Morgunblaðið - 05.10.1989, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTOBER 1989
33
Sinf6níuhliómsveitin í kvöld:
píanó
Einleikur á
I kvöld verða aðrir áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Islands
í Háskólabíói undir stjórn Petri Sakari, aðalhljómsveitarstjóra. Á
efnisskránni verða þrjú verk, hvert úr sinni áttinni.
Finnsk, ensk
og frönsk tónlist
Fyrsta verkið á efnisskránni er
eitt tónaljóða Sibeliusar, Finlandia.
Sibelius er ástsælasta tónskáld
Finna. Hann fæddist í lok ársins
1865 og lést 20. september 1957.
Hann stundaði nám í píanóleik og
fiðluleik í heimabyggð sinni. Því
næst hélt hann til Helsinki og skráði
sig þar í háskólann til náms í lög-
fræði en hætti því námi eftir eitt
misseri og sneri sér einvörðungu
að tónlist. Hann gekk í Tónlistar-
háskólann í Helsinki og nam þar
fiðluleik og tónsmíðar. 1892 gekk
hann að eiga Aino Jámefelt og upp
frá því sinnti hann eingöngu
tónsmíðum fram til ársins 1927 er
hann dró sig í hlé og settist í helg-
an stein. Finnar hafa heiðrað Sibel-
ius með margvíslegum hætti; stofn-
að tónlistarháskóla með nafni hans,
Sibeliusar-akademíuna í Helsinki,
nefnt listahátíðir eftir honum og
fleira mætti telja. í einu ferð sinni
til Bandaríkjanna var Sibelius gerð-
ur að heiðursdoktor í tónlist við
Yale-háskólann.
Finlandia er eitt þekktasta verk
Sibeliusar og eitt tónaljóða hans.
Hann samdi verkið aldamótaárið
1900 og Fílharmóníusveit Helsinki
frumflutti verkið undir hans stjórn
2. júlí það ár. Það varð strax tákn
sjálfstæðisbaráttu Finna, sem voru
þá undir stjórn rússneska keisara-
dæmisins. Verkið hafði svo sterk
áhrif meðal finnskrar alþýðu, að
keisarinn gekk eins langt og hann
gat til að banna það.
Annað verkið á efnisskránni er
Píanókonsert Benjamins Britten, sá
hinn eini sem hann skrifaði. Píanó-
konsertinn skrifaði hann fyrst 1938
en lauk við þriðja þáttinn 1946 og
var verkið frumflutt í Scheltenham
í Bretlandi 2. júlí það ár. Britten
stundaði m.a. nám í Royal College
of Music í London þar sem og marg-
ir íslendingar hafa stundað fram-
haldsnám. Benjamin Britten stofn-
aði meðal annarra Aldenborgar-
listahátíðina, þar sem mörg verka
hans voru frumfiutt, en hann var
búsettur þar og lést þar 1976. Eft-
ir Benjamin Britten liggur fjöldi
verka, óperur, sönglög, hljómsveit-
arverk og stofutónlist. Hann hlaut
margháttaða viðurkenningu heima
og erlendis fyrir störf sín að tónlist-
armálum og var meðal annars
fyrsta breska tónskáldið sem var
aðlað.
Síðasta verkið á efnisskrá tón-
leikanna er La Mer eða hafið eftir
franska tónskáldið Claude Debussy
og er í raun drög að þremur sinfón-
íum: De l’aube á midi sur la mer,
Jeux de vagues og Dialouge du
vent et de la mer. Verkið samdi
Debussy á þremur árum, 1903 til
1905, en hann lauk við smíði þess
á Englandi. Það var svo frumflutt
í París í október 1905.
Claude Debussy fæddist í ágúst
1862 og lést.í París í mars 1918.
Hann var nemandi Chopins, sem
bjó hann undir tónlistarnám í París.
Þangað hélt Debussy til tónlist-
arnáms 10 ára gamall. Þegar tímar
liðu aðhylltist hann stefnu impressj-
ónista og varð fyrir áhrifum af
franskri nútímaljóðlist og áttu þess-
ar stefnur eftir að hafa varanleg
áhrif á hann sem tónskáld. Vegur
Debussy til virðingar sem tónskálds
var þyrnum stráður og auk þess
lifði hann átakamiklu eink'alífí.
Hljómsveitarstjórinn og-
einleikarinn
Hljómsveitarstjórann á tónleik-
unum, Petri Sakari, þarf ekki að
kynna nánar; hann hefur á rúmu
ári sem aðalhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar sýnt að hér
Obbinn af rjómanum
Langi Seli og Skuggarnir hafa verið umsvifamiklir í islenska
rokkheiminum, en sveitin hefur þó ekki enn látið verða af því að
gefa út breiðskífu. Þess í stað hafa komið út tvær tólftommur sem
náð hafa allmikilli hylli.
Þegar þetta birtist hefur sveit-
in nýlokið við upptökur á breiðsk-
ífu sem fyrirtæki þeirra, Hálfur
heimur, gefur út í samvinnu með
Smekkleysu. Rokksíðan hitti þá
Sela, Komma, Steingrím og Jón
í Hljóðrita fyrir stuttu.
Það finnst mörgum löngu
tfmabært að Langi Seli gefi út
breiðskífu.
Já og okkur finnst það líka.
Þá getið þið hætt að spila
þessi lög.
Eða bara hætt!
Þið ætlið ykkur stuttan tíma
í að vinna plötuna, verður þá
ekki hrátt yfirbragð á henni?
Vonandi. Þetta er spilað beint
inn og svo unnin lágmarksvinna
eftirá, en það er samt ekki verið
að kasta til höndunum. Við höf-
um trú á því að það eigi betur
við tónlistina. Þetta hefur enda
allt gengið mjög vel, lögin eru
vel æfð og við leggjum mikið
uppúr samspili, það „swingar"
betur.
Kommi: Mér finnst leiðinlegt
að spila við taktmæli. Það er leið-
inlegasti maður sem ég þekki.
Hvenær er stefnt að útgáfu
og hver gefur út?
Við gefum sjálfir út í samkrulli
við Smekkleysu, ætli útgáfudag-
ur sé ekki um miðjan október.
Seli: Var það ekki korter yfir
þrjú þann sextánda?
Jón Skuggi: Ellefta.
Kommi: Á afmælisdaginn
minn, tíunda, væri gott.
Steingrímur: Nei, það var
þrettánda.
Seli: Við skulum bara segja að
hún komi út, punktur.
Hvað takið þið upp mikið af
lögum?
Tíu lög. Við látum það nægja.
Þetta er nú obbinn af rjómanum.
Er lagasafnið ekki orðið mikið
að vöxtum?
Það er svo skrítið með þetta
lagaprógram það er alveg sama
hvað við semjum mörg lög það
eru alltaf jafn mörg lög í pró-
gramminu. Þau detta bara út
sem við erum ekki fullsáttir við.
Eða tvö verða eitt.
Er svipað yrkisefni á þessari
plötu og hinum tveim?
Við erum ekki orðnir pólítískir
ennþá. En það má finna beittar
meiningar í textunum. Sérstak-
lega þeim sem við eigum eftir
að skrifa.
Það var mjög góð stemning
þegar þið spiluðuð á Rykkrokki
og því hefur verið fleygt að þið
séuð vinsælasta hljómsveit
Breiðholts.
Það er mjög gaman að spila í
Breiðholti við höfum spilað í
Fellahelli og krakkarnir eru mjög
skemmtilegir, eins og aðrir Breið-
hyltingar, hmm, Seli. En varðandi
vinsældirnar, þá stóð það í
Mogganum, og ekki lýgur Mogg-
inn.
Petri Sakari núverandi aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands.
er röggsamur stjórnandi á ferð,
enda að verða einn eftirsóttasti •
hljómsveitarstjóri á Norðurlöndum.
Finnski píanóleikarinn Ralf Goth-
oni hefur búið í Þýskalandi í rúman
áratug og getið sér gott orð sem
píanóleikari, bæði sem einleikari og
í stofutónlist. Gothoni er prófessor
í stofutónlist við Listaháskólann í
Hamborg og til skamms tíma var
hann listrænn framkvæmdastjóri
óperuhátíðarinnar í Savonlinna í
Finnlandi. Undanfarið hefur Goth-
oni æ meira snúið sér að tónsmíðum
og hljómsveitarstjóm.
Höfundur er kynnmgarfulltrúi
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Sj ómannafélag
Reykjavíkur:
Áhyggjur af
atvinnuör-
yggi farmanna
í ÁLYKTUN frá stjórn og tún-
aðarmannaráði Sjómannafé-
lags Reykjavíkur segir að í
vaxandi atvinnuleysi hér á
landi sé eðlilegt að stjórnvöld
stöðvi íslenskar kaupskipaút-
gerðir í leigutöku erlendra
kaupskipa sem mönnuð séu
erlendum sjómönnum.
Fundurinn lýsiryfir áhyggjum
sínum varðandi atvinnuöryggi
farmanna. Islenskum kaupskip-
um háfi fækkað á undanförnum
árum og þó það eigi einnig við
um erlend leiguskip, séu þau þó
enn í reglubundnum siglingum
að og frá landinu, auk leiguskipa
í tímabundnum verkefnum fyrir
íslenskar kaupskipaútgerðir.
Þá segir ennfremur: „Með til-
liti til þeirra viðræðna og þáttöku
íslendinga í samstarfi EFTA og
Efnahagsbandalagsins og þeim
breytingum sem á verða 1992
skorar fundurinn á stjórnvöld
að birta opinberlega stefnu sína
í atvinnumálum og þá m.a. hvað
varðar stærð, fjölda skipa og.
flutningsgetu íslenska kaup-
skipaflotans.“
SHIfl auglýsingar
¥ ÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 11 = 171510872 =
□ St:.St:. 59891057 VII
□ HELGAFELL 59891057 IV/V
2.
Seltjarnarneskirkja
Samkoma í kvöld kl. 20.30 á
vegum Seltjarnarneskirkju og
Ungs fólks með hlutverk.
Þorvaldur Halldórsson leiðir
söginn.
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn
Kirkjustræti 2
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Ragnar J. Henrikson tal-
ar. Foreldrar athugið að barna-
samkomur verða í dag og á
morgun kl. 17.00.
Allir velkomnir.
Samkomuherferð
í Bústaðakirkju
Tissa Weerasingha frá Sri Lanka
talar í krafti Guðs í kvöld
kl.20.30. Fyrirbænaþjónusta,
lofgjörð og tilbeiðsla.
Allir velkomnir.
Öll sem eitt,
samstarf kristinna
í Reykjavík.
Skipholt 50b, 2. hæð.
Samkoma i kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
AD KFUM
Ferð íViðey
Samvera i Viðeyjarkirkju með
altarisgöngu. Kaffiveitingar i Við-
eyjarstofu.
Brottför frá Sundahöfn kl. 20
stundvíslega.
I kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum, Hverfisgötu
42. Fjölbreyttur söngur. Vitnis-
burðir. Samhjálparkórinn tekur
lagið. Ræðumaður verður Bára
Friðriksdóttir.
Aliir velkomnir.
Munið opið hús á laugardag.
Samhjálp.
[Blj Útivist
Helgarferðir
í Landmannalaugar-
Jökulgil 6.-8. okt.
Gist í góðum skála við Land-
mannahelli. Á laugardag verður
ekið inn i Jökulgil og gengið um
litrikt og hrikalegt landslag frá
Hattveri i Laugar.
Fararstjóri: Egill Pétursson.
Nánari upplýsingar og farmiðar
á skrifstofunni, Grófinni 1, kl.
12-18. Simar 14606 og 23732.
Sjáumst!
Útivist.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir Ferðafélagsins
sunnudaginn 8. okt.:
Kl. 10.30 Hengill (803 m).
Ekið i áttina að Sleggjubeins-
skarði og gengið þaðan. Verð
kr. 1.000,-.
Kl. 13.00 Hengladalir.
Ekið að Kolviðarhóli og gengið
upp Hellisskarö og sem leið liggur
í Hengladali. Komið til baka um
Sleggjubeinsskarð. Verð kr. 800,-.
Borttför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bil. Frítt fyrir börn að 15 ára aldri.
Ath.: Fyrsta myndakvöldið
verður miðvikudaginn 11. okt.
kl. 20.30 í Sóknarsalnum, Skip-
holti 50a. Myndakvöld Ferðafé-
lagsins eru eins og fyrr, bæði til
fróðleiks og skemmtunar.
Ferðafélag íslands.
WLennsla
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.