Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1989 T \ /"'ier sunnu(lagur 17. september. 260. dagur ársins 1 UALr 1989. Lambertsmessa. 17 sd. eftir trínitatis. Árdegisflóð í Reykjavík kl. 7.14 og síðdegisflóð kl. 19.35. Sólarupprás í Rvík. kl. 6.56 og sólarlag kl. 19.47. Myrkur kl. 20.35. Sólin er í hádegisstað í Rvík. kl. 13.22 og tungiið er í suðri kl. 2.40. (Almanak Háskóla íslands.) Hann biður til Guðs, og Guð miskunnar honum, lætur hann líta auglit sitt með fögnuði og veitir manninum aftur réttlæti hans. (Job. 33,26.) ára afmæli. Á morgun, mánudag 18. þ.m., er áttræður Björn Kristmunds- son, Álftamýri 54, Rvík., fyrrum gjaldkeri á Reykja- lundi. Hann ætlar að taka á móti gestum í Goðheimum, Sigtúni 3, hér í Rvík., af- mælisdaginn milli kl. 17 og ára aftnæli. Á morgun, mánudag 18. þ.m., er sextug Jórunn Karlsdóttir Selbraut 20 Seltjarnarnesi. I tilefni afmælisins tekur hún á móti gestum á heimili sínu næstkomandi laugardag, 23. þ.m. eftir kl. 17. 19. Q A ára afinæli. Á morgun, OU mánudag 18. septem- ber, er áttræður Olafúr Ás- mundsson trésmíðameist- ari, Langagerði 78 hér í Rvík. Hann verður að heiman. ára aftnæli. í dag, sunnudag 17. sept., er 75 ára frú Gyða Helgadóttir Melhúsum, Hafnarfirði. Eiginmaður hennar var Guð- bjartur Guðmundsson. Hann var meðal þeirra sjómanna er fórust af vélskipinu Eddu vestur í Grundarfirði árið 1953. Varð þeim 5 barna auðið. Um áratugaskeið starfaði hún í íshúsi Hafnar- fjarðar. Hún ætlar að taka á móti gestum veitingahúsinu Kænunni í smábátahöfninni þar í bænum kl. 15 — 18. FRÉTTIR/ MANNAMÓT I DAG er Lambertsmessa. „Messa í minningu Lamberts biskups frá Maastricht í Belgíu, sem var uppi á 7. öld,“ segir í Stjörnufræði/Rím- fræði. Þennan dag árið 1936 fórst þrímastraða franska skútan Pourquoi Pas? með allri áhöfn vestur á Mýrum. RÉTTIR I landnámi Ingólfs á morgun, mánudaginn 18. sept. Selvogsrétt í Selvogi, í Selflatarrétt í Grafningi, í Dalsrétt í Mosfellssveit og Vogarétt á Vatnsleysuströnd. Eru allar þessar réttir árdeg- is. Undir hádegi eru réttir í Kjósarrétt í Kjós og upp úr hádegi eru Kollafjarðaréttir í Kollafirði. Þá eru Ölfusréttir í Ölfusi árdegis nk. þriðjudág. Þá er á morgun, mánudag, Selflatarétt í Grafningi og Silfrastaðarétt í Skagafirði. FÉLAG eldri borgará. í dag, sunnudag, er opið hús í Goð- heimum, Sigtúni. 3 kl. 14. Verður þá fijáls spila- mennska og tafl. Dansað verður kl. 20. KROSSGATAN LÁRÉTT: - 1 ósvinna, 5 Ijarstæða, 8 útlit yfirborðs, 11 ilmar, 14 tunnu, 15 viður- kennt, 16 smáseiðið, 17 fæða, 19 streða, 21 hóta, 22 end- urlífgun, 25 ferskur, 26 borði, 27 sefi. LÓÐRÉTT: - 2 lík, 3 ekki mörgu, 4 ákveða, 5 ungfrú, 6 starf, 7 fara á veiðar, 9 bjúga, 10 óalgengur, 12 við- kunnanlegur, 13 varð ijóður, 18 numið, 20 fréttastofa, 21 mynni, 23 bókstafur, 24 tveir eins. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: - 1 snáks, 5 smátt, 8 ókáta, 9 fræði, 11 ass- an, 14 nöf, 15 allan, 16 lands, 17 aki, 19 taða, 21 arar, 22 iðulega, 25 kýr, 26 mat, 27 rót. LÓÐRÉTT: - 2 nær, 3 kóð, 4 skinna, 5 stafli, 6 mas, 7 tía, 9 framtak, 10 ætlaðir, 12 sindrar, 13 Nasaret, 18 kála, 20 að, 21 Ag 23 um, 24 et. Það er gleðilegt að heyra, að það var ekkert mál að stjórna borginni úr hjólastól. — Hvenær eru næstu kosningar herra borgarsljóri? FÉLAGSSTARF aldraðra að Norðurbrún 1. Á morgun, mánudag kl. 14 hefst ensku- kennsla. Kl. 9 er útskurður og kl. 10 hefst svo lestur framhaldssögunnar. Bókaút- lán kl. 13, leikfimi, handa- vinna og leirmunagerð. Kaffi- tími kl. 15. SAMVERKAMENN Móður Tereseu halda mánaðarlegan fund sinn á morgun mánudag kl. 20.30 á Hávallagötu 16. ITC-deildin Ýr heldur fund annað kvöld, mánudag kl. 20.30 í Síðumúla 17, salur frímerkjasafnara. Þar flytur erindi Tryggvi Jónasson kírópraktor, um starfsgrein sína. Fundurinn er öllum op- inn. ERLENDIS: 1787: Bandaríska stjórnar- skráin undirrituð. 1838: Thorvaldsen kemur til Kaupmannahafnar eftir langa dvöl í Róm. 1862: Orrustunni við Antiet- am í Maryland lýkur með blóðbaði. 1863: Alfred de Vig-ny, skáld. 1871: Mont Cenis gögnin opnuð. 1873: Gjaldþrot banka í New York veldur fjárhagskreppu („Panic of 1873“). 1900: Ástralía verður sam- bandsríki í brezka samveld- inu. — Taftnefndin tekur við stjórninni á Filippseyjum. 1935: Manuel Queson kosinn fyrsti forseti Filippseyja. 1939: Þýzki herinn sækir til Brest-Litovsk í Póllandi. — Rússar gera innrás í Póllandi úr austri. 1948: Folke Bernadotte greifi, sáttasemjari SÞ í Pal- estínu, veginn nálægt Jerú- salem. — Hyderabad sam- þykkir inngöngu í indverska sambandsríkið og gefst upp. 1949: Fyrsti fundur Atlants- hafsráðsins. — Rúmlega 130 farast í eldsvoða í „Noronic", stærsta farþegaskipinu á ÍÞRÓTTAFÉLAG fatlaðra, byijar aftur æfingar í borð- tennis og boccia í Hlíðaskóla á morgun, mánudag kl. 18. ÞJÓÐARRÁÐ Baháia held- ur fund annað kvöld, mánu- dag, í miðstöð sinni í Álfa- bakka 12 í Mjódd. Þar talar geðlæknir frá Sviss, Agnes Ghaznavi, um vandamál fjöl- skyldunnar í nútíma þjóðfé- lagi. Fundurinn er öllum op- inn. FÉLAGSSTARF aldraðra í Hvassaleiti 56 — 58. Á morg- un, mánudag, verður leikfimi kl. 9 — 12. Silki- og taumálun kl. 11. Opið hús verður kl. 13, fijáls spilamennska. Fóta- aðgerðatími kl. 14 ogteikning og málun kl. 16. Þá eru kaffi- stóru vötnunum, í Toronto. 1963: Malaysía slítur stjóm- málasambandi við Indónesíu. 1970:Stríð hefst milli Jórd- aníuhers og palestínskra skæruliða. 1973: Ósigur Olof Palme í kosningum í Svíþjóð. 1978: Fundinum í Camp David lýkur með samkomu- lagi um frið. HÉRLENDIS: 1667: Stórt hollenzkt Indíafar hlaðið dýrum farijii strandar á Skeiðarársandi. 1879: Sig. Sigurðsson frá Arnarholti fæddur. 1907: Vilhjálmur Stefánsson talinn af á heimskautasvæð- um. 1917: Verzlunarráð íslands stofnað. 1931: Kaupfélagshúsin á Hólmavík brenna. 1948: Þrír farast í sprengingu í olíuskipinu „Þyrli". 1961: Minnisvarði Ingólfs Arnarsonar afhjúpaður í Nor- egi. 1967: Ráðherrafundur í Kaupmannahöfn um lending- arréttindi Loftleiða í Skand- inavíu. 1973: dr. Luns ræðir við ísl. ráðherra í Reykjavík. veitingar kl. 15. Á þriðjudag- inn kemur verður andlit- og handsnyrting kl. 9. Spænsku- kennsla kl. 10 og hárgreiðsla kl. 12. Fjölbreytt handavinna hefst kl. 13 og svo kaffitími kl. 15. ÁRNESIN GAFÉLAGIÐ í Reykjavík ætlar að efna til haustfagnaðar í Loftleiðahót- elinu hinn 7. október nk. ITC-deildin Korpa í Mos- fellsbæ heldur kynningarfund í Hlégarði nk. miðvikudags- kvöld kl. 20. Meðal annars verður efnt til kappræðufund- ar um urðun sorps á Álfs- nesi. Þær Guðrún í s. 666229 og Sara í s. 666391 gefa nánari uppl. DC-Appolo-félagsskapur- inn, fólks af Dale Carnegie- námskeiðum, heldur fund nk. þriðjudagskvöld 19. þ.m. í Farfuglaheimilinu Sund- laugavegi 34, kl. 20.30. Gest- ur fundarins verður Guðfínna Eydal sálfræðingur, og ætl- ar hún að tala um feimni. SKIPIN RE YK JA VÍKURHÖFN: Seint í fyrrakvöld lagði Reykjafoss af stað til út- landa. í gær komu af strönd- inni Kyndill og Arnarfell. Af veiðum kom til löndunar, togarinn Engey. Norska rannsóknarskipið Hakoy II. fór út aftur. Danska eftirlits- skipið Ingolf er væntanlegt og togararnir Ásgeir og Giss- ur ÁR, — til löndunar. HAFNARFJARÐAR- HÖFN: í dag fer ísberg á ströndina. Þá kemur af rækjumiðum til löndunar Guðmundur VE. Væntan- legur er grænlenskur rækju- togari M. Rakel og annar er væntanlegur á mánudag vegna áhafnarskipta Qipoq- qaq. Erl. skip Pan Trader, sem siglir undir Panama- fána, er væntanlegt á morg- ORÐABÓKIN Óheppilegt orðaval Allir kannast við það, að ekki er sama, hvaða orð við notum til að tjá hugsanir okkar. Eitt orð getur átt vel við í ákveðnu sambandi, en engan veginn í öðru sam- hengi. í seinni tíð hefur borið á því — einkum meðal unglinga að ég ætla — að ýmis orð eru notuð til áherzlu, sem koma óþægi- lega við marga. Farið er að segja, að eitthvað sé ógeðs- lega gott eða fallegt. Er þá átt við, að gæðin eða feg- urðin sé óvenjulega mikil. Nú vita allir, að lo. ógeðs- legur og þá einnig ao. ógeðslegaer haft um ein- hvern viðbjóð eða eftir orð- anna hljóðan um það, sem mönnum geðjast ekki að, þykir ógeðfellt. Þannig er farið að nota ýmis orð alveg gagnstætt frummerkingu þeirra, og það getur ekki farið vel í málinu. Samt er það svo, að menn taka eftir slíku orðalagi, því að það hlýtur að stinga menn, hvort sem er í tali eða riti. Vonandi hefur ekki annað vakað fyrir þeim, sem aug- lýsti fyrir réttri viku í Morg- unblaðinu til sölu lóð með þessum orðum: „Ohugnan- lega falleg eignarlóð fyrir einbýlishús til sölu á mjög fallegum stað á Álfta- nesi...“ Engu að síður hefði ekki síður vakið at- hygli að tala um mjög fal- lega eða gullfallega lóð. - JAJ. ÞETTA GERÐIST 17. september

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.