Morgunblaðið - 05.10.1989, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1989
23
Japanar draga úr um-
deildum reknetaveiðum
Tókíó. New York Times.
JAPANAR hafa ákveðið að draga úr veiðum með gríðarstórum
reknetum, en talið er að þær hafi valdið því að ýmsir dýrastofh-
ar Suður-Kyrrahafs, svo sem sæfiiglar, selir og höfrungar, séu í
útrýmingarhættu. Þessar veiðar Japana hafa farið mjög vaxandi
á undanfornum árum og sætt mikilli gagnrýni á Vesturlöndum og
á meðal Suður-Kyrrahafsþjóða.
U mhverfisverndarsinnar,
vísindamenn og sjómenn hafa
haldið þvi fram að reknetin, sem
eru 50 km löng, hafi útrýmt nokkr-
um dýrategundum og ógnað
Færeyjar;
Flugvöllur-
inn án veð-
urþjónustu
Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
Veðurþjónustan á flugvellin-
um í Vogum í Færeyjum verður
lögð niður 1. nóvember nk. Er
ástæðan sú, að veðurfræðingur-
inn hefúr sagt upp störfúm og
ekki hefúr tekist að ráða annan.
Flugumferð um völlinn verður
hér eftir að reiða sig á veðurfrétt-
ir frá Kaupmannahafnarflugvelli
en Finnbogi Niclasen flugvallar-
stjóri segir, að það eigi ekki að
koma að sök. Flugvöllurinn í Vog-
um er með þeim minnstu, sem
notaðir eru fyrir millilandaflug, og
óvíða hefur veðrið meiri áhrif á
flugumferð en einmitt þar.
Suður-Afríka:
Blökkumenn
berást á bana-
spjót í Natal
Jóhannesarborg. Reuter.
INNBYRÐIS átök hafa blossað
upp meðal blökkumanna í Natal-
héraðinu í Suður-Afríku og hefúr
talsvert mannfall orðið í þeim.
Tvenn samtök stjórnarandstæð-
inga takast þar á um áhrif og
hefur það leitt til ofbeldisað-
gerða.
Reyndu leiðtogar fylkinganna að
semja um frið og meðan samninga-
viðræður stóðu yfir í júní og júlí
dró úr ofbeldi. Viðræðurnar urðu
árangurslitlar og þegar sýnt var
hvert stefndi í þeim brutust átök
út að nýju. Týndu 97 lífi í ágúst
og vitað er um a.m.k. 94 sem biðu
bana í september, en í júní og júlí
biðu samtals 34 bana.
fæðukeðjunni í hafinu. 15 Suður-
Kyrrahafsþjóðir hafa krafist þess
að Japanar hætti þessum veiðum
þegar í stað og bandarískir emb-
ættismenn hafa hótað að banna
innflutning japanskra sjávarafurða
til Bandaríkjanna haldi veiðarnar
áfram.
Ákvörðun Japana er ekki líkleg
til að binda enda á gagnrýnina á
reknetaveiðar þeirra. Japönsk
stjórnvöld hafa sagt að ekki komi
til greina að banna slíkar veiðar
fyrr en viðamikilli rannsókn á
áhrifum þeirra lýkur.
Samt sem áður verður bátunum,
sem stunda þessar veiðar, fækkað
niður í 20 á næstu vertíð, sem
hefst í desember. Bátarnir voru
20 árið 1987 en urðu rúmlega 60
á síðustu vertíð. Taiið er að þeir
hafi veitt 10.000 tonn af túnfiski,
eða helmingi meira en floti Nýsjá-
lendinga og 20 sinnum meira en
bátar Ástralíumanna.
Netunum er kastað á kvöldin
þegar fiskurinn kemur upp á yfir-
borðið. Þegar þau eru dregin um
borð á morgnana finnast oft í þeim
fuglar og sjávarspendýr, sem drep-
ast þegar þau reyna að sleppa úr
netunum.
ITOLSK
V I K A
í KRINGLUNNI
28. sept. - 7. okt.
ítalskar vörurÆfTískusýningar
TónlistÆf KaffihúsÆ? ítalskur
maturö Ferbakynningar U
ÖGetraun, vinningur: ferö fyrir
tvo til Ítalíú U
Ef þú ert í nánu sambandi
veistu hvar þú stendur
Þjónustusíminn veitir þér
upplýsingar um nýjustu
stöðuna á tékka-
bíða eftir reikningsyfirliti
eða hringja í bankann. Þú
hringir í síma: (91)
Ný staða strax kostar eitt
símtal og þú greiðir ekkert
þjónustugjald.
reikningnum og 20 síðustu
færslur. Þú getur hringt
hvenær sem er —• á nóttu
sem degi.
Einfalt, öruggt, þægilegt
Nú þarftu ekki lengur að
62 4141
og færð gefna upp nýjustu
stöðu strax. Hægt er að
hringja úr hvaða tónvals-
síma sem er — heima eða
erlendis.
Lykillinn að Þjónustu-
símanum er leyninúmer
sem þú velur í bankanum
þínum. Fáðu þér kynningar-
bækling og settu þig í
samband strax.
Vertu í beinu sambandi við Þjónustusímann og þú veist alltaf hvar þú stendur
B2 44 44
BEIIM LÍIMA
BAIMKA UM LAIMD ALLT
LANDSBANKINN ALÞÝÐUBANKINN ÚTVEGSBANKINN IÐNAÐAREANKINN
VERSLUNARBANKINN SAMVINNUBANKINN BÚNAÐARBANKINN
ÚTSÖLUMARKADUR
Kefst í dag kl. 13.00 aö Skipholti 11 (viö hliöina á Tonabíó)