Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 16
 MOIÍGUNKLAM!) SCK.NUDAGUR 17. SRFTEMBER 1989' S4MBÖND BJARfiA SAMBANDl Fréttaskýring eftir Agnesi Bragadóttur ÞÓTT Landsbanki íslands hafí fest kaup á hlut Sambandsins i Sam- vinnubankanum, fyrir verð sem margir vilja halda fram að sé allt of hátt, þá má til sanns vegar færa að hér sé aðeins um fyrsta skref- ið að ræða, í stórfefldum björgunaraðgerðum til handa Sambandinu. Allgóð samstaða ríkir meðal sfjórnvalda og ráðamanna Landsbank- ans um að það sé þjóðhagsleg nauðsyn að bjarga Sambandinu, þótt samstaðan sé ekki algjör og ýmsir maldi í móinn. Einhverjir ráða- menn Seðlabanka íslands eru líklega sama sinnis, þó að afstaða þeirra til þess með hvaða hætti Seðlabankinn eigi að koma Samband- inu til bjargar sé ekki með öllu ljós. Steingrimur Hermannsson, for- sætisráðherra segist vissulega líta á þessi kaup Landsbankans á Samvinnubankanum sem lið í björgunaraðgerðum til handa Samband- inu. „Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda hvaða afleiðingar það hefði úti í þjóðfélaginu, ef Sambandið yrði gjaldþrota," segir forsæt- isráðherra. „Það myndi teygja anga sína alveg gífúrlega langt inn í þjóðfélagið og ég fæ ekki séð hvernig væri hægt að Iáta Hambros Bank og aðra erlenda banka tapa sínum innistæðum hjá Samband- inu,“ segir Steingrímur. Heildarskuldir Sam- bandsins nema um níu milljörðum króna. Citi- bank hefur sagt upp láni til Sambandsins að upphæð þijár milljónir dollara, (185 milljónir króna) og Hambros- bankinn í Lundúnum, sem hefur lánað Sambandinu um 9 milljónir sterlingspunda (900 milljónir króna) er orðinn órólegur vegna greiðslustöðu Sambandsins og tap- reksturs. Slíkt mun einnig vera staðreynd um annan stóran lána- drottin Sambandsins erlendis, Scandinavian Bank. Aðdragandi þess að Landsbank- inn festi kaup á hlut Sambandsins í Samvinnubankanum er orðinn all- langur, eftir því sem næst verður komist, en Sambandið skuldar nú í Landsbankanum um 1,9 milljarða króna og hefur skuldin aukist um 100 milljónir króna frá því í febrúar sl. Hin umdeildu kaup Landsbank- ans á Samvinnubankanum, aðdrag- andi þeirra, þáttur Sverris Her- mannssonar Landsbankastjóra, og annarra Landsbankastjóra, skulda- staða Sambandsins og fleira verða rakin hér á eftir. Guðjón reifaði fyrstur hugmyndina um sölu Samvinnubankans Guðjón B. Olafsson, forstjóri Sambandsins reifaði hugmyndina að sölu á hlut SÍS í Samvinnubank- anum á stjórnarfundi Sambandsins sl. haust og fékk heimiid stjórnar- innar til að kanna málið. Hann kynnti ríkisstjórninni þessar hug- myndir og í framhaldi af því, í nóv- emberbyijun í fyrra. nánar tiltekið 7. nóvember, kom Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra að máli við bankastjóra Landsbankans og reifaði þá hugmynd að bankinn keypti hlut SIS í Samvinnubankan- um. Þá var staðan sú að Valur Arnþórsson, þáverandi stjórnar- formaður Sambandsins var þess fremur fýsandi að Landsbankinn keypti Samvinnubankann áður en hann hyrfí frá Samvinnuhreyfing- unni að Landsbankanum. Málið lá svo niðri um hríð, en í marsmánuði sl. ritaði Guðjón bankastjóm Lands- -bankans bréf, þar sem 52% hlutur Sambandsins í Samvinnubankanum var boðinn falur fyrir 950 milljónir króna, sem jafngildir því að allur bankinn hefði kostað um 1890 millj- ónir króna. Stefán Svavarsson tók að sér fyrir Landsbanka íslands að gera úttekt á Samvinnubankanum og raunvirði bréfa Sambandsins í Samvinnubankanum. Niðurstaða Stefáns varð sú, samkvæmt heim- ildum Morgunbiaðsins, að raunvirði Samvinnubankans í heild væri um 1,3 milljarðar króna. Endanlegt mat þeirra Landsbankamanna á Sam- vinnubankanum hækkaði þó um 100 milljónir króna, þar sem bank- inn ákvað sl. vor að opna útibú Landsbankans í Hafnarfirði og Keflavík og var kostnaður við það áætlaður 100 milljónir króna. Þar sem Samvinnubankinn hefur rekið útibú á báðum þessum stöðum, fær Landsbankinn þau til sinna afnota með Samvinnubankakaupunum og metur til 100 milljóna króna. Landsbankinn bauð 700 milljónir í maí Niðurstaða Landsbankans sl. vor varð því sú að bankinn bauð Sam- bandinu í maílok 700 milljónir króna fyrir hlut þess í Samvinnu- bankanum, sem jafngilti um 1350 milljónum króna fyrir allan bank- ann. Þegar þetta tilboð var gert höfðu þeir Björgvin Vilmundarson og Sverrir Hermannsson, Lands- bankastjórar ígrundað vel hversu mikils virði bankinn væri. Jafnframt höfðu þeir fylgst náið með aðdrag- anda að sölu Utvegsbankans. Heim- ildir Morgunblaðsins herma að Landsbankamenn hafi talið að Út- vegsbankinn væri um 2,5 milljarða króna virði, og töldu þeir því að Jón Sigurðsson bankamálaráðherra hefði gefið um einn milljarð með Útvegsbankanum við söluna. Sverr- ir Hermannsson hefur reyndar ekki legið á þessari skoðun sinni frá því að bankinn var seldur, hvorki í ræðu né riti, við takmarkaðar undir- tektir bankamálaráðherrans. Sambandsmönnum fannst 700 milljón króna boðið rýrt og þæfing- ar hófust sem stóðu með hléum í allt sumar. Samkomulag tókst svo að lokum um það 1. september sl. að Landsbankinn greiði Samband- inu 828 milljónir fyrir 52% hlut þess í Samvinnubankanum, sem jafngildir því að bankinn í heild verði seldur á 1.590 milljónir króna. Þeir Sverrir og Björgvin höfðu lengi miðað við að heildarverðið yrði ekki hærra en 1,5 milljarðar, en neðar fengust Sambandsmenn ekki. Sverrir fylgir ekki alltaf „etikettunum“ Sverrir, sem ekki þykir alltaf fara troðnar slóðir eða halda sig við lögmál hefðarinnar hefur hlotið ómælda gagnrýni og ámæli fyrir það með hvaða hætti hann gekk frá samkomulagsdrögum við Sam- bandsmenn um kaup Landsbankans á Samvinnubankanum. Sverrir var einn Landsbankastjóra í bænum þegar samkomulagið var undirritað, og þar mun engin tilviljun hafa ráðið. Valur var í útlöndum og Björgvin í sumarbústað sínum, norður í Eyjafirði. Talið er að Sverr- ir hafi talið það afskaplega nauð- synlegt að ganga frá þessum kaup- um á meðan að kollegi hans, Valur Arnþórsson væri erlendis. Haft er fyrir satt að Valur hefði gert allt sem í hans valdi stæði til þess að hindra það að af slíkum viðskiptum gæti orðið. Þar er sögð ráða ferð- inni taumlaus andúð hans á for- stjóra Sambandsins, Guðjóni B. Ól- afssyni og er hann sagður vilja ganga svo langt að knésetja Sam- bandið í heild sinni til þess að mega sjá Guðjón á hnjánum. Valur er með öllu ófús að tjá sig um sinn hug til málsins. Þeir sém veija samningsgerð Sverris, segja að hann hafi orðið að láta kylfu ráða kasti, þótt starfs- aðferðir hans gagnvart sambanka- stjórum og bankaráðsmönnunum Lúðvík Jósefssyni og Eyjólfi K. Sig- uijónssyni hafi alls ekki samræmst góðum og gildum samstarfshefðum. Þetta mun Sverrir raunar hafa við- urkennt sjálfur, en hafa sagt eitt- hvað í þá veru að nauðsyn hafi brotið lög. Lúðvík aftur á móti segist hafa það að leiðarljósi í gagnrýni sinni á þetta samkomulag að Samvinnu- bankinn sé með þessu verði keyptur á slíku yfirverði að það hijóti að hefta frekari sameiningu banka á íslandi. Benda hann og fleiri á hvað sparisjóðir landsmanna muni kosta í heild, þegar Samvinnubankinn einn leggi á sig hálfan annan millj- arð króna í sölu, en sé að nafnvirði hálfs milljarðs króna virði. Spari- sjóðirnir muni í Ijósi þessarar sölu geta verðlagt sig á einhveija millj- arða, þannig að ólíklegt sé að um sameiningu sparisjóðanna og ein- hverra banka verði að ræða á næst- unni. Kemur Seðlabankinn til bjargar? Sverrir mun hafa verið búinn að tryggja sér að hann hefði stuðning meirihluta bankaráðs Landsbank- ans við þessi kaup. Jafnframt hafði hann, ásamt þeim Val Arnþórssyni og Björgvin Vilmundarsyni átt við- ræður við Seðlabankastjórana dr. Jóhannes Nordal, Geir Hallgríms- son og Tómas Arnason. Þeir ræddu þar möguleika á því að 1,6 millj- arðs króna skuld Sambandsins í Samvinnubankanum flyttist í Seðla- bankann og frystist þar. Engin lof- orð munu hafa verið gefin, en rætt hefur verið um að skuldin geymist í Seðlabankanum og SÍS byiji ekki að greiða hana niður fyrr en eftir fimm ár og Ijúki greiðslum á tíu árum. í samtölum mínum við Seðla- bankastjóra vegna þessa máls kom fram að ekkert hefur verið ákveðið í þessum efnum og að Seðlabankinn þurfi að fá gögn í hendur frá Lands- bankanum, Sambandinu og Sam- vinnubankanum áður en nokkuð verði ákveðið. Málið sé á algjöru byijunarstigi og engar samninga- viðræður hafi farið fram milli Landsbanka og Seðlabanka um það hvort um aðstoð Seðlabanka geti orðið að ræða eða með hvaða hætti hún geti orðið. Dr. Jóhannes Nor- dal Seðlabankastjóri segir að það komi ekki til greina að aðstoð Seðla- bankans verði með þeim hætti sem rætt er um hér að ofan. Fyrir slíku séu engar lagalegar forsendur. Seðlabankastjórar telja að málið sé á algjöru byijunarstigi og því sé með öllu ótímabært að vera með vangaveltur um það hver hugsanleg fyrirgreiðsla Seðlabankans geti orð- ið. Þeir sem lítt eru hrifnir af sam- komulagi þeirra Sverris og Guðjóns benda á að Landsbankinn verði ábyrgur fyrir skuld SIS í Seðla- bankanum og hann muni þurfa að taka að láni um 1,6 milljarða króna í Seðlabankanum, til þess að brúa bilið þar til SÍS hefur afborganir sínar af láninu. Um þetta hefur ekki verið rætt formlega, né það hvaða kjör skuli vera á slíku láni. Benda þeir jafnframt á að Seðla- bankinn hafi hingað til ekki getað hlaupið undir bagga með öðrum bönkum, nema til þess að leysa úr bráðabirgpavanda þeirra. Ekkert heimili Seðlabankanum að lána með þessum hætti 1,6 milljarð til jafn- langs tíma og fimmtán ára. Lúðvík og Sverrir rifust í fímm tíma, eins og um framboðsfund væri að ræða Á bankaráðsfundinum síðastlið- inn sunnudag, sem stóð í fimm klukkustundir, þar sem allt fór í háaloft á milli þeirra Sverris og Lúðvíks, var tillaga bankastjóranna þriggja um kaup Landsbankans á Samvinnubankanum svo samþykkt. Til snarpra orðaskipta kom á milli þeirra Lúðvíks og Sverris, sam- kvæmt mínum heimildum. Sverrir orðaði það þannig að Samband íslenkra samvinnufélaga rambaði á gjaldþrotsbarmi og rhálið stæði um það hvort hægt væri að koma Sam- bandinu á fæturna aftur. Sverrir sagði skýrt og skorinort, þegar Lúðvík og Eyjólfur höfðu farið fram á það að málinu yrði frestað, þar til frekari gagnaöflun hefði farið fram, að ef málið yrði ekki afgreitt með þeim hætti sem hann legði til, þá myndi hann afskrifa málið, og kaup Landsbanka á Samvinnu- banka yrðu ekki aftur á döfinni. Það þótti tíðindum sæta að allir þrír bankastjórarnir skyldu flytja þessa tillögu, þar sem ekki var búist við því að Valur viidi standa að henni. Heimildir Morgunblaðsins herma að Valur hafi einfaldlega ekki átt annarra kosta völ, þar sem hann hafi vitað að frá kaupunum yrði gengið, með eða án hans sam- þykkis. Auk þess hafi Valur orðið að láta persónulega óvild sína í garð Guðjóns víkja, þar sem þetta samkomulag hafi svo augljóslega verið Sambandinu, því fyrirtæki sem hann um ianga hríð veitti for- mennsku, hagstætt. Valur mun ekki hafa sagt aukatekið orð á fundinum og yfirgefið fundarher- bergið í fundarlok án þess að tjá sig um málið. Lúðvík Jósefsson, bankaráðs- maður í Landsbankanum hefur haldið því fram að skuldir Sam- bandsins við Landsbankann væru um 2,6 milljarðar króna. Þessu hafna þeir sem standa að kaupum Landsbankans á Samvinnubankan- um og benda á að inni í dæminu sem Lúðvík hafi tíundað séu póstar eins og flýtilánafyrirgreiðsla til Ice- land Seafood til skamms tíma, vegna slæmrar stöðu frystihúsanna í landinu, að upphæð 362 milljónir króna. Þessi fyrirgreiðsla er til þess að hraða afurðasölu frystihúsanna. Aukin heldur hafi Lúðvík reiknað inn 309 milljónir króna í formi við- skiptavíxkj sem sé Ijarri Iagi að segja að SIS skuldi, þar sem þetta séu útistandandi skuldir sem SÍS eigi inni hjá ýmsum skuldunautum sínum. Loks hafi hann reiknað með lánum til Iðnaðardeildar Sambands- ins, sem eftir sameininguna sé hlutafélag í eigu samvinnuhreyfing- arinnar og ríkisins, og skuldir þess því Sambandinu óviðkomandi. Þetta staðfestir löggiltur endurskoðandi Sambandsins, Geir Geirsson í yfir- lýsingu sinni frá því í fyrradag. Því sé rangt að halda því fram að skuld Sambandsins í Landsbankanum sé 2,6 milljarðar króna. Hún sé 1.912 milljónir króna í dag. Landsbanka- menn segjast fullkomlega halda ró sinni, ‘hvað varðar skuldastöðu Sambandsins við Landsbankann, því þeir hafi öruggar tryggingar í eigum Sambandsins að upphæð 2,5 milljarða króna. Þetta sé Lúðvík fullkunnugt um og því tali hann gegn betri vitund í þessu máli. A síðastliðnu ári greiddi Sam- bandið um 500 milljónir króna í vaxta- og þóknunargjöld til Lands- bankans. Þetta eni tekjur sem bankinn vill ógjarnan missa. Jafn- framt því sem hann vill firra sig miklu tjóni, sem hann yrði óhjá- kvæmilega fyrir, yrði Sambandið gjaldþrota. Því sé það í raun veij- andi að greiða eins og 200 milljón- um meira fyrir bankann, en sé raun- virði hans. KEA skuldar 1,4 milljarða í Landsbankanum Sambandið er síður en svo eitt stórskuldugra fyrirtækja við Lands- bankann. Ekki svo ijarskylt Sam- bandinu er Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri (KEA), en það fyrirtæki skuldar hvorki meira né minna en tæplega 1,5 milljarða króna í Landsbankanum. KEA er komið svo að fótum fram í skuldum sínum við Landsbankann að hverri krónu af inneign fyrirtækisins er nú skulda- jafnað. Yfirdráttur KEA í Lands- bankanum er samtals um 400 millj- ónir króna nú, en KEA hefur að jafnaði verið með um 350 milljóna króna yfirdrátt undanfarin ár. Þess- ar skuldir KEA og yfirdráttur eru ekki í vanskilum í Landsbankanum, ekki frekar en skuldir Sambandsins. Styrinn um kaup Landsbankans á Samvinnubankanum stendur ekki um kaupin sjálf, heldur um vinnu- brögð og verðið sem bankinn ætlar að greiða fyrir hlut SÍS í Sam-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.