Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 16
161: C MORGUNBLAÐIÐ rispur SUNNUDAGUR 20. ÁGUST 1989 „Súperstelpur" sjá um að lokka vegfarendur inná samnefndan skemmtistað. Arabar þykja yíírleitt ruddalegir viðskiptavinir og eru þessvegna ekki aufúsugestir hjá thailenskum gleðikonum, eins og ráða má af orðsendingunni sem hékk uppi á einum Patpong barnum en þar segir: Enga Araba hér. Við viljum ekki fjölþreifna arabíska drykkjumenn. Við virðum íslamska trú ykkar. Takk fyrir. GATA GLEDI - 0G SORGAR Myndir og texti/Sverrir Vilhelmsson Komstu með konu? Keyptirðu konu? spytja menn þegar þeir frétta að maður er að koma frá Thailandi. Kannski eru þessar spurningar ekki alveg fráleitar því Bangkok, höfuð- borg Thailands, hefur fengið á sig það orð að vera kynlífshöfuðborg Austurlanda. í Bangkok starfa um 250.000 vændiskonur (svipað hlutfall væri 5.000 vændiskonur í Reykjavík) á um 1500 stöðum víðsvegar um borgina. Patpong, er án efa þekkt- asta gata í Austurlöndum, en þessi 200 metra gata í viðskiptahverfi Bangkok er miðpunktur gleðiiðnað- arins sem talið er að meira en 60% karlkyns ferðamanna sem koma til landsins séu í leit að. Fyrir 20 árum var Patpong Iík hverri annarri verslunargötu í Bangkok. Þá var miðstöð næturlífs- ins á New Petchburi Road langt frá miðborginni þar sem thailensk og bandarísk yfirvöld höfðu reist fjölda hótela, nuddstofur, bari og veitinga- staði til að þjóna þeim þúsundum bandarískra hermanna sem komu frá Víetnam í viku leyfi sem her- málayfirvöld kölluðu hvíldar- og hressingarleyfi(Rest and Recreati- on, R&R), en hermennirnir kölluðu sukk og samfarir (Intoxication and Intercourse, I&I). Bandarísku her- mennrnir sáu aldrei Patpong; þeir voru fluttir beint af flugvellinum til New Petchburi-svæðisins, þar sem þeim var skilað inn á hótel með loftkælingu og sundlaug og leyft að sinna áhugamálum sínum. Þar sem áhugamálin voru konur og singha-bjór, sem nóg var af á þessu svæði, höfðu þeir litla hug- mynd um það sem gerðist annars staðar í Bangkok, en um það leyti var Patpong að vakna til lífsins. Maðurinn sem innleiddi „Go Go“- dans í Bangkok var Richard Men- ard, 26 ára fyrrverandi hermaður sem barist hafði í Víetnam. Hann opnaði bar í Patpong sem hann kallaði Grand Prix Bar og til að lífga upp á viðskiptin fékk hann stúlkur til að dansa fáklæddar á barnum. Lögreglan gerði athuga- semdir við að Menard hafði ekki skemmtanaleyfi og mætti því ekki hafa dansstúlkur á staðnum, en Menard svaraði að bragði: „Stúlk- urnar eru að dansa á eigin vegum og ég get ekki bannað gestum mínum að dansa.“ Yfir þetta náðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.