Morgunblaðið - 27.09.1989, Síða 1
48 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
219. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Slóvenar taka sér vald til að segja
sig úr ríkjasambandinu:
Mesta ögrun gegn
r í kj asambandinu
frá stofiiun þess
Belgrað. Reuter.
LEIÐTOGAR kommúnistaflokksins í júgóslavneska lýðveldinu Slóveníu
sögðust í gær mundu breyta stjórnaskrá lýðveldisins í dag. Ætla þeir
að taka sér vald til þess að segja lýðveldið úr júgóslavneska ríkjasam-
bandinu.
Ciril Ribieic, sem sæti á í stjórn-
málaráði Slóveníu, sagði að fyrir-
huguð breyting á stjórnarskrá lýð-
veldisins, yrði fólgin í þvi að.leið-
togar þess öðluðust rétt til að segja
það úr ríkjasambandinu ef tiilaga þar
um hlyti samþykki í allsheijarat-
kvæðagreiðslu.
Æðsta stjórn Júgóslavíu er í hönd-
um átta manna sambandsstjórnar,
24 iðnríki:
Efiiahagsaðstoð
við Ungverja
ogPólverja
Brussel, Wpshiiigröií. Reuter.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins hefur lagt fram
áætlun um að bandalagið verji
300 miljónum bandaríkjadala,
um 18,6 miljörðum ísl. kr., til
efiiahagsaðstoðar við ungversk
og pólsk stjórnvöld á næsta ári.
Aætlun bandalagsins kom fram
á fundi sérfræðinga frá 24 iðnríkj-
um, þar á meðal Islandi, sem hafa
það verk með höndum að skipu-
leggja stuðning iðnríkja heims við
efnahagsumbætur í þessum lönd-
um. Framkvæmdastjórnin leggur
ennfremur til að þjóðir utan Evr-
ópubandalagsins leggi fram svipaða
upphæð þannig að aðstoðin nemi
alls 650 miljónum bandaríkjadala,
um 40 miljörðum ísl. kr.
sem stjórnar sameiginlegum her og
getui' lýst yfir neyðarástandi í ein-
stökum lýðveldum.
Sambandsstjórnin ieggst gegn
.stjórnarskrárbreytingum í Slóveníu
er skerða völd hennar. Komu leið-
togar -|ftgós!avneska kommúnista-
flokksmS'’Saman til sérstaks neyðar-
fundar í Belgrað í gær. Þar stóð til
að ákveða viðbrögð við hótunum
Slóvena sem eru mesta ögrun gegn
lýðveldasambandinu frá stofnun þess
1945.
Þá kom stjórnarskrárnefnd júgó-
slavneska þingsins saman til fundar
í gær til þess að fjalla um þá kreppu,
sem upp er komin í samskiptum lýð-
veldanna. Fulltrúar Slóveníu í nefnd-
inni mættu ekki til fundarins. Fyrir-
hugaður var fundur júgóslavneska
þingsins síðdegis í gær.
Reuter
Víetnamski herinn
yfírgefúr Kambódíu
Víetnamar fluttu hersveitir sínar frá Kambódíu í gær og á mynd-
inni er síðasta víetnamska herbílnum ekið yfir landamærin. Ell-
efu ár eru frá því víetnamski herinn réðst inn í Kambódíu og
hrakti Rauðu khmerana frá völdum. Fregnir hafa borist af bardög-
um milli stjórnarhersins og Rauðu khmeranna nærri bænum
Peillin um 10 km frá landamærum Tælands. Yfirmaður í herliði
Rauðu khmeranna hefur lýst því yfir að markmið þeirra sé að
ná næststærstu borg landsins, Battambang, innan tíðar á sitt vald.
Reuter
Alison Davis
Missti meðvit-
und og lifði af
gífurlegt fall
London. Reuter.
ALISON Da-
vis, 24 ára
gamall fall-
hlífastökkv-
ari, lifði af
1.100 metra
fall til jarðar
á mánudag.
Fallhlíf henn-
ar opnaðist ekki og segja lækn-
ar að hún sé í tölu lifenda af
því að hún féll í yfirlið áður en
hún skall til jarðar.
Læknar sögðu Alison að við
yfirliðið hefði slaknað á vöðvum
hennar. Hefði líkami hennar verið
stífur hefði hún samstundis beðið
bana er hún snerti jörðu.
Alison mjaðmagrindarbrotnaði
auk þess sem hún brotnaði á kjálka
og öxl. Hún kvaðst hafa fyllst
ofsahræðslu þegar hún leit upp
og sá að strengirnir í fallhlífinni
höfðu flækst saman. „Ég missti
meðvitund og man ekki þá stund
er ég skall á jörðinni," sagði hún
í viðtali við breska dagblaðið Daily
Mail.
Sovétmenn leggja til að eftiavopnum verði algerlega útrýmt:
Bandaríkjamenn fagna
tillögnm Shevardnadze
Sameinuðu þjódunum. Reuter.
EDÚARD Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
lagði til í gær á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í New York
Beirút-búar snúa aftur:
Vonir um varanlegan frið
Beirút. Daily Telegraph. Reuter.
ÞÚSUNDIR manna hafa undanfarna daga yfirgefið sveitir og
Qaliahéruð Líbanons og snúið aftur til heimkynna sinna í Beir-
út, höfuðborg landsins. Margra mánaða sprengjuregni linnti
neíhilega í borginni um helgina þegar vopnahlé komst á fyrir
tilstilli Arababandalagsins.
Flugvöllurinn í Beirút var opn-
aður um helgina en hann hefur
verið lokaður í sex mánuði eða
síðan Michel Aoun, yfirmaður
hers kristinna manna, ákvað að
reyna til þrautar að hrekja her
Sýrlendinga úr landinu. Flestir
íbúar Líbanons líta á opnun flug-
vallarins ■ sem mikilsverðustu
vísbendinguna um að vopnahléð
nú eigi eftir að endast. Það gerð-
ist einnig á mánudag að fyrsta
flutningaskipið lagði að bryggju
í kristilega hluta Beirút síðan
Sýi'lendingar lokuðu höfninni 21.
mars síðastliðinn þegar sókn Ao-
uns hófst.
Fimm vegir milli austur- og
vesturhluta Beirút hafa nú verið
opnaðir og hei'menn hafa unnið
að því að fjarlægja jarðsprengjur
og vegatálma þaðan.
Líbanskir þingmenn hafa verið
kvaddir til óformlegs fundar í
Saudi-Arabíu nk. laugai'dag til að
ræða leiðir til að reisa stjórnkerfi
landsins úr rústum. I fyrra þegar
þingmenn funduðu síðast mis-
tókst þeim að koma sér saman
um eftirmann Amins Gemayels
forseta landsins og ýttu þannig
undir stjórnleysi. I friðaráætlun
Arababandalagsins er gert ráð
fyrir fundarstað utan Líbanons til
að firra þingheim þrýstingi frá
stríðandi aðiljum í landinu.
Reuter
Ali Haidar, tíu ára gamall
líbanskur drengur, lék sér í
gær að sprengjubrotum í Beir-
út en þar er lífið nú að færast
í eðlilegt horf.
að Sovétmenn og Bandaríkja-
menn eyddu öllum efhavopna-
birgðum sínum. Hann lagði enn-
fremur til að ríkin hættu fram-
leiðslu efiiavopna jaftivel áður en
alþjóðlegt bann um slíka fram-
leiðslu yrði undirritað. A mánu-
dag lýsti George Bush Banda-
ríkjaforseti því yfir að Banda-
ríkjamenn væru reiðubúnir að
eyða strax 80% af efhavopnum
sínum að því tilskildu að Sovét-
menn gerðu slíkt hið sama. Auk
þess lagði Bush fram áætlun um
algera útrýmingu eftiavopna á
tíu árum. Marlin Fitzwater, tals-
maður Bandaríkjaforseta, sagði
að tillögur sovéska utanríkisráð-
herrans undirstrikuðu að stjórn-
völd í Moskvu og Washington
stefndu að sömu markmiðum.
„Viðbrögð Sovétmanna voru afar
uppbyggileg,11 sagði Fitzwater.
í ávarpi sínu sagði Shevardnad-
ze að Sovétmenn fögnuðu tillögum
George Bush Bandaríkjaforseta
um takmörkun efnavopna og að
þær væru til marks um sameigin-
lega ósk risaveldanna um útrým-
ingu slíkra vopna. „Sovésk stjórn-
völd eru reiðubúin tii að stíga enn
lengra skref, í samvinnu við
bandarísk stjórnvöld."
I tillögum Shevardnadze er gert
ráð fyrir að framleiðslu efnavopna
verði hætt, þar á meðal hættu-
lausra efna sem eru banvæn þegar
búið er að setja þau saman og
framleidd hafa verið í Banda-
ríkjunum um nokkurt skeið. Einn-
ig að bandarískum og sovéskum
efnavopnum verði fækkað veru-
lega eða með öllu útrýmt og verði
það áfangi í alþjóðlegu banni um
notkun efnavopna. Að fallið verði
skilyrðislaust frá beitingu efna-
vopna og að komið verði á ströngu
eftirliti með framleiðslu og útrým-
ingu þeirra.
Shevardnadze sagði að þrátt
fyrir að höfundar kenningarinnar
um kjarnorkufælingu teldu útilok-
að að útrýma kjarnorkuvopnum í
fyrirsjáanlegri framtíð þá væri það
ekki í þágu hagsmuna nokkurrar
þjóðar að treysta á kjarnorkuvopn.
Hann sagði að hugmynd þeirra
um svonefnda lágmarks kjarn-
orkufælingu „væri skref fram á
við, þótt lítilvægt væri“, en að
fyrst yrði að skilgreina hugtakið.
„Sovésk stjórnvöld leggja til að
þessar hugmyndir verði ræddar á
fundi fulltrúa kjarnorkuveldanna
og þeirra ríkja sem hafa kjarn-
órkuvopn innan sinna landa-
mæra.“
Shevardnadze sagði að sovésk
stjórnvöld væru hlynnt tillögu
Bandaríkjaforseta um réttindi til
að fljúga yfir landssvæði annarra
þjóða (Open Skies).