Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 23
-jáS&£SfiEÍEáÐ-:MIMW I w8AS MfjU&lffllMI .öM
um bókmenntir, ekki að sjá að Guð-
mundur hefði þungar áhyggjur af
því að íslenskri menningu stafaði
hætta frá mér eða félögum mínum.
Hann var einkar ljúfur, glettinn og
skemmtilegur. Og það var líflegur
glampi í augum hans.
Hann sagði mér margt, og ég
hlustaði með athygli. Uti dunaði
strætið, mikið umferðarstræti, en
við heyrðum það e'kki. Hann sagði
mér frá því, þegar hann var ungur
maður í Reykjavík og var í slagtogi
við ung skáld, Sigurð Grímsson, Jón
Thoroddsen yngra, Magnús Ásgeirs-
son og fleiri. Og hann sagði mér frá
kynnum sínum af Steindóri Steind-
órssyni sem er gleymdur höfundur,
en orti, drakk og skrifaði á sinni
tíð, meðal annars merka minninga-
bók, þar sem segir frá bóhem- og
kommúnulífi. Guðmundur Frímann
sagði mér frá öilu á lifandi hátt, en
lágværri röddu og með kyrrlátu fasi.
Það gerist stundum í lífi okkar, að
við lifum eina dagstund sem er hlað-
in sögum, og sú stund verður ekki
endursögð né heldur endurtekin svo
vel sé. Þannig var þessi stund. En
minnistæðast er mér, þegar talið
barst að fyrstu bók Davíðs Stefáns-
sonar, Svörtum íjöðrum. Hann sagði
mér frá því, þegar hann ungur að
aldri sat með nýja ljóðabók í rökk-
vaðri baðstofu norður í Langadal í
Húnavatnssýslu, nýja bók eftir nýtt
skáld, og það var skammdegismyrk-
ur yfir dalnum og hríðarveður, en
samt fannst unga manninum, að það
væri sólskin úti. Var það nokkur
furða, þó Guðmundur yrði fyrir
sterkum áhrifum frá þessu skáldi,
þegar hann hóf sjálfur skáldferil
sinn? Og þó fór hann aðrar leiðir í
nýrómantískum anda, þegar hann
gaf út bók sína Náttsólir, orti til
dæmis prósaljóð nokkur einsog kom
fyrir nokkra höfunda í nýrómantík-
inni, án þess þeir teldust verulega
hættulegir. Hræddur er ég um að
Guðmundur hafi seinna meir van-
metið þennan þátt sinn í ljóðagerð-
inni, enda trúlega fáir í kringum
hann sem kunnu að meta slíkt. Guð-
mundur hlaut, einsog fleiri höfundar
norðanlands, að feta slóð rímsins
undir ægishjálmi Davíðs Stefánsson-
ar sem hafði svo mikil áhrif með
fyrstu bókum sínum einsog dæmið
að framan sýnir. En Guðmundur
náði líka fögrum tóni í Ijóð sín, og
auk þess lagði hann fyrir sig ljóða-
þýðingar og sagnagerð. Ljóð hans
eru einkennilega oft haustleg og
tregablandin, einsog hann hafi upp
á lífstíð verið mótaður af löngum
og dimmum vetrarkvöldum í
Langadal, þar sem birtu vorsins var
beðið með óþreyju.
Guðmundur Frímann var ekki
aðeins skáld, heldur var hann mjög
hagur teiknari og listabókbindari,
enda hafði hann framfærslu sína af
því að kenna bókband um fjölda
ára. Vel mætti hugsa sér að hann
hefði orðið myndlistarmaður, ef ör-
lögin hefðu verið honum hliðholl í
þeim efnum. Og vissulega var hann
það að hluta. Hann bjó til fagurlega
skreyttar bækur handa vinum
sínum. Og svo var hann safnari að
gamni sínu. Hann safnaði bókmerkj-
um (Ex libris) frá ýmsum löndum.
Það var eitt af því sem hann sýndi
mér þessa dagstund sem ég sat með
honum og hann sagði mér sögur.
Bókmerkin voru augnayndi.
Síðustu árin var heilsu hans mjög
tekið að hraka, en samt þótti mér
hann alltaf geta brugðið fyrir sig
spaugi, þegar ég hitti hann á förnum
vegi. Seinast var það í sumar, að
ég heimsótti hann á dvalarheimilið
Hlíð, þar sem hann bjó í íbúð fyrir
aldraða. Við töluðum saman góða
stund og hann var mun hressari en
ég bjóst við, — sýndi mér að vísu
hvernig hendur hans titruðu af Park-
insonsveiki sem varnaði honum að
skrifa — en enn var glampinn í aug-
um hans.
Jón Óskar
Ingveldur Astgeirs-
dóttir Brúnastöðum
Fædd 15. mars 1920
Ðáin6. ágúst 1989
Þá ég hníg í djúpið dimma,
Drottinn ráð þú hvernig fer.
Þótt mér hverfi heimsins gæði,
hverfi allt sem kærst mér er
Æðri heimur, himnafaðir
hinumegin fagnar mér.
(M. Joch.)
Hinn 6. ágúst síðastliðinn varð
amma mín bráðkvödd á heimili
Hrafnhildar dóttur sinnar á Stöðul-
felli, 69 ára að áldri.
Foreldrar hennar voru hjónin
Ástgeir Gíslason frá Bitru í Hraun-
gerðishreppi og Arndís Þorsteins-
dóttir frá Berustöðum í Holtum.
Þau eignuðust sjö börn, sex dætur
og einn son. Amma var næstelst
og þeirra fyrst til að falla frá.
Hún ólst upp á Syðri-Hömrum á
heimili foreldra sinna. Hún vann
að mestu heima þar til um vorið
1940, er hún réð sig í vist að Brúna-
stöðum í Hraungerðishreppi. Þar
kynntist hún Ágústi Þorvaldssyni
og tókust með þeim ástir. Þann 12.
maí 1942 gengu þau síðan í hjóna-
band.
Afi var glæsimenni í útliti og
myndarlegur í allri framkomu.
Hann var gæddur góðum gáfum
og var ákaflega hlýr í viðmóti.
Á Brúnastöðum byggðu þau upp
myndarlegt heimili og áttu miklu
barnaláni að fagna, en þau eignuð-
ust 16 börn sem öll eru á lífi. Skulu
þau nú talin í aldursröð:
Ásdís, gift Guðjóni Axelssyni,
búsett á Selfossi; Þorvaldur, kvænt-
ur Guðrúnu Guðfinnsdóttur, búsett-
ur á Stokkseyri; Ketill Guðlaugur,
kvæntur Þórunni Pétursdóttur, bú-
settur á Brúnastöðum í Hraungerð-
ishreppi; Gísli búsettur á Selfossi;
Geir, kvæntur Margréti Stefáns-
dóttur, búsettur á Gerðum í Gaul-
vetjabæjarhreppi; Hjálmar, kvænt-
ur Ingibjörgu Einarsdóttur, búsett-
ur á Langstöðum í Hraungerðis-
hrepþi; Guðni, kvæntur Margréti
Hauksdóttur, búsettur á Selfossi;
Auður, gift Jens Jóhannssyni, bú-
sett á Teigi í Fljótshlíð; Valdimar
búsettur á Stóra-Ármóti í Hraun-
gerðishreppi; Bragi, sambýliskona
Guðríður Einarsdóttir, búsettur á
Brúnastöðum í Hraungerðishreppi;
Guðrún, sambýlismaður Guðjón
Skúli Gíslason, búsett á Selfossi;
Tryggvi, kvæntur Helgu Árnýju
Baldursdóttur, búsettur á Selfossi;
Þorsteinn, kvæntur Margréti Jóns-
dóttur, búsettur á Syðra-Velli í
Gaulveijabæjarhreppi; Hrafnhildur,
gift Oddi Bjarnasyni, búsett á Stöð-
ulfelli í Gnúpveijahreppi; Sverrir,
kvæntur Helgu Sigríði Sveinsdótt-
ur, búsettur á Stóra-Ármóti í
Hraungerðishreppi; Jóhann, sam-
býliskona Olga Sveinbjörnsdóttir,
búsettur á Selfossi.
Afkomendur afa og ömmu eru í
dag 55, 38 barnabörn og 1 barna-
barnabarn.
Afi andaðist hinn 12. nóvember
1986 eftir stutta sjúkrahúslegu og
varð það ömmu mikill missir. Um
mitt sumar 1987 fluttist amma á
Selfoss, að Skólavöllum 12. Bjó hún
þar þangað til yfir lauk.
Amma var falleg kona, látlaus í
framkomu, seintekin, en trygg þeim
sem hún batt vináttubönd við. Hún
var afburðadugleg og vann verk sín
af miklum myndarskap. Margar
fallegar flíkur saumaði hún á barna-
hópinn sinn og gætti þess ávallt að
öll væru þau snyrtileg til fara.
Hún bjó manni sínum og börnum
traust og gott heimili, þar sem gott
var að koma og njóta rausnar
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
þeirra, vinsemdar og hlýju.
Ættfræði var eitt hennar helsta
áhugamál. Las hún allar þær bækur
er hún komst í spjaldanna á milli
og var fróðleikur hennar því orðinn
mikill. Oft var til hennar leitað, því
minni hennar var með eindæmum
gott.
A hinum síðari árum ferðaðist
hún mikið bæði innanlands og utan.
Hafði hún af þeim ferðum mikla
ánægju.
Við sem eftir lifum minnumst
ömmu með þökk og virðingu, og
ekki hefði mig órað fyrir hversu
stutt varð á milli þeirra afa og
ömmu.
Háa skilur hnetti
himingeimur
blað skilur bakka og egg.
En anda sem unnast
fær aldregi
eilífð að skilið.
(Jónas Hallgr.)
Amma mín var kvödd frá Hraun-
gerði hinn 11. þessa mánaðar að
viðstöddu miklu fjölmenni. Með
þessum fátæklegu orðum vil ég
þakka ömmu það sem hún var mér
og okkur systkinunum og votta ég
börnum hennar og öðrum vanda-
mönnum mína dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Ingveldar á
Brúnastöðum.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
GOÐ ATVINNA
Til sölu er rnjög skennmtilegur veitingastaður (take-
away) með góðri veltu. Öll tæki ný og innréttingar
mjög nýtískulegar.
Eigin innflutningur á hráefni, sem býður einnig upp á
heildsölu til verslana, stórmarkaða og annarra veit-
ingastaða. Verð 3,5-3,7 millj.
Má greiðast með fasteignatryggðum bréfum.
Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaðsins merkt:
„Fyrirtæki - 6510“.
NYBYLAVEGI24
HEILSU nh LINDIN
SÍMI46460
Nudd og svœbamebferb
Ath. Viðurkenndir nuddarar.
Komi fólk með tilvísun frá lækni, fellur niður 25%
söluskatturaf verði nudds.
Einnig nuddað á laugardögum.
UTSALA - UTSALA
hefst á morgun
Veitum fúslega upplýsíngar og ráðgjöf
BSJEIMSÖN W
| STEINSMIÐJA
■ :SKEMMUVB3! 48 SÍMI ?60?7
Vinnupallar - Sölutilboð
Gefum 15% afslátt á takmörkuðu magni
af vinnupöllum á meðan
birgðir endast.
*
Innivinnupallar
Veggjapallar
Álhjólapallar
Pallar hf.
Dalvegi 16, Fífuhvammi, Kópavogi,
símar 641020 og 42322.