Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.09.1989, Blaðsíða 39
MÓRGUNBLÁÐÍÐ ÚTVARP/SJÓNVARP ÓNNÚ ‘ 17.BÉWÉMBÉR 1989 39 Sjónvarpiðs Þursabit HHH Þursabit heitir þýsk sjónvarpsmynd í léttum dúr sem Sjón- 91 25 varpið sýnir í kvöld. Myndir segir frá ungri húsmóður sem ^ A *“ er með elskhuga sinn hjá sér þegar eiginmaðurinn kemur óvænt heim. Mikið vandræðaástand skapast þegar ástmaðurinn, sem er að auki að verða of seinn í vinnuna, fær þursabit og kemst ekki óséður út úr húsinu. Með aðalhlutverk fara Susanne Uhlen, Herbert Herrmann og Helmut Fisher. hefja daginn með hlustendum. Fréttir kl. 8.00, maður dagsins kl. 8.15.9.03 Morg- unsyrpa Eva Ásrún Albertsdóttir. Neyt- endahorn kl. 10.05. Afmæliskveðjur kl. 10.30. Þarfaþing með Jóhönnu Harðar- dóttur kl. 11.03. Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegistréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti Einari Jónassyni sem leikur þrautreynda gullaldartónlist. 14.03 Milli mála. Árni Magnússon á útkíkki og leikur nýju lögin. Hagyrðingur dagsins rétt fyrir þrjú og Veiðihornið rétt fyrir fjög- ur. 16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán Jón Hafstein, Sigurður Þór Salvarsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Þorsteínn J. Vil- hjálmsson og Sigurður G. Tómasson. — Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16. 00. — Kristinn R. Olafsson talar frá Spáni. — Stórmál dagsins á sjötta tímanum. 18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni út- sendingu, sími 91-38 500 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Áfram island. Daegurlög með tslenskum flytjendum. 20.30 Útvarp unga fólksins. Við hljóðnem- ann eru Hlynur Hallsson og norðlenskir unglingar. 22.07 Rokk og nýbylgja. Skúli Helgason kynnir. Meðal efnis er irsk rokktónlist. (Einnig útvarpað aðfaranótt laugardags að loknum fréttum kl. 2.00.) 1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00,19.00,22.00 og 24.00. NÆTURÚTVARPIÐ 1.00 ,Blítt og létt. .." Gyða Dröfn Tryggvadóttir. (Einnig útvarpað í bítið kl. 6.01.) 2.00 Fréttir. 2.05 Lögun. Snorri Guðvarðarson bland- ar. (Frá Akureyri.) (Endurtekinn þáttur frá fimmtudegi á rás 1.) 3.00 Næturnótur. 4.00 Fréttir. 4.05 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi mánu- dagsins. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Endur- tekinn þáttur frá rás 1 kl. 18.10.) 5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum. 5.01 Áfram island. Dægurlög með íslenskum flytjendum. 6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum. 6.01 .Blítt og létt. . .“ Endurtekinn sjó- mannaþáttur Gyðu Drafnar Tryggvadóttur á nýrri vakt. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Páll Þorsteinsson. Fréttir kl. 8.00, 9.00 og 10.00. 10.00 Valdis Gunnarsdóttir. Fréttir kl. 11.00, 12.00, 13.00 og 14.00, Bibba í heimsreisu kl. 10.30. 14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Tónlist, afmæliskveðjur og óskalög. Bibba í heimsreisu kl. 17.30. Fréttir kl. 15.00, 16.00, 17.00 og 18.00. 18.00 Reykjavík síðdegis. Hallgrímur Thor- steinsson. ■ 19.00 Hafþór Freyr Sigmundsson. 20.00islenski listinn. .Stjómandi: Pétur Steinn Guðmundsson. 22.00 Haraldur Gislason. 3.00 Næturvakt Bylgjunnar. RÓT FM 106,8 Íslensk tónlistarvika. Öll tónlist sem flutt verður í dag verður eftir íslensk tónskáld eða með íslenskum flytjendum. 9.00 islensk tónlistarvika' á útvarpi Rót. Soffía Sigurðardóttir útvarpsstjóri og Jó- hann G. Jóhannsson tónlistarmaður opna islenska tónlistarviku á útvarpi Rót sem standa mun til 24.9. 9.30 Tónsprotinn. Leikin tónlist eftir íslensk tónskáld og með íslenskum hljóð- færaleikurum, kórum og einsöngvurum. Umsjón: Soffía Sigurðardóttir og Þórodd- ur Bjarnason. 10.30 i þá gömlu góðu daga. islenskar dægurlagaperlur fyrri ára leiknar og rætt við tónlistarmenn. Umsjón: Soffia Sigurð- ardóttir og Þóroddur Bjarnason. 12.00 Tónafljót. Leikin blönduð íslensk tón- list. 13.00 Klakapopp. Dægurlagatónlist síðari ára leikin og spjallað við tónlistarmenn. Umsjón: Steinar Viktorsson og Kristín Sævarsdóttir. 17.00 Búseti. 17.30 Laust. 18.00 Heimsljós. Trúarleg tónlist í umsjá Ágústs Magnússonar. 19.po Bland í poka. Tónlistarþáttur í umsjá Ólafs Hrafnssonar. 20.00 Fés. Unglingaþáttur. Umsjón: Bragi og Þorgeir. 21.00 Frat. Tónlistarþáttur með Gauta Sig- þórssyni. 22.00 Hausaskak. Þungárokksþáttur í um- sjá Hilmars Þórs Guðmundssonar. 23.30 Rótardraugar. Lesnar draugasögur fyrir háttinn. 24.00 Næturvakt a la ívar og Sigþór. STJARNAN FM 102,2 7.00 Þorgeir Ástvaldsson. Fréttir kl. 8.00 og 10.00. Stjörnuskot kl. 9.00. 9.00 Gunnlaugur Helgason. Getraunir, hádegisverðarpotturinn alltaf á sínum stað. Fylgst með Bibbu i heimsreisunni. Fréttir kl. 10.00, 12.00 og 14.00. 14.00 Margrét Hrafnsdóttir. Stjörnuskáldið á sínum stað. Eftir sexfréttir geta hlust- endur tjáð sig um hvað sem er í 30 sek- úndur. Bibba íheimsreisu kl. 17.30. Frétt- ir kl. 16.00 og 18.00. Stjörnuskot kl. 15 og 17. 19.00 Snorri Sturluson. 22.00 Haraldur Gíslason. 3.00 Næturvakt Stjörnunnar. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.10—8.30 Svæðisútvarp Norðurlands — FM 96,5. 18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands - FM 96,5. 18.03—19.00 Svæðisútvarp Austurlands. EFF EMM FM 95,7 7.00 Hörður Arnarson. 9.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie. 11.00 Steingrímur Ólafsson. 13.00 Hörður Arnarson. 15.00 Sigurður Gröndal og Richard Scobie. 17.00 Steingrímur Ólafsson. 19.00 Anna Þorláks. 22.00 Þorsteinn Högni Gunnarsson. 1.00 Sigurður Ragnarsson. 3.07 Nökkvi Svavarsson. ÚTRÁS FM 104,8 16.00 Kvennó. 18.00 MH 20.00 FG 22.00 MK 24.00 Næturvakt í umsjón Kvennó. Óska- lög og kveðjur. Leggir þú leið þína ó úrvalsleigu ó morgun? Láttu bessar toppmyndir ekki fram hjá hér fara. Útgáfudagur 18. sept. **uma se ' ton,istarinnar l!?a 1 a hkUfANiðurs^ur aL9íri,la Mið- a hofðu alvarleaar fn .°kna henn- iSSSSSSSg ^ðlauna tlI Oskars-' Œ2*:-GP«lLLA8to Tu1n. í. Þessarf A NÆSTU ÚRVALSLEIGU eftir Elínu Pálmadóttur TOL VUR OG VEIRUR Morgunútvarpið í fullum gangi. Ég bíð þess í þessu víðáttumikla, glæsilega anddyri Útvaipsshússins að vera kölluð að hljóðnema. Dyrnar opnar inn til stjórnenda Rásar tvö. Þeir eru að senda símtal út beint. For- svarsmaður Lottósins á línunni. Ég sperri eyrun. Býsna merki- legt það sem hann er að útskýra fyrir útvarpshlustendum. Til tess að tölvutækni Lottósins virki örugglega rétt, þarf að byggja undir tölvurnar 1200 fer- metra húsrými í nýrri Laugar- dalshöll. Það verða þær að fá til -jess að þær reikni nú örugglega rétt, sem allir vilja auðvitað. Al- veg ljóst! Því er ekki um annað að ræða en að snara út sínum 230 milijón krónum í nýja bygg- ingu. Undur og stórmerki! Ann- ars staðar geymir tölvu- tæknin einhver ósköp á smábit- um og sækir þangað ógrynni af upplýsingum. Þykir hið mesta hagræði og sparnaður á rými. Kannski tölvan hafi bara smitast þegar hún kom til íslands, hlaupið í hana íslensk veira. Ein af þessum víðáttuveirum, sem hér grassera og eru landlægar. Valda þvi sem kallá mætti húsrýmisbólgur. Húsnæðið bólgnar og tútnar út. íbúðir verða stærri með hveiju ári sem líður eftir því sem heimil- isfólki fækkar, skrifstofur fyrir- tækjanna blása út og frystihúsin og skipin geta ekki hætt að stækka þótt minna og minna komi í þau. Þar til bólgan er orðin svo mikil, þrýstingurinn svo ógnarlegur, að allt springur. Vellur út fjárfestingargröftur- inn. Þetta er alþekkt veira á ís- landi. En að hún hlypi í tölvur, það var merkilegt. Tölvur sem erlendis þurfa æ minna pláss fyrir æ meiri efnivið. Auka meira að segja alltaf hraðann við úr- vinnslu á verkefninu. Sýnilega ekki á íslandi! Ekki er gaman að þessu. Sjúkdómnum hlýtur að fylgja snerting af víðáttu- bijálæði, svo að taugakerfi tölvu- kerfisins vinnur ekki rétt nema hafa um sig ógnarrúma skel. Annars fer tölvan í kerfi! Við snerum okkur að öðru. Við mig vora þessir heiðursmenn bara að tala um hægfara segl- skip með löngu dauðum frönsk- um sjómönnum. Vippar sér þá inn í morgunþáttinn til okkar hann Jóhann Pétur Sveinsson í vel útbúna hjólastólnum sínum. Ætli hann sé ekki tölvuvæddur? Það era að minnsta kosti ekki tölvur smitaðar af íslandsveir- unni og stórar upp á sig sem þar koma við sögu. A þessum fína, aurslettótta stól var hann Jóhann Pétur búinn að aka frá Akureyri og hafði nú aðeins skroppið úr áningarstað uppi í Hvalfirði í bæinn til að tala við hlustendur um 30 ára afmælisdag Félags lamaðra og fatlaðra og fjársöfn- unarátakið af því tilefni. Enda íjáröflun brýn, eins og þjóðin skildi þegar þeir félagar voru búnir að vekja á því athygli með þessari frækiför frá Akun ri til Reykjavíkur. Sundlaugin við húsið þeirra í Hátúni ónothæf þangað til dýr viðgerð hefur far- ið fram og nýjar flísar komnar í stað þeirra ónýtu. Og í háhýs- inu, þar sem margir íbúarnir era svo mikið fatlaðir að þeir komast ekki á fætur hjálparlaust, er ekki einu sinni boðlegt bruna- varnakerfi. Þó era yfir 20 ár síðan húsið við Hátún 12 var byggt. Þetta var mikið áfall. Er slikt raunverulega til í okkar bruðlþjóðfélagi? Og nú vildi Jóhann Pétur leið- rétta við hlustendur misskilning. Hann hafði orðið var við að fólk héldi að óþarfi væri að vera að gefa í söfnunina vegna þess að lamaðir og fatlaðir fengju svo mikið fé út úr Lottóinu. Ekki færi þó króna til þessara verk- efna þótt Öryrkjabandalagið fái 40% af ágóðanum. Fyrir það væru byggðar íbúðir fyrir ör- yrkja, sem kæmu sér vissulega vel fyrir þetta fólk. En það væri allt annað. Var það þá ekki þetta sama Lottó, sem ætlaði að fara að byggja stórhýsi yfir sjúku tölvurnar, svo þær gætu unnið rétt? Þetta tengdist saman í hug- skotinu og tók að gára sinnið. Mætti ekki lækna þessar Is- landssýktu tölvur Lottósins, eða skipta út sýktum líkamspörtum, svo þær færa að hegða sér og starfa eins og tölvur gera yfir- leitt, án þess að vera með stór- hýsisbijálæði og hótanir um að vinna ekki rétt nema í nógu stóru húsi? Nota svo mismuninn til þess að koma upp branavarna- kerfi og sundlaug fyrir lamaða íslendinga eða ennþá fleiri íbúð- um fyrir öryrkja. Manni skilst að þar á bæ sé engin víðáttusýk- ing á ferð. Nú um helgina þykir öðrum félagsskap brýn þörf á að hefja söfnun fyrir húsnæði sem hentar mænusködduðu fólki, sem er bundið hjólastól um aldur og ævi og hefur engan stað að fara á eftir að endur- hæfingu lýkur. Það er víst bara til ein íbúð í landinu sem svoleið- is statt fólk verður að skiptast á um. Þetta er líklega ekki svo auð- velt viðureignar í landi þar sem meira að segja tölvutæknin er þeirrar náttúru að belgjast úr með víðáttubrjálæði. Hvernig er þá hægt að taka fram fyrir hana brúklega íbúðarskel utan um ein- hveija af þessum 300 einstakl- ingum, sem bíða í hjólastólum sínum á lista eftir lítilli sér- hannaðri íbúð? Nei, þeir verða vitanlega að bíða. Það ættu allir að geta skilið. Tölva með sér- þarfir hlýtur að hafa forgang.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.