Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.08.1989, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGUST 1989 lega. Við ráðum auðvitað ekki við það, þegar hinum og þessum er úthlutað grálúðu sem höfðu litla og enga veitt og nú eru allt í einu komnir undir kvóta í grálúðu og þá verða þeir sem eru á sóknar- marki að keyra á fullt á grálúðuna. Við höfum haldið áfram í grálúð- unni á Guðbjörginni, erum búnir að breyta talsverðu af þorski yfir í grálúðu. Það er hagkvæmast fyrir okkur, frekar en að vera að sigla á fjórða sólarhring fram og til baka til að ná í einhvern þorsk fyrir aust- an land. Þá vil ég nú heldur sigla tíu tíma hérna út að ná í lúðu, hvora leið.“ Þarna vitnar Ásgeir til þess er skip Vestfirðinga og Austfirðinga mættust úti fyrir Norðurlandi. Austfirðingar á vesturleið til að nýta grálúðukvótann sem þeir höfðu fengið úthlutað og Vestfirð- ingar, búnir með sinn grálúðukvóta, fóru að sækja þorskinn austurfyrir. Ásgeir er reyndar frumkvöðull í grálúðuveiðum, kunnugir segja hann hafa skapað arðbærar veiðar á þessum flatfiski. Grálúðan er erf- ið að ná henni, er djúpt og erfiður botninn. Menn voru að hengilrífa og gekk erfiðlega. Þá kom til sög- unnar tæki, sem gjörbreytti öllum Morgunblaðið/Úlfar aðstæðum, svokallaður höfuðlínu- mælir. Ásgeir var meðal hinna fyrstu til að reyna þetta undratæki með árangri. Með því var hægt að hafa betri stjórn á trollinu en áður, stjórna meðal annars fjarlægð þess frá botni. Sumir segja að nú sé hægt að stilla trollið eins og hefil í trésmíðavél, upp á millimetra. Það eru kannski ýkjur, en að minnsta kosti varð þetta til þess að arðbært varð að veiða grálúðuna. Getum veitt 7 þúsund tonn Hvað heldurðu að þið gætuð dregið á land á Guðbjörginni, miðað við aflabrögð eins og þau eru núna? „Við erum í engum vandræðum að draga á land sjö þúsund tonn, það er ekkert mál. Ef maður fengi að veiða.“ En hafið þið tryggingu fyrir því að þið hafið þennan kvóta sem þið hafið keypt til frambúðar? „Það er sagt svo í dag, en maður hefur ekki tryggingu fyrir einu eða neinu því að ég held það sé fyrir neðan hveija grein í þessum lögum að ráðherra hefur heimild til að gera hvað sem er. Okkur er sagt í dag að þetta sé hagkvæmast. Ég hef alltaf verið andvígur þessum kvóta, alla daga og alla tíð og verð það sjálfsagt alltaf, þó að ég sé búinn að kaupa þessi ósköp af kvóta o g búinn að skrifa á skipið um fimm þúsund lestir í dag, langt umfram alla aðra. Ég hafði alltaf hugsað mér að þetta væri langbest eins og þetta var áður og fyrr, að gefa bara veiðidagá. Þá getur enginn rifist við einn eða neinn nema sjálf- an sig, þú skalt fara bara á sjó og ná í þinn fisk á ákveðnum veiðidög- um og þá getur þú bara rifist við sjálfan þig og engan annan.“ Skipstjóranum er mikið niðri fyr- ir, hann á því að venjast að standa og falla með eigin verðleikum, en nú er eins og þeir skipti ekki leng- ur máli. Þetta er allt ákveðið í ráðu- neytinu fyrir sunnan. Það er kannski þess vegna sem sjást fágæt merki þess, að hann bregði skapi. Ásgeir Guðbjartsson er þekktur fyrir jafnaðargeð, að sögn manna sem til hans þeklqa. Jafnvel þegar trollið kemur í vöndli upp á dekk, er enginn æsingur. Undir niðri er dugnaður og kröfuharka. Menn vita af því og þarf ekki bægslagang til að sýna það. Ásgeir er sagður beita sjálfan sig mestri kröfuhörku. Þeg- ar leggja þarf skipinu fyrir í að- gerð, þá er hann óðara kominn í gallann og á dekk með körlunum. Ekki aðeins núna á Guðbjörginni, þetta hefur verið svona alla tíð. Þegar trollið er rifið er hann strax kominn með nálina á loft. Þá á hann það til að senda mannskapinn heim þegar verið er að landa í gáma og klára þetta lítilræði bara sjálfur. Liggur við borgarastríði Árangurinn næst með dugnaði og nú þykir skipstjóranum að hend- ur sínar séu bundnar og er þykkju- þungur: „Nú liggur bara við borg- arastríði, það er ekkert sem vantar nema vopnin. Ég veit eiginlega ekki hvað þeir hugsa þessir menn. Það mætti halda að þeir telji að við lifum bara á Seðlabankanum og bílainn- flutningi og slíku. Ég veit ekki hvað á að gera hér á þessum stöðum þegar er búið að loka frystihúsunum og binda togarana. Þeir eru ekki búnir að bíta úr nálinni með það sjálfír ennþá. Þó nú sé reynt að fara gætilega í veiðarnar, svona eins og hægt er, en við verðum að hugsa um okkar útgerð og ekki höfum við áhuga á að skríða undir láppirnar á þeim fyrir sunnan og biðja þá um peninga. Við viljum gera út á meðan hagkvæmt er að ná í fiskinn." Þorskur í baðkari Er nóg af þorski í sjónum? „Það er náttúrulega ekki hægt að segja, satt að segja, að það geti verið nóg fyrir allan þennan flota, það getur samt verið. En, frá því að ég man eftir og fór fyrst að gera út hafa alltaf verið tekin um 400 þúsund tonn af þorskinum öll þessi ár, ég hef ekki séð að þetta hafi nokkum hlut skánað, þó að fiskifræðingarnir væru að tilkynna okkur að það væri enginn fiskur. Ég verð að segja það sem skip- stjóri að það hefði ekkert þýtt að losa bönd á skipunum síðustu tíu árin ef ætti að taka þetta alvarlega sem fiskifræðingarnir em að segja. Þeir klifa á því sýknt og heilagt að það sé enginn fiskur. En, það er með þennan fisk, að hann er svo hreyfanlegur, mér finnst að þeir tali alltaf þessir fiskifræðingar eins og þorSkurinn sé í baðkari. Straum- arnir em skarpir og nú flæðir kald- ur sjór yfir. Þess vegna er enginn | fiskur út af Vestfjörðum og við verðum að sækja hann suður fyrir, aðallega austur fyrir, en en venjan er að þetta kemur allt saman í júní, júlí þegar sjórinn hlýnar aftur, þá gengur fiskurinn hér. Hann gerir það.“ iSl T2UOA m SVlVAdW/mJE (JK Odæðisverk Stalins: Sönnunar- gögnin liggja ekki á lausu Moskvu. Reuter. í nýlegri skýrslu miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins eru sovéskir valdamenn og yfirmenn leyniþjónustunnar KGB sakaðir um að hafa hindrað tilraunir fólks til þess að afla upplýsinga um fóm- arlömb hreinsana Jósefe Stalíns, sem mörg hver liggja enn í ómerktum fjöldagröfum. Skýrslan var birt í Prövdu, mál- gagni kommúnistaflokksins, og í henni kemur einnig fram að lík 160 manna hafi fundist í fjöldagröf ná- lægt Donetsk í Úkraínu í vor. Marg- ir þessara manna voru námaverka- menn sem teknir voru af lífi á ijórða áratugnum. Alls voru um 40.000 manns líflátin á svæðinu í hreinsun- um Stalíns á þessum tíma, að sögn Prövdu. Fyrrum starfsmaður KGB hefur einnig upplýst í sjónvarpsviðtali að leiðslur hafi verið lagðar til að flytja blóð fórnarlamba Stalíns úr fangelsi í Leníngrad í Neva-fljót. Hann sagði að blóð hefði stundum borist niður í Vetrarhöllina, sem var áður aðsetur Rússakeisara. í skýrslu miðstjórnarinnar segir að valdamenn hafi hafnað beiðni fólks um upplýsingar varðandi ætt- ingja sem hurfu á valdatíma Stalíns. Yfirmenn KGB hafi einnig reynt að hindra rannsókn á fjöldagröfunum í Donetsk með því að halda skjölum leyndum. Borgaryfirvöld hafi einnig reynst dragbítar á rannsóknina. Pravda hefur eftir sérfræðingi að sjá hafi mátt á líkunum að þau hafi komið úr þrælkunarbúðym eða fang- elsum. Ennfremur fundust hlutir í fjöldagröfunum, svo sem einkennis- merki námamanna frá árinu 1934, sem benda til þess að fórnarlömbin hafi starfað í einhveijum af þeim fjölmörgu kolanámum sem voru á svæðinu. TEYGJUR og ÞREK Það er staðreynd að alvöru líkamsþjálfun, sem skilar A fögrum vexti, verður aldrei létt. " En við hjá Dansstúdíói Sóleyjar getum hins- vegar lofað því að hjá okkur verður hún skemmtileg og hressandi. Ný námskeið að hefjast 21. ágúst. Innritun í símum 687701 og 687801. Engjateigur 1 • 105 Reykjavik ^ © T 687701 687801 Erum byrjuð að taka niður pantanir í veggtennis >í r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.