Morgunblaðið - 26.07.1989, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989
7
Reykjavíkurmaraþon ’89:
Búist er við rúmlega
1500 þátttakendum
HIÐ ARLEGA Reykjavíkurmaraþon verður hlaupið þann 20. ágúst
næstkomandi, og er þetta í sjötta sinn sem hlaupið er haldið. Búist er
við mikilli þátttöku í ár, en í fyrra tóku um 1200 hlauparar á öllum
aldri þátt í hlaupi á þeim þremur vegalengdum sem boðið er upp á.
Skráning er hafin fyrir nokkru, og nú þegar hafa um 40 útlendingar
tilkynnt komu sína til að hlaupa maraþonið sjálft, og 83 erlendir hlaup-
arar ætla enn sem komið er að þreyta sig við aðrar vegalengdir.
Maraþonið nú verður með svipuðu
sniði og undanfarin ár, hlaupnar
verða þijár vegalengdir, 7 kílómetra
skemmtiskokk, 21 kílómetra hálf-
maraþon og svo maraþonið sjálft,
sem er 42,195 kílómetrar að lengd.
Eftir því sem Ágúst Þorsteinsson,
sem hefur umsjón með undirbúningi
hlaupsins segir, er búist við að um
1500 manns hlaupi á vegalengdunum
þrem, þar af um 150 útlendingar,
en skráningu þeirra lýkur þann 1.
ágúst.
Vemdari hlaupsins verður Davíð
Oddson borgarstjóri. í ár verða gefn-
ir nýir verðiaunapeningar til viður-
kenningar fyrir þátttöku, auk þess
sem bryddað verður upp á ýmsum
nýjungum tengdum hlaupinu. Þrír
boðsgestir hafa þegar þegið boð um
þátttöku. Þar eru á ferðinni enski
hlauparinn Robin Nash, sem á bestan
Lóðadeila
í Skorradal;
Dag’sbrún
dæmt í vil
DÓMUR hefúr verið kveðinn upp
hjá sýslumanni Mýra- og Borgar-
Ijarðarsýslu í deilumáli Dags-
brúnar og hreppsnefiidar Skorra-
dalshrepps um kaup Dagsbrúnar
á sumarbústaðalóð í hreppnum.
Málsaðilar voru einnig erfingjar
Hauks Thors, sem seldu Dagsbrún
lóðina. I dómnum segir að sýkna
beri Dagsbrún og landeigendur
af kröfum hreppsneftidar.
Forsaga málsins er sú að í fyrra
fésti Dagsbrún kaup á lóð undir sum-
arbústað í Skorradal. Seljendur lóð-
arinnar voru erfingjar Hauks Thors.
Hreppsnefndin stefndi báðum aðilum
þar sem hún taldi að henni hefði
ekki gefist kostur á að nýta for-
kaupsrétt sinn að lóðinni.
Við málflutning í málinu héldu
Dagsbrún og landeigendur því fram
að samkvæmt jarðarlögum hefði liðið
sá frestur sem hreppsnefnd er gefinn
til að taka afstöðu til forkaupsréttar
án þess að nefndin hefði gert slíkt.
Á þau rök var fallist af dómara.
I dómsorði er hreppsnefndinni gert
skylt að greiða gagnaðilum 350.000
krónur hvorum í málskostnað.
Húnavatnssýslur:
60-70 teknir
fyrir of hrað-
an akstur
LÖGREGLAN á Blönduósi tók
60-70 ökumenn fyrir of hraðan
akstur um síðustu helgi. Þrátt
fyrir mikla umferð var um-
ferðin óhappalaus og þakkar
Jón Isberg sýslumaður það
eftirliti lögreglunnar og góð-
um vegum.
Nú er sá hluti hringvegarins
sem liggur um Húnavatnssýslur
að mestu komin með bundið slit-
lag. Slitlagið nær frá Brú í
Hrútafirði að Húnaveri. Bólstað-
arhlíðarbrekkan er eftir og kafli
við hana en síðan er komið bund-
ið slitlag á töluverðan hluta
Vatnsskarðsins. Jón sagði að
ekið væri nokkuð greitt á þess-
um góðu vegum en lögreglan
reyndi að halda hraðanum niðri.
tíma 2 klukkustundir, 15 mínútur
og 12 sekúndur, Skotinn Terry Mitc-
hell sem á bestan tíma 2:19,24 og
hollenska hlaupadrottningin Wilma
Rusman, sem hefur hlaupið maraþon
á 2:35,28. Skráning í hlaupið fer
fram hjá Ferðaskrifstofunni Urval.
Morgunblaðið/Júlíus
Snjósleðar á
auðri braut
Óvenjuleg sjón mætti þeim sem
áttu leið að Kvartmílubrautinni
í Kapelluhrauni á laugardag.
Þar þeyttust snjósleðar eftir
brautinni, við hlið sérútbúinna
kvartmílubifreiða. Snjósleða-
kapparnir tóku skíðin undan
sleðunum og settu lítil dekk í
staðinn. Ekki var um formlega
keppni að ræða á laugardag,
en líklegt er að slíkri keppni
verði komið á innan skamms.
Snjósleðarnir stóðu sig vel í
spymunni og sá þeirra, sem
fljótastur var, fór brautina á
12,81 sekúndu. Einn sleða-
mannanna lenti í óhappi og
kastaðist af sleðanum, sem valt
út í hraun. Maðurinn slasaðist
þó ekki mikið.
■ ■
sem m\\\
AUSTURSTRÆTI 22, SÍMI 22925