og stóð sig vel þar á mótum,
bætti íslandsmet sitt í kringlu-
kasti á Selfossi 31. maí um rúma
tvo metra og kastaði 67,64 m.
Hann átti einnig góða kastseríu í
Laugardalnum 17. júnf, en þá
mældist lengsta kast hans 66,26
m. Næst tók hann þátt í grand-
prix móti í Helsingi 29. júní og
kastaði 59,28 m, en 5. júlí á
grand-prix móti í Austur-Berlín
kastaði hann lengst 58,94 m.
„Mér gekk vel í Bandaríkjunum
og hef aldrei fundið mig eins vel
og í vor, en byijaði illa í Hels-
ingi, sem var sem köld vatnsgusa
í andlitið, og gekk jafn illa í Aust-
ur-Berlín. Það er gaman þegar
vel gengur, en það er líka auðvelt
að brotna. Ég missti tilfínninguna
fyrir kringlunni, þegar ég fór aft-
ur út og er enn í lægð,“ sagði
Vésteinn.
Vésteinn er við æfingar í
Svíþjóð og sagðist æfa vel, en
takmarkið væri að ná meiri stöð-
ugleika. „Ef vel gengur tek ég
þátt í Evrópubikarkeppninni í
Dublin 6. og 7. ágúst, annars
ekki. Málið er að komast í form •
á ný,“ sagði Vésteinn.
GRAND-PRIX / LONDON
Kingdom réði
ekkivið
Colin Jackson
Jackson náði bestum tíma í ár í 110 m grinda-
hlaupi á Crystal Palace, 13,11 sek. í gærkvöldi
Roger Kingdom og Colin Jackson hafa háð mörg hörð einvígi að undanförnu.
SUND
Helga náði Evrópu-
lágmarkinu
Helga Sigurðardóttir náði lág-
marki fyrir Evrópumeistara-
mótið í sundi - þegar hún synti
100 m skriðsund á 57,59 sek. í
Vestmannaeyjum fyrir skömmu.
Lágmarkið er 58,06 sek. Hún
reyndi einnig við lágmarkið í 200
m skriðsundi, en var ekki langt
frá því. Hún náði sínum besta
árangri - 2.05,97 mín.
Þrír aðrir sundmenn hafa
tryggt sér rétt til að taka þátt í
Evrópumeistaramótinu, sem fer
fram í Bonn í V-Þýskalandi. Það
eru Ragnheiður Runólfsdóttir,
Arnþór Ragnarsson og Ragnar
Guðmundsson.
GRAND-PRIX
„ÉG er mjög ánægður með sig-
urinn og einnig tímann sem ég
fékk,“ sagði Colin Jackson frá
Bretlandi, eftir að hann hafði
unnið sigur á Ólympíumeistar-
arnum Roger Kingdom frá
Bandaríkjunum í 110 m grinda-
hlaupi á Crystal Palace-vellin-
um í London f gærkvöldi. Þetta
var annar sigur Jackson gegn
Kingdom á árinu og hann kom
í mark á besta tímanum sem
hef ur náðst í ár -13,11 sek.
ackson náði góðri byrjun og tók
strax forustuna. „Ég hljóp alls
ekki nægilega vel. Gerði mistök í
miðhlaupinu, sem hafði mikið að
segja - það er nefnilega í mið-
hlaupinu, sem flestar grindumar
eru á vegi manns,“ sagði Jackson.
Kingdom, sem átti í erfiðleikum
strax í byrjun, náði aðeins þriðja
sæti - 13,34 sek., en Bretinn Tony
Jarrett náði að skjótast fram fyrir
hann á lokasprettinum og kom í
mark á 11,31 sek.
Kenýamennimir Paul Ereng og
Peter Koech veittu áhorfendun
skemmtun í 800 m hlaupi og 3.000
m hindrunarhlaupi. Ólympíumeist-
arinn Ereng varð sigurvegari í 800
m hlaupi, 1.43,60 mín. og Koech,
sem setti heimsmet í Stokkhólmi á
dögunum, kom í mark í 3.000 m
hindrunarhlaupi á þriðja besta
tímanum í ár - 8.16,66 mín.
Brasilíumaðurinn Robson da
Silva náði besta tímanum í ár í 200
m hlaupi - 20,08 sek., en Calvin
Smith var annar á 20,33 sek.
Reynolds tók þátt í sínu fyrsta 400
m hlaupi í ár.
Butch Reynolds, heimsmethafi í
400 m hlaupi, sem hefur aðeins
keppt í 200 m hlaupi í ár, tók þátt
í 400 m hlaupi og vann sitt fyrsta
hlaup á árinu - kom í mark á 44,61
sek. „Heimsmetið er í hættu í hvert
sinn sem ég mæti á hlaupabraut-
ina. Nú hljóp ég í samræmi við
veður og hvemig brautin var,“ sagði
Reynolds, en veður var ekki nægi-
lega gott í London í gærkvöldi.
Sergei Bubka frá Sovétríkjunum
reyndi þrisvar sinnum við heimsmet
sitt í stangarstökki - 6,06 m. Hon-
um tókst ekki að stökkva 6,07 m,
en var nær því að komast yfir ránna
í sinni annari tilraun.
Einar enn
meiddur
Einar Vilhjálmsson tók ekki þátt
í grand-prix mótinu í London í
gær eins og til stóð. „Ég hef æft
vel, en útfærslan er ekki rétt og
því verð ég að hvíla,“ sagði spjót-
kastarinn við Morgunblaðið í gær.
Einar meiddist á grand-prix mót-
inu í Helsingi, en hefur æft í Osló
að undanförnu. Hann fer til Stokk-
hólms í dag í sérstaka meðferð, en
á morgun verður hann að tilkynna
mótshöldurum í Róm, hvort hann
mæti á mótið þar á miðvikudag eða
ekki.
„Ég tek enga áhættu og hvíli
mig ef á þarf að halda, en mæti
síðan á meistaramótið heima 29.
júlí. Síðan eru þrjú grand-prix mót
í ágúst, þannig að þetta er allt í
lagi,“ sagði Einar.
Taki Einar ekki þátt í mótinu í
Róm, kemur til greina að Sigurður
Einarsson taki sæti hans.
Einar Vllhjálmsson.
íttiinilltliiillillilliiliil
ln v/
Knattspyrnuskóli ÍR
Þriðja og síðasta námskeið knattspyrnuskóla ÍR
hefst þann 17. júlí á félagssvæði ÍR í Mjóddinni.
INiámskeiðið stendur í tvær vikur og verður kennt
alla virka daga.
Aldurshópurinn 5-8 ára verður milli kl. 12.00-
13.30, en aldurshópurinn 8-11 ára milli kl. 14.00-
16.00.
í lok 8-11 ára námskeiðsins verður haldin knatt-
þrautakeppni og verða verðlaun fyrir þrjú efstu
sætin.
Innrítun og nánari upplýsingar eru í síma 74248.
Kennari á námskeiðinu verður Hlynur Elísson,
knattspyrnuþjálfari.