Morgunblaðið - 05.10.1989, Blaðsíða 7
Fimm presta-
köll eru laus
BISKUP íslands hefiir auglýst
fimm prestaköll laus til umsókn-
ar og er umsóknarfrestur til 28.
október nk.
Prestaköllin eru: Sauðlauksdalur
í Barðastrandarprófastsdæmi
(Sauðlauksdals-, Saurbæjar-,
Brjánslækjar-, Haga- og Breiðuvík-
ursóknir). Sr. Jón ísleifsson hefur
þjónað prestakallinu frá 1. október
1987 er sóknarnefndin kallaði hann
til tveggja ára. Hefur hún nú óskað
eftir að prestakallið verði auglýst.
Bolungarvík í Isafjarðarprófasts-
dæmi (Hóls- og Staðarsökn í
Grunnavík). Sr. Jón Ragnarsson,
sem þar hefur verið sóknarprestur
frá 1. maí 1983, hefur verið ráðinn
deildarstjóri Fræðslu- og þjónustu-
deildar Þjóðkirkjunnar frá 1. októ-
ber nk.
Sr. Torfi K. Stefánsson Hjaitalín,
sem hafði embætti deildarstjóra á
höndum, hefur fengið veitingu fyrir
Möðruvallaprestakalli í Hörgárdal í
Eyjafj arðarprófastsdæmi.
Arnes í Húnavatnsprófastsdæmi
(Arnessókn). Sr. Einar G. Jónsson,
sem hefur þjónað því kalli frá 1.
júní 1982, hefur verið veitt Kálfa-
fellsstaðarprestakall í Skaftafells-
prófastsdæmi frá 1. október nk. Sr.
Fjalarr Siguijónsson, prófastur,
sem hefur verið sóknarprestur Ör-
æfinga frá 1. október 1963, lætur
nú af embætti sóknarprests og pró-
fasts að eigin ósk eftir 37 ára þjón-
ustu í íslensku þjóðkirkjunni.
Siglufjörður í Eyjafjarðarpró-
fastsumdæmi _ (Siglufjarðarsókn).
Sr. Vigfús Þór Árnason hefur feng-
ið veitingu frá og með 1. október
nk. fyrir Grafarvogsprestakalli,
Reykjavíkurprófastsdæmi, en það
er nýstofnað. Sr. Vigfús Þór hefur
þjónað Siglufjarðarprestakalli frá
1. október 1976.
Skinnastaður í Þingeyjarpró-
fastsdæmi (Skinnastaðar-, Garðs-
og Snartarstaðasóknir). Sr. Sigur-
vin Elíasson lét af embætti vegna
aldurs 1. september sl., en þá hafði
hann þjónað prestakallinu frá 1.
júlí 1967 eða í rúm 22 ár.
Frjálst verð á
síld til bræðslu
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins hefiir náð samkomulagi um
að gefa ftjálsa verðlagningu á
síld og síldarúrgangi til bræðslu
á síldarvertíðinni, sem nú er að
heljast.
Síldveiðar til bræðslu hafa ekki
verið leyfðar síðan veiðarnar hófust
að nýju þar til í fyrra. Þá fylgdi
það skilyrði veiðileyfi að aðeins
ákveðið hlutfall mætti fara til
bræðslu. Verð á síld til bræðslu var
fijálst í fyrra.
Borgarsjóður
aðstoði KR
í Skálafelli
HUGMYNDIR um að KR fái
stuðning frá Reykjavíkurborg
vegna skíðasvæðis í Skálafelli
bíða nú umfjöllunar Borgarráðs
og hugsanlega fleiri aðila. Þetta
mál þarf vitanlega að afgreiða á
næstu vikum, að minnsta kosti
áður en snjórinn kemur, segir
Hjörleifur Kvaran, framkvæmda-
stjóri lögfræði- og stjórnsýslu-
deildar Reykjavíkurborgar.
„Borgin þarf með einhverjum
ráðum að aðstoða KR, líklegast
hleypur borgarsjóður undir bagga
og hugsanlega Bláíjallanefnd," seg-
ir Hjörleifur. Fjárhagsstaða skíða-
svæðis Knattspyrnufélags
Reykjavíkur hefur að hans sögn
batnað mikið á tiltölulega stuttum
tíma. Hjörleifur segir að KR þurfi
þó aðstoð og eins verði að fylgjast
með því að skíðasvæðið sé vel rekið
áfram.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTOBER 1989
7
SÝNUM
NISSAN SUNNY LINUNA
•*1990
í SUNNY LÍNUNN1 ER ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ
VIÐ ALLRA HÆFI
• 3ja dyra hlaðbakur • 4ra dyra fólksbíll, sedan,
• 5 dyra hlaðbakur hvort heldur framhjóladrifinn
• Skutbíll, fjórhjóladrifinn eða fjórhjóladrifinn, þú velur.
Ný 1 2 ventla vél, 1 600 cc
HREINT ÓTRÚLEG
Sunny bílar eru hlaónir aukahlutum, s.s. samlæsingu í hurðum, aflstýri,
rafstýrðum rúðum og mörgu fleira.
OG RÚSÍNAN í PYLSUENDANUM
Verð á Nissan Sunny bókstaflega drekkhlöðnum aukahlutum
„ 864.000.-
Lánakjör: T.d. 25% út og 75% lánað í allt að 2V2 ár með lánskjörum banka.
NISSAN: Mesf seldi japanski bíllinn í Evrópu
■Réttur bíll á
réttum staó
na
Ingvar
Helgason hf. \
Sævarhöfða 2 , \ . a A.-A ''
sími 91-674000
o9