Morgunblaðið - 05.10.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989
Hugmyndir ráðgjafanefiidar um undirbúning kynningarátaks:
ísland kynnt sem land
hreinleika og hollustu
SKÝRSLA ráðgjafanefndar um undirbúning sérstaks kynningar-
átaks Islands á sviði markaðsmála var kynnt fjölmiðlum í gær. I
skýrslunni koma fram hugmyndir um að unnið verði markvisst að
því að kynna Island á erlendum vettvangi með tilliti til hreinleika,
hollustuhátta og heilbrigðis og að bent verði sérstaklega á stöðu
umhverfísmála á Islandi í þessu sambandi. Engar ákvarðanir hafa
verið teknar um hvenær, eða hvort, hugmyndum þessum verður
hrint í framkvæmd.
Nefndina skipaði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
janúar sl. í nefndinni sátu: Baldvin
Jónsson auglýsingastjóri, formað-
ur, Björn Theódórsson fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Flug-
leiða, Jón Sveinsson aðstoðarmaður
forsætisráðherra, Magnús Gunn-
arsson formaður Útflutningsráðs,
Ragnhildur Hjaltadóttir skrifstofu-
stjóri í samgönguráðuneytinu, Stef-
án Friðfinnsson aðstoðarmaður ut-
anríkisráðherra og Kjartan Lárus-
son formaður Ferðamálaráðs.
Forsætisráðherra sagði, þegar
hann kynnti skýrsluna, að horfa
yrði fram á veg og leita nýrra leiða
til að tryggja áframhaldandi vel-
megun á íslandi. Hugmyndir nefnd-
arinnar, sem forsætisráðherra sagði
að kölluð hefði verið „bjartsýnis-
nefndin", eru meðal annars þær,
að Islendingar geti tekið frumkvæð-
ið í umhverfísmálum og nýtt sér
árangur skipulegra kynningarher-
ferða og markaðsaðgerða. Breskir
ráðgjafar nefndarinnar vörpuðu
meðal annars fram þeirri hugmynd,
að íslendingar veiti alþjóðleg um-
hverfisvemdarverðlaun, sem væru
sambærileg við Nóbelsverðlaunin
hvað vegsauka og virðingu snerti.
Þá vekur nefndin athygli á, að á
Islandi séu góðar aðstæður til að
stuðla að heilbrigðu lífi í óspilltri
náttúru og miklir möguleikar á að
byggja upp heilsuræktarstöðvar,
þar sem bjóða mætti hópum og ein-
staklingum aðstöðu til hvíldar og
endurhæfingar. Þá gætu íslending-
ar tekið forystu í forvamaraðgerð-
um á sviði heilbrigðismála.
Nefndin nefnir hugmyndir um
að auka fijálsræðið á íslenskum
Q'ármálamarkaði, til dæmis að gera
Island að fríverslunarsvæði með
fjármagn. Þá hefur áður verið
skýrt frá hugmyndum um alþjóðlegt
„lottó“, sem stjórnað yrði gegnum
gervihnattasendingar og símalínur.
, . MorgijnDiaoio/juiius
Skýrsla rádgjafanefndar um undirbúning sérstaks kynningarátaks
Islands á sviði markaðsmála var kynnt fjölmiðlum í gær. Það gerðu
þeir Jón Sveinsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra og Baldvin Jónsson, auglýsinga-
stjóri, sem var formaður ráðgjafanefíidarinnar.
Á fundi forsætisráðherra með
fréttamönnum, þar sem skýrslan
var kynnt, var mikið fjallað um
aukna áherslu á kynningu á íslandi
og íslenskum afurðum erlendis.
Reifaðar voru hugmyndir um að
stefna bæri að sameiningu utflutn-
ingsráðs og Ferðamálaráðs. Nefnd-
in varpaði fram þeirri hugmynd, að
til þess að standa straum af kostn-
aði vegna stefnumörkunar um for-
ystu íslands á sviði umhverfísmála
og öfluga kynningarstarfsemi gæti
hagnaður af rekstri fríhafnarinnar
á Keflavíkurflugvelli runnið til
þessa. Á þessu ári er sá hagnaður
áætlaður um 218 milljónir króna.
Talið er að um 250 milljónir þurfi
árlega til að hrinda hugmyndunum
í framkvæmd, en að sögn forsætis-
ráðherra er ekki áætlað að leggja
fram það fé á þessu eða næsta ári.
VEÐURHORFUR í DAG, 5. OKTÓBER:
YFIRLIT í GÆR: Um 350 km vestur af landinu er 982 mb lægð
sem þokast norðvestur en síðan austur. Veður fer heldur kóln-
andi, einkum sunnanlands og vestan.
SPÁ: Sunnan- og suðvestangola eða kaldi um mest allt land. Skúrir
á Vestur- og Suðvesturlandi, en sums staðar dálítil rigning eða
súld við norðausturströndina. í öðrum landshlutum er búist við
þurru og björtu veðri. Heldur kólnandi í bili.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Breytileg átt og þurrt að kalla um land
allt. Víða næturfrost inn til landsins, en annars hiti 3 til 8 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnan- og suðvestanátt. Rigning eða
súld um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt að mestu á Norð-
austurlandi og á Austfjörðum. Hiti á bilinu 8 til 14 stig.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
■JQ° Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrír
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri 11 súld Reykjavík 11 súld
Bergen 9 skýjað
Helsinki 9 alskýjað
Kaupmannah. 11 skýjað
Narssarssuaq heiðskírt
Nuuk +1 léttskýjað
Osló 11 hálfskýjað
Stokkhólmur 10 skýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Algarve 26 þokumóða
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 14 léttskýjað
Chicago 1 heiðskírt
Feneyjar 18 léttskýjað
Frankfurt 14 léttskýjað
Giasgow 14 mistur
Hamborg 14 hálfskýjað
Las Palmas 27 skýjað
London 18 skýjað
Los Angeles 14 heiðskírt
Lúxemborg 15 léttskýjað
Nladrid vantar
Malaga 25 heiðskírt
Mallorca 26 hálfskýjað
Montreal 3 alskýjað
New York 9 iéttskýjað
Orlando 22 léttskýjað
París 16 skýjað
Róm 20 heiðskirt
Vin 12 skýjað
Washington 10 léttskýjað
Wínnipeg vantar
„Unglingar gegn ofbeldi“
Meginverkefni að færa umræðuna
til unglinganna sjálfra
Á kynningarfúndi sem efnt var til í Tónabæ í gærdag um herferðina
„Unglingar gegn ofbeldi" kom fram að ofbeldi meðal unglinga hefði
aukist hægt en stígandi á undanförnum árum og jafhframt yrði of-
beldið stöðugt grófara.
Fundarstjóri var Sveinn Ottóson
starfsmaður útideildar í Reykjavík.
í máli hans kom fram að síðasta
vetur hefðu starfsmenn útideildar
orðið varir við vaxandi ofbeldi og
að þeir verið ráðþrota og úrræðalitl-
ir um hvemig taka ætti á vandanum.
Þar að auki hefði það svo gerst að
ráðist var á einn starfsmanna deild-
arinnar.
í framhaldi af þessu kom upp
hugmynd um að efna til kynningar-
og fræðsluherferðar meðal unglinga
um þessi mál. Upphaflega átti her-
ferðin að vera s.l. vor en datt þá
uppfyrir vegna verkfalls kennara.
Henni var þó haldið lifandi og fleiri
aðilar fengnir inn í dæmið. Þar að
auki var grundvöllurinn víkkaður
þannig að nú er rætt um ofbeldi í
öllum sínum myndum meðal ungl-
inga, líkamlegt, andlegt, félagslegt
og kynferðislegt.
Frummælendur á fundinum auk
Sveins voru Ólafur Oddsson frá
Rauða krossinum, Ómar Smári Ár-
mannsson frá lögreglunni, Árni Stef-
án Jónsson tómstundafulltrúi Kópa-
vogs og Soffía Pálsdóttir forstöðu-
maður félagsmiðstöðvarinnar í Graf-
arvogi. Á fundinn voru boðaðir full-
trúar grunnskóla, félagsmiðsstöðva,
lögreglu, skáta, ungmennafélaga,
Rauða krossins og nemenda auk
æskulýðsfulltrúa Þjóðkirkjunnar.
í máli Ómars Smára aðstoðaryfir-
lögregluþjóns í forvarnatíeild kóma
fram að lögreglan fagnar því undir-
búningsstarfi sem unnið hefur verið
í kringum herferðina og telur fulla
ástæðu til að taka á þessum málum
nú. Hann sagði að aukning ofbeldis
nú væri ekki í einu stökki heldur
hæg og stígandi þróun. Við þeirri
þróun yrði að bregðast strax.
Árni Stefán Jónsson, sem sæti á
í undirbúningsnefndinni, sagði að
meginverkefnið væri að færa um-
ræðuna um þessi mál til unglinganna
sjálfra og fá þá til að vera virka
þátttekendur í henni.
í máli allra sem tóku til máls kom
fram að vandamálið er bundið við
mjög fámennan hóp unglinga, um
eða innan við 1% af þeim. Megin-
þorri unglinga væri að gera góða
hluti eins og mikil aukning á þátt-
töku í íþrótta-og félagsstarfi bæri
vott um.
Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins:
Tekjur ríkisins af mjólk
meiri en niðurgreiðslur
Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins hefúr sent frá sér athugasemd
þar sem fram kemur að sú upphæð sem ríkissjóður ver til niður-
greiðslna á mjólk og mjólkurafúrðum sé nokkru lægri en skattar og
gjöld sem ríkissjóður innheimtir í beinum tengslum við nyólkurfram-
leiðslu og sölu mjólkurafúrða.
í athugasemdinni segir að miðað
við verð 1. september síðastliðinn
og sölumagn á öllum mjólkurafurð-
um síðustu 12 mánuði þar á undan
komi í ljós að niðurgreiðslur ríkis-
sjóðs miðað við seldar afurðir og
verð þeirra í september séu alls
1.968 milljónir króna. Gjöld þau sem
ríkissjóður innheimti af framleiðslu
og sölu þeirra sé hins vegar saman-
lagt um 2.081 milljón króna. Þar sé
um að ræða söluskatt, sem er 1.600
milljónir, söluskatt á aðföng, sem
er um 280 milljónir og sérstakt
grunngjald af kjarnfóðri, sem er á
bilinu 120-200 milljónir króna. Tekj-
ur ríkisins vegna mjólkurframleiðsl-
unnar séu því um 113 milljónir
króna. Fram kemur að þessar niður-
stöður séu byggðar á verðútreikn-
ingum fimmmannanefndar og á
tölum úr skýrslum Framleiðsluráðs
landbúnaðarins um framleiðslu og
sölu mjólkur og mjólkurvara. Áætlun
um söluskatt aðfanga sé byggð á
skýrslu stjórnskipaðrar nefndar frá
árinu 1983. Útreikningur á grunn-
gjaldi á kjarnfóður vegna mjólkur-
framleiðslu byggi á reglugerð um
það gjald og áætlun Framleiðsluráðs
um magn erlends kjarnfóðurs til
mjólkurframleiðslu, en nákvæmar
skýrslur um skiptingu milli búgreina
séu ekki til.