Morgunblaðið - 02.08.1989, Side 15

Morgunblaðið - 02.08.1989, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1989 15 fellssýslu Höfn. BREYTINGAR á prestastétt í Austur-Skaftafellssýslu verða innan skamms. Prófasturinn á Kálfafellsstað, séra Fjalar Sig- urjónsson, lætur af störfum 1. október nk. og séra Baldur Kristjánsson á Höfn hefur fengið ársleyfi frá störfum. Verður því prestlaust í sýsl- unni einhvern tíma. Séra fjalar lætur af störfum sökum aldurs en hann hefur þj'óðnað söfnuðunum í 26 ár. Nýbúið er að auglýsa Kálfafells- prestakall laust til umsóknar. Séra Baldur heldur til fram- haldsnáms við Harvard Divinity School í Cambridge við Boston í Bandaríkjunum þann 1. sept- ember. Ekki er ljóst hver muni annast Bjarnanesprestakall í fjarveru hans. . - JGG Krakkar! Ánetjist ekki Stóra stjórnkerfinu eftir EyjólfKonráð Jónsson Ameríkumaðurinn Robert F. Ringer skrifaði fyrir rúmum áratug bók sem hann nefndi „Endurreisn ameríska draumsins". Þar talar hann m.a. um þau vonbrigði sem frjálst fólk fyllist þegar það gerir sér ljóst að Stóra stjórnkerfið er til að vera og vaxa. Þá sé um tvennt að gera, örvilnast eða ánetjast því. Hið síðara vilji menn gjarnan því að notalegt og áhyggjulítið líf sé þó • í öllu falli betra en vonleysi eða langvinnur hugsjónadauði. Menn halli sér þessvegna að þeirri lífsskoðun sem rík var þegar bókin var rituð en ennþá öflugri nú og hana kallar hann „to-hell-with- itism“ eða til-helvítis-með-þaðism- inn. Gegn þessum isma verða sjálf- stæðismenn að hamla þótt við sigr- um hann kannski aldrei. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Allt of margir aðhyllast vítis- kenninguna og raða sér á jötu Stóra stjórnkerfisins. En gífurlega er það ánægjulegt þegar a.m.k. einn opin- ber stuðningsmaður verstu ríkis- stjórnar sem við höfum mátt þola, Guðmundur G. Þórarinsson, rís upp og segir hingað og ekki lengra. Raunar leyfi ég mér að lesa ýmis ummæli hans svo að hann kreíjist þess að skattþján og ofstjórn minnki, hann sé í hjarta sínu sjálf- stæðismaður í vitlausum flokki. ísland er besta land heims og það er ekki lengur „á mörkum hins byggilega heims“. Hér þróast þrátt fyrir allt listir og hvers kyns atorka og afrek. En mesta „afrekið“ er það að koma á kreppu, atvinnuleysi og fjárhagslegu hruni ijölskyldna og fyrirtækja á mestu gósentímum í sögu þjóðarinnar. Auðvitað vill Stóra stjórnkerfið þetta ekki, en það gerir það í eigin þágu — að það heldur — þótt það vilji það ekki. „Þeir skammt’ okkur frelsi og skammt’ okkur brauð“, og mottóið er „Vér skipuleggjum" o.s.frv. Skattheimtubrjálæðið af brýn- ustu nauðsynjum er afsprengi stjórnspeki tvíburasystranna Of- stjórnar og Óstjórnar en þær bera blessaðan rikissjóðinn sífellt fyrir bijósti. Svo springur blaðran. Hing- að kemur erlendur hagspekingur, frægur held ég, og segir okkur það sem allir máttu vita að ijárlagagerð okkar i áratugi sé della, allar aðrar fijálsar þjóðir íjármagni hluta ríkis- framkvæmda með lánsfé frá borg- urunum í stað þess að svipta þá eignarráðum að fjármunum með skattlagningu. Þjóðin sé auðvitað hvorki ríkari né fátækari fyrir það Prestslaust í A-Skafta- eitt að lána ríkissjóði fé og eiga kröfur á hendur honum, kröfur á hendur sjálfri sér. Og hann ráðlegg- ur okkur að veija innlendu lánsfé til nytsamlegra og arðvænlegra ríkisframkvæmda. Ur því að útlend- ingur segir þetta hlýtur það að vera rétt! Unga fólkið sem ég veit að er að langstærstum hluta sjálfstæðis- fólk, þótt það sé ekki allt sjálfstæð- isflokksmenn, verður nú að skera upp herör gegn Stóra stjómkerfis- bákninu og ofsköttuninni. Ríkisstjórnin er liðið lík þótt hún fremji hveija kviðristuna af annarri — og við sjálfstæðismenn verðum að taka sjálfa okkur í hnakka- drambið. Höíundur er einn af alþingismönnum Sjálistæðisilokks fyrir Reykjavíkurkjördæmi. Bomamte J J J Jj J S ir J „Hingað kemur erlend- ur hagspekingnr, fræg- ur held ég, og segir okkur það sem allir máttu vita að fjárlaga- gerð okkar í áratugi sé della, allar aðrar ftjáls- ar þjóðir íjármagni hluta ríkisframkvæmda með lánsfé frá borgur- unum í stað þess að svipta þá eignarráðum að fjármunum með skattlagningu“. Kópavogur / Mosfellsbær Hafnarfjörður / Garðabær Keflavík / Suðurnes Akureyrí Austfirðir Seltjarnarnes Björn Árnason, Einar Traustason, Magnús Gíslason, Malland hf. Steypuþrykk sf. múrarameistari múrarameistari múrarameistari Borgarland 14 Guðmundur Björnsson Hjallabraut 19 Hafnargötu 48 Lerkilundi 28 765 Djúpivogur Smiöjuvegi 11e Sími 91-53468 Sími 92-13708 Sími 96-21726 Sími 97-88821 Sími 91-641740 Vinnusími 92-12500 985-28931 Bomanite er tákn nútíma hellulagnar. í stað venjulegra hellna er notuð jámbent steinsteypa sem mótuð er á hverjum stað fyrir sig í það mynstur sem óskað er. Bomanite fæst I ótal litum og margs konar grófjeika og mynstrum. Það er þægilegt og hagkvæmt að leggja bæði i halla og á jafnsléttu, að niðurföllum, veggjum og öðrum mishæðum. Á stígum, stéttum, bílastæðum, heimkeyrslum, sólstofum og gróðurhúsum - alls staðar sómir Bomanite sér jafn vel; áferðarfallegt og níðsterkt. TPr»1 i Á ÍSLANDI Smiðjuvegi 11e • sími 91-641740 fyrir stíginn, gólfið og stéttina Eyjólfiir Konráð Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.