Morgunblaðið - 26.07.1989, Side 18
18
MÓRGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 1989
Skógareldar í Manitóba-fylki:
18.000 manns hafa
flúið heimili sín
Eldarnir ógna ekki Islendingabyggðum
„ELDARNIR eru á stóru svæði norður af Winnipeg-vatni Qarri íslend-
ingabyggðum í fylkinu," sagði blaðamaður við Winnipeg Free Press,
stærsta blað Manitóba-fylkis í Kanada, er Morgunblaðið spurði hann
í gær hvort skógareldar þar um slóðir ógnuðu íslendingabyggðum.
SKógareldarnir, sem blossuðu upp í síðustu viku, eru hinir mestu
sem sögur fara af í Kanada.
„Um 18 þúsund manns hafa orð-
ið að flýja heimili sín vegna eldanna
og hafa þeir verið fluttir á brott,
Ungveijaland:
Rússnesku-
nám gert
að refsingu
Búdapest. Reuter.
DUGLEGUM nemendum i
ungverskum skólum er leyft
að læra ensku en þeim slak-
ari er gert að læra rússn-
esku, að sögn dagblaðsins
Magyar Nemzet. Ungverskir
nemendur verða að læra
a.m.k. eitt erlent tungumál í
fimm ár.
Blaðið segir að lögð séu próf
fyrir nemenduma í nokkmm
skólum í Búdapest og víðar;
hæsta mögulega einkunn sé
fimm. „Þeir sem ná fjómm eða
fimm í einkunn fá að læra
ensku en þeir sem fá aðeins tvo
eða þijá em dæmdir til að læra
rússnesku í fimm ár.“
Embættismaður í ráðuneyti
menningarmála tjáði frétta-
manni Reuters að vegna skorts
á enskukennumm yrðu sumir
nemendur að sætta sig við læra
rússnesku sem opinberlega var
gerð að valgrein á þessu ári.
flestir til Winnipeg. Menn, sem beij-
ast við eldana, hafa ekkert fengið
við ráðið og vindar um helgina
hleyptu miklum krafti í þá,“ sagði
blaðamaður Winnipeg Free Press.
Samkvæmt fréttum Reuters-
fréttastofunnar geisa skógareldarn-
ir á 800 þúsund hektara skóglendi
í norðurhéruðum Manitóba en þar
er að finna afskekktar námaborgir
og indíánabyggðir. Tilraunir til að
hefta útbreiðslu þeirra hafa lítinn
sem engan árangur borið. Reynt
hefur verið að úða vatni úr flugvél-
um en þykkur reykjarmökkur hefur
byrgt þeim sýn. Vonast var til að
skúraleiðingar sem vart varð í gær
myndu hjálpa til við að hefta eld-
ana. Eldamir hafa einnig breiðst
til Saskatchewan-fylkis og Ontaríó.
Höfðu 900 manns flúið heimili sín
vegna eldanna í fyrrgreinda fylkinu
í gær og 500 í Ontaríó.
Reuter
Skálað fyrir nýjum forseta íkóki
Frakkinn Claude Autant-Lara, aldursforseti á þingi Evrópubandalagsins, (t.h.) óskar Spánveijanum
Enrique Baron til hamingju með kjör hans sem forseta þingsins. Baron er 45 ára sósialisti og
fyrsti Spánveijinn sem kjörinn er forseti EB-þingsins. Autant-Lara er Iiðsmaður Þjóðernisfylkingar
franska öfgamannsins Jean-Marie Le Pen. Kom það í hans hlut sem aldursforseta að stýra fyrsta
fundi nýkjörins þings og forsetakjöri. Flestir þingmanna gengu af fundi undir setningarræðu hans.
Að kjöri loknu fógnuðu stuðningsmenn Barons með því að skála í kóka kóla, og sögðu þann vökva
vera sameiningardrykk and-fasista. Autant-Lara, 87 ára kvikmyndagerðarmaður, hafði skorað á
evrópska æsku í ræðu sinni að hundsa kóka kóla en svala fremur þorsta sínum með góðu hvítvíni.
Ágreiningur innan Fatah-hreyfíngar Palestínumanna:
Hart lagt að Arafat að
fallast á aukið ofbeldi
Túnisborg'. Reuter.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO),
sem undirbýr nú mikilvægan
fund F atah-hreyflngarinnar í
næstu viku, á í erfiðleikum með
að halda aftur af félögum í hreyf-
ingunni sem vilja að barist verði
af meiri hörku gegn Israelum á
Skæruliðar í Angóla skutu
niður flugvél með 42 mönnum
Lissabon. Reuter.
42 fórust er angólskir skæruliðar skutu niður farþegaflugvél í austur-
hluta Angóla á sunnudag. Portúgalska fréttastofan Lusa hafði eftir
heimildarmönnum innan angólska sljórnarhersins að árásin stofhaði
friðarsamningi Angólastjórnar og UNITA-hreyfingarinnar í hættu.
Angólska fréttastofan Angop til á sínu valdi. Sprenging hefði
greindi frá því að flugvélin, sem 0rðið í vélinni er flugmennirnir
var af gerðinni Antonov-26, hefði hefðu reynt að nauðlenda henni.
orðið fyrir flugskeyti á svæði, sem Tveir farþegar og fjórir flugliðar
UNITA-skæruliðar hafa að hluta komust lífs af.
Angólskir heimildarmenn sögðu
fréttastofunni Lusa að árásin stofn-
aði friðarsamningnum, sem An-
gólastjórn og UNITA-skæruliðar
undirrituðu í Zaíre 22. júní, í hættu.
Réttlætanlegt væri fyrir Angóla-
stjórn að binda enda á viðræðumar
við UNITA um framkvæmd samn-
ingsins, sem nú fara fram í Zaíre.
hernumdu svæðunum, að sögn
ráðgjafa Arafats og embættis-
manna PLO.
Heimildarmennirnir segjast bú-
ast við miklum átökum þegar
hundruð fulltrúa Fatah-hreyfingar-
innar koma saman í næstu viku,
annaðhvort í Túnisborg eða Algeirs-
borg, á fyrsta þingi hreyfingarinnar
frá árinu 1980. „Forystan er enn
sterk og byggir stefnu sína á sterk-
um rökum en samt sem áður mun
hún mæta mikilli andstöðu," sagði
Salah Khalaf, fulltrúi Arafats í
Fatah. Khalaf sagði að þeir sem
gagnrýndu stefnu Arafats héldu því
fram að PLO hefði ekkert orðið
ágengt í friðarumleitunum sínum
frá því í nóvember í fyrra. Þeir vildu
að PLO tæki harðari afstöðu tii
ísraelsríkis og hæfi á ný hernaðar-
aðgerðir gegn ísraelum utan her-
numdu svæðanna.
Bassam Abu Sharif, stjórnmála-
ráðgjafi Arafats, sagði á sunnudag
að leiðtogi PLO ætti í miklum erfið-
leikum með að halda aftur af rót-
tækum félögum í Fatah, sem vildu
að tilraunum ísraela til að bijóta
uppreisn Palestínumanna á her-
numdu svæðunum á bak aftur yrði
svarað með auknu ofbeldi. „Fulltrú-
ar hafa komið til hans frá her-
numdu svæðunum og sagt við hann:
„Hafðu ekki áhyggjur af peningum
eða matvælum, sendu okkur aðeins
byssur,“ sagði Sharif. Hann spáði
því að draga myndi úr áhrifum PLO
og að uppreisn Palestínumanna á
hernumdu svæðunum færi úr bönd-
unum næðist ekkj árangur í friðar-
umleitunum PLO á næstunni.
Uppstokkunin í stjórn breska íhaldsflokksins:
Thatcher reynir að rétta flokk
sinn við eftir erfiðleikatímabil
Lundúnum. Reuter.
UPPSTOKKUNINNI í ríkisstjóm Margaretar Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, á mánudag er ætlað að breyta ímynd breska íhalds-
flokksins og rétta hann við eftir ósigur í kosningum til þings Evrópu-
bandalagsins og erfitt tímabil í eftiahagsmálum. Eru þetta mestu
breytingar sem gerðar hafa verið á breskri ríkisstjórn í hartnær
30 ár.
Félagar í íhaldsflokknum sögðu
að þessi mikla uppstokkun á stjórn-
inni hefði komið sér mjög á óvart,
en þeir kváðust þó sannfærðir um
að hún styrkti stöðu flokksins eftir
mesta erfiðleikatímabil stjómar-
innar frá því hún komst ti! valda
fyrir tíu árum. Ágreiningur varð-
andi Evrópubandalagið, vaxandi
verðbólga, vaxtahækkanir, vinnu-
deilur og óvinsælar breytingar á
heilbrigðiskerfinu - allt þetta
stuðlaði að minnkandi fylgi flokks-
ins í skoðanakönnunum og ósigri
hans í kosningum til þings Evrópu-
bandalagsins í síðasta mánuði.
Þetta var fyrsti kosningaósigur
flokksins frá því Thatcher varð leið-
togi hans árið 1975. Næstu þing-
kosningar verða ekki síðar en árið
1992.
Mikla athygli vakti að Kenneth
Baker, áður menntamálaráðherra,
var valinn í áhrifamikla stöðu
flokksformanns. Baker er þekktur
á meðal Breta og sagður koma vel
fyrir í sjónvarpi.
John Mayor, áður aðstoðarfjár-
málaráðherra, varð fyrir valinu í
embætti utanríkisráðherra, sem er
eitt af þremur valdamestu ráð-
herraembættunum, og kom
Thatcher bæði honum og forvera
hans, sir Geoffrey Howe, mjög á
óvart með þeirri ákvörðun. Major
er talinn mjög fær stjórnmálamað-
ur en hann hefur þó ekki veríð
mikið í sviðsljósinu í breskum
stjórnmálum. Þykir upphefð Majors
benda til þess að Thatcher vilji að
hann verði arftaki sinn. Majorsagði
er hann tók við embættinu að hann
myndi leggja mesta áherslu á Evr-
ópu og samskipti austurs og vest-
urs. Hann hefur enga reynslu af
utanríkismálum og því er óvíst
hvort hann muni framfylgja stefnu
Thatcher betur en Howe varðandi
málefni Evrópubandalagsins, en
hún er til að mynda andvíg fullri
aðild Breta að Evrópska myntkerf-
John Major
inu.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að
uppstokkunin endurspeglaði þá
skoðun Thatcher að stefna hennar
væri rétt en stjórninni hefði hins
vegar ekki tekist að framfylgja
henni.