Morgunblaðið - 16.08.1989, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.08.1989, Qupperneq 16
16 Síðasta tala númersins segir til um skoðunarmánuðinn. I síðasta lagi tveimur mánuðum seinna skal skoðun hafa farið fram. Skoðunarmiðinn segir til um hvaða ár á næst að færa bílinn til skoðunar. & I BIFREIÐASKOÐUN ÍSLANDS HF. Hægt er að panta skoðunartíma, pöntunarsími í Reykjavík er 672811. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. AGUST Japan; Fómarlamba styrj- aldarinnar minnst Tókíó. Reuter. AKIHITO Japanskeisari og Tos- hiki Kaifú, hinn nýkjörni forsæt- isráðherra Japans, voru við minningarathöfh í Martial-lista- höllinni í Tókíó í gær þegar þess var minnst að 44 ár voru liðin frá lokum síðari heims- styrjaldar. Þar flutti Akihito sitt fyrsta opinbera ávarp frá því að hann var krýndur keisari í janúar síðastliðnum. „Hér, á meðal þegnanna, bið ég fyrir stöðugri velferð þjóðar okkar og fyrir heimsfriði og syrgi þá sem féllu á vígvellinum, fórn- arlömb styrjaldarinnar," sagði Akihito. í ávarpi sínu sagði Kaifu, sem var kjörinn forsætisráðherra í síðustu viku, að fórnir þeirra sem féllu í stríðinu mættu ekki falla í gleymsku og að þjóðin yrði að varðveita þann lærdóm sem hún hefði dregið af síðari heimsstyij- öldinni. Hvergi var minnst á þær miljónir manna sem féllu í öðrum Asíu- og Kyrrahafslöndum sem voru fórnarlömb stríðsreksturs Japana. Yfir 6,800 fulltrúar þeirra 3,1 miljóna manna sem féllu í stríðinu voru við athöfnina sem og 1,000 embættismenn og aðrir opinberir aðilar. Á hádegi héldu viðstaddir ásamt fjölda Japana víðsvegar um landið þagnarstund til að minnast hinna látnu. Reuter Akihito Japanskeisari og Michiko keisaraynja við minningarathöfh- ina í gær. Filippseyjar; Gíslataka í fangelsi endar með blóðbaði Davao. Reuter. Filippeyskir hermenn réðust inn í herfangelsi og skutu 15 fanga til bana í gær eftir að saka- mennirnir höfðu nauðgað og ban- að ástralskri konu og vegið fjóra gísla til viðbótar. Tíu gíslar sluppu heilir á húfí efftir skot- Kosningabarátt- an hafín í Noregi Ósló. Heuter. Kosningabaráttan hófst í Noregi um helgina og flest bendir til þess að framtíð vel- ferðarkerfísins, almannatrygg- ingar, aðstoð við erlend ríki og umhverfismál verði helstu kosn- ingamálin. 'Gro Harlem Brundtland, for- sætisráðherra og formaður Verka- mannaflokksins, veittist harðlega að hinum hægrisinnaða Fram- faraflokki, sem vill minnka útgjöld ríkisins til almannatrygginga, draga úr aðstoð við erlend ríki og lækka skattal „Þessar þingkosn- ingar snúast um framtíð velferðar- kerfisins," sagði forsætisráðher- rann og bætti við að Framfara- flokkurinn berðist gegn velferðar- kerfinu. Atvinnuleysi hefur aldrei verið jafn mikið í Noregi og nú og virð- ist Verkamannaflokkurinn vera að missa fylgi til hægriflokkanna. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem birt var á laugardag, hyggj- ast 19 'prósent Norðmanna greiða Framfaraflokknum atkvæði og tæplega 20 prósent íhaldsflokkn- um. Fylgi Ihaldsflokksins hefur aldrei verið jafn lítið frá því árið 1975. Forystumenn íhaldsflokksins sögðust geta dregið úr atvinnu- leysinu og aukið hagvöxt. Fram- faraflokkurinn vill taka þátt í sam- steypustjóm en íhaldsflokkurinn vil! mynda stjórn með miðjuflokk- unum. bardaga milli hermanna og fanga í herfangelsinu, sem er í Davao- borg, um 1.000 km suðvestur af Manila. „Hún var skorin á háls og skotin í hnakkann," sagði hermaður, sem kom að líki Jacqueline Hamill, ung- um trúboða frá Sydney. Filippeyskur prestur, Fred Castillo, sem var einn af gíslunum en slapp áður en her- mennirnir létu til skarar skríða, sagði að fangarnir hefðu nauðgað nokkrum konum, þar á meðal Ham- ill, á mánudagskvöld. Hann sagðist hafa heyrt ópin í konunum og kvað Hamill hafa sagt sér að fangarnir hefðu ógnað henni með hnífi er þeir nauðguðu henni. Yfirmaður hersins, Mariano Bacc- ay, sagðist hafa gefið fyrirskipun um árásina eftir að hafa komist að því að fangarnir hefðu myrt Hamill og fleiri gísla. Fangarnir, sem sumir hverjir höfðu verið dæmdir fyrir morð, náðu Hamill og fleiri félögum í trúflokki er nefnist Fagnaðarsöfnuður Guðs, þar af níu konum, á sunnudag er trúboðinn stjórnaði biblíulestri í fangelsinu. Sakamennirnir hótuðu að myrða Hamill yrði ekki gengið að kröfum þeirra um að þeir fengju rútu, sem þeir hugðust nota til að flýja úr fangelsinu. Því hafnaði her- inn. Fangarnir reyndu snemma í gærmorgun að sleppa út úr fangels- inu með því að halda Hamill og fleiri gíslum fyrir framan sig og miða að þeim byssum. Leyniskytta úr hernum skaut foringja sakamann- anna og hinir fangarnir flúðu aftur í fangelsið. Síðar heyrðust byssu- hvellir innan úr fangelsinu og svo virtist sem fangarnir væru að skjóta gíslana. Nokkrum stundum síðar skutu hermenn táragasi inn í fangel- sið og réðust til atlögu við fangana. Enginn hermaður féll í aðgerðunum. Auk Hamill skutu fangarnir níu ára gamlan dreng og þijár konur en þeirra á meðal var 16 ára gömui stúlka, sem foringi mannræningj- anna skaut eftir að hafa orðið fyrir skoti frá leyniskyttunni. Afleiðingar Tsjernobyl-slyssins: Risavaxnar fiirur, hauslausir kálfar og afskræmdir grísir ERLENT Moskvu. Reuter. MARGAR plöntur og dýr ná- lægt kjarnorkuverinu í Tsjerno- byl eru vansköpuð með einum eða öðrum hætti. Meðal annars má finna þar risavaxnar fúrur með barr, sem er tíu sinnum stærra en eðlilegt má teljast. Skýrði sovéska fréttastofan TASS frá þessu á mánudag. Erfðagallar fundust í broddgölt- um og snjáldurmúsum en ekki var nánar sagt hveijir þær væru, að- eins að ekki hefði orðið vait neinna merkjanlegra breytinga á hegðan dýranna. Kjarnorkuslysið í Tsjernobyl varð í apríl árið 1986 og við athuganir nú kom í Ijós, að mikil geislamengun er á botni vatnstökulóns ekki allfjarri. Reyndist hún mest í geddu og aborra og í smádýrum, sem í vatn- inu lifa. Þijátíu og einn maður lést í Tsjernobyl-slysinu í Úkraínu en það voru vísindamenn frá ná- grannalýðveldinu Hvíta-Rússl- andi, sem unnu að þessum rann- sóknum. Með þeim voru staðfestar þær sögur, sem lengi hafa verið á kreiki og embættismenn vísað á bug sem hveiju öðru kvennahjali, sögur um vansköpuð tré og önnur óeðlilegheit. Sagði TASS, að furur og önnur barrtré í allt að sjö km fjarlægð frá Tsjemobyl væru verst leikin af geisluninni og viðbúið, að allur skógur á 1.000 hektara svæði dræpist. Sovétmenn óttast, að þeir séu ekki búnir að bíta úr nálinni með kjarnorkuslysið enda sagði viku- blaðið Moskvufréttir frá því fyrr á árinu, að í 50 km íjarlægð frá slysstaðnum í Úkraínu hefðu skepnur borið vansköpuðum af- kvæmum. Kálfar voru hauslausir og grísirnir með afskræmt höfuð og engin augu. Aðstoðarmaður Yamamotos látinn fct 1 L UIVL 1 I Æ I l „JL itæKninam einn um tölvu Sli klnnrk JII lolUÍ IUo o, A Tókíó. Reuter. MINORU Genda, sem átti þátt í að skipuleggja árás Japana á flotahöfii Bandarikjainanna í Pe- arl Harbour á árum síðari heims- styrjaldarinnar, lést í gær, 84 ára að aldri. Genda var flugmaður í japanska flughernum og aðstoðaði Isoroku Yamamoto flotaforingja við að skipuleggja skyndiárás Japana á Pearl Harbour þann 7. desember 1941. Árásin kom Bandaríkjamönn- um algjörlega í opna skjöldu og markaði þáttaskil í Kyrrahafsstyij- öldinni. Yamamoto var almennt tal- inn slyngasti herforingi Japana en Bandaríkjamenn náðu síðar fram hefndum er þeir náðu að þýða dul- málssendingar japönsku herstjórn- arinnar og grönduðu flugvél flota- foringjans. Minoru Genda tók aftur til starfa í flughernum árið 1954 og var for- seti herráðs hans um skeið. Hann vann sæti á þingi fyrir Fijálslynda lýðræðisflokkinn í kosningum árið 1962 en hætti afskiptum af stjórn- málum árið 1986.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.