Morgunblaðið - 17.09.1989, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÖ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 17. SÉPTEMBER 1989
Lifandi starf við
bókaútgáfu
Bókaútgáfan Vaka - Helgafell hf. óskar eftir
starfskrafti í útgáfudeild. Um er að ræða fjöl-
breytt og lifandi starf sem meðal annars
felst í vinnu við klúbbrit okkar, tölvuumbrot
og umsjón með skjala- og myndasafni.
Við leitum að starfskrafti sem er lipur, áreið-
anlegur og sveigjanlegur. Þekking á tölvum
er nauðsynleg og góð ritvinnslukunnnátta.
Einnig er æskilegt að kunnátta í tölvuum-
broti sé fyrir hendi. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Skriflegar umsóknir berist fyrir 22. septemb-
er til Vöku - Helgafeils, Síðumúla 29, 108
Reykjavík. Frekari upplýsingar veitir Þórarinn
Friðjónsson, útgáfustjóri í síma 688300.
VAKA
HELCAFELL
LANDSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
Skurðstofuhjúkrunarfræðing vantar í að-
stoðardeildarstjórastöðu við beinskurð-
lækningar. Um afleysingarstöðu er að ræða
í óákveðinn tíma.
Einnig vantar skurðstofuhjúkrunarfræðing
í K-1 stöðu.
Umsóknarfrestur er til 23. september nk.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri í síma 601306 eða 601300.
Reykjavík 17. september 1989.
Verkstjóri:
Þvottur-hreinsun
Verkstjóri óskast í Fönn, sem er með mikil
og vaxandi umsvif, í þvotti og hreinsun. Við-
komandi þarf að vera stundvís, reglusamur,
geta unnið sjálfstætt og skipulega.
Starfið er krefjandi stjórnunarstarf sem út-
heimtir góða skipulagshæfileika og yfirlit yfir
fjölbreytta starfsemi.
í boði er starf í mjög góðri vinnuaðstöðu og
góð laun fyrir réttan mann.
Upplýsingar í síma 82220 mánudag kl.
10-12.
KAUPSTAÐUR
ÍMJÓDD
Kjötafgreiðsla
Viljum ráða hreinlegt, þjónustulipurt og
geðgott fólk til kjötafgreiðslu í verslunum
okkar í:
- Miklagarði vestur í bæ,
- Miklagarði við Sund,
- Kaupstað í Mjódd.
Hér er um heilsdagsstörf að ræða sem
gætu þó skiptst milli tveggja starfsmanna.
Allar upplýsingar veitir starfsmannastjóri á
þriðju hæð í Kaupstað í Mjódd, mánudag, og
í síma 675000 einnig í Miklagarði við Sund,
þriðjudag kl. 14.00 til 17.00.
AIIKLIG4RÐUR
Krefjandi
stjórnunarstarf
Rótgróið innflutningsfyrirtæki í Reykjavík
hefur beðið okkur að útvega sér starfsmann
í stöðu stjórnanda til að takast á við fjöl-
breytt verkefni í uppbyggingu og rekstri fyrir-
tækisins.
Um er að ræða krefjandi stjórnunarstarf þar
sem viðkomandi starfsmaður þarf í upphafi
að taka að sér fjármálastjórn og bókhald, síðan
sölustjórn og ef vel tekst til og árangur í starfi
er mikill, framkvæmdastjörn fyrirtækisins.
Fyrirtækið starfar við innflutning og sölu á
vörum til matvöruverslana, mötuneyta og
veitingahúsa. Allar vörur fyrirtækisins eru
þekkt vörumerki og standast alla samkeppni
varðandi gæði.
Leitað er að ungum baráttuglöðum, metnað-
arfullum og vel menntuðum einstaklingi, sem
tilbúinn er til stórra átaka, og um leið, leggja
töluvert á sig til að ná árangari.
í boði er áhugavert starf hjá fyrirtæki þar
sem nýjar og ferskar hugmyndir fá hljóm-
grunn. Ágæt laun í boði fyrir réttan aðila,
sem mundu auðveldlega hækka í samræmi
við áhuga og árangur í starfi.
Umsóknareyðublöð, ásamt frekari upplýsing-
um um störf þessi, eru veittar á skrifstofu
okkar í Hafnarstræti 20.
Teitur lÁRUSSON^^
STARl'SMANNA ráðningarþjónusta. launaútrf.ikningar.
ÞJÓNUSTA NÁMSKFIÐAHAI.D. RÁDGJOK
hf. HAFNARSTRÆTI 20. VID LÆKJARTORG. 101 REYKJAVÍK
SÍMI 624550
PACVIST BABWA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277:
VESTURBÆR
Ægisborg Ægissíðu 104 s. 14810
Grandaborg Boðagranda 9 s. 621855
Valhöll Suðurgötu 39 s. 19619
BREIÐHOLT
Hraunborg Hraunbergi 12 s. 79600
Hálsaborg Hálsaseli 27 s. 78360
HEIMAR
Langholt Dyngjuvegi 18 s. 31105
Sunnuborg Sólheimum 19 s. 36385
AUSTURBÆR
Nóaborg Stangarholti 11 s. 29595
Efrihlíð v/Stigahlíð s. 83560
Múlaborg Ármúla 8a s. 33617
ÁRBÆJARHVERFI
Árborg Hlaðbæ 17 s. 84150
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Hjúkrunarfólk!
Óskum að ráða nú þegar, eða eftir nánara
samkomulagi, í eftirtalin störf:
1. Hjúkrunarfræðinga í vaktavinnu á legu-
deild.
2. Svæfingahjúkrunarfræðing í 60% starf
við svæfingar og umsjón með neyðar- og
endurlífgunarbúnaði. Sjálfstætt og krefj-
andi starf á nýrri skurðdeild. Ný tæki og
búnaður. Bakvaktir. Möguleiki á hluta-
starfi við hjúkrun á legudeild á móti svæf-
ingastörfum.
3. Sjúkraliða í vaktavinnu á legudeild.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri alla virka
daga í síma 94-4500 frá kl. 8.00-16.00.
4. Sjúkraþjálfara bráðvantar í fullt starf á
nýja og vel búna endurhæfingadeild
(tækjasalur, bekkjasalur fyrir strekkmeð-
ferð, nudd, bakstra, hljóðbylgjur, leiser
o.þ.h., sundlaug, nuddpottur).
Upplýsingar veitir deildarsjúkraþjálfari alla virka
daga í síma 94-4500 frá kl. 8.00-16.00.
Sérstök athygli er vakin á mjög góðri vinnu-
aðstöðu og heimilislegum starfsanda í
splunkunýju og vel búnu sjúkrahúsi. Fjöl-
breyttni í ofangreindum störfum er mikil
og nær til umönnunar og þjónustu við fóik
á öllum aldri.
%
Den kongelige danske Ambassade soger to
medarbejdere, fortrinsvis omkring 35-45 ár,
til tiltrædelse henholdsvis den 15. oktober
1989 og den 1. november 1989, eller eventu-
elt efter nærmere aftale.
Arbejdsomrádet, som ipvrigt er fleksibelt,
kræver selvstændighed og omfatter bog-
holderi, arkiv-, sekretariats-, og receptions-
funktioner.
Der fordres godt kendskab i skrift og tale
til dansk og islandsk samt kendskab til eng-
elsk og maskinskrivning. Kendskab til steno-
grafi og til elektronisk tekstbehandling (Word
Perfect) vil være en fordel.
Skriftlig ansogning pá dansk indeholdende
personlige data, oplysninger om uddannelse
samt tidligere og eventuel nuværende be-
skæftigelse bedes være.
KGL. DANSKAMBASSADE
Hverfisgata 29
Postboks 1540
121 Reykjavik
i hænde senest mandag den 25. september
1989.
Ansogningerne behandles i fortrolighed.
Konunglega danska sendiráðið óskar að ráða
2 starfsmenn, einkanlega milli 35-45 ára, til
starfa 15. október 1989 og 1. nóvember
1989, eða eftir samkomulagi.
Starfsviðið, sem er breytilegt og þarf sjálf-
stæði, er m.a. fólgið í bókhaldi, skjalasöfnun,
ritara- og afgreiðslustörfum.
Krafist er góðrar kunnáttu í vélritun, skrif-
og talmáli, bæði íslensku og dönsku ásamt
þekkingu á ensku. Þekking á hraðritun og
tölvukunnáttu (Word Perfect) væri æskileg.
Skrifleg umsókn á dönsku með upplýsingum
um fæðingardag og -ár, menntun og fyrri
störf ásamt núverandi starfi, sendist til:
KGL. DANSKAMBASSADE
Hverfisgötu 29
Póstbox 1540
121 Reykjavík
í síðasta lagi fyrir mánudaginn 25. september
1989.
Með allar umsóknir er farið sem trúnaðarmál.