Morgunblaðið - 05.10.1989, Qupperneq 12
MGRGUNBLAÐIÐ FIMMTlWÍlJR 5. 0KTÓBER l'ílRa
Auðlindaskattur er
ekki sáttahugmynd
eftir Einar K.
GuðGnnsson
Umræður um auðlindaskatt eru
nú að verða jafn árvissar og
haustbrælumar. I fyrra magnaði Jón
Baldvin Hannibalsson formaður Al-
þýðuflokksins þennan draug og upp-
skar andmæli nánast úr öllum þátt-
um sjávarútvegsins. Nú hefur þessi
umræða aftur skotið upp kollinum í
kjölfar ráðstefnu Sjávarútvegs-
nefndar Sjálfstæðisflokksins um
miðjan september.
Hér er ekki ætlunin að ræða efnis-
lega um hugmyndina að auðlinda-
skatti. Undirritaður er andvígur
þeirri skattheimtu. Hef ég látið þá
skoðun í ljósi og rökstutt fyrr á opin-
berum vettvangi.
Um hitt verður Ijallað í þessum
greinarstúf hvort rétt hafi verið af
Nýr salur tekinn í
notkun á Hótel Islandi
Haukur Morthens og Erla Þorsteinsdóttir koma fram
UM NÆSTU helgi verður tekinn
í notkun á Hótel Islandi nýr salur
sem hefur hlotið nafiiið Asbyrgi.
Asbyrgi verður opnaður með
glæsilegri söngskemmtun þar sem
Haukur Morthens leikur aðalhlut-
verkið og Erla Þorsteinsdóttir kem-
ur fram í fyrsta skipti á íslandi
eftir þijátíu ára hlé. Skemmtunin
hefur hlotið nafnið „Kvöldið er fag-
urt“.
Auk Hauks og Erlu kom fram
söngkonurnar Jóhanna Linnet og
Ingveldur Ólafsdóttir og Ástrós
Gunnarsdóttir mun sjá um sviðsetn-
ingu ásamt því að semja dansa og
flytja þá.
Asbyrgi tekur um 200 manns og
er undir hliðarsalnum á götuhæð
Hótel íslands (Café íslandi) með
sérinngangi að austanverðu. Eftir
að sýningum er lokið verður opnað
á milli allra sala hússins og geta
gestir þá valið á milli fimm sala í
húsinu.
„Þar sem Haukur hefur lengur
en nokkur annar verið einskonar
ambassador íslensks skemmtanalífs
erlendis sem hér heima í 45 ár þótti
við hæfi að fá hann til þess að ríða
á vaðið með eigin tónlistarhátíð í
nýjum salarkynnum á Hótel ís-
landi,“ segir í frétt frá Hótel íslandi.
HEILSU (jd LINDIN
NÝBÝLAVEGI24 SÍMI46460
Sjúkrcmudd - svæðunudd
Cellohitanudd - rafnudd
HUÓÐBYLGJUR - HEITIR LEIRBAKSTRAR
VATNSGUFA - NUDDPOTTUR
FRÁBÆRIR UÓSALAMPAR
Ath: Hjá okkur starfar aðeins fagfólk
Kjörorð okkar er: Vöðvabólga og stress, bless.
Opið virka daga frá kl. 9.00-22.00.
Laugardaga frá kl. 13.00-19.00.
Þorsteini Pálssyni formanni Sjálf-
stæðisflokksins að andmæla auð-
lindaskattshugmyndinni svo afdrátt-
arlaust sem hann gerði á fyrr-
greindri ráðstefnu sjálfstæðis-
manna.
Morgunblaðið skýrir svo frá
þriðjudaginn 19. september að Þor-
steinn Pálsson hafi í ræðu sinni á
ráðstefnunni sagt að hugmyndir um
auðlindaskatt, uppboð á veiðileyfum
og skatt sem yrði almennt hlutfall
af aflaverðmæti myndu allar leiða
til aukinna ríkisafskipta. Orðrétt
sagði í frásögn Morgunblaðsins af
ræðu formanns Sjálfstæðisflokksins:
„Þær (þ.e. framangreinar hugmynd-
ir, innsk. mitt EKG) fælust í því að
ríkið tæki til sín og deildi síðan út
aftur. Sagði hann alveg augljóst að
Sjálfstæðisflokkurinn hlyti að berj-
ast gegn auknum ríkisafskiptum og
leita yrði annarra leiða í þessum
efnum en að auka skattheimtuna."
Afstaða Morgxinblaðsins
Morgunblaðið gerði þessi orð Þor-
steins Pálssonar að umræðuefni í
ritstjórnargrein 24. september sl.
Þar er varpað fram þeirri spurningu
hvort rétt hafi verið af formanni
Sjálfstæðisflokksins að lýsa svo
ákveðinni afstöðu á þessu stigi máls-
ins. Það sé hlutverk formanns Sjálf-
stæðisflokksins að vera sáttasemjari
ólíkra sjónarmiða innan flokksins.
Þrætan um fiskveiðistjórnunina sé
hin viðkvæmasta og hafi skipt þjóð-
inni í fylkingar.
Og niðurstaðan af þessum hug-
leiðingum í ritstjórnargreininni er
sú að: „Með því að taka svo ákveðna
afstöðu í upphafi sjávarútvegsráð-
stefnunnar hefur formaður Sjáif-
stæðisflokksins gert sér erfiðara um
vik en ella að leiða málið til lykta.“
Það er óhjákvæmilegt að and-
mæla þessum sjónarmiðum Morgun-
blaðsins.
Óánægja með kvótakerfið
Nú er það deginum ljósara að
mikilvægt er að leysa þá erfiðu deilu
sem stendur um fiskveiðistjórnunina
í landinu. Þrátt fyrir að menn segi
oft að stuðningur við kvótakerfið sé
almennur, er það mál engan veginn
svo einfalt. Að sönnu er það rétt að
innan sjávarútvegsins hefur ótrúleg-
ur fjöjdi fólks komið til liðs við Hall-
dor Ásgrímsson og félaga við að
knýja fram kvótakerfið. Undir niðri
kraumar þó óánægjan. Má í því sam-
bandi minna á að fulltrúar heilla
landsfjórðunga, svo sem Vestfjarða
og Vesturlands hafa lýst yfir hreinni
andstöðu við kerfi þetta. Svipaða
Einar K. Guðfinnsson
„Þess vegna er það mis-
skilningur hjá Morgun-
blaðinu að orð Þor-
steins Pálssonar hafi
verið þröskuldur í vegi
samkomulags um fisk-
veiðisljórnun. Öðru
nær, eins og hér hefur
verið rökstutt. Orð
hans voru frumfor-
senda þess að einhver
von væri um að ná sátt-
um í gríðarlega erfiðu,
margslungnu og við-
kvæmu deilumáli.“
sögu má segja víðar frá og er
skemmst að minnast ályktunar
Grindvíkinga um þessi mál fyrir
skömmu.
Þess vegna er ljóst að þrætan um
fiskveiðistjórnunina heldur áfram.
Andstaðan við
auðlindaskatt
Um eitt eru menn þó sammála í
sjávarútvegi. Skiptir þá engu hvort
þeir koma frá Vestfjörðum eða Vest-
mannaeyjum, eru útgerðarmenn eða
fiskverkendur, sjómenn eða land-
verkafólk. Menn sameinast í and-
stöðunni við hvers kyns auðlinda-
skatt.
Sumir eru fljótir að gleyma. Það
er þess vegna kannski þörf á því að
rifja upp að Jón Baldvin Hannibals-
son var þeirrar skoðunar í fyrra að
leggja ætti á margra milljarða auð-
lindaskatt, til þess að stoppa upp í
- blessað fjárlagagatið. Og hafi menn
einhvern tíma verið einhuga, þá var
það í fyrra. Að mótmæla allir sem
einn, hvar og hvenær sem var, öllum
svona hugmyndum skýrt og skori-
nort.
Þetta kom til dæmis glöggt fram
á Fiskiþinginu í fyrra. Þar var sam-
þykkt ítarleg ályktun þar sem segir
orðrétt: „47. Fiskiþing mótmælir því
hugmyndum um auðlindaskatt og
telur þær byggðar á vanþekkingu
og feli í sér virðingarleysi fyrir sögu-
legum rétti starfandi aðila í sjávarút-
vegi.“
I sjö tölusettum atriðum eru síðan
tíunduð rökin gegn óskapnaðinum,
auðlindaskatti og vakin athygli á að
allar’félagsdeildir og fjórðungssam-
bönd hafi í samþykktum sínum vísað
hugmyndum um auðlindaskatt á
bug.
Forsenda sátta
Undir það skal tekið með Morgun-
blaðinu að mikilsvert er að leiða
þrætur um fiskveiðistjórnun til lykta.
I því máli gegnir Sjálfstæðisflokkur-
inn þýðingarmiklu hlutverki. En það
skulu menn ekki ímynda sér, að
grundvöliur slíkrar sáttar geti verið
að leggja auðlindaskatt á herðar
þess fólks og þeirra fyrirtækja sem
starfa að sjávarútvegi. Slíkar hug-
myndir eru ekki líklegar til sátta.
Sennilegra er að þær leiði til frekari
sundrungar.
Sátt um fiskveiðistjórnunina verð-
ur ekki til nema að henni komi hags-
munaaðilar, fólkið er starfar í sjávar-
útveginum. Þetta hljóta allir að
skilja. Menn leiða ekki mál af þessu
tagi til lykta nema í bærilegum friði
við það fólk sem á að búa við það
til frambúðar. Engum dettur til
dæmis í hug að setja saman nám-
skrá fyrir grunnskóla, nema kennar-
ar komi að því verki. Því hvarflar
vonandi ekki að neinum að bera
saman hugmyndir að fiskveiðistjórn-
un án þess að spyija það fólk ráða
sem á að vinna eftir því skipulagi
til framtíðar.
Þegar sjálfstæðismenn settust
niður til þess að ráða ráðum sínum,
varðandi fiskveiðistjórnunina, þurfti
það þess vegna að liggja fyrir alveg
kristaltært, hver skoðun Þorsteins
Pálssonar var varðandi auðlinda-
skattinn. Frá sjónarhóli sjávarút-
vegsins, kemur þessi skattheimta
ekki til greina. Hún er því engin
sáttaflötur. Spurningin sem svara
átti því strax var: Vill formaður
Sjálfstæðisflokksins koma til liðs við
sjávarútveginn, eða ljáir hann máls
á marga milljarða skattheimtu í
formi auðlindaskatts.
Þess vegna er það misskilningur
hjá Morgunblaðinu að orð Þorsteins
Pálssonar hafi verið þröskuldur í
vegi samkomuiags um fiskveiði-
stjórnun. Öðru nær, eins og hér hef-
ur verið rökstutt. Orð hans voru
frumforsenda þess að einhver von
væri um að ná sáttum í gríðarlega
erfiðu, margslungnu og viðkvæmu
deilumáli.
Höfundur er útgerdurstjóri í
Bolungarvík og varaþingmaður
Sjálfstæðisílokks fyrir
Vesttjarðakjördæmi.
EKKI PRÍLA!
NOTAÐU BELDRAY
Álstigarnir og tröppurnar frá
Beldray eru viðurkennd bresk
gæðavara - öryggisprófuð og
samþykkt af þariendum yfir-
vöidum.
Beldray er rétta svarið við vinnuna,
í sumarbústaðnum og á heimilinu.
Verðið er ótrúlega hagstætt -
gerðu hiklaust samanburð.
5 I
tm 'H
^ ]t*FA D i
m i\
\ Ú~L>~
* V ‘ J - Lé
1QHfö
Beldray fæst í byggingavöruverslunum og kaupfélögum um land allt.
EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON & CO HF. SlMI 24020
64.5cm 07.Ocm I09.5cm 132.0cm 154,5cm 177,Ocm
ÚTSflLA
don cano
Krumpugöllum
Jogginggöllum
Anórökum
og kuldaúlpum
30 til 50 % afsl.
Sendum í póstkröfu um allt land.
don ccmo - búóin
Glæsibæ - sími 82966.