Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUUAGUR 5. OKTÓBER 1989 39 Success OUARANTííD S%S — — PSRKCTiN B#|iríO t5 MINU7ÍS IIIVV Brown&WildRice ■ f knrt.’i Bfyn* v Wfd P;<e iritié MíwíéMw. Bráðskemmtilegur hnetu- keimurersérkenni þessa hrísgrjónaréttar. Blanda af villi- og brúnum hrísgrjónum meðekta sveppabitumog ferskri kryddblöndu. Bragð- gott meðlæti með öllum mat. Fyrir 4 - suðutimi 1 5 min. Heildsölubirgðir: karl k. karlssonnco. SJtúlatúm 4, Reykjavík, sími 62 32 32 Eftirtalin fyrirtæki Félagsstofnunar stúdenta hafa fengið ný símanúmer. Telefaxnúmer fyrir öll fyrirtækin er 19113. FELAGSSTOFNUN STUDENTA aðalskrifstofa SKRJFSTOFA STUDENTA 61 56 56 bók/KlK /túdervtðú 61 59 61 FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA v/Hringbraut Gleðileg tíðindi - leiðsögumenn Menntunarmál Samgönguráðuneytið fer með ferðamál á Islandi. Frammistaða eftir Borgþór S. Kjærnested Það fór óþarflega lítið fyrir ánægjulegustu fréttaklausunni um langan tíma í þessu dagblaði allra landsmanna sl. laugardag (16. sept- ember sl.: „Velta í ferðaþjónustu um 10 milljarðar króna.“ Með hlið- sjón af niðurstöðu síðustu kjara- samninga við okkur leiðsögumenn var ég fullviss um að hér væri um prentvillu að ræða. En sunnudagur- inn rann upp og svo þriðjudagur- inn, og engin leiðrétting birtist. Ég hélt að þarna hefði átt að standa: „Tapið á ferðaþjónustu um 10 millj- arðar króna.“ Það hefði verið í sam- ræmi við samningaviðræðurnar sl. vor. Niðurstaðan þá var m.a. sú, að fyrir 10 tíma leiðsögn, 10 klukkustunda fræðilegan fyrirlest- ur um jarðsögu, sögu og lífsskilyrði lands og þjóðar, greiðast heilar 6.052 krónur með orlofi og öllu inniföldu í hæsta launaflokki. Hvað ætli laun leiðsögumanna sé mikill hluti 10 milljarða veltunnar? Það væri fróðlegt að vita. Að framtíð skal hyg-gja Nýlega var gerð skoðanakönnun meðal erlendra ferðamanna sem komu til landsins. M.a. var spurt hvar og hvernig menn hefðu fengið hugmyndina að íslandsferðinni. Það hefur ekki farið mikið fyrir niður- stöðum þessarar könnunar í fjöl- miðlum. Fjórði hver ferðamaður hafði kynnst landinu í gegnum kunningja og vini sem hér höfðu komið á undan viðkomandi ferða- manni. Um 4% munu hafa farið eftir auglýsingu. Telja menn það góðan afrakstur auglýsingaherferð- anna? Hve margir þessara ferðamanna höfðu fengið góða og málefnalega leiðsögn um landið af leiðsögu- mönnum? Var nokkuð spurt um það? Hvað ætli það sé stór hluti ferðamanna sem komast í samband við leiðsögumenn á ferðum sínum um landið? Það væri fróðlegt að vita. Nýlega hafa forustumenn at- vinnumála, t.d. Jón Sigurðsson iðn- aðarráðherra, lýst því að ferðaþjón- ustan væri í hópi þeirra atvinnu- greina þar sem helst væri að vænta vaxandi tekna í þjóðarbúið á kom- andi árum. Hvað svo? Ekki fást peningar í menntun leiðsögumanna. Laun leiðsögu- manna fara lækkandi, hæfir menn flýja greinina, með þeim afleiðing- um sem það hefur fyrir starfsgrein- ina. Nú á að fara að flytja Japani og aðra austurlandabúa hingað í miklum mæli. Hvernig á að bregð- ast við því? A bara að plokka af þeim aurana án þess að nokkuð komi á móti? Það er ekki nóg að brosa bara. Það þarf að veita þjón- ustu, gera fólk ánægt, svo að það geti sagt vinum og kunningjum góðar fréttir af landinu. Það verður enginn plataður lengur með auglýs- ingum ef ekkert kemur á móti. Ekki alls fyrir löngu sat ég í nefnd á vegum Norrænu ráðherra- nefndarinnar þar sem fjallað var um japanska ferðamenn og mögu- leika á að efla hlut Norðurlanda í ferðum Japana. Þar kom fram að japanskir ferðamenn eru kröfuharð- ir, en þeii' eru líka mjög þægilegir ferðamenn. Þeir ferðast í stórum hópum, þeir vilja allir borða sama matinn á veitingastöðum, þeir vilja hópferðir og skoðunarferðir með japanskri leiðsögn og þeir vilja fá þjónustu og gott viðmót fyrir pen- ingana sína. Hafa menn hugað að þessum málum hér? Er óregla á (smá)hlutunum hjá þér? Litskrúbugu smáhirslurnar frá CURVER eru heppileg lausn—og falleg. f yy:\,, aa4AT/MIKUG4RDUR þessa ráðuneytis til þessa hefur verið með þvílíkum eindæmum, að engu tali tekur. Ég ætla hvorki að ergja mig né aðra á langri upptaln- ingu í þeim efnum. Nú væri vitur- legast að leggja gömul mál til hlið- ar, bretta upp ermarnar og koma á laggirnar starfshópi leiðsögu- manna, ferðaþjónustufyrirtækja og ráðuneytisins til að byija á þessum málum upp á nýtt. Ég á von á því að núverandi samgönguráðherra hafi til að bera þann skilning á þessum málum sem til þarf. Annað verður þá a_ð koma i ljós. Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, er heiðursfélagi í Félagi leiðsögumanna. Við leiðsögumenn erum stoltir af því. Ekki vegna þess að forseti vor er enn meðal okkar fremstu leiðsögumanna, heldur vegna þess að hún hafði mikla for- göngu um skipulag fræðslumála og menntunar leiðsögumanna. Hún gerði sér snemma grein fyrir mikil- vægi leiðsagnarinnar fyrir útflutn- ingsmarkaði íslenskra afurða, fyrir menningarlífi landsmanna og svo mætti lengi telja. Hins vegar munu fræðslumál leiðsögumanna vera mjög lítill partur af 10 milljarða veltunni. Ætli Ferðamálaráð sjái sér nú ekki fært að styrkja þau mál ögn betur, það skilar sér innan tíðar. Lítil saga Það var eitt sinn Dani sem tók á móti japönskum ferðamönnum í Kaupmannahöfn. Hann var allur af vilja gei'ður og vildi bjóða uppá sem besta þjónustu. En hann var ekki með japönskumælandi leið- sögumann. Til að bæta mönnum upp þennan skort, bauð hann ferða- mönnunum ókeypis framköllun á þeim myndum sem þeir höfðu tekið í Höfn. En hann tók tvö eintök af hverri mynd, og hélt annarri eftir fyrir sjálfan sig. Og svo skoðaði hann gaumgæfilega af hveiju Jap- anir tóku myndir, til að geta þjónað þeim enn betur næst. Það tilheyrir að sjálfsögðu sögunni að það leið ekki á löngu áður en hann sendi Dana, sem hafði búið nokkur ár í Japan, á danskt leiðsögumanna- námskeið. Höfundur er leiðsögumaður m.m. Borgþór S. Kjærnested „Það þarf að veita þjón- ustu, gera fólk ánægt, svo að það geti sagt vin- um og kunningjum góð- ar fréttir af landinu. Það verður enginn plat- aður lengur með aug- lýsingum ef ekkert kemur á móti.“ m. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.