Morgunblaðið - 02.08.1989, Side 20
20
MÁLAÐU
BETUR
MEÐ
BRYNJU
Terpentínuþynnt
akrýlmálning
á múrhúö
og steinveggi
BRYNJA er terpentínu-
þynnanleg akrýlmálning.
BRYNJA er opin og hleyp-
ir því raka út í gegn um
sig. BRYNJA vætir vel
hrjúft yfirborð og hefur því
góða viðloðun við múr og
steypu. BRYNJA hefur
mjög gott vatnsþol og frá-
bært veðurþol. BRYNJA
upplitast ekki né gulnar.
BRYNJA fæst f 4 Itr.og 20
Itr.umbúðum.
-SHpptéiagíð-
■»Málningarverkamiðja
Dugguvogi 4
Sovétríkin:
Innfliitningsbanni
á ritverkum aflétt
Moskvu. Reuter.
SOVÉSK tollayfirvöld tilkynntu á mánudag að aflétt hefði verið
hömlum á innflutningi ritaðs máls. „Eina undartekningin er klám-
kennt efni og rit þar sem hvatt er til ofbeldisfullrar stjórnarbylting-
ar,“ sagði Vítalíj Bojarov tollstjóri á fréttamannafundi og bætti því
við að ekki væru neinir höfundar lengur í banni.
Bojarov sagði einnig að breyttar Sovéskir ríkisborgarar þurfa að
tollareglur fælu í sér að ferðamönn-
um yrði auðveldað að fara inn í
landið og úr því. Um miðjan mánuð-
inn yrðu sett upp „græn hlið“ á
flugvöllum að vestrænum sið fyrir
þá sem ekki hafa neinn tollskyldan
varning meðferðis.
Bojarov vék sérstaklega að regl-
um um innflutning á tölvum.
greiða sem svarar u.þ.b. 450.000
krónum í toll fyrir tölvur til þess
að hindra svartamarkaðsbrask með
þær. Útlendingar sem koma til
landsins þurfa að greiða sem svarar
16.000 krónum í tryggingu þegar
þeir koma með einkatölvur með-
ferðis en féð fá þeir endurgreitt við
brottför úr landinu., þ.e.a.s. ef töl-
van er enn í þeirra eigu.
Bandaríkin:
Alþjóðleg frímerkja-
sýning í Washington
Frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgiinblaðsiiis í Washington.
PÓSTSTJÓRN Bandaríkjanna gengst fyrir stórfelldri frímerkjasýn-
ingu, sem haldin verður í Washington í haust samtímis ráðstefnu Al-
þjóða Póstmálasambandsins, sem er elsta sérstofiiun Sameinuðu þjóð-
anna. Það verður í fyrsta skifti í 214 ára sögu Pósstjórnar Banda-
ríkjanna, að hún gengst fyrir alþjóða frímerkjasýningu.
Forystumenn póstmálastjórnar- Sameinuðu þjóðanna, mun gefa út
innar segja, að ekkert verði til spar- frímerki til heiðurs Mannréttinda-
að til að gera sýninguna, sem eftir-
minnanlegasta. Sýningin hefst 17.
nóvember og verður opin til hins 20,
en verður opin á ný frá hinum 24.
til 3. desember.
Verðlaun verða veitt fyrir sérstak-
ar frímerkjaútgáfur í tilefni sýning-
arinnar. Fágæt og dýr frímerki verða
boðin upp á sýningunni og er fyrir-
fram vitað, að míljónir dollara munu
verða boðnir í sjaldgæfustu frímerki
veraldarinnar, fræg og eftirsótt
frímerkjasöfn og fyrsta dags
frímerki.
Frímerki og bréfsefiii írá
100 þjóðum.
Forystumenn sýningarinnar lofa,
að fyrir sýningargestum verði upp-
lýsingar um póstmál raunverulega á
„ fingrum þeirra" og vísa þá til þess,
að á sýningunni verða tölvur fyrir
hendi, sem segja til á augabragði
hvar leita skal, að öllu, sem hver og
einn leitar að og talið er skoðunar
vert
Jafnvel hreinustu áhugamenn um
frímerkjasöfnun munu hafa gaman
af að skoða “krúnudjásn" kunnustu
frímerkjasafnara heims einsog t.d.
Rainers Monaco-fursta, eða söfn
furstans af Thum og Taxis, sem
hefur lofað að lána úr safni sínu til
sýningarinnar.
A sýningunni verða 200 sýningar-
básar kunnra frímerkjasafnara víða
að úr heiminum. Sovétríkin og
Svíþjóð, ásamt Öðrum ríkjum, munu
gefa út „fyrsta dags“ frímerkjaútg-
áfur á sýningunni. Frímerkjaútgáfa
yfirlýsingu Frönsku byltingarinnar,
sem á 200 ára afmæli á þessu ári.
Sérstök deild verður á sýningunni
fyrir „frímerkjasafnara framtíðar-
innar", þ.e. 16 ára og yngri sýningar-
gesti.
Aflótta
Reuter
Ung sómölsk stúlka tínir lýs úr hári litlu systur sinnar á meðan þær
bíða þess að móðir þeirra snúi aftur til Hartishek-flóttamannabúð-
anna við landamæri Eþíópíu og Sómalíu. Fjöldi flóttamanna hefur
leitað þangað frá landamærunum, en þar á marxistastjórnin í Eþíópíu
í höggi við uppreisnarmenn.
Bandaríkin:
Vaxandi loftmengunar
gætir í mörgum borgum
St. Cloud í Florída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morg^mblaðsins.
VAXANDI loftmengunar gætir á ýmsum þéttbýlustu svæðum Banda-
ríkjanna, segir í nýrri skýrslu Umhverfisverndarráðs Bandaríkjanna.
Mengunin fór í fyrra yflr hættumörk á svæðum þar sem 110 milljónir
manna búa, en slík eiturmengun mældist í mjög mismunandi marga
daga ársins á hinum ýmsu stöðum.
Mengunin er tvenns konar; annars áður. A þessum svæðum búa um 30
1988 og kolsýringseitrun yfir mörk-
um í 51 dag, segir í skýrslunni. Önn-
ur menguðustu borgarsvæðin eru
þessi:
vegar ózoneitrun, sem er lyktarsterkt
afbrigði af súrefni og myndast í and-
rúmslofti við mikla geislun sólar, og
hins vegar kolsýringur, lyktarlaus
lofttegund sem myndast þegar kol-
efnj brennur í ónógu súrefni.
Á síðastliðnum þremur árum,
1986-88, hefur ózoneitrun yfir
hættumörkum mælst á 101 borgar-
svæði, en kolsýringseitrun yfir
hættumörkum á 44 borgarsvæðum.
Ozoneitrun yfir hættumörkum
mældist í fyrra á 37 borgarsvæðum,
sem ekki hafa komist á hættulistann
milljónir manna. Þurrkarnir miklu í
fyrra eru taldir hafa haft mikil áhrif
í þessum efnum.
Ozoneitrunin hefur færst mjög í
aukana, en borgarsvæðum, þar sem
kolsýringseitrunar yfir hættumörk-
um gætti, fækkaði um átta í fyrra
frá árinu áður.
Loftmengaðasta borg Banda-
ríkjanna í fyrra var Los Angeles, og
raunar er mengunin verst á þétt-
býlissvæðum í Kaliforníu. í Los
Angeles mældist ózoneitrun yfir
hættumörkum 148 daga á árinu
Ózoneitr. Kols.eitr.
yfir mörk. yfir mörk.
(dagafj. (dagafj.
’88) ’88)
Bakersfield; Kalifomíu. 54,0 —
Fresiio, Kalifomíu 30,3 3
Steubenville, Ohio 24,0 31
Baltimore 19,3 2
Philadelphia 18,2 —
New York 18,0 26
Worch., Massach. 17,1 —
Chicago 16.2 —
Spokane. Washington — 37
Winnebago, Wisconsin — 32
Las Veeas — 26
Frábær Candy uppþvottavél
á ótrúlega góðu verði
• Falleg hönnun • Ein sú hljóðlátasta á markapinum
• Tveir kraftmiklir þvottaspaðar • Sérstök úðun yfir efri
grind* Sjálfhreinsandi sigti • Hæð 85 sm, breidd 60 sm,
dýpt 60 sm.
AFMÆLISTILBOÐ: Áður kr. 47.500, nú kr. 42.750.
Staðgreidd kr. 40.610 — spamaður 6.890!
M ,1 JJ A Borgartúni 20, sími 26788
Kringlunni, sími 689150
Sömu kjör hjá umboösmönnum okkar um land allt
Denver, sem lengi var efst á
hættulistanum, hefur tekist að bægja
hættunni frá. Þar gætti aidrei ózo-
neitrunar í fyrra en kolsýringseitrun-
ar í 10 daga.
------» » ♦-----
Japan:
Hashimoto hafii-
að sem arftaka
Tókíó. Reuter.
LEIÐTOGAR stríðandi fylkinga í
stjórnarflokknum í Japan, Frjáls-
lynda lýðræðisflokknum, hafa
ákveðið að leita að nýju formanns-
eftii þar sem þeir gátu ekki sæst
á Ryutaro Hashimoto, fram-
kvæmdastjóra flokksins, sem arf-
taka Sosuke Unos flokksformanns.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að
Hashimoto hefði verið hafnað þar
sem öldungunum í flokknum, sem
vilja kappkosta að halda áhrifum
sínum, hefði þótt hann búa yfir of
miklum persónuleika og verið of
sjálfstæður í skoðunum.
Uno tiikynnti í síðustu viku að
hann ætlaði að axla ábyrgð á af-
hroði flokksins í kosningum 23. júlí
sl. og segja af sér.