Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 38
38
MOjiGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR (>. OKTÓBER j989 •
NEYTENDAMAL
Blýlaust
bensín og
kraftbensín
í ág'ústmánuði óku 47% öku-
manna úm á blýlausu bensíni
en 53% á kraftbensíni sam-
kvæmt upplýsingum frá Olíufé-
lagi íslands. Bjarni Bjarnason
hjá Olís sagði í samtali að áður
hefðu hlutföllin verið 40% af
blýlausu bensíni á móti 60%
af kraftbensíni. En eftir breyt-
ingar sem gerðar voru á
bensínverði í júni sl. hefði
aukning orðið á sölu á blýlausu
bensíni. Aðspurður sagðist
hann ekki vita til að blýlaust
kraftbensin væri á leið á mark-
að hér á landi. Það hefði að
vísu komið til umræðu, en slíkt
bensín yrði mjög dýrt.
M. Þorv.
Heilablóðfall og
of lítið kólesteról
Nýjar rannsóknir í Japan benda
til að í ákveðnum tilfellum geti of
lítið kólesteról í blóði orsakað heila-
bióðfall, segir í grein sem birtist í
aprílblaði „New Scientist".
Mataræði virðist vera mikilvæg-
ur þáttur í tíðni heilablóðfalla, það
kemur fram í rannsóknum sem
framkvæmdar voru á 20 ára tíma-
bili, frá árunum 1963-1983, á íbú-
um Ikewa-þorps sem liggur 250
mílur fyrir norðan Tókýó. Á þessu
tímabili urðu miklar breytingar á
lífsháttum þorpsbúa er þeir hurfu
frá hinum einföldu lífsháttum strjál-
býlisins að lífsstíl þéttbýlisins.
Hrísgjónabændur vélvæddust og
geymsluaðferðir matvæla breytt-
ust. í stað þess að nota salt sem
geymsluaðferð varð kæling almenn.
Mataræðið sem hafði að uppistöðu
aðallega verið fitusnauður matur,
hrísgijón og fiskur, var á þessu
tímabili látið víkja fyrir vestrænum
málsverðum sem voru auðugir af
dýrafitu eins og rauðu kjöti, mjólk-
urvörum og eggjum.
Þessi fituríki matur leiddi tii
hækkunar kólesteróls í blóði, viður-
kennds orsakavalds hjartaáfalla og
blóðtappa í heila. Hjá íbúum Ikewa
hafði þetta breytta mataræði þau
áhrif, að fækkun varð á öllum teg-
undum heilablóðfalla á þessu tíma-
bili, eða um 61 prósent hjá körlum
40-69 ára og um 61 prósent hjá
konum á sama aldri. Heilblæðingum
Nýbreytni í brytjun á kjöti
í Morgunblaðinu 9. júni sl. var
viðtal við sérfræðinga í sauð-
fjárrækt við Rannsóknastolnun
landbúnaðarins, þá Sigurgeir
Þorgeirsson og Stefán Sch.
Thorsteinsson, m.a um kjöt-
gæði og slátrun. Þar kom fram,
að röng meðferð við kælingu á
kjötinu í sláturhúsum getur
valdið kæliherpingu eða þíðu-
herpingu í kjötinu sem bæði
skerðir bragðgæðin og gerir
kjötið seigt.
í viðtalinu kom einnig fram að
mikið hefur vantað á að brytjun
á lambakjöti væri neytendum hag-
stæð. Á þessu verður breyting í
haust, í þrem sláturhúsum, Bor-
garnesi, Sauðárkróki og á Hvol-
svelli verður kjötið biytjað niður
eftir bandarískri brytjunaraðferð
sem Gunnar Páll Ingólfsson
kynnti hér fyrir nokkrum árum.
Aðferð þessi býður upp á betri
nýtingu á kjötinu.
Guðjón Þorkelsson matvæla-
fræðingur hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins hefur umsjón með
þessari nýju vinnslu. Hann sagði
í samtali, að kjötið væri látið
hanga í kjötsai yfir nótt áður en
það væri fryst. Eftir frystingu er
það hlutað niður í hin hefðbundnu
læri og hrygg. Nýbreytnin er fólg-
in í því, að kjötið er ekki bóg-
bundið eins og áður og á fram-
parturinn að nýtast neytendum
betur. Skankar eru skornir af og
framparturinn að öðru leyti hafð-
ur heill og eiga fleiri sneiðar að
fást úr framparti en með eldri
brytjunaraðferð. Afskurður, háls,
bringa og slög, sem eru um 20%
af kjötinu, verða seld í fóður.
Aðspurður sagði Guðjón að
þetta sérbrytjaða kjöt væri ekki
enn komið á markað, en þarna
yrði um talsvert magn að ræða
eða 100-150 tonn af frampörtum,
snyrtum og fituhreinsuðum og
væri þar farið að óskum neytenda.
(Cerebral hemorrage) fækkaði á
sama tíma um 60 prósent hjá kon-
um en 94 prósent hjá körlum.
Japanskir vísindamenn segja að
meðhöndlun til lækkunar á blóð-
þrýstingi hjá þorpsbúum á þessu
tímabili samfara breyttu mataræði
og minni saltmetisneyslu, vegna
breyttra geymsluaðferða, hafi haft
mest áhrif þar á. En hár blóðþrýst-
ingur einn og sér virðist ekki vera
valdur að heilablóðfalli. Við rann-
sókn á yfir 2.200 einstaklingum í
Ikewa-þorpi á árunum 1963-73
voru einnig andstæð tengsl kólest-
eróls í blóði og hættu á heilablæð-
ingu. Fleiri tilfelli heilablæðinga
voru hjá körlum og konum sem
höfðu lægsta kólesterólmagnið.
Seinni könnunin sem gerð var á
2.700 þorpsbúum sýndi engin
tengsl á milli lítils kólesterólmagns
og heilablóðtappa (strokes) á þess-
um tíma.
Vísindamenn hafa komið fram
með skýringu á því hvernig lágt
kólesterólmagn í blóði getur valdið
heilabióðfalli (cerebral hemorrage).
Kólesterólið á mikinn þátt í viðhaldi
frumuhimnunnar, skortur á því get-
ur því veikt frumuveggina sem aft-
ur getur leitt til þess að æðaveggir
í heila geta rifnað, sérstaklega und-
ir háum þrýstingi.
Rannsóknum þessum var lengi
vel mætt með efasemdum af vest-
rænum vísindamönnum. En þeir eru
að endurskoða afstöðu sína síðan
rannsóknir^sem gerðar hafa verið
í Bandarlkjunum og rannsóknir
framkvæmdar í Honolulu á 19 ára
tímabili á bandar'iskum karlmönn-
um af japönskum uppruna, stað-
festa þær í aðalatriðum (New Eng-
land Journal of Medicine, 1989).
í greininni kemur fram, að þetta
samspil kólesteróls og heilablóðfalls
sé mörgum vísindamönnum ráð-
gáta. Mjög veikt fólk eins og
krabbameinssjúklingar hafa oft
mjög lágt kólesterólmagn í blóði,
af sömu ástæðu telja sumir eðlileg-
ar skýringar vera á þessu lága kól-
esterólmagni hjá heilablóðfalls-
sjúklingum. Aðrir vísindamenn telja
mögulegt að lágt kólesterólmagn
sé vísbending þess að einhver
ákveðinn þáttur í mataræðinu geti
orsakað heilablóðfall. En þeim ber
saman um að áhætta sé aðeins þar
sem saman fari mjög lágt kólester-
ólmagn í blóði og hár blóðþrýsting-
ur.
SKÓLAXITVELINIAS
TA Gabriele 100
Vel útbúinn vinnuhestur fyrir
námsmanninn sem velur gæöi og gott verö.
VERÐ AÐEINS KR. 17.900,- staagr
Komdu við hjá okkur eða hringdu og
fáðu frekari upplýsingar, það borgarsig örugglega.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
UMBOÐSMENN TJM LAND ALLT
Reykjavik: Penninn st„ Skolavörubuð Námsgagnastofnunar, Tölvuvórur hf„ Boka- og ritfangaverslunin Griffill sf„ Aco ht„ Hans Arnason,
Sameind hf„ Tölvuland. Garðabær: Bókabuðin Grima. Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins. Keflavik: Bokabúð Keflavikur. Porlákshöfn: Rás sf.
Selfoss: Ösp. Vestmannaeyjar: Bókabúðin Heiðarvegi. Höfn Hornafirði: Kaupfélag A-Skaftfellinga. Egilsstaðir: Traust. Akureyri: Bókaverslunin
Edda, Jón Bjarnason úrsmíðavinnustofa. Sauðárkrókur: Stuðuil. Hvammstangi: Gifs-mynd sf. ísafjörður: Bókabúð Jónasar Tómassonar.
Akranes: PC-tölvan.
Námskeið
tilaðyfir-
vinna flug-
hræðslu
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið
að efiia til námskeiðs fyrir
farþega sem vilja yfirvinna
flughræðslu. Ymis erlend
flugfélög hafa boðið upp á
þessa þjónustu með góðum
árangri. Námskeiðið er und-
irbúið af Eiríki Erni Arnar-
syni sálfræðingi, en auk hans
verður Gunnar H. Guðjóns-
son, flugstjóri hjá Flugleið-
um, leiðbeinandi á námskeið-
unum.
Fyrsta námskeiðið hefst 10.
október nk. og verður haldið á
þriðjudagskvöldum og auk þess
einn laugardag. Námskeiðið
stendur samtals í 20 klukku-
stundir og þátttökugjald er
15.000 krónur. Innifalið í verð-
inu er flugferð til einhvers
áætlunarstaðar félagsins er-
lendis.
Kannanir benda til þess að
flughræðsla þjái um 18% lands-
manna, hjá litlum hópi kveður
svo rammt að þessu að fólk
hefur leitað til sérfræðinga eft-
ir hjálp. Flugfélög viða um
heim hafa brugððist við þessu
með því að skipuleggja nám-
skeið af þeim toga sem Flug-
leiðir hleypa nú af stokkunum.
Eiríkur Orn Arnarson, sál-
fræðingur, er sérfræðingur í
meðferð hverskyns fælni, þar
á meðal flughræðslu. Hann
hefur gert kannanir á fælni
meðal íslendinga og hefur
kynnt sér meðferð flughræðslu
meðal annarra þjóða. Gunnar
H. Guðjónsson er einn af
reyndari flugstjórum Flugleiða
með mikla reynslu í flugi á litl-
um og stórum flugvélum í inn-
anlandsflugi og millilandaflugi.
(Fréttatilkynning)
Hvammstangi:
Mótmæla
áliti mjólk-
uriðnaðar-
neftidar
Á FUNDI hreppsneftidar
Hvammstangahrepps nýlega
var m.a. rætt um nefiidarálit
um hagræðingu í rekstri inn-
an mjólkuriðnaðarins og eft-
irfarandi ályktun samþykkt.
„Hreppsnefnd Hvamm-
stangahrepps mótmælir harð-
lega niðurstöðum nefndarálits
um hagræðingu í mjólkuriðn-
aði, sem nýlega hefur verið
birt, en þar er komist að þeirri
niðurstöðu að leggja beri niður
mjólkurstöðina á Hvamms-
tanga.
Hreppsnefndin telur að sú
niðurstaða hefði í för með sér
mjög alvarlega hættu fyrir
byggð í Vestur-Húnavatns-
sýslu, þar sem mjólkurstöðin
og mjólkurframleiðsla er einn
af máttarstólpum byggðarinn-
ar. Auk þess er fráleitt að
leggja niður fyrirtæki sem skil-
ar hagnaði, ekki hefur þurft
greiðslur úr verðjöfnunarsjóði
mjólkur og hefur náð góðum
árangri í framleiðslu og mark-
aðsmálum.
Við endurskipulagningu
mjólkuriðnaðarins væri hins-
vegar mun eðlilegra að endur-
skoða rekstur og fjárfestingu
mjólkurstöðvarinnar f
Reykjavík og færa þaðan full-
vinnsluna til mjólkurbúanna,
sem starfrækt eru í fram-
leiðsluhéruðunum.“