Morgunblaðið - 17.09.1989, Síða 4

Morgunblaðið - 17.09.1989, Síða 4
4 FRBTTIR/YFIRLIT MORGUNBLÁÐIÐ SUNNUDAGUR Í7. SEPTEMBER 1989 ERLENT INNLENT Sprengjur í miðbæ Reykjavíkur Tvær öflugar sprengjur voru sprengdar í mið- bæ Reykjavíkur rétt fyrir mið- nætti miðviku- dags. 40 rúður brotnuðu í hús- um við Berg- þórugötu, átta rúður brotnuðu við Óldugötu. Engan mann sakaði. Ekki hefur tekist að upplýsa hverjir voru að verki. Að sögn sprengjusérfræðings var sprengt dínamít og hefðu vegfarendur verið í lífshættu í fimm til sex metra fjarlægð frá sprengjunum. Deilt um bankakaup Bankaráð Landsbanka íslands ákvað á sunnudag að kaupa 52% hlut SÍS í Samvinnubankanum á 828 milljónir króna og bjóða öðr- um hluthöfum sambærileg kjör. Bankaráðið klofnaði í afstöðu sinni og greiddu tveir fulltrúar atkvæði gegn kaupunum, Lúðvík Jósepsson og Eyjólfur K. Sigur- jónsson. Lúðvík gagnrýndi ákvörðun bankaráðs harðlega og sagði meðal annars verðið vera allt of hátt og Sambandið skulda óeðlilega háar upphæðir, bæði í Landsbankanum og hjá erlendum lánadrottnum. Hann upplýsti að Citibank hefði sagt upp 300 millj- óna króna láni við SÍS, en Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambands- ins segir upphæðina vera 185 milljónir króna og að ekkert sé athugavert við uppsögnina, hún teljist til eðlilegra viðskiptahátta vegna breytinga á lánastarfsemi Citibank. Ummæli Lúðvíks um. skuldir Sambandsins og stöðu Samvinnubankans vöktu hörð við- brögð og hefur verið óskað eftir að bankaeftirlit Seðlabankans kannaði hvort hann hafi brotið lög um trúnað. Viðskiptaráðherra mun ræða við bankastjórn Lands- bankans áður en hann tekur af- stöðu í málinu, en til að kaupin geti orðið þarf samþykki hans. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins hefur krafist þess að viðskiptaráðherra upplýsi Alþingi um alla þætti málsins. Sigurey aftur í Hafnarijörð? Veðhafar í Sigurey BA ákváðu að taka tilboði Stálskipa hf í Hafn- arfirði um 257,5 milljónir króna fyrir togarann. Stálskip hf buðu að framselja tilboð sitt til heima- manna, en þeir höfnuðu því og leita eftir að kaupa önnur skip. Kvóti á sérfræðinga Heilbrigðisráðherra hefur kynnt í ríkisstjóminni hugmyndir um spamað í heilbrigðiskerfinu. Þær fela meðal annars í sér að sérfræðingum verði bannað að vinna jafnt fullt starf á sjúkrahús- um og reka eigin stofu. Einnig að á fjárlögum verði veitt heimild til að kaupa ákveðna sérfræði- þjónustu utan sjúkrahúsanna, í stað þess að allir reikningar sér- fræðinga verði sjálfkrafa greiddir. Mjólk hellt niður? Mjólkurfræðingar hafa boðað verkfall frá og með þriðjudegi. Komi til þess þarf að hella niður mjólk hjá Mjólkurbúi Flóamanna og má búast við mjólkurskorti þegar í sömu viku. Búvöruverð hækkar Búvöruverð var ákveðið á föstu- dag. Kindakjöt hækkar um 5,07% en talið er líklegt að mjólkurverð muni lækka um 4% til 5%. Sjálfstæðisflokkur í 44% Sjálfstæðisflokkurinn fengi 44% fýlgi ef kosið yrði nú, sam- kvæmt skoðanakönnun Félagsví- sindastofnunar. í könnuninni töp- uðu allir stjórnarflokkarnir fylgi miðað við síðustu kosningar. Ríkisstjórnin nýtur stuðnings fjórðungs kjósenda. ERLENT Framfara- flokkurinn sigurvegari norsku kosn- inganna Framfara- flokkurinn undir forystu Carls I. Hagens var sig- urvegari þing- kosninganna í Noregi ásamt Sósíalíska vinstriflokknum (SV), en tveir stærstu flokkar landsins, Verkamannaflokkurinn og Hægriflokkurinn töpuðu mestu fýlgi. Framfaraflokkurinn hlaut 22 þingsæti en hafði 2 þingsæti í síðustu kosningum og SV hlaut 17 þingsæti en hafði 6. Hægri- flokkurinn fékk 37 þingsæti en hafði 50 I síðustu kosningum og Verkamannaflokkurinn fékk 63 þingsæti en hafði 71. Spáð er mikilli óvissu í norskum stjóm- málum í kjölfar kosninganna en Car! I. Hagen sagði í símaviðtali við Morgunblaðið að hann teldi að minnihlutastjóm Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra yrði áfram við völd. Flótti frá Austur-Þýskalandi • Stjórn Ungverjalands hefur hafnað kröfum stjórnvalda í Aust- ur-Þýskalandi um að flótti Aust- ur-Þjóðvetja um Ungverjaland til Vestur-Þýskalands verði stöðvað- ur. AIls hafa rösklega 13.700 Austur-Þjóðveijar flúið yfir til Vestur-Þýskalands frá því að Ungveijar opnuðu landamærin til vesturs fyrir réttri viku. Ný ríkisstjórn í Póllandi Ný ríkisstjórn Tadeusz Mazowieckis forsætisráðherra tók með formlegum hætti við Póllandi á þriðjudag og er þar með lokið valdaeinokun kommún- istaflokkins sem staðið hefur óslit- ið frá 1945. Mazowiecki sagði í stefnuræðu sinni að helsta verk- efni hinnar nýju ríkisstjómar væri 'að endurreisa efnahag Póllands og treysta lýðræðið í sessi. Koch tapar forkosningxim Edward Koch, sem verið hefur borgar- stjóri New-Y- ork-borgar í átta ár, beið ósigur í forkosningum demókrata- floícksins á þriðjudag. Frambjóð- andi flokksins verður blökkumað- urinn David Dinkins, sem verið hefur hverfisstjóri Manhattan. Sigri Dinkins verður hann fyrsti blökkumaðurinn til að gegna emb- ætti borgarstjóra New York- borgar. Áhrifamaður í SWAPO myrtur Anton Lubowski, áhrifamaður innan namibísku skæruliðahreyf- ingarinnar SWAPO, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt á þriðjudag. Lubowski var fyrsti hvíti maðurinn sem gekk til liðs við SWAPO, sem barist hefur fyr- ir sjálfstæði Namibíu. Nokkuð víst var talið að Lubowski hlyti ráð- herraembætti í ríkisstjórn undir forystu SWAPO, næði hreyfingin að sigra í þingkosningum 6. nóv- ember nk. Á föstudag var F.W, de Klerk, Ieiðtogi Þjóðarflokks- ins, kjörinn forseti Suður-Afríku. Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðinefiidin: EB áskilur sér rétt til ein- hliða kvótaákvörðunar Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, NORÐVESTUR-Atlantshafsfisk- veiðinefndin (NAFO) lauk á föstudag árlegum fundi sinum sem að þessu sinni var haldinn í Brussel. Á fundinum var sam- þykkt án mótatkvæða að draga nyög úr sókn í ofveidda stofiia á svæðinu. Fulltrúi Evrópubanda- lagsins (EB) sat hjá við atkvæða- greiðslur. að eru fyrst og fremst veiðar á Nýfundnalandsbanka, utan 200 mílna lögsögu Kanada, sem nefndin íjallar um. Níu ríki eiga aðild að nefndinni auk EB sem á aðild að henni fyrir hönd aðild- arríkja bandalagsins. íslendingar hafa ekki setið fundi NAFO en taka þátt í störfum vísindanefndar stofn- unarinnar. Á Nýfundnalandsbanka eru þær sérstöku aðstæður að gjöful fiski- mið ná út fyrir 200 mílna lögsögu. Á þessum miðum eru m.a. tegundir sem ganga af grunnmiðum árstíða- bundið og eru því hluti af hefð- bundnum fiskstofnum við Ný- fundnaland. Kanadísk stjómvöld hafa lagt áhersiu á að þessir stofn- ar verði viðurkenndir sem kana- dískir og þá ekki hluti af úthafs- stofnum. EB hefur hafnað þessum hugmyndum og hefur síðan 1986 ákveðið kvóta sína á svæðinu ein- hliða. Kanadamenn fullyrða að minnkandi stofnar og miirill sam- dráttur í afla stafi fyrst og fremst af ofveiðum fiskiskipaflota EB á þessum slóðum en sum árin hefur EB einhliða úthlutað sér allt að tuttugu og fimmföldum heildar- kvótum NAFO. Árið 1988 úthlutaði 'EB rúmlðga 110 þúsund tonnum fréttaritara Morgunblaðsins. til aðildarríkja sinna en floti banda- lagsins náði einungis að veiða 66 þúsund tonn. Kanadamenn hafa bent á að verið sé að þrefa um pappírsfisk; Evrópubandalagið gefi út veiðileyfi í stórum stíl á fisk sem ekki sé til. Verði ekki lát á muni fiskistofnar á NAFO-svæðinu, sem þegar séu í útrýmingarhættu, þurrkast út. Aurskriða íManila Talið er að 15 manns að minnsta kosti hafi týnt lífi og enn fleiri slasast í aurskriðu sem varð í höfuðborg Filippseyja, Manila, í gær. Atburðurinn varð í úthverfi blásnauðs fólks við gamla námu þar sem illa byggð hús grófiist undir aur og grjóti. Langvarandi rigningar eru sagðar hafa valdið skriðunni sem féll snemma morguns er flestir voru sofandi. Á myndinni sjást björgunarmenn flytja slasaðan mann á brott. , Erlend aðstoð og efiia- hagsumbætur í Póllandi TADEUSZ Mazowiecki, forsætisráðherra Póllands, ítrekaði í stefnu- ræðu sinni er hann flutti í síðustu viku að Pólveijar væntu þess að njóta velvildar og fyrirgreiðslu lánastofnana og ríkisstjórna er- lendra ríkja. Ráðamenn pólskir hafa boðað að tekinn verði upp markaðsbúskapur í Póllandi en jafiiframt varað við því að harkaleg- ar aðgerðir á vettvangi efhahagsmála, sem eru öldungis óhjákvæmi- legar, geti ógnað lýðræðisþróuninni í landinu. Ljóst þykir að ætli Pólverjar sér að sigrast á eftiahagsvandanum verður tvennt að koma til; tryggja verður frest á greiðslum erlendra lána og greiða þarf fyrir stórfelldum flárfestingum erlendra fyrirtækja í Póllandi. Erlendar skuldir Pólveija eru nú um 39 milljarðar Banda- ríkjadala (um 2.400 millj. ísl. kr.) eða um 60.000 krónur á hvert mannsbarn. Þetta er mikill skuldabaggi þegar tekið er tillit til þjoðarframleiðslu og þeirrar staðreyndar að meðaltekjur pólsks verka- manns . á ári hveiju eru rúmar 60.000 krónur. Stærst er skuldin við Vestur- Þjóðveija um 17 milljarðar v- þýskra marka (um 520 millj. ísl. kr.) og Pólveijar virðast einkum binda vonir sínar við þá. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, hefur sagt að Pólverjar þurfí 10 millj- arða Bandaríkjadala (um 620 millj. ísl. kr ) í beina efnahagsað- stoð erlendis frá. Walesa ítrekaði þetta er hann var í Vestur-Þýska- landi nú nýverið og bætti við á fundi með stjómmálamönnum og ráðamönnum í viðskiptaheiminum að gróðavon vestur-þýskra fyrir- tækja í Póllandi væri ævintýraleg. Benti hann mönnum á að hafa hraðann á því ella kynnu Japanir að hrifsa þennan markað til sín. Flest bendir til þess að þetta ákall Walesa hafi skilað tilætluðum ár- angri, alltjent eru traustar heim- ildir fyrir því að Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands, muni á næstunni halda til Póllands með loforð um stórfellda efnahagað- stoð í farteskinu. Þykir sýnt að sú aðstoð verði á allan hátt rausnarlegri en sú sem Bush Bandaríkjafor- seti hét Pól- veijum er hann sótti þá heim í sumar. Líklegt má telja að Kohl muni leita eftir fullnægjandi pólitískum trygging- um af hálfu stjórnvalda í Pól- landi. Fáist þær má heita fullvíst að v-þýsk fyrirtæki, ekki hvað síst á sviði vefnaðariðnaðar og raftækjaframleiðslu, hefji „sókn til austurs" og hafa fyrirtæki eins og Siemens raunar þegar náð all- traustri stöðu á þessum markaði. Enn er ekki fyllilega ljóst til hvaða aðgerða stjórnvöld í Póll- andi hyggjast grípa. Tveir banda- rískir hagfræðingar hafa kynnt forystumönnum Samstöðu áætlun sem nefnd hefur verið „Hvellurinn mikli“ en hún gerir ráð fyrir al- gjörri umbyltingu efnahagslífsins á mjög skömmum tíma. Peninga- Mazowiecki, forsætisráðherra Póllands, treystir á efnahagsað- stoð erlendis frá. magn í umferð verði takmarkað verulega, hallinn á rekstri ríkis- sjóðs réttur af m.a. með því að hætta niðurgreiðslum og slakað verði enn frekar á reglum er varða utanríkisviðskipti svo nokkur at- riði áætlunarinnar séu nefnd. Annar hagfræðingurinn, Jeffrey Sachs, telur að allsheijar öng- þveiti myndi ríkja fyrstu sex mán- uðina en að greinilegur efnahags- bati kæmi fram innan tólf mán- aða. Telur hann og að innan tíu ára gætu Pólveijar orðið fullgildir félagar í hagkerfi Vesturlanda. Samstöðumenn mun greina á um ágæti áætlunar Jeffrey Sachs en hann vann sér það til frægðar á sínum tíma er hann starfaði sem efnahagsráðgjafí stjórnvalda í Bóliviu að ná verðbólgu í landinu niður úr 40.000 prósentum í 15 á nokkrum mánuðum. Full þörf er talin á sambærilegum aðgerð- um í Póllandi þótt aðstæður séu vissulega aðrar þar. BAItSVlÐ eftirÁsgeir Sverrisson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.