Morgunblaðið - 16.08.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989
17
Mannskæð umferðar-
helgi á Grikklandi
Aþenu. Reuter.
RUMLEGA 40 manns hafa farist
i umferðarslysum í Grikklandi
frá þvi á föstudag en þá hófst ein
mesta ferðahelgi ársins þar í
landi.
Spánn;
Þekkti ræn-
ingjann aftur
Madríd. Reuter.
SPÆNSK þjúkrunarkona bar
nýlega kennsl á sjúkling sem
lagður var inn á sjúkrahúsið þar
sem hún starfar og sá að þar var
kominn maður sem hafði ógnað
henni með hnífi og rænt hana
nokkrum dögum fyrr.
Maðurinn var lagður inn á
sjúkrahúsið vegna þess að hann
hafði tekið inn of stóran skammt
af eiturlyíjum. Hann játaði strax á
sig sökina og var handtekinn jafn-
skjótt og hann hafði náð sér.
Hjúkrunarkonan var að taka pen-
inga út úr hraðbanka, þegar ræn-
inginn veittist að henni.
Talsmaður lögregluyfirvalda
skýrði frá þessu í gær og kvað tölu
slasaðra vera um 320 manns. Bor-
ist hefðu tilkynningar um 180 um-
ferðarslys og væru um 70 þeirra
slösuðu í lífshættu
Umferð er ævinlega mikil í
Grikklandi um þessa helgi sem
Gríska réttrúnaðarkirkjan heldur
hátíðlega til að minnast himnafarar
Maríu meyjar. Talið er að um ein
milljón manna hafi haldið á vit
sveitasælunnar en fríhelgin er fjórir
dagar og nær hátíðin hámarki þann
15. ágúst, á Maríumessu hinni fyrri.
„Þetta er brjálæði líkast. Fólk
sem hyggst eiga náðuga daga týnir
lífi á vegum úti. Grískir ökumenn
eru margir hveijir hræðilegir, verri
ökumenn finnast tæplega í Evrópu.
Þeir hundsa fyrirmæli um hraða-
takmarkanir og nota aldrei öryggis-
belti,“ sagði talsmaður lögreglu í
samtali við Reuters-fréttastofuna í
gærmorgun. Hann sagði viðbúnað
lögreglu mikinn en kvaðst engu að
síður óttast að fleiri ættu eftir að
týna lífi á þjóðvegum Grikklands
er borgarbúar tækju að flykkjast
aftur til síns heima.
Afganistan:
Reuter
De Klerk sver embættiseið
F.W. de Klerk lyftir hægri hendi þegar hann sver embættiseið
sem forsætisráðherra Suður-Afríku i gær. Hann tók við embætt-
inu af P.W. Botha sem neyddist til að segja af sér á mánudag.
De Klerk á hægri hönd er kona hans Marike.
Najibullah festist í sessi en
skæruliðar vega hver annan
Reuter
Lögreglan'í San Sebastian á Spáni skýtur gúmmikúlum að ungum
Böskum er til átaka kom þar í gær.
Slær í brýnu með
Böskum og lögreglu
San Sebastian. Reuter.
YFIR eitt hundrað manns særð-
ust í átökum milli ungra Baska
og lögregju í borginni San Se-
Þyrlan bjarg-
aði Ljómalind
London. Reuter.
LYNDON Wilton bóndi bað nýlega
breska flotann um þyrlu, þegar
kálfiúll kýr, sem hann á, Ljóma-
lind, hrapaði firam af þverhníptum
sjávarhamri — um 60 metra fall —
og komst upp á grynningar.
Það var við Rame Head í Corn-
wall-skíri, sem kýrin tók fiugið. Sjó-
menn á leið á miðin komu auga á
hana og lélu bóndann vita. Hann
klffraði niður til hennar og hélt henni
félagsskap um nóttina.
Þar sem ekki reyndist unnt að fá
strandgæslubát til aðstoðar daginn
eftir var leitað til flotans. Dýralækn-
ir aðstoðaði Wilton bónda við að róa
kúna og koma henni út á dýpra vatn,
svo að þyrluáhöfnin gæti athafnað
sig. Þá var net dregið undir dýrið
og fest í taug úr þyrlunni, sem sveif
mjúklega með byrðina upp á klettinn.
bastian á Norður-Spáni aðfarar-
nótt þriðjudags, að sögn starfs-
manna Rauða krossins. Óeirðar-
lögregla beitti táragasi og skaut
gúmmíkúlum er hún réðst til
atlögu við unglinga sem höfðu
fleygt flöskum og gijóti að emb-
ættismönnum er tóku þátt í
skrúðgöngu við upphaf árlegrar
hátíðar í borginni.
Unglingarnir, sem hrópuðu
slagorð til stuðnings aðskilnaðar-
hreyfingu Baska, ETA, köstuðu
einnig gijóti að lögreglunni og
stóðu átökin fram í dagrenningu
í gær, að sögn lögreglu.
Árla gærmorguns sprungu tvær
sprengjur fyrir utan banka og sýn-
ingarsal franskra bíla í Baskahér-
aðinu Vizcaya. Miklar skemmdir
urðu á mannvirkjum en fólk sak-
aði ekki.
ETA hefur margoft staðið fyrir
sprengjuárásum á frönsk fyrirtæki
í Baskahéruðunum frá því að
Frakkar hófu að vísa útlægum
Böskum úr landi fyrir þremur
áram.
Kína;
Flugvél ferst
í flugtaki
Peking. Reuter.
FLUGVÉL af gerðinni An-
tonov-24 í eigu kínversku flug-
málastjórnarinnar fórst við
Hongqiao-flugvöllinn í Shang-
hæ skömmu eftir flugtak í gær.
Að sögn fréttastofúnnar Nýja
Kína var tala látinna á reiki en
í fyrstu fréttum af atburðinum
sagði að 33 af 40 manns um
borð í vélinni hefðu farist.
Seinna var tölu látinna breytt í
18 án frekari útskýringa.
Vestrænir kaupsýslumenn sem
sneru frá Shanghæ til Peking í
gærkvöldi sögðu að flak vélarinnar
sæist í um 200 metra fjarlægð frá
brautarendanum. „Flugumsjónar-
maður sagði einum félaga okkar
að vélin hefði ekki náð að lyfta sér
í flugtaki,“ sagði einn hinna vest-
rænu kaupsýslumanna.
í fréttum Nýja Kína var skýrt
frá því að vélin hefði farist um
klukkan hálffjögur í gær en hún
var á leið til'Nanchang í héraðinu
Jiangxi í Suður-Kína. Flugeftirlits-
menn sögðu að rannsókn væri
hafin á tildrögum slyssins.
Skotland;
Edinborgarhátíðin hafín
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímai
LISTAHÁTÍÐIN í Edinborg, hin
43. í röðinni, hófst síðastliðinn
laugardag. Mikill mannfjöldi
sækir hátiðina nú sem endranær.
Dagskrá hátíðarinnar er mjög
fjölbreytt. Stór hluti hennar er helg-
aður spænskri menningu. Leiksýn-
ingar, danssýningar og ýmislegt
annað frá Spáni má nú sjá í Edin-
yni, fréttaritara Morgunblaðsins.
borg. Þjóðaróperan í Stokkhólmi
færir óperu Richards Strauss,
Salóme, á fjalirnar með aðstoð
söngvara frá Edinborg og skosku
kammersveitinni. Þjóðaróperan
hefur nú um nokkurra ára skeið
sótt hátíðina og sýningar hennar
hafa jafnan vakið mikla athygli.
Einnig verður sett upp leikrit Os-
cars Wilde, Salome, sem óperan er
unnin upp úr.
Ballettinn Makbeð, eftir Johann
Kresnik frá Bremer-leikhúsinu, hef-
ur vakið mikla athygli, og sömuleið-
is ætluðu ítalskir leikarar að setja
upp samnefnt leikrit Shakespeare á
eyjunni Inchcolm á Forth-firði, en
ekkert verður af því að þessu sinni
vegna veikinda. Uppselt er á hljóm-
leika sinfóníunnar frá Birmingham
undir stjórn Símonar Rattles í Us-
her-salnum.
Jaðarhátíðin býður upp á mikla
ijölbreytini og nú þegar er búið að
banna þijár uppákomur í sirkusnum
Archaos; tvær, þar sem viðarsög
var í aðalhlutverki, og eina þar sem
hænur voru dáleiddar. Einn starfs-
maður sirkusins endaði í sjúkrahúsi
með brotinn hrygg.
Mjög vel hefur gengið að selja
miða að sýningum hátíðarinnar.
Talið er að selt hafi verið fyrir um
eina milljón punda eða um 95 millj-
ónir ísl.kr. áður en hátíðin hófst.
Það er álíka mikið og seldist á allri
hátíðinni í fyrra. Samt telja for-
svarsmenn hátíðarinnar þörf á
auknum opinberum framlögum til
að tryggja að gæði hennar haldist
óbreytt. Um hálf milljón manna
leggur leið sína til Edinborgar þær
þijár vikur sem hátíðin stendur yfir.
sú saga á kreiki, sönn eða login,
að skæraliðar dræpu alla fanga
sína.
„Stefnan er sú að veija borgirn-
ar og láta lítilvægari landsvæði
eiga sig. Skæruliðarnir verða að
koma með stríðið til okkar og við
forðumst ónauðsynlegt mannfall
og átök um land, sem litlu máli
skiptir,“ sagði einn foringja
stjórnarhersins.
Najibullah hefur einnig bætt
fyrir sér með því að hampa
íslamskri trú og reka harðan áróð-
ur fyrir þjóðarsátt, samningum,
sem leyfðu skæruliðum að halda
vopnunum og stjórna þeim svæð-
um, sem þeir ráða nú. Síðar yrði
mynduð samsteypustjórn og kosn-
ingar látnar skera úr um fram-
haldið.
Bandaríkjamenn og Pakistanar
hafa hingað til ekki viljað ljá
máls á, að Najibullah og flokkur
hans kæmu nærri nýrri stjórn í
Afganistan en allt kann það að
breytast. Najibullah vonast eftir
stuðningi Samtaka óháðra ríkja
og sambúðin við Irani hefur batn-
að. Þá hefur Benazir Bhutto Pa-
kistanforseti mikinn áhuga á
pólitískri lausn.
„SvO er að sjá sem Allah sé á
bandi Najibullah," sagði stjórnar-
erindreki frá Austur-Evrópu. „Zia
er látinn, guð kallaði til sín Kho-
meini og skæruliðar beijast hver
við annan.“
Kabúl. Reuter.
FYRIR sex mánuðum fór síðasti
sovéski hermaðurinn frá Afg-
anistan en sá, sem situr á for-
setastóli, heitir þó ennþá Naji-
bullah. Spáðu honum flestir
bráðu falli en reyndin hefiir
orðið önnur.
Það er ekki aðeins, að stjórnar-
herinn ráði mikilvægum borgum
og herstöðvum í landinu, heldur
hefur hann náð yfirhöndinni í
stríðinu við skæraliða. Banda-
ríkjamenn styðja enn þá síðar-
nefndu en vestrænir stjórnarer-
indrekar telja litlar líkur á, að
aðrir hvorir beri endanlegan sigur
af hólmi. í Kabúl hafa embættis-
menn stjórnarinnar látið huggast
og með hveijum mánuði, sem
líður, verður Najibullah öraggari
um sig. Erfiðleikarnir eru þó ærn-
ir.
Efnahagslífið gengur enn fyrir
gjafafé frá Moskvu og stjórnar-
flokkurinn, Lýðræðislegi alþýðu-
flokkurinn, er í litlum metum
meðal landsmanna. Sagt er, að
mikill óeining sé innan flokksins
en Najibullah hefur þó tekist að
halda henni í skefjum og æ fleiri
Afganar leggja eyrun við ákalli
hans um frið í landinu.
Skæruliðar geta sjálfum sér um
kennt hvernig komið er. Þegar
Sovétmennirnir fóru var einnig
úti friðurinn milli hreyfinganna
og nýlega gerðist það til dæmis,
að liðsmenn einnar drápu 30 menn
Najibullah forseti
fyrir annarri. Eldflaugaárásir
skæruliða hafa ekki heldur orðið
til að afla þeim vinsælda enda
verða óbreyttir borgarar oftast
fyrir barðinu á þeim. Frá 25. júní
sl. til 12. ágúst sprungu a.m.k.
445 eldflaugar í Kabúl með þeim
afleiðingum, að 335 manns fórast
og 900 slösuðust, undantekning-
alítið venjulegir borgarar.
Síðan Sovétmenn fóra hafa
mestu átökin milli skæruliða og
stjórnarhersins orðið um borgina
Jalalabad og kom þá í ljós hvað
þeir fyrrnefndu kunna lítið fyrir
sér í hefðbundnum hernaði. Þótt
sótt væri að borginni úr öllum
áttum létu stjórnarhermennirriir
engan bilbug á sér finna enda var