Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 35
í okkar augum felagæði í sérgotthráefni, vandaða
smíði, fallegt útlit og viðráðanlegt verð.
Allt þetta má finna í Junckers parketinu sem
fengist hefur á íslandi í yfir 50 ár. Það hefur
ávallt verið stefnan hjá Junckers að verða fremst-
ir á meðal jafninga í framleiðslu á gegnheilu
parketi.
Vegna reynslu sinnar í viðargólfum, burðargrind-
um oglagningarraðferðum er Junckersnú stærsti
framleiðandi ágegnheilu parketi í Evrópu. Síðast
en ekki síst hafa Junckersmenn þróað eigin lökk
og olíur fyrir parketið undir nafninu Blitsa. Fag-
menn jafnt sem leikmenn þekkja Blitsa-vörurn-
ar af góðri raun.
JUNCKERS
tílX'.MH'JlX PARKPI
Bæklingurinn er hér.
Komid og fáid ókeypis
eintak - póstsendum
um allt land.
EaiH
Arnason
ÁRMÚIA 8,108 REYKJAVÍK, SÍMI 82111
'HfiOTþO .’. '!' ' t:" -n k-.j.i-’i
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTOBER 1989 ‘
Helgarskákmótið á Egilsstöðum:
Fyrsti nuddskólinn á íslandi
eftirRaíh Geirdal
Þau leiðu mistök áttu sér stað
að nuddskóli sá sem ég hef sett á
fót, var nefndur sjúkranuddskóli,
í einum stað í fréttatilkynningu
um skólann, fimmtudaginn 21.
september sl. Ég hafði sjálfur beð-
ið um leiðréttingu á þessu og taldi
það nægja. Af einhveijum ástæð-
um vildi Sjúkranuddarafélag ís-
lands einnig koma þessari leiðrétt-
ingu á framfæri, sem hafði í för
með óæskilegar spurningar um
gæði nuddskólans. Því finn ég mig
knúinn til að svara fyrir nuddskól-
ann og hvers eðlis hann er.
Þessi skóli er fyrsti nuddskólinn
hér á íslandi. Hann er alls 1.252
kennslustundir, og fer fram um
kvöld og helgar i tvö ár. Þetta
samsvarar einu námsári og fjórð-
ungi betur í dagskóla. Kennsla
skólans skiptist í þrennt: Nudd-
kennsla er 320 kennslustundir,
heilsuráðgjöf er 160 kennslu-
stundir og bókleg fög eru 572
kennsiustundir. Verklegir tímar í
nuddi eru alls 200, eða 20% náms-
ins.
Kennslugreinar í nuddi eru eft-
irfarandi: slökunarnudd, heildrænt
nudd og partanudd. Hver þeirra
er byggð á ákveðnum hefðum í
nuddi, sem er nánar llyst í námsv-
ísi skólans. Kennsla í heilsuráðgjöf
er byggð á nýju heilsulíkani, sem
er heildræn heilsa (holistic he-
alth). Það gengur út á að einstakl-
ingurinn beri ábyrgð á eigin
heilsuvemd og læri aðferðir til að
lifa hollum lífsstíl og fyrirbyggja
sjúkdóma sem skapast af röngum
lífsstíl. í því skyni er kenndur
fjöldi æfinga sem samhæfa líkam-
legt og andlegt jafnvægi.
Bókleg kennsla fer fram í fjöl-
brautaskólum landsins. Slíkt fyrir-
komulag er algengt á Norðurlönd-
um og styrkir sérskóla sem þenn-
an. Þannig getur viðkomandi sér-
skóli kennt þau fög sem hann
hefur fulla þekkingu á, en sent
nemendur sína í bókleg fög sem
samræmast fyllilega opinbem
menntakerfi. Auk þess er þetta
ódýrari leið fyrir þjóðina, heldur
en kenna nákvæm sérfög innan
skólakerfisins. Bókleg fög eru eft-
irfarandi: líffæra- og lífeðlisfræði,
vöðvafræði, sjúkdómafræði, heil-
brigðisfræði, næringarfræði og
skyndihjálp.
Verklegir tímar fara fam innan
skólans, og felast í æfmgurn á því
sem kennt er. Kennari er ávallt
Rafn Geirdal
til staðar í föstum tímum.
Samanborið við önnur lönd er
þessi skóli með sterkari nuddskól-
um á Vesturlöndum. Hann sam-
ræmist einnig fyllilega þeim kröf-
um sem eru gerðir til sjúkranudd-
skóla í Bandaríkjunum. Því hefur
nuddskólinn sótt um leyfi til að
vera sjúkranuddskóli hjá heilbrigð-
isráðuneyti. Svar verður gefið
síðar. Þangað til má aðeins kynna
skólann sem nuddskóla, því störf
okkar sjúkranuddara eru lögvern-
duð af ráðuneytinu.
Þetta er einmitt ástæðan fyrir
að það slæddist óvart með, að
þetta væri sjúkranuddskóli nú þeg-
ar. Ég biðst velvirðingar á þessum
mistökum. Það sem stendur er að
þetta er fyrsti nuddskólinn á ís-
landi og stendur ákaflega vel und-
ir því nafni.
Höfímdur er skálastjóri og lögg.
sjúkramiddnri.
Helgi sigurvegari eft-
ir stigaútreikning
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag kvenna
Sl. mánudag var spilaður eins kvölds
tvímenningur, 16 pör mættu til leiks
og urðu úrslit þannig:
Óskar Karlsson -
Júlíus Snorrason 261
Hrafnhildur Skúladóttir -
Kristín ísfeld 251
Sigríður Möller -
Freyja Sveinsdóttir '248
Fríða Sigurjónsdóttir -
Brynhildur Matthíasdóttir 244
Aldís Schram -
Júlíana ísebam 225
Nína Hjaltadóttir -
Lilja Petersen 224
Næstkomandi mánudag hefst baró-
meter-tvímenningur og verður hann
4-6 kvöld. Þær konur sem ætla að
vera með geta skráð sig í síma 32968^
(Ólína Kjartansdóttir).
Hreyfíll — Bæjarleiðir
Hafinn er fimm kvölda hausttvímenningur
með þátttöku 20 para. Spilað er í tveimur
riðlum og er lokið tveimur umferðum.
Staðan:
Ámi Halldórss. — Þorsteinn Sigurðss. 251
Helgi Pálsson — Kristján Jóhanness. 250
Jón Sigtryggss. — Skafti Bjömss. 232
Rúnar Guðmundss. — Tómas Sigurðss. 228
Bernhaið Linn — Gísli Sigurtryggvas. 226
Meðalskor 216.
Þriðja umferð verður spiluð mánudaginn
9. október kl. 19.30 í Hreyfilshúsinu.
Bridsdeild Skagfírðinga
Reykjavík
Sl. þriðjudag hófst 5 kvölda haust-
barometer hjá deildinni, með þátttöku
á6 para. Spiluð eru 5 spil milli para,
allir v/alla. Eftir fyrsta kvöldið er staða
efstu para þessi:
Hannes R. Jónsson —
Sveinn Sigurgeirsson 75
Eyjólfur Magnússon —
Hólmsteinn Arason 65
Helgi Samúelsson —
Jón Þorsteinsson 36
Eyjólfur Sigurðsson —
Starri Heiðmarsson 33
Spilamennsku verður framhaldið
næsta þriðjudag.
Helgi Ólafsson
Bent Larsen
___________Skák______________
Karl Þorsteins
Hróður Helgarmóta Tímarits-
ins Skákar hefur víða borist. Þau
hafa verið haldin víða um land
og reynst skákmönnum haldgóð
æfing og um leið kærkomið tæki-
færi fyrir landsbyggðarmenn að
etja kappi við landsins snjöllustu
skákmenn. 38. Helgarmótið var
haldið á Egilsstöðum 22.-24.
september sl. Keppendur voru 28
og í fyrsta sinn var mættur til
leiks erlendur stórmeistari. Nefni-
lega Bent Larsen sem dvalið hefur
hér á landi í fáeina daga áður en
keppni hans við Margeir Péturs-
son og Yijola frá Finnlandi hefst
í Danmörku um þátttökurétt á
millisvæðamóti á næsta ári.
Helgi Ólafsson tók snemma
forystu á mótinu nú og var með
fullt hús vinninga að afloknum
fimm umferðum. i sjöttu umferð
var sigurganga hans stöðvuð af
Larsen. Larsen tefldi stílhreint og
af lipurð með svörtu taflmönnun-
um og bar sigurorð af Helga eftir
snarpa baráttu. Með sigri gegn
Dan Hanssyni í síðustu umferð
tókst Helga að skjótast upp að
hlið Larsen sem glutraði niður á
sama tíma hálfum vinningi í æsi-
spennandi skák sinni gegn Guð-
mundi Halldórssyni. Þegar kom
til kasta stigaútreiknings reyndist
Helgi fengsælli og því réttborinn
sigurvegari mótsins.
1.—2. Helgi Ólafsson 6 v. (25,0)
1.—2. Bent Larsen 6 v. (23,5)
3.-4. Guðm. Halldórsson 5/2 v.
3.-4. Ásgeir Þór Árnason Sé v.
5. Egill Þorsteins 5 v.
Margvísleg verðlaun voru í boði
á mótinu eins 0g endranær. Öld-
ungarverðlaun hlaut Óli Valdi-
marsson sem þótti tefla af eld-
móði unga mannsins í mótinu.
Unglingaverðlaun hlaut Sigfús
Víkingsson. Hann fékk 314 vinning
og verðlaun fyrir bestan árangur
heimamanna á mótinu kom í hlut
Sverris Gestssonar. Hann hlaut
414 vinning. Viðgjömingur var með
ágætum og aðstaðan til skákiðk-
unar til fyrirmyndar í Fellaskóla
þar sem teflt var. Eiga bæjar-
stjórnir Egilsstaða og Fellabæjar
þökk skilið fyrir framtakið og ein-
ungis vonandi að heimamenn
verði betur í stakk búnir næst að
etja kappi við aðkomumenn.
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Bent Larsen
Ben-Oni vörn
I. Rf3 - g6, 2. d4 - Bg7, 3. c4
- c5, 4. d5 - d6, 5. Rc3 - RIB,
6. e4 - 0-0, 7. Bf4 - a6, 8. a4
- Bg4, 9. Be2 - Rbd7, 10. 0-0
- b6
Larsen hefur gjarnan þennan
hátt á og hlítir hvergi hleypidóm-
um byijunarsérfræðinga sem telja
byijunarleiki svarts lítt vænlega.
II. h3 - Bxf3, 12. Bxf3 - Re8,
13. Be2 - Bd4, 14. a5? -
Vanhugsaður leikur. Það tekur
hvítan marga leiki í framhaldinu
að öðlast peðið til baka á meðan
Larsen bætir stöðu manna sinna
á miðborðinu.
14. - bxað!, 15. Bd2 - e5, 16.
dxe6?! - fxe6, 17. Dc2 - Re5,
18. Rdl - Rc6, 19. Da4 - Dc8,
20. Bxa5 — Rxa5, 21. Dxa5 —
Rf6, 20. Bf3 - Rd7 •
Það er gaman að fylgjast með
liðsfærslum Larsens. Með einkar
stílhreinum leikjum hefur hann
öðlast yfirburða stöðu og lætur
kné fylgja kviði í áframhaldinu.
23. Dd2 - db7, 24. Bg4 - Hf6,
25. h4 - Dxe4!, 26. Bf3 - Hxf3,
27. gxf3 - Dxf3,28. Ha3 - Re5!
Svona einfalt er það. Hvítur
verður einfaldlega liðsmanni undir
ef hann drepur nú svörtu drottn-
inguna og við hótuninni 29. —
Dg4+, 30. Khl - Rf3 og 29 -
Dxa3! finnst engin vörn.
Hvítur gafst upp.
GÆÐI
Junckers
Gegnheilt parket - varanleg fjárfesting