Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MtÐVIKUDAGUK 2. AGÚST 1989 25 Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hin nýja flugstöð á Blönduóssflugvelli. Framan við flugstöðina stend- ur Twin Otter-flugvél Arnarflugs sem þjónað hefiir innanlandsflug- inu til fjölda ára áfallalaust. Blönduós: Ný flugstöð opnuð Blönduósi. NÝ flugstöð á Blönduóssfluvelli var formlega tekin í notkun sl. laugardag. Við opnunina voru viðstaddir allir helstu menn flugmála á íslandi ásamt þing- mönnum, fulltrúum bæjaryfir- valda á Blönduósi svo og bygg- ingaraðilar flugstöðvarinnar. Trésmiðjan Stígandi á Blöndu- ósi annaðist allar byggingarfram- kvæmdir á flugstöðinni og var hafist handa við verkið sl. haust. Hin nýja flugstöð er um 90 fer- metrar að flatarmáli og er það um þreföldun á fyrri aðstöðu. Hin nýja bygging bætir til mikilla muna alla aðstöðu fyrir farþega og starfsfólk á flugvellinum. Það er Arnarflug hf. sem sér um áætl- unarflug til Blönduóss og með til- komu hinnar nýju Dornier-flug- vélar félagsins hefur flugtíminn til Reykjavíkur styst mikið. Hin nýja flugvél Arnarflugs kom í sína fyrstu áætlunarferð til Blönduóss 4. júlí á eins árs afmæli bæjarrétt- inda á Blönduósi. Jón Sig. Kjarvalsstaðir: SýningKarsh framlengd Ljósmyndasýningu Yosuf Karsh sem stendur yfir á Kjarvalsstöðum hefúr verið framlengt til 10. sept- ember, vegna mikillar aðsóknar. í frétt frá Kjarvalsstöðum kemur fram að mikil aðsókn hefur verið að sýningu á nútímalist í vestursal Kjarvalsstaða en í austursal stendur yfir hin árlega sumarsýning á vekum Kjarvals. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá kl. 11 til 18 og er Veitingabúðin opin á sama tíma. (Úr fréttatilkynningu) Fiskverð á uppboðsmörkuðum 1. ágúst FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 73,00 30,00 48,15 28,681 1.381.090 Þorskur(smár) 25,00 25,00 25,00 0,205 5.138 Ýsa 106,00 80,00 91,60 1,411 129.296 Karfi 31,00 15,00 28,86 1,942 56.066 Ufsi 16,00 12,00 14,01 0,326 4.568 Ufsi(smár) 12,00 12,00 12,00 1,230 14.766 Steinbítur 49,00 31,00 42,89 2,479 106.333 Langa '29,00 20,00 22,23 0,277 6,157 Lúða 380,00 110,00 195,86 0,649 127.211 Koli 53,00 38,00 47,66 0,877 41.844 Keila 14,00 14,00 14,00 0,008 112 Grálúða 20,00 20,00 20,00 0,089 1.790 Samtals 49,10 38,178 1.874.371 Selt var úr Víði, ivari Baldvinssyni og bátum. í dag verður selt úr Hjalteyrinni Otri, Jóni á Nesi og humarbátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 56,00 30,00 52,09 26,136 1.361.369 Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,469 9.380 Ýsa 122,00 29,00 79,40 3,593 285.336 Karfi 32,00 30,00 31,13 58,647 1.825.682 Ufsi 30,00 20,00 27,57 66,992 1.847.299 Ufsi(undir- máls) 15,00 15,00 15,00 0,432 6.480 Steinbítur 19,00 19,00 19,00 0,336 6.384 Langa 22,00 22,00 22,00 3,538 77.851 Lúða(stór) 170,00 140,00 155,20 0,350 54.320 Lúða(smá) 200,00 200,00 200,00 0,070 14.000 Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,207 3.105 Skötuselshalar 250,00 240,00 244,69 0,145 35.480 Samtals 34,34 160,918 5.526.688 Selt var úr Bergey VE o.fl. í dag verður selt úr Skipaskaga, Drangey og bátum, ufsi 60 t, karfi 45 t og þorskur 20 t. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 57,50 35,00 44,84 7,912 354.806 Ýsa 56,00 35,00 48,99 1,528 74.861 Karfi 28,50 20,00 24,08 4,575 110.211 Ufsi 28,50 15,00 19,19 1,238 23.779 Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,067 1.005 Hlýri 23,00 15,00 18,23 0,100 1.832 Steinbít- ur/Hlýri 28,00 15!,00 26,12 1,479 38.630 Langa 29,50 29,50 29,50 1,729 51.006 Lúða 200,00 70,00 187,55 0,451 84.680 Sólkoli 35,00 35,00 35,00 1,404 49.140 Skarkoli 21,00 21,00 21,00 0,632 13.283 Keila 10,00 5,00 9,49 0,049 465 Skata 58,00 58,00 58,00 0,089 5.162 Skötuselur 100,00 80,00 89,04 0,112 9,972 Lax 205,00 205,00 205,00 0,053 10.865 Grálúða 20,00 20,00 20,00 0,395 7.900 Undirmálsfisk- 15,00 15,00 15,00 0,016 240 ur Blandað 23,00 23,00 23,00 0,278 6.394 Samtals 38,18 22,110 844.231 Selt var úr ýmsum bátum. í dag verður selt úr Eldeyjaf-Hjalta GK, 48 t þorskur og 2 t ýsa. Einnig verður selt úr bátum. Gengur vel í Soginu ÁGÆTISVEIÐI hefur verið í Sog- inu það sem af er, um 130 laxar hafa veiðst og besti tírninn að renna í hlað. Best hefur veiðin verið í Alviðru og Ásgarði, en þokkaleg í Bíldsfelli og afleit á Syðri Brú, þar hafði aðeins einn fiskur veiðst fyrir nokkru, en vel getur verið að eitthvað 'hafi bæst við. Enn hefur ekki veiðst stærri lax í Soginu en 19 pund. Sá stóri úr Vatnsdalsá Veiði er enn slök í Vatnsdalsá, en ögn batnandi síðustu daga. Heildarveiðin nemur nú rétt tæp- lega 300 löxum. Nýlega veiddist þar 25 punda hrygna á flugu í Saurbæjarhyl og er það stærsti laxinn sem frést hefur um á ís- landi á þessu sumri. Það sem nú veiðist er þó mest nýi-unninn smá- lax. Langá enn léleg Þær upplýsingar fengust í veiðihúsinu við Langárfoss, að menn væru að reyta upp þetta 5 til 10 laxa á dag á neðstu svæðun- um og enn væri treg veiði á mið- svæðinu og ijallinu. Heildarveiðin er nú nærri 450 laxar, þar af um 330 á neðstu svæðunum. Um 100 fiskar hafa veiðst á miðsvæðinu og afgangurinn á fjallinu. Þar .veiddist þó sá stærsti úr ánni til þessa, 17,5 punda hængur í Hóls- breiðu á maðk. Laxinn veiddi Jó- sef Reynis og fékk hann fimm laxa aðra, alls sex þennan dag fyrir um 10 dögum síðan. Vógu hinir um 7 pund hver. Áin hefur minnkað töluvert síðustu daga og vona menn að laxinn gangi greið- ar fram ána, en megnið af þeim laxi sem gengið hefur í ána er enn að gaufa á neðstu svæðunum. Gott í Laxá í Leir „Þetta hefur verið ágætt, það eru stöðugar smágöngur í ána og töluverður lax genginn upp um alla á. Það eru komnir um 700 laxar á land,“ sagði Jón Oddur leiðsögumaður við Laxá í Leirár- sveit í gærdag. Jón sagði að uppi- staðan í veiðinni væri 5 til 6 punda fiskur, en það veiddust alltaf nokkrir 10 til 12 punda fiskar í hverri viku. Langholtið líflegt Lífleg veiði hefur verið í Lang- holti í Hvítá eystri að undanförnu og komnir um 150 laxar á land. Fyrir stuttu veiddist 21 punda lax á svæðinu og áður höfðu veiðst þar 19 og 20 punda laxar. Þetta er rómaður stórfiskastaður og hafa menn séð þá vænni í ánni heldur en hafa veiðst. Kippur í Stóru Laxá Þau undur og stórmerki urðu í Stóru Laxá í Hreppum á laugar- daginn, að eigi færri en 14 laxar veiddust þar á svæðum 1 og 2. Eitthvað fiskaðist einnig á svæði 3, en tölur vantar þaðan. Þar með voru komnir 28 laxar á land á neðstu svæðunum tveim og eitt- hvað hefur veiðst ofar og þeir sem lentu í stórveiðinni sáu töluverða fiskför fram ána. Egill O. Kristins- son var með eina stöng við annan mann og fengu þeir sjö fiska. Sagði Egill í samtali við Morgun- blaðið að laxarnir hefðu veiðst víða, flestir þó í Skarðsstrengjum, eða sex talsins, en þrír komu úr Kálfhagahyl og jafn margir úr Nýpum. Hinir tveir úr Ófæru og Flatastreng. Þetta voru ýmist 5 punda fiskar eða 10 til 12 punda laxar. Veiddust flestir á spón, en Egill tók íjóra á flugu. Laxinn hvarf úr Brynjunni Eitthvað um 20 laxar hafa veiðst í Brynjudalsá í Hvalfirði í sumar, en undarlegt atvik hefur átt sér stað á þeim slóðum og Stanga- veiðifélag reykjavíkur, leigutak- inn, athugar nú hvort að ein- hveijir aðilar kunni að hafa farið í ána með net. Friðrik D. Stefáns- son framkvæmdastjóri SVFR sagði í samtali við Morgunblaðið að sannorðir menn sem fóru í ána fyrir nokkru hefðu séð all mikinn lax ganga í ána og talið það boða gott fyrir framhaldandi veiðiskap í ánni, en aðrir sem fóru stuttu síðar hefðu lítið líf séð í ánni. Málið væri nú í athugun, en áður hefðu fundist net falin við ána. Líflegt í Selá Hörkuveiði hefur verið í Selá að undanförnu, nýlega fór þaðan holl með 76 laxa og hópurinn sem tók við nældi í 20 fiska á fyrsta deginum. Var mikill lax að ganga, mest smálax. Stærst úr Selá í sumar vóg 17 pund, en margir 12 til 16 punda fiskar hafa veiðst. Á fiórða hundrað laxar eru komn- ir á land. Upplagseftirlit tímarita og fréttablaða: Upplag Þjóðlífs stækkar en Æskunnar minnkar VERZLUNARRÁÐ íslands hefur kynnt niðurstöður upplagseftir- lits tímarita og fréttablaða fyrir fyrstu fióra mánuði þessa árs. Þar kemur meðal annars fram að prentað upplag tímaritsins Þjóðlífs hefiir verið stækkað úr 10.000 eintökum í 11.850 eintök, ef borið er saman meðaltal fyrstu fiögurra mánaða þessa árs og meðaltal síðustu fjögurra mán- aða liðins árs. Á sama tíma hefur prentað upplag Æskunnar verið minnkað úr 9.300 eintökum að meðaltali í 8.560 eintök. í upplagseftirliti tímarita og fréttablaða hjá Verzlunarráðinu eru nú tvö landsmálablöð og fjögur tímarit; Hafnfirska fréttablaðið, Víkurfréttir, Heilbrigðismál, Heimsmynd, Þjóðlíf og Æskan. Nu liggja fyrir tölur um prentuð upplög og dreifingu fyrstu fjóra mánuði þessa árs. Kemur þar fram, að á því tímabili var upplag Hafn- firska fréttablaðsins að meðaltali 5.357 eintök, en var á síðustu fjór- um mánuðum ársins 1988 5.313 eintök. Prentað upplag Víkurfrétta var 5.500 eintök á fyrstu ljórum mánuðum ársins og hafði ekki breyst frá tímabilinu september til desember 1988. Samkvæmt upplagseftirlitinu hafði Þjóðlíf mesta útbreiðslu tíma- rita. Prentað upplag þess var Leiðrétting í frásögn af þolreiðarkeppni frá Laxnesi að Þingvöllum, á síðu 27 í blaðinu í gær, var rangt farið með nafn sigurvegarans, Hjördísar Bjartmars Arnardóttur. Beðist er velvirðingar á mistökunum. 10.000 eintök síðustu fjóra mánuði ársins 1988 en á tímabilinu janúar til apríl í ár var upplagið að meðal- tali 11.850 eintök. Heimsmynd var prentuð í 10.000 eintökum á þeim tíma og var upplagið hið sama mánuðina september til desember í fyrra. Þá var Æskan prentuð í 9.300 eintökum en upplag hennar var komið niður í 8.560 eintök á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. Tímaritið Heilbrigðismál var að meðaltali prentað í 8.525 eintökum síðustu íjóra mánuði ársins 1988 en í 8.520 eintökum fyrstu mánuði þessa árs. Barbara Hershey og Bette Midler í hlutverkum sínum í kvikmynd- inni „Alltaf vinir“ sem sýnd er í Bíóborginni. Bíóborgin: Sýningar á „Alltaf vinir“ BÍÓBORGIN hefúr tekið til sýn- inga kvikmyndina „Alltaf vinir“ nieð Bette Midler og Barbara Hershy í aðalhlutverkum. Leik- stjóri er Garry Marshall en hand- rit gerði Mary Agnes Donohue eftir sögu Iris Rainer Dart. Myndin fjallar um vinkonurnar CC og Hillary sem kynnast þegar þær eru ellefu ára. Þær koma úr mjög ólíku umhverfi, CC úr fá- tækrahverfi en Hillary úr efnaðri ijölskyldu. Þær ákveða að skrifast á og fylgjast hvor með annarri. CC verður vinsæl söngkona og Hillary lögfræðingur sem berst fyrir þá sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. Þær ganga báðar í hjónaband en að því kemur að það slettist upp á vinskap- inn og Hillary hættir að svara bréf- um CC. Þær skilja báðar við.eigin- menn sína, ferill CC er á niðurleið og Hillary fær hjartasjúkdóm. Að lokum ná þær saman og vinskapur þeirra verður eins og forðum. (Fróttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.