Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐÍÐ
ÍÞRÓTTmtSffl?'
iídágur' 5. OKTÓBRR 1989
5^
ÚRSLIT
HM í knattspyrnu
4. riðill:
V-Þýskaland-Finnland...........6:1 (1:0)
Andreas Möller (12. og 80.), Pierre Litt-
barski (46.), Jiirgen Klinsmann (52.), Rudi
Völler (62.), Lothar Mattheus (85., víti) -
Mika Lipponen (75.). Áhorfendur 40.000.
Staðan í riðiinum:
V-Þýskaland 5 2 3 0 11:2 7
Holland 4 2 2 0 3:1 6
Finnland 5 1 1 3 4:13 3
Wales 4 0 2 2 2:4 2
Leikir sem eftir em: Wales-Holland 11.
október, V-Þýskaland-Waies og Holland-
Finnland 15. nóvember.
Frakkland
1. deild í gærkvöldi:
Bordeaux - Mulhouse...
Cannes- Lyon..........
Mónakó - Nantes.......
Sochaux - Montpellier.
Brest - Auxerre ......
Lille - Marseille.....
Caen-ParisStGermain ..
St Etienne - Toulouse
Efstu lið:
Bordeaux..........13 9
.............1:0
...............2:1
..............0:0
..............3:1
..............2:1
..............2:0
..............2:0
..............0:3
2 18: 5
2 25: 9
3 20:12
3 18:11
3 18:17
4 16:13
Marseille............12 8
Soehaux....... 13 8
Toulouse.............13 6
Paris St Germain...13 6
Nantes........... 13 4
Mónakó...............12 3 7 2 9:7
Lyon.................13 6 1 6 18:20
Markaliæstir:
10 - Jean-Pierre Papin (Marseille), Robby
Langers (Nice)
8 - Thierry Fernier (Racing Paris), Klaus
Allofs (Bordeaux)
7 - Guy Mengual (Cannes)
6 - Etienne Mendy (St Etienne)
Holland
Roda - Feyenoord............. 2:0
VSn Loen 2 (4. og 52. mín.) 10.000.
Vináttulandsleikur:
Malta—Austurríki...............1:2
Joe Zarb (15.) - Glatzmayer (24.), Rodax
(66.). 4.000.
Ameríski hafnaboltinn
Oakiand - Torontó Blue Jays....7:3
BOakland er yfir - 1:0.
England
2. umferð enska deildarbikarsins, síðari leik-
ir:
Bradford— W.B.A........3:5 e. framl. (6:6)
W.B.A. fer áfram á fleiri mörkum skoruðum
á útivelli.
Coventry—Grimsby...............3:0 (4:3)
(Drinkell, Speedie, McDonald)
Derby—Cambridge................5:0 (6:2)
(Saunders 3, Goddard, McMinn)
Hereford — Charlton............0:1 (1:4)
Leicester — Cr. Palace... 1:2 (2:3 e. framl.)
4:4 samanlagt. Palace fer áfram á fleiri
mörkum skoraðum á útivelli.
Manchester City — Brentford....4:1 (5:3)
(Morley, White, Oldfield) - May)
Newcastle — Reading........4:0 (5:3)
Scarborough — Chelsea......3:2 (4:3)
(Greame, Russell 2) - (Clark, Wilson)
Southend — Tottenh...3:2 (e. framl.) (3:3)
Tottenham á fleiri mörkum skoruðum á
útivelli.
West Ham — Birmingham.........1:1 (3:2)
(Julian Dicks) -
Wigan — Liverpool.............0:3 (2:8)
(Steve Staunton 3)
Wimbledon —PortVale...........3:0 (5:1)
Wolverhampton — Aston Villa...1:1 (2:3)
(Bull) - (Mauntfield)
Skoska úrvalsdeildin
Celtic — Hibernian..................3:1
Dundee United — Aberdeen............2:0
Hearts — Dunfermline................1:2
St M>rren — Dundee..................3:2
KR-ingar
mæta
f rönsku
KR leikur gegn franska lið-
inu Horens í 2. umferð
Evrópukeppninnar, en dregið
var í gærkvöldi. Horens er mjög
sterkt lið og hefur orðið Evrópu-
meistari tvisvar sinnum. Það
má því búast við að róðurinn
verði þungur hjá KR. Fyrri leik-
urinn fer fram í Reykjavík 25.
október og siðari í Frakklandi
1. nóvember.
Þetta er í annað sinn sem
íslenskt félagslið kemst í aðra
umferð Evrópukeppninnar í
körfuknattleik. ÍR komst í 2.
umferð í fyrsta sinn sem íslenskt
lið tók þátt í keppninni 1964.
Þá léku ÍR-ingar við írska liðið
Glentoran í fyrstu umferð og
vann báða leikina. Mættu síðan
frönsku liði í annari umferð, eins
og KR-ingar núna, en töpuðu
báðum leikjunum stórt.
Guðni Guðnason, til vinstri, stóð sig vel með KR-ingum í England í gærkvöldi. Lánsmaðurinn frá Haukum, Jonat-
han Bow, sem er á hægri myndinni," var besti maður KR, var stigahæstur í liðinu Og fór oft á kostum.
Glæsilegur sigur
KR-inga í London
- í gær tryggði þeim áframhald í Evrópukeppninni
KR SIGRAÐI enska liðið Hemel
Hempstead, 65:60, í síðari leik
liðanna í Evrópukeppni félags-
liða í London í gærkvöldi. KR-
ingar unnu einnig fyrri leikinn
og eru því komnir í aðra um-
ferð keppninnar.
KR-ingar voru staðráðnir í því
fyrir leikinn að gefa ekkert
eftir og byrjuðu mjög vel og höfðu
yfirhöndina í leiknum nær allan
tímann. Eftir fimm mínútur var
staðan 8:8, en þá tóku KR-ingar
til sinna ráða og breyttu stöðunni
í 23:14 og í hálfleik var staðan
33:27 fyrir KR.
Varamennirnir kláruðu
Hamel náði að minnka muninn í
eitt stig í byijun seinni hálfleiks,
37:36. Þá kom besti leikkafli KR-
ingar og þeir náðu mest 17 stiga
mun, 60:43, þegar sex mínútur
voru til leiksloka. Eftir það tóku
þeir lífinu með ró og Laszlo, þjálf-
ari, lét varamennina klára leikinn
og lokastaðan var 65:60.
„Frábært"
„Þetta var frábært. Það er mjög
erfítt að leika gegn svona liði sem
spilar svæðisvörn, leikurinn verður
hægari fyrir bragðið og lítið skor.
En við áttum svar við þessu og
náðum oft skemmtilegum hraða-
upphlaupum,“ sagði Ágúst Líndal,
liðsstjóri KR-inga, í samtali við
Morgunblaðið.
Jonathan Bow var besti leikmað-
ur KR og fór oft á kostum. Guðni
Guðnason, Axel og Birgir léku einn-
ig vel. Eins átti Anatolij Kovtoúm
góðan leik í hélt besta leikmanni
Hemel, Darin Schubring, algjörlega
niðri.
Stig KR-inga: Jonathan Bow 20,
Axel Nikulásson 14, Guðni Guðna-
son 12, Birgir Mikaelsson 8, Ana-
tolij Kovtoun 6 og Páll Kolbeinsson
5. Stigahæstur í liði Hamel var
Daron Hoges með 16 stig.
ÍÞRÚmR
FOLK
M LASZLO Nemeth, þjálfariW--
KR-inga, komst ekki til London
fyrr en kl. 16.00 að staðartíma í
gær, en leikur KR og Hemel
Hempstead hófst kl. 20.00. Ne-
meth, sem er Ungverji, fékk ekki
að fara með liðinu út á þriðjudags-
morgun þar sem hann fékk ekki
vegabréfsáritun til Bretlands. KR-
ingum tókst að útvega honum árit-
un í breska sendiráðinu á þriðju-
dagskvöld og flaug hann út í gær.
Nemeth náði því ekki að stjórna
æfingunni hjá KR í_ gærmorgun.
Jón Sigurðsson og Ágúst Líndal
hlupu í skarðið.
■ UPPSELT var á leik Hemel
og KR í London í gær. íþrótta-
húsið, sem er sérhannað fyrir körfu->-
knattleik, rúmar þó ekki nema
1.500 manns í sæti.
■ STEVE Staunton gerði öll þijú
mörk Liverpool gegn Wigan í
síðari viðureign félaganna í deildar-
bikarnum í gær. Hann kom inná
sem varamaður fyrir
FráBob Ian Rush í upphafi
Hennessy síðari hálfleiks og
/ Engiandi þurfti því aðeins
annan hálfleikinn til
KORFUKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
SiÓNVARP
Samvinna Norðurlandanna um
sendingar frá Friðarleikunum
Sýnt verður beint frá 30-40 leikjum í HM á Ítalíu 1990
NORÐURLÖNDIN hafa
ákveðið samvinnu um send-
ingar sjónvarpsefnis frá Frið-
arleikunum sem fara fram í
Seattle 20. julítil 5. ágúst á
næsta ári, en þar mun allt
besta frjálsíþrótta- og sund-
fólks heims keppa.
m
Islenska landsliðið í handknatt-
leik tekur þátt í leikun - eina
landsliðið frá Norðurlöndum. Auk
íslenska landsliðsins leika landslið
frá Sovétríkjunum, Bandaríkjun-
um, Júgóslavíu, S-Kóreu, Spáni,
Tékkóslóvakíu og Japan.
Ingólfur Hannesson, deildar-
stjóri íþróttadeildar RÚV, er ný-
kominn frá Genf, þar sem fundur
sjónvarpsstöðva fór fram. „Þessi
samvinna Norðurlanda. var ákveð-
in í Genf. Norrænu stöðvarnar
ætla að sjónvarpa frá leikunum í
eina og hálfa klukkustund á dag.
Efnið verður tekið niður úr gerfí-
hnetti á morgnana, en síðan sýnt
síðdegis og á kvöldin. Með þess-
ari samvinnu aukast möguleikar
okkar á að sýna frá leikjum
íslenska landsliðsins, ásamt því
að fá að sjá bestu íþróttamenn
heims keppa. Keppt verður í tutt-
ugu greinum á Friðarleikunum í
Seattle," sagði Ingólfur.
Knattspyrnuveisla
Ingólfur sagði að einnig hafi
verið rætt um beinar sendingar
frá heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu, sem hefst 8. júní á
Ítalíu og stendur til 8. júlí. „Norr-
ænu stöðvarnar hafa ákveðið að
senda út beiht frá þijátíu til fjör-
utíu leikjum af fimmtíu og tveim-
ur leikjum. Við stefnum að sjálf-
sögðu að því að senda út eins
mikið og hin Norðurlöndin," sagði
Ingólfur.
Þess má að lokum geta að að
beinar útsendmgar á knatt-
spyrnuleikjum frá V-Þýskalandi
heijast i október. Sjónvarpið mun
sýna beint frá fjórum til fimm
leikjum frá V-Þýskalandi og
tveimur frá Englandi fyrir ára-
mót.
að skora sína fyrstu þrennu fyrir
Liverpool en þess má geta að
Staunton leikur alla jafna í stöðu
bakvarðar. Leikurinn fór fram á
Anfield, heimavelli Liverpool, þar
sem völlur Wigan var ekki í leik-i.
hæfu ástandi.
■ KEVIN Drinkell skoraði strax
í fyrsta leik sínum með Coventry,
en hann var keyptur frá Glasgow
Rangers fyrir 800 þúsund pund
fyrir nokkrum dögum. Drinkell
skoraði fyrsta mark Coventry í 3:0
sigri á Grimsby í gær.
■ SCARBOROUGH, sem leikur
í 4. deild, sló Chelsea út úr deildar-
bikarnum í gær. En það verða að
teljast nokkuð óvænt úrslit þar sem
Chelsea er ofarlega í 1. deild.
■ GUÐNI Bergsson var ekki í
liði Tottenliam í gær og var heldui"
ekki á varamannabekknum. Guðni
virðsit því ekki vera í náðinni hjá
Terry Venables þó svo að liðinu
hafi gegnið frekar illa undanfarið.
■ PAUL Stewart sóknarmaður
Tottenham var rekinn útaf þegar
fjórar mínútur vorú liðnar af leikn-
um gegn Southend United í gær.
Tottenham lék því einum leik-
manni færri mesta allan leikinn.