Morgunblaðið - 17.09.1989, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR L7. SEPTEMBER 1989
Núþykir
mérgott
Um daginn kom sonur minn
hlaupandi með gulnaða
sauðarvölu sem ég hef liggjandi á
tölvunni minni. Hann spurði hvað
þetta væri. Ég sagði honum það
og að hún amma
min hefði notað
hana til þess að
spá fyrir mér.
Ekki get ég nú
rakið hvernig
hún bar sigað við
það. En svo
spurði ég sjálfan
mig, hvers vegna
hefurðu aldrei
skrifað um hana ömmu þína
drengur, skrifandi þó um konur í
stærsta blað landsins? Þá konu
þekktirðu þó. Ekki það að þessi
skrif verði nokkurn tíma barn í
brók og allra síst svo hæfi stórri
konu eins og henni ömmu minni.
En það má taka viljann fyrir verk-
ið.
eftir Sigurð G.
Tómasson
Hún amma min var barn ann-
arrar aldar. Hún var fædd 1870
og mundi vel harðindaveturinn
mikla 1882, sem kallaður var
lurkur. Hún var þá í fóstri austur
í Þingvallasveit og var í barns-
minni þegar bændur úr Grafningi
og komu á bæ seinni hluta vetrar
og fengu kvartél af saltaðri murtu
til þess að fara með heim. Þeir
voru hungraðir og átu murtuna
beint úr tunnunni, bruddu haus
og bein með. Hún mundi lika eftir
jarðskjálftunum miklu 1896. Þá
var hún ung kona austur í Holt-
um. Manninn missti hún í Ing-
varsslysinu 1906. Þá höfðu ungu
hjónin komið sér upp nýrri bað-
stofu á kotinu sem þau höfðu til
ábúðar. Ekki var karlpeningurinn
í sveitinni á því að ung ekkja með
þijú börn ætti nokkurt erindi í
búhokur. Baðstofan var því tekin
ofan — og sveitungarnir stálu tim-
brinu. Næstu árin var amma í
vinnumennsku — hún var reynd-
ar sterkefnuð á þeirrar tíðar mæli-
kvarða því áhöfnin á Ingvari var
líftryggð — og börnin sáu fallegu
bláu fjalirnar úr baðstofunni í
Parti notaðar í árefti á stórbæjun-
um í sveitinni. Ekki bugaðist hún
amma mín við þetta. Hún vildi
helst ekki tala um það en ef hún
var spurð hver hefði stolið tim-
brinu svaraði hún: „Æ, það var
einhver Snjólfur i Nabba.“
Ég sagði áðan að hún hefði
verið stór. Hún var svona um
hálfur annar metri á hæð. En hún
var risi í andanum. Hún var
smælingi af konungakyni. Hún
gat verið ansi nöpur og meinyrt,
en oftast talaði hún þó undir rós
og lá yfirleitt ekki illt orð til neins.
En hún beygði sig ekki fyrir nein-
um. Hugtök eins ogjafnrétti voru
henni ókunn, því hún var höfð-
ingi og vissi það vel. Ef hún átti
ekkert annað lifði hún á stoltinu.
Hún kunni milljón sögur og vísur
og málshætti og orðtök og ekki
helmingurinn af þvi er til á bók.
Hún var trúrækin kona, hún
amma mín, enda taldi hún það
sér til ágætis að vera komin af
prestum, án þess að hafa það á
orði. Hún byijaði hvern dag á því
að signa sig, á sunnudögum sat
hún fyrir framan útvarpið og
hlustaði á messu og alla föstuna
fylgdist hún með passíusálmun-
um og raulaði mcð, því þá kunni
hún alla. Hún var lítið gefin fyrir
nýjungar, barðist ekki opinskátt
á móti þeim, heldur leiddi þær hjá
sér. Hún kallaði mjólkurhyrnur
ævinlega punga, en þegar hún fór
í mjólkurbúðina, sem hún gerði
daglega þótt hún væri orðin blind,
bað hún bara um p, ef aðrir voru
í búðinni. Hún vildi ekki troða
fólki um tær, þótt hún hefði sína
sérvisku. Hún tók í nefið síðustu
áratugina, en fór leynt með það
því henni fannst það ekki fínt.
Ég er ekki viss um að dósirnar
hennar hafi nokkurn tima farið í
vasann á sparisvuntunni. En þeg-
ar hún var ein i eldhúsinu, fékk
sér kaffisopa og i nefið, sagði hún
og dæsti: „Nú þykir mér gott. eins
og kerlingin sagði . . . " Eg sleppi
því sem kom á eftir, því það sagði
hún amma mín aidrei, svo aðrir
mættu heyra.
Morgunbladið/BAR
HANDBOLTI
Vertíðin að heflast
Nú þegar dregur að hausti fara
handboltamenn að hugsa sér
til hreyfings. íþróttafélögin hafa
verið með handboltaskóla fyrir
yngstu íþróttamennina enda talið
heppilegt að börn læri undirstöðuat-
riði íþróttarinnar sem allra fyrst.
Ljósmyndari brá sér á æfingu hjá
handboltaskóla Víkings, þar sem
æft var og keppt af miklum áhuga
undir stjórn þjálfarans Siggeirs
Magnússonar.
Hér er stórsókn í fæðingu en vörnin er við öllu búin.
Það voru 20 hressir krakkar sem
æfðu undir stjórn Siggeirs Magn-
ússonar.
Batmanísinn er gómsætur og engu ööru líkur,
svartur og gulur með lakkrís- og vanillubragði.
Batmanísinn fæst bara í ÍSHÖLLINNI.
VERÐ: LÍTILL BATMANÍS .. 99 kr.
STÓR BATMANÍS .. 149 kr.
Þetta verö gildir alla daga vikunnar!
ÚTSÖLUSTAÐIR: GERÐUBERGI, HALLÆRISPLANI, MELHAGA, KRINGLUNNI (ath. opiö á sunnudögum).