Morgunblaðið - 02.08.1989, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 02.08.1989, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1989 Flugleiðir gefa Akureyri listaverk: „Lauk ekki við hönnunina fyrr en á síðustu stundu“ - sagði Pétur Bjarnason, sem hlaut 1. verðlaun NIÐURSTÖÐUR í samkeppni um gerð útilistaverks, sem sett verð- ur upp við Strandgötu á Akur- eyri, voru kynntar á mánudag í Síðuskóla. Fyrstu verðlaun hlaut Pétur Bjarnason, myndlistar- maður, en í öðru sæti varð tillaga Snorra Sveins Friðrikssonar, og í þriðja sæti tillaga Guðmundar Jónssonar. Þá fékk tillaga Ingu Akureyrin fiskaði fyrir 53 milljónir Frystitogarinn Akureyrin kom til hafnar á sunnudag með rúm- lega 53 milljón króna aflaverð- mæti og er það mesta verðmæti sem veiðst hefúr fyrir í einum túr sé miðað við krónutölu. í fyrra kom Akureyrin með um 48 millj- óna króna aflaverðmæti að landi, eftir einn túr, og að sögn Þor- steins Más Baldvinssonar, hjá Samheija, reiknaði hann með að verðmæti aflans þá og nú væri svipað. / Þorsteinn sagði að reikna mætti með að verðmæti aflans í sterlings- pundum væri í kringum 550-60 þús- und pund og væri það svipað og mest hefði veiðst fyrir áður. Sagði hann að aflinn væri aðallega þorskur og yrði seldur á Evrópumarkað að langmestu ieyti, en eitthvað færi á Bandaríkjamarkað. Alls kom Akureyrin með um 260 tonn af frystum flökum að landi, en það eru um 615 tonn upp úr sjó. Skipstjóri í veiðiferðinni, sem tók rúma 22 sólarhringa, var Amgrímur Brynjólfsson. Dagfínnsdóttur sérstaka viður- kenningu. Flugleiðir efhdu til þessarar samkeppni í tilefhi af 50 ára afmæli atvinnuflugs á Is- landi árið 1987, en það hófst með stofhun Flugfélags Akureyrar árið 1937. Listaverkið er gjöf Flugleiða til Akureyrarbæjar. Þrjátíu tillögur bárustí keppnina, en heimild til þátttöku höfðu allir íslendingar, svo og útlendingar búsettir hérlendis. Hlutskarpastur varð svo Pétur Bjamason, sem sagði, að það hefði komið sér veru- lega á óvart að hljóta 1. sætið í keppninni. „Ég var staðráðinn í að taka þátt í þessari samkeppni frá upp- hafi, en átti hins vegar í erfiðleikum með að koma mér niður á almenni- lega hugmynd til að bytja með. Það var svo ekki fyrr en undir lokin, sem ég vissi að hverju ég var að leita, og lauk ekki við hönnunina fyrr en á síðustu stundu,“ sagði Pétur Bjarnason, og kvað orðið nokkuð langt um liðið síðan hann hefði hlot- ið fyrstu verðlaun í samkeppni um gerð listaverks. Pétur sagði að hann hefði lagt mikla vinnu í gerð þessa verks, og sagði að greinilegt væri, að aðrir þátttakendur í samkeppninni hefðu gert slíkt hið sama. „Það er mikil vinna sem liggur að baki verkinu; ég lagði satt að segja dag við nótt til að Ijúka því. Ég hef reyndar áður glímt við þessi form; bátsformið, fiskformið og flugformið, en þrátt fyrir það var þetta stöðug leit að réttu formi. Til að byija með var ég að velta fyrir mér frekar flóknum formum, en kom mér síðan niður á einfaldari hugmynd, sem virðist hafa hrifið dómnefndina,“ sagði Pétur að lok- um. Sýning á listaverkunum verður í Síðuskóla fram á mánudag, og verður hún opin frá 16-20 á virkum dögum, og 14-18 laugardag, sunnu- dag og mánudag. MorgunDlaöiö/KJb Pétur Bjarnason og Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur og dóm- nefhdarmaður, ræða um listaverkið. Háskólinn á Akureyri: Ráðsteftia um líf manns- ins á norðlægum slóðum ÞVERVISINDALEG ráðstefha, þar sem íjallað verður um aðskilj- anlegustu lræðasvið, verður haldin á vegum Háskólans á Akureyri í næstu viku. Alls munu um 25 fyrirlesarar halda erindi Skriðjöklarnir. Skriðjöklar í Ýdölum um verslunarmannahelgina HLJÓMSVEITIN Skriðjöklar frá Akureyri mun ásamt fleiri tónlist- armönnum gangast fyrir tveimur dansleikjum í Ydölum í Aðaldal um verslunarmannahelgina. Fyrri dansleikurinn verður haldinn á föstudagskvöldið og sá seinni laugardagskvöldið. Þá eru einnig ráðgerðar ýmsar uppákomur þessa daga í nágrenni Ydala, og hefur Vaglaskógur verið nefhdur í því sambandi. Skriðjöklar hafa verið á faralds- fæti í sumar og haldið dansleiki um allt land. Þessir dansleikir sveitarinn- ar verða hins vegar með síðustu tækifærum landsmanna til að beija sveitina augum, því hún er á förum til Bandaríkjanna með haustinu, þar sem hún mun dvelja um tveggja mánaða skeið og leika á sveitakrám. Auk Skriðjökla mun hljómsveitin Glaumur, sem einnig er ættuð frá Akureyri, leika fyrir dansi í Ýdölum. Sú sveit var stofnuð síðasta haust, og hefur vakið athygli fyrir sérstíptt lagaval. Þá mun danski söngvarinn og lagasmiðurinn Makriien flytja sérstaka dagskrá með aðstoð Skrið- jökla og Glaums, en Makríllinn eins og hann hefur verið nefndur á íslensku, hefur komið fram með hljómsveitinni Sköllótt mús. Vakin er athygli á því að Ýdalir standa á milli Akureyrar og Húsavík- ur, örskammt frá Vaglaskógi. Boðið verður upp á sætaferðir í Ýdali föstu- dag og laugardag frá Akureyri, Húsavík, Mývatnssveit og Vagla- skógi. á ráðstefhunni, sem hefst á mið- vikudaginn kemur og lýkur á laugardeginum þar á eftir. Fyrir- lesarar á ráðstefnunni munu koma víða að; frá Kanada, Bandaríkjunum og Skotlandi, auk islenskra fyrirlesara, og ijalla um heilbrigðisfræði, rekstrarfræði, sagnfræði, bók- menntir, mannfræði, félagsfræði, stjórnmálafræði og sjávarútvegs- fræði. „Við köllum þetta þvervísinda- lega ráðstefnu, en ég held að orðið þvervísindaleg sé nýyrði í málinu; a.m.k. hef ég aldrei heyrt það áð- ur,“ sagði Haraldur Bessason, rekt- or Háskólans á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið vegna fyrirhug- aðrar ráðstefnu. Haraldur sagði að hugmyndin að þessu ráðstefnuhaldi hefði fæðst fyrir allnokkru, þegar hann og Her- mann Pálsson í Edinborg hefðu átt tal saman. Orðið þvervísindalegur hefði líklega fæðst í kjöifarið, en Haraldur sagðist hafa ákveðið að láta það flakka í tengslum við þessa ráðstefnu. „Það verður bara að gæta að því, að ekkert af því sem fram fer á ráðstefnunni gangi þvert á iðkun vísindanna, og verði á þann hátt þvervísindalegt," sagði Haraldur. Líf á norðlægum slóðum Á íslensku hefur þessi ráðstefna hlotið heitið Líf undir leiðarstjörnu, en á ensku ber hún heitið „Man in the North“, og verða fyrirlestrar á henni bæði haldnir á íslensku og ensku. „Það sem tengir alla þessa fyrir- lestra saman, er að viðfangsefni þeirra lýtur á einhvern hátt að lífi mannsins á hinum norðlægu slóð- um. Það er svo hugmyndin að gefa þessa fyrirlestra út, og ætla ég að það geti orðið ágæt kynning erlend- is á Háskólanum okkar hér á Akur- eyri. í þessum fyrirlestrum verður Morgunblaðið/KJS Haraldur Bessason, rektor. í flestum tilfellum um kynningu á frumrannsóknum að ræða, þannig að það sem í boði verður á ráðstefn- unni, verður að mörgu leyti mjög áhugavert,“ sagði Haraldur. Þetta er fyrsta ráðstefnan sem Háskólinn á Ákureyri gengst fyrir, og alls ekki sú síðasta, því Harald- ur sagði að þegar væri farið að huga að öðru ráðstefnuhaldi á veg- um skólans á næsta ári og yrði sú ráðstefna á sviði heilbrigðismála. „Það er skylda háskóla að halda almenna fyrirlestra og kynna rann- sóknir, og ráðstefnuhaldið er auð- vitað liður í því. Auðvitað kostar það einhver útgjöld, en það hefur verið reynt að halda vel um pyngj- una við þetta ráðstefnuhald, og tel ég það hafa tekist," sagði háskóla- rektor. Sagði hann að Akureyrarbær hefði verið mjög hjálplegur við und- irbúning, auk þess sem Menntaskól- inn á Akureyri hefði lánað ráð- stefnuhúsnæðið endurgjaldslaust; en fyrirlestrarnir munu fara fram í einu húsi MA, sem Möðruvellir nefnast. „Þá verður einnig haldinn einn fyrirlestur á Kristnesi, en það verð- ur fyrirlestur Hermanns Pálssonar um Þór og Krist. Er vel við hæfi að Hermann flytji fyrirlestur sinn á þessari fornu landnámsjörð Helga magra, því þeir eru einu mennirnir sem náð hafa töku bæði á íslensku máli og írsku,“ sagði Haraldur að lokum. Sem fyrr segir verður ráðstefnu- haldið dagana 9.-12. ágúst og er þeim sem frekari áhuga hafa, bent á að snúa sér til Háskólans á Akur- eyri. Lóð Akureyrarkirkju: Enginn sandur í skóna FRAMKVÆMDUM við lóðina umhverfis Akureyrarkirkju fer nú senn að ljúka. Unnið hefúr verið við hellulögn umhverfís kirkjuna og snyrtingu á gra- skanti við hána undanfarnar vik- ur. Smári Sigurðsson, hjá Garðverki sf. tjáði Morgunblaðinu að líklega yrði búið að helluleggja og snyrta í kringum kirkjuna sunnudaginn 13. ágúst. Frá þeim tíma ættu kirkjugestir því að geta komist greiðlega að kirkjunni úr öllum áttum, án þess að fá sand í skóna sína. iji íipi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.