Morgunblaðið - 16.08.1989, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989
21
Evrópumót eigenda íslenskra hesta í Vilhelmsborg:
Keppendur óhressir með vellina
Hestar íslenska liðsins í góðu formi eftir ferðalagið frá íslandi
Vilhelmsborg. Frá Valdimar Kristinssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
HELDUR virðast keppendur á Evrópumótinu í Vilhelmsborg
óhressir með keppnisvellina, sem boðið er upp á. Þykja þeir lausir
í sér og þungir yfirferðar. Auk þess er næsta umhverfi við vell-
ina heldur óhrjálegl og gróðurlaust og mikil hætta á mold- eða
sandroki ef hvessir. Ekki tekur betra við ef rignir mikið, en þá
má búast við að svæðið verði eitt leðjusvað.
Sigurður Sæmundsson, liðsstjóri
íslenska liðsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að eitthvað hefði ver-
ið reynt að handdreifa salti úr litlum
fötum á vellina til að fá betri bind-
ingu í efnið. Sér sýndist að eitthvað
meira þyrfti til að koma en slík
vinnubrögð, ef takast ætti að laga
vellina þannig að skammlaust væri.
Hestar íslenska liðsins virðast í
góðu ásigkomulagi eftir ferðina frá
Islandi og hafa þeir vakið mikla
athygli þeirra, sem fylgst hafa með
æfingum.
í dag hefst dagskráin með kyn-
bótadómum og forkeppni í hlýðni,
en engin íslendinganna er skráður
í hana. Rétt fyrir kl. 16.00 að stað-
artíma verða farnir tveir af fjórum
sprettum í 250 metra skeiði og
verða þar á meðal keppenda Einar
Öder Magnússon á Fjalari, Hinrik
Bragason á Vafa, Atli Guðmunds-
son á Fjalari og Jón Pétur Ólafsson
á Glaumi.
Athygli vekur að Walter Feld-
mann er ekki í þýska liðinu að þessu
sinni og er það í fyrsta skipti sem
hann er ekki á meðal keppenda á
Evrópumóti frá því farið var að
halda þessi mót 1970.
Mikill fjöldi íslendinga streymir
nú á mótsstaðinn og í gær kom
stór hópur á vegum ferðaskrifstof-
unnar Úrval til að fylgjast með
keppninni. Búist er við að kringum
800 íslendingar muni vera hér á
meðan á mótirní stendur. Þá má til
gamans géta þess að enn halda
hross, fædd á Islandi, forystunni á
Evrópumótum hvað fjölda varðar,
en af þeim 87 hrossum, sem keppa
á mótinu nú, eru 53 fædd á íslandi
og 34 fædd í Evrópu.
Innköllun vegglampa:
Lamparnir
öðruvísi en
sýnishornin
VERSLUNIN Borgarljós í
Reykjavík hefur tvisvar auglýst
innköllun danskra veggljósa að
kröfu Rafinagnseftirlits ríkisins.
Sýnishorn framleiðandans hlaut
viðurkenningu eftirlitsins í vor
en við markaðskönnun kom í ljós
að lamparnir sem til sölu voru
í versluninni stóðust ekki örygg-
iskröfur.
Umræddir lampar hlutu synjun
Rafmagnseftirlits ríkisins er þeir
voru fyrst sendir inn til viðurkenn-
ingar á þeim forsendum að þeir
væru hvorki jarðtengdir og né tvö-
falt einangraðir. Síðan komu þeir
aftur í bættri útfærslu og hlutu
samþykki. Við markaðskönnun
Rafmagnseftirlitsins kom síðan í
ljós að til sölu voru lampar í gömlu
útfærslunni og að I götum á um-
gjörð lampanna, sem ætluð eru
fyrir aðtaugar lampans, voru engar
fóðringar og að i þessum götum
voru málmoddar og beittar brúnir
sem gátu skorið aðtaugina. Að
sögn Bergs Jónssonar rafmagn-
seftirlitsstjóra hjá Rafmagnseftir-
liti ríkisins þótti vegna þessa
ástæða til að innkalla lampana.
Haukur Þór Hauksson fram-
kvæmdastjóri Borgarljóss sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins að útfærsla á þeim lömp-
um sem verslunin fékk til sölu hefði
ekki verið sú sama og á sýnishorni
því sem framleiðandinn sendi til
viðurkenningar. Plata aftan á
lampanum hafði of skarpar brúnir
og kom það í ljós í markaðskönnun
Rafmagnseftirlitsins. Sölumenn
Borgarljóss hefðu ekki tekið eftir
þessu þar sem lamparnir væru yfir-
leitt ekki teknir úr umbúðum við
sölu.
Um 20 lampar hafa'verið seldir
og hefur þremur eða fjórum verið
skiiað inn eftir að auglýst hefur
verið tvisvar. Búðin á um 100
lampa sem verið er að ganga frá
til endursendingar til framleiðanda.
Haukur sagði að Borgarljós hefði
átt mjög gott samstarf við Raf-
magnseftirlit ríkisins í 10 ár og
væri þetta í fyrsta sinn sem mál
af þessu tagi kæmi upp.
Kór Flens-
borgarskólans
söngí
Húsavíkur-
kirkju
Húsavík.
KÓR Flensborgarskólans í Hafii-
arfirði, sem verið heftir á söng-
ferðalagi um Norðurlönd söng í
Húsavíkurkirkju laugardaginn
12. ágúst. Kórinn skipa 22 söng-
menn og konur og stjórnandi er
Margrét J. Pálmadóttir, sem
stjórnar vel æfðum kórnum af
miklum skörungsskap.
Einsöngvarar voru Aðalsteinn
Einarsson bassi og Þorsteinn M.
Kristinsson tenór.
Söngskráin var mikil og fjöl-
breytt. Alls sungu þau yfir 26 lög.
Áheyrendur tóku kórnum mjög vel
og þökkuðu honum komuna og
vonuðust til að fá að heyra í honum
sem fyrst aftur.
- Fréttaritari
Hvolsvöllur:
Myndlistarsýn-
ing á Hlíðar-
enda
NÚ STENDUR yfir sýning á
vatnslitamyndum í Hlíðarenda á
Hvolsvelli. Sýnendur eru systk-
inin Kallman og Guðrún deFont-
enay ásamt Birgi Jóakimssyni.
Öll eru þau ung að árum og
hafa numið við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands. Á sýningunni eru
29 verk og stendur sýningin til
mánaðamóta ágúst/september.
Birgir Jóakimsson og systkinin
Kallman og Guðrún deFont-
enay.
Bindindismótið í
Galtalækj arskógi:
Happdrættis-
vinning-ar
dregnir út
Dregið hefúr verið í happdrætti
barna og unglinga sem efnt var
til í tengslum við Bindindismótið
í Galtalæk um verslunarmanna-
helgina. Aðgöngumiðar barna
og unglinga giltu sem happ-
drættismiðar. Vinningar komu á
eftirtalin númer, sem hér verða
birt án ábyrgðar:
1. vinningur - Hitachi útvarps-
og segulbandstæki, kom á miða
númer 3566.
2.-3. vinningar - Hjólabretti, komu
á miða númer 3868 og 1493.
4.-10. vinningar - Þtjár bækur frá
Bókaútgafu Æskunnar, komu á
miða númer 1332, 966, 3339,
2182, 3429, 2148 og 3916. Vinn-
inga skal vitja að Eiríksgötu 5 í
Reykjavík, 3. hæð.
Barnablaðið Æskan og Bindind-
ismótið efntu til spurningaleiks fyr-
ir böm á mótinu. Tuttugu verðlaun
voru veitt fyrir rétt svör, þijár
bækur að eigin vali frá Æskunni.
Bækurnar hafa verið sendar verð-
launahöfum og verða nöfn vinn-
ingshafa birt í 7. tölublaði Æsk-
unnar 1989 sem út kemur í næsta
mánuði.
Galtalækjarkeppnin, söngvara-
keppni barna og unglinga, hefur
farið fram í Galtalækjarskógi frá
árinu 1985 og tóku nú 28 einstakl-
ingar og hópar þátt í henni. Keppt
var í þremur flokkum. Siguryegari
í elsta flokknum var Gunnar Ólafs-
son, 13 ára. Með honum komu fram
þeir Einar Björnsson gítarleikari
og Þorsteinn Aðalbjörnsson
trommuleikari, báðir 15 ára. í öðru
sæti í flokki 13-18 ára varð söng-
hópurinn Búmbó og steinarnir, en
hann skipuðu fimm piltar á aldrin-
um 16-18 ára. í flokki 9-12 ára
sigraði Sigurlaug Jóhannsdóttir,
10 ára. Henni næstar komu Ellen
Dröfn og ína Björk. í flokki yngstu
þátttakendanna bar Svava Hrönn
Gunnlaugsdóttir, 8 ára, sigur úr
býtum og fast á eftir fylgdi Gunn-
ar Þór Einarsson, 4 ára.
Samráðsfund-
ur norrænna
siglingamála-
sljóra
Samráðsfúndur norrænna
siglingamálastjóra hefst á Hótel
Loftleiðum í dag, 16. ágúst.
Samráðsfundir sem þessi eru
haldnir árlega og á dagskránni að
þessu sinni er m.a. að samræma
afstöðu Norðuriandanna í siglinga-
málum gagnvart Evrópubandalag-
inu og Alþjóðasiglingamálastofn-
uninni.
Önnur mál sem verða á dagskrá
fundarins varða m.a. norrænar
reglur og staðla um báta og skip,
mengun hafsins, öryggi sjómanna
og skráningu slysa.
Árnessýsla:
Númer klippt
af óskoðuðum
bift*eiðum
Selfossi.
LÖGREGLAN í Árnessýslu er
byijuð að ýta á bifreiðaeigendur
með að færa bíla sína til skoðun-
ar. Að sögn lögreglumanna er
mikið um óskoðaðar bifreiðar í
umdæminu. v
Næstu daga mega þeir bifreiða-
eigendur sem eru með tölurnar 1-4
aftast í bílnúmerinu búast við því
að númerin verði klippt af bífreið-
unum verði þær ekki færðar til
skoðunar. Þeir sem eru með töluna
5 aftast í númerinu hafa frest út
þannan mánuð til að fara með bif-
reiðina í lögbundna skoðun.
— Sig. Jóns.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 15. ágúst
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 57,50 43,00 54,56 61,254 3.342.297
Ýsa 35,00 35,00 35,00 0,016 574
Karfi 35,50 25,00 33,22 52,383 1.739.940
Ufsi 29,00 29,00 29,00 0,035 1.011
Steinbítur 58,00 54,00 55,85 0,321 17.911
Langa 23,00 23,00 23,00 0,372 8.551
Lúða 225,00 215,00 220,22 0,217 47.809
Grálúða 20,00 20,00 20,00 0,020 398
Koli 25,00 25,00 25,00 0,071 1.767 "
Skötuselur 120,00 113,00 117,12 0,126 14.716
Samtals 45,07 114,828 5.175.704
I dag verða m.a. seld 40 tonn af þorski, 5 tonn af ýsu, 10 tonn
af karfa, 20 tonn af ufsa, 2,2 tonn af steinbít og óákveðið magn
af lúðu úr Otri HF, Sturlaugi H. Böðvarssyni AK og bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 70,00 49,00 68,40 0,528 36.113
Þorskur(smár) 23,00 23,00 23,00 0,080 37.953
Ýsa 86,00 49,00 70,36 4,097 288.248
Karfi 30,50 24,00 27,68 1,914 52.989
Ufsi 34,00 25,00 33,06 38,604 1.276.305
Hlýri+steinb. 50,00 50,00 50,00 1,215 60.750
Langa 35,00 35,00 35,00 1,857 64.995
Lúða(smá) 205,00 125,00 201,86 0,051 10.295
Skarkoli 38,00 32,00 36,24 0,381 13.806
Skötuselsh. 330,00 330,00 330,00 0,036 11.880
Samtals 37,27 48,763 1.817.221
Selt var meðal annars úr Ásgeiri RE. I dag verða meðal annars
seld 60 tonn af þorski, 6 tonn af ýsu, 30 tonn af karfa og 15
tonn af ufsa úr Engey RE og fleirum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 66,00 32,00 57,14 3,887 222.086
Ýsa 71,00 55,00 62,35 3,444 214.716
Karfi 31,50 15,00 30,97 12,659 392.099
Ufsi 33,50 21,00 29,50 13,233 390.417
Steinbítur 51,50 30,00 49,28 1,589 78.310
Langa 28,50 15,00 26,57 0,858 22.800
Lúða 260,00 135,00 202,02 0,292 58.990
Blálanga 31,50 31,50 31,50 1,034 32.571
Keila 10,00 7,00 7,40 0,945 6.995
Lax 180,00 180,00 180,00 0,060 10.800
Humar 1.300 600,00 964,00 0,500 482.000
Samtals 49,03 39,663 1.945.057
Selt var meða annars úr Gnúpi GK, Geirfugli GK, Sigrúnu GK
og Bjarna KE. I dag verður selt óákveðið magn úr bátum.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
HALLFRÍÐUR DAGMAR SÖLVADÓTTIR
frá Bíldudal,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu, fimmtudaginn 17. ágúst
kl. 13.30.
Þórarinn A. Magnússon, Matthildur Guðmundsdóttir,
Rúna Magnúsd. Schröder, Werner Schröder.
t
Móðir mín og tengdamóðir,
ANNA MARTA GUÐNADÓTTIR
frá Karlsskála,
Hagamel 45,
Reykjavík,
lést í Landakotsspítala aðfaranótt 14. ágúst. Fyrir hönd barna
okkar, tengdabarna og barnabarna,
Birna Gunnhildur Friðriksdóttir,
Egill Jónsson.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BENEDIKT KRISTJÁNSSON,
Vallargerði 16,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 17. ágúst
kl. 13.30.
Ólöf Ragnheiður Jónsdóttir,
Eðvarð Benediktsson, Auður Harðardóttir,
Árný Benediktsdóttir, Örn Gústafsson,
Guðmundur Benediktsson, Jenný Ásmundsdóttir,
Sigrún Benediktsdóttir, Ingólfur Friðjónsson,
Kristjón Benediktsson, Nanna Snorradóttir,
Jóhann R. Benediktsson, Sirrý Guðmundsdóttir
og barnabörn.
t
ELÍAS GUÐMUNDSSON
skipstjóri,
Heiðargerði 9,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 17. ágúst nk.
kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysa-
varnafélag (slands.
Sigríður V.
EinarTjörvi Eliasson,
Gunnar H. Eliasson,
Hreinn Elíasson,
ÓlafurT. Elíasson,
Edda Elíasdóttir,
Iðunn Eliasdóttir,
Guðrún Elíasdóttir,
Sigriður Elíasdóttir,
Einarsdóttir,
Inger J. Eliasson,
Guðjónfna Sigurðardóttir,
Rut Sigurmonsdóttir,
Ólöf Sigurðardóttir,
Wiily Blumenstein,
Jón Leósson,
Guðmundur Magnússon,
Eiríkur Valdimarsson.