Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 35
eeer HaaMaTqae, MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í I MJtM ŒaAjavrjoaoM SUNNUDAGUR17,-SEPTEMBER-1989 Þau giftu sig Ásta Lára Sigurðardóttir og Björn Leví Viðarsson, Rvk. Berglind Ágústsdóttir og Hjálmar Hjálmarsson, Rvk. Harpa Rúnarsdóttir og Eng- ilbert Sigurðsson, Hafnarfirði Jóhanna Þóra Jónsdóttir og Haraldur Ólafsson, Kópavogi Margrét Benediktsdóttir og Guðmundur Guðbjörnsson, Hafnarfirði BRÚÐHJÓN VIKUNNAR „Brúðkaupið var alveg eins o g mig hafði dreymt um“ Brúðhjón vikunnar eru þau Vil- borg Huld Helgadóttir og Gunnar Bachmann Hreinsson. Hún er 21 árs gömul en hann 25 ára og þau eru búin að vera saman í þrjú og hálft ár. Fyrir ári síðan varð Vilborg stúd- ent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og þann dag trúlofuðu þau sig. Síðasta vor fluttu þau til Þýskalands en þar verða þau við háskólanám næstu árin. „Okkur langaði til að reyna eitt- hvað nýtt og okkur leist vel á að fara til Þýskalands til að læra,“ sagði Gunnar. „Vilborg ætlar í lyfjafræði en ég í verkfræði. Við þurftum að fara út í vor til að ná góðum tökum á þýskunni en út- lendingar sem ætla í háskólanám verða fyrst að taka inntökupróf til að sanna kunnáttu sína í málinu." Borgin sem Vilborg og Gunnar búa í heitir Braunschweig og er skammt frá Hanover. „Við fundum góða íbúð sem við leigjum," sagði Viiborg „en það kom okkur á óvart að það var ekkert á gólfunum, engin eldhúsinnrétting og ekki einu sinni eldhúsvaskur. Það er ætlast til þess að leigjendurnir útvegi þessa hluti sjálfir og þegar þeir flytja þá taka þeir innréttinguna með sér.“ Búist þið við að verða iengi úti? „Verkfræðinámið tekur sex ár, svo við verðum alla vega svo lengi. Því fannst okkur núna vera rétti tíminn til að gifta sig,“ sagði Gunn- ar. Hjónavígslan var í Dómkirkj- unni annan september og það var sr. Hjaiti Guðmundsson sem gaf þau saman. í kirkjunni voru leikin iétt lög um ástina á flautu og org- el. Tvíburabræður Vilborgar voru brúðarsveinar og lítil frænka var brúðarmey. „Ég lét sauma kjólinn í Þýskalandi," sagði Vilborg. „Það var svolítið erfitt að fela hann fyr- ir Gunnari en það tókst þó. Hann sá hann ekkert fyrr en í kirkjunni. Veðrið var ekki sem best á brúð- kaupsdaginn, það var rok og tals- verð rigning en maður lét það ekk- ert á sig fá. Við fengum æðislegan bíl tii að aka í eftir vígsluna. Það var 1929 árgerð af Ford fólksbíl. Hann var mjög fallegur, mosa- grænn og skreyttur með gylltum slaufum. Við ókum rúnt í bænum áður en við fórum í veisluna sem var haldin á Holiday Inn hótelinu." í veislunni voru um 120 manns og á kaffihlaðborðinu stóð brúðar- tertan, skreytt marsipani og á sjö hæðum. Hún var á nokkurs konar tröppum sem lágu í sveig. Um kvöldið fór svo nánasta fjölskyldan saman út að borða á Grillinu. „Eftir það hittust vinir okkar í litlum sal á Holiday Inn hótelinu og þar var dansað til klukkan tvö um nóttina. Við gistum á brúðar- svítunni en þegar við komum þang- að sáum við að baðherbergið var allt fullt af blöðrum svo það var varla hægt að fara þar inn,“ sagði Vilborg. „Þetta höfðu vinkonur mínar gert og þær höfðu líka stráð hrísgijónum í hjónarúmið. Okkur fannst þetta bara skemmtilegt og í heild var þessi dagur alveg ógleymanlegur. Við vorum mjög ánægð með allt og brúðkaupið var alveg eins og mig hafði dreymt um þegar ég var lítil stelpa.“ Morgunblaðið/Siguröur Jónsson í árlegri bæjakeppni í fijálsum íþróttum taka yngri aldursflokkar eingöngu þátt og er hún liður í unglinga- og barnastarfi ungmennafé- laganna á þessum stöðum. VIÐURKENNING Stjórnar keppni dreka- báta í Malmö Bæjarstjórnin í Malmö í Svíþjóð heiðraði nýverið íslending sem búsettur er þar fyrir framlag hans til bæjarmála. íslendingurinn heitir Kristján Gíslason og er formaður róðraklúbbsins í borginni. Róðra- klúbburinn stendur fyrir kappsigling- um á svonefndum drekabátum á Malmöhátíð sem haldin er ár hvert. Drekabátakeppnin nýtur mikilla vin- sælda á hátíðinni. „Þetta byijaði allt fyrir fimm árum,“ sagði Kristján Gíslasson í samtali við Morgunblaðið. „Bæjarstjórninni þótti bæjarlífið heldur dauflegt og ákveðið var að halda svokallaða Malmöhátíð til að lífga uppá bæjarbraginn. Um svipað leyti kynntist ég drekabátun- um sem upprunnir eru í Singapore. Róðraklúbburinn festi kaup á nokkr- um bátum og árið eftir var haldin fyrsta drekabátakeppnin á Malmö- hátíð." í drekabátakeppninni keppa fyrir- tæki og stofnanir í Malmö. „Fyrir- komulag keppninnar er með þeim hætti að fyrirtæki skora hvert á ann- að. Sjónvarpið skorar á útvarpið, dagblað skorar á annað dagblað og stjórnmálaflokkur á annan stjórn- málaflokk," segir Kristján. „Það liðið sem vinnur keppir við vinningslið úr öðrum riðli. Þannig gengur keppnin koll af kolli þangað til úrslit eru feng- in. Auk þess að keppa í hraðsiglingu er keppt um skemmtilegasta liðs- búninginn. Þess má geta að keppend- urnir fá ekki að æfa sig fyrir keppn- ina og er áralag keppenda oft ansi skrautlegt. í fyrstu drekabátakeppn-. inni kepptu 16 fyrirtæki. I ár voru Kristján Gíslason á flaggskipi drekabátanna. Eins og sjá má heitir það Island. fyrirtækin 294 og keppendur yfir 7000.“ En það er fleira til skemmt- unar á hátíðinni en drekabáta- keppni.„Hátíðin hefst með krabba- veislu þar sem bæjarbúar reyna að ár hvert að slá heimsmetið í krabba- áti. í ár voru borðaðir 87.000 krabb- ar. Dagana á eftir er ýmislegt til skemmtunar. Listamenn skemmta á pöllum sem komið er fyrir víðsvegar um borgina og á ráðhústorginu mat- reiða innflytjendur rétti frá heima- slóðum sínum. Síðasta dag hátíðar- innar stendur róðraklúbburinn svo fyrir bátalest á síkjunum. Hátíðinni lýkur með meiriháttar flugeldasýn- ingu.“ Kristján og fjölskylda hans hefur búið í Malmö í tuttugu ár. Þau hafa ekki í hyggju að flytjast til íslands en Kristján segist samt alltaf verða íslendingur. BURSTAGERÐIN HF., Einkaumboð Smiðsbuð 10, á íslandi: Garðabæ, Símar 41630/41930 og sanddreifarar fyrir stórar vélar v ÍÞRÓTTIR Bæjakeppni í frjálsíþróttum jr Arleg bæjakeppni í frjálsum íþróttum fór nýlega fram milli Stykkishólms og Selfoss. í keppni þessari taka eingöngu þátt yngri ald- ursflokkar og er hún liður í ungl- inga- og barnastarfi ungmennafélag- anna á þessum stöðum. Mikil keppnis- og þátttökugleði var meðal þátttakenda og í þeim hópi voru efnilegir íþróttamenn og konur. Rúmlega 100 keppendur tóku þátt í þessari bæjakeppni sem var jöfn og skenimtileg. Að þessu sinni sigruðu Snæfellingar frá Stykkis- hólmi. Meðfylgjandi mynd var tekin í lok keppninnar á Selfossvelli. Á eftir var að venju öllum boðið í grill- veislu og svo var dansað fram eftir kvöldi. Skrifstofutæknin opnar þér nýjar leiðir Að loknu 3-4 mánaða námi kannt þú á tölvur, hefur vald á viðskiptaensku, bókfærslu, stjórn- un og öðrum viðskiptagreinum og hefur auk þess rifjað upp ýmislegt í íslensku. Morgun-, eftirmiðdags- eða kvöldtímar. Innrit- un er þegar hafin. Mjög hagstæð greiðslukjör. Hringdu í síma 687590 og fáðu nánari upplýsingar. Tölvufræðslan ■ — Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.